Vísir - 06.12.1933, Side 3

Vísir - 06.12.1933, Side 3
VISIR Nýtt merkisrit. Saga Eiríks Magnússonar, eftir Stefán Einarsson. Reykjavík 1933. Eiríkur Magnússon ól mestan Srluta aldurs síns erlendis, í raun- inni alt frá því aiS hann varS full- tí'öa maSur. Eigi aS síöur var hann þó í hálía öld einn þeirra manna :sem allra mest bar á í islensku þjóiSlífi og nafn hans var á hvers manns vörum. Um þvert og endi- langt ísland var varla þaö barn -cr komiö væri til vits og ára, aS eigi Ikynni það aS nefna „meistara Eirík.“ Hann átti hér andstæðinga og þar á meöal þá, sem síst verha til smámenna taldir; en hversu hamrammir andstæöingar hans sem jþeir voru, efast eg þó um atS nokk- nr þeirra hafi veriS fjandmaöur hans. Vini og dáendur átti hann ;um alt. Þó aö viö vissum nú ekk- crt um hann annaö en þetta, þá myndi þaö æriö nóg til þess aö viö skilduml það, að hann var ekki neinn meðalmaður, heldur mjög svo óvenjulegur maður. Það er sannast að segja, að Ei- ríkur Magnússon var einn af1 allra •gáfuðustu og glæsilegustu skör- ungum íslendinga á 19. öldinni, sem þó var svo óvenju auðug að miklum mönnum og merkum. Það er þvi ekki að undra þótt margur lúði æfisögu hans með mikilli ó- þreyju frá því er þaö vitnaðist, að farið væri að rita hana. En sú •óþreyja mun þó hafa, verið bland- in nokkrum kvíða hjá fjölda manns, og sannarlega var hún það lijá þeim, er þessar línur ritar. Það var í sjálfu sér mikið vanda- verk að rita sögu Eiríks vegna þess, hve harðsnúinn og margvís- íegan þátt hann tók í þeim málum, >er mest skiftu mönnum í flokka, «og vegna þess, hve sorglega hon- um lenti saman við annan afburða- mann þjóðarinnar á bæði íslensk- 11 m og erlendum vettvangi. Ofan á þetta bættist, að sá sem rita átti söguna, var náfrændi Eiriks og ritaði fyrir honum enn þá náskyld- ari menn. Það mátti undur heita •ef hann kæmist vel frá slíku verk- <efni, hversu hugðnæmt sem það íinnars var í sjálfu sér. Eg tók bókina til lesturs undir «ins og hún kom út. En þó að eg byrjaði meö nokkrum kvíða, gat <eg ekki slitið mig frá henni fyr en eg hafði lokið við hana og hafði hún ]iá kostað mig nálega heila vökunótt. ■ j |j|| Ekki er bókin gallalaus freniur ■en önnur mannanna verk yfir höf- uð. Ymislegt er ósagt, sem les- andann langar til að fá að vita. En vafamál er hvort þetta má telj- ast til galla, því einhver takmörk varð höfundurinn vitanlega að setja sér og óskemtilegir eru þeir skrifarar, sem verða aö setja á pappirinn alt það er þeir vita. Smíðalýti eru það, að höfundurinn vitnar stundum til þess, sem ,,áð- tir segir,“ enda þótt það, sem hann ú þá við, hafi alls ekki verið áður sagt, heldur aðeins að því vikið cða komið í námunda við það. En svo endurtekur hann sig stundum að þarflaus.u. Þá er og þýðingin á erlendum orðum stundum svo ónákvæn-, að nærri stappar að rangt megi heita; en bót er það, að allu,- þorri lesenda mun skilja erlendu orðin. Alt eru þetta hrein- ir smámunír. Sama er að segja um inállýtin. Þau mættu að vísu missa sig, en þau eru færri en nú tíðk- ast í íslenskum bókum, og yfir- höfuð er máfið á sögunni gott. En kostirnir eru alt annað en smámumr. Þeir eru svo stórkost- legir að þær eru víst ekki margar íslensku æfisögurnar frá síðari tímum, sem alls og alls standi þessari jafnfætis. Hún er fjörlega og skemtilega rituð og hún ?er gtysilega fróðleg. En þaö sem prýðir hana allra mest og lang- rnestan sóma gerir höfundinum, er sú merkilega óhlutdrægni og hrein- skilni, sem hann virðist hafa gert sér að leiðarstjörnu. Þessi fágæti og mikli kostur prýöir bókina frá upphafi til enda. Engum er hlíft við vitnisburði sannleikans og eng- inn er skreyttur með ódýru selst- sem-gulli órökstuddrar lofdýrðar. Hvort heldur það er sjálf sögu- hetjan eða hinir leikendurnir á sviðinu, þá verða þeir allir að korna til dyranna eins og þeir eru klæddir, hver og einn meö ágæti sitt, ófullkomleika og bresti, Hættulegasta skerið á þessari leið var að sjálfsögðu þáttur Guðbands Vigfússonar. En jafnvel ekki á þessu skeri mun verða sagt að höfundurinn steyti. Það liefði lika verið hörmulega léiðinlegt ef tilraun ’nefði verið gerð til þess að hefja Eirík á kostnaö Guðbrands. Báðir voru afburðamenn og ágæt- ir, en báðir höfðu mjög verulcga ágalla, sem ekki varpa lengUr skugga á frægð þeirra. Eiríkur er tvímælalaust þeirra glæsilegri, en í flestra augum ætla eg að Guö- brandur verði stórfenglegri. Það cr aldrei nein mærðarfroða i því, sem Halldór Hermannsson segir, og vanur er hann að vega orði sín. Dómur hans um Guðbrand í nýj- asta bindinu af Islandica er stutt- orður, en þar er hvert orð óðru sannara, og undir þeim steini má Guöbrandur vel sofa. Bók sú, sem hér um ræðir, er ekki um Guðbrand, 0g það væri varla sanngjarnt að ætlast til þess, að mikilleiki hans kæmi þar í ljós. En eftir þetta myndi margur óska þess, aö Stefáni Einarssyni gæfist tækifæri til þess aö gera Guð- brandi sömu skil og hann hefir nú gert Eiríki, því þótt eitt sinn hafi verið merkilega um hann rit- að á íslensku, þá er nú miklu við að bæta. Iívergi í víðri veröld ríður ís- landi eins á að eiga góðan fulltrúa eins og á Bretlandi. Þá átti það íþar mikiliúðuga fulltrúa er þeir vom þar tveir þessir frábæru menn, er með yfirburðum sinum heilluðu hina bestu menn þeirrar þjóðar, sem sist er uppnæm fyrir smámunum. Við stöndum ber- skjaldaðri þar núna en þá gerðuni við. Dálitið barnalega er það talið upp í formála bókarinnþr, hve margir „meistarar“ hafi lesið prófarkirnar (sbr. „Meistarar, sjö, eg mæla kann“). Ekki hefir þó lesturinn tekist svo, að óaðfinnan- legur sé, og honum á sennilega að kenna um „Annie Johnston" (bæði i texta og registri). En fyrri kona A. W. Johnstons hét Amy, og ]tað et leiðinlegt að sjá hana rang- nefnda i íslensku riti. Svo mikiö eigum við íslendingar þeirri ágætu konu að þakka (eins og líka manni hennar), að nafn hennar ættum við að muna. O jæja, við gleymdum Rask í fyrra, og ætli við gleymum ckki Morris að ári? Hafi þeir allir þökk, sem á einn cða annan hátt hafa að því stuðlað, að bók þessi er orðin til. X. Ný ljóíabók. —0— Eg heilsa þér, heitir ljöðabók, sent kemur á markaðinn í dag efitr Guðmund Daníelsson frá Guttormsliaga. Höfundurinn er ungur maður, að eins 23 ára, og nemandi í Kennaraskólanum. Það verður að vísu ekki sagt, að kvæðin í þessari bók séu heilsteypt og gallalaus, og er þess varla að vænta um svo ungan mann. Hitt er fremur á að líta, að í bókinni kemur víða fram djarfmannleg hugsun og skemtileg og skáldleg tilþrif. Eru því fullar líkur til að liöf. sé gæddur góðum liæfileikum lil skáldskapar. Því er þess að vænta, að bókinni verði vel tek- ið og mun margur hafa vak- andi auga á þessum unga manni upp frá þessu. Jón Magnússon. Veðrið í morgun. Hiti i Reykjavík 5 stig, ísafirði 4, Akureyri o, Seyðisfirði 2, Vest- mannaeyjum 6, Grímsey 1, Stykk- ishólmi 4, Blönduósi — o, Raufar- höfn o, Hólum í Hornafirði 4, Grindavík 7, Færeyjum 4, Jan Mayen o, Angmagsalik 5, Juliane- haab 6. (Vantar skeyti frá öörum enendum stöðvum). Mestur hiti í Reykjavík í gær 8 stig, minstur 4. Úrkoma 0,2 m.m. Yfirlit: Há- þrýstisvæði frá íslandi til Noregs.. Nærri kyrstæð lægð suðvestur í hafi. — Horfur: Suðvesturland: Stinnings kaldi á suðaustan. Dá- lítil rigning. Faxaflói: Suðaustan og austan gola. Úrkomulaust að mestu. Brteiðafjörður, Vestfirðir, Norðurland, noröausturland og Austfirðir: Hægviðri. Þurt og víða bjart veöur. Suðausturland: suð- austan gola. Dálítil rigning. Kvennadeild Slysavamafélags ís- lands heldur fund í kveld (mið- vikudagj kl. 8)4 í Oddfellow-hús- inu. A dagskrá eru félagsmál. Nýja hljómsveitin leikur. Veiting- ar. Félagskonur fjölmennið og hvetjið þær -af kunningjakonum yðar, sem enn eru ekki komnar í deildina, að koma í kveld. Allar konur sem kynnast vilja félags- skapnum og styðja hann eru vel- komnar á fundinn. Skip Eimskipafélagsins. Gullfoss fór frá Leith í gær áleiðis til Vestmannaeyja. Goða- foss kom til Hull í gær. Brúarfoss er væntanlegur í fyrramálið að vestan. Dettifoss kom hingað í gærkveldi frá Hull og Hamborg Lagarfoss er á Akureyri. Pétur Á. Jónsson heldur 4. óperuhljómleika sína í Gamla Bíó annað kveld. Á söngslcránni eru lög eftir Bi- zet, Puccini, Leoncavallo og 3 lög úr óperunni Tiefland, eftir D’Albert. Hafa þau aldrei ver- ið sungin hér áður. x. 50 ára er í dag Karel Hjörtþórsson bílstjóri, Óðinsgötu 18B. Farþegar á Dettifossi frá útlöndum voru Geir Zoéga útgerðarmaður, ungfrú Regína Jónsdóttir og Ingólfur Hinriksson. Aflasala. J\ Botnvörpungurinn Garðar hefir sclt afla, ísfisk og saltíisk, fyrir 880 stpd. Senn koma jólin. Jóíabazarínn opnuðum viö á mánudaginn. Iðnaðarmannafélaglð í Reykjavík. Fundur verður haldinn í bað- stofu félagsins á morgun, fimtu- daginn 7. desember, kl. 8J/2 sið- degis. Fundarefni: Erindi frá Landssambandi iðnaðarmanna. Stjórnin skýrir frá gerðum sin- um. Fyrirlestur með skugga- myndum um líf óg gerð steina, Helgi H. Eiriksson. Önnur mál. Þar sem þetta verður vænt- ánlega síðasti fundur fyrir jól og þar koma fram merkileg máí og fróðlegt erindi, væntum vér þess að félagsmenn fjöl- ménni. Skrantritnn á hvað sem er, fljótt og vel af liendi leyst á Barónsstíg 65. Hafnfirðingar! Snúið ykkur til Bened. Friðrikssonar, Strand- götu 50. E.s. Lyra kom frá Noregi í gær. E.s. Esja íer í strandferð þ. 11. þ. m. I ðuaðarmannaf élagið heldur fund í baðstofu sinni annað kveld kl. 8J2. Sjá augl., sem birt er í blaðinu í dag. Verslunarmannafélag Reykjavíkur heldur fund annaö kveld kl. 8)4 í Oddfellowhúsinu, uppi. Sjá augl. Kópur fór vestur í gær og tekur þar bátafisk til útflutnings. Gengið í dag. Sterlingspund.......kr. 22.15 Dollar .............. — 4,35 100 ríkismörk þýsk. — 160,19 — frankar, frakkn. . — 26,50 —* belgur .............— 93,84 — frankar, svissn. . — 130,72 — lírur.............. — 36,06 — mörk, finsk .... — 9,93 — pesetar ........... — 55,93 — gyllini ........... — 271,54 — tékkósl. kr......— 20,37 — sænskar kr.......— 114,41 — norskar kr.......— 111,44 — danskar kr.......— 100.00 Gullverð ísl. krónu er nú 55,17 miðað við frakkn. franka. Einingarfélagar og aðrir templarar eru beðn- ir að muna afmælisfagnaðinn í kveld kl. 8y2. Aðgöngumiðar af- lientir í Góðtemplaraliúsinu til kl. 8. Skógarmenn K. F. U. M. halda fund í kveld kl. 8V2. Sbr. augl. Eggert Stefánsson söng i Gamla Bíó i gærkveldi og' lék Páll ísólfsson undir. — Söngskráin var nærri liin sama og síðast og var það eftir ósk margra sem þá lilýddu á söng Eggerts. Eggert liefir aldrci sungið betur en á þessu hausti, raddmýkt, fylling og’ tilþrif mikilfengleg og blómvendir hti :fr n:n E.s. Esja fer liéðan austur um land mánudaginn 11. þ. m., kl. 8 síðd. Tekið verður á móti vörum ó föstudaginn kemur. E.s. Lyra fer liéðan fimtudaginn 7. þ. m., kl. 6 síðd. til Bergen um Vest- mannaeyjar og Thorshavn. Flutningur tilkynnist fyrir há- degi á fimtudag. Farseðlar sæk- ist fyrir sama tíma. Nle. Bjarnason & Smitb. 10-15% afsláttur verður gefinn af 50 dömukáp- um næstu daga. Kápurnar eru úr alull, dökkar og saumaðar hér. Komið áður en þær falleg- ustu verða farnar. Slgnrðnr Guðmnndsson. Laugavegi 35. — Sími: 4278. Best skorna neftóbakið fæst á Grundarstíg 1, 12 kr. */z kg. Inngangur i forstofuna, uppi. lófatak og framkallanir aS launum, en það eru líka öll þau laun, sem söngmenn fá hér nú orðið, þvi hér er öld snúið og örlögum rent. Fólkið virðist flest annað frekara vilja en hlusta á söng. Framúrskarandi söngvara eigum við ekki marga, en jafnvel þeir verða að sýna litillæti sitt i því, að syngja yf- ir tómum bekkjum. Og liart mó það vera aðgöngu fyrir þó, sem leita sér lífsbjargar í þeirri list# að þurfa að gefa með sér kann- ske svo hundruðum króna skift- ir, í hverl sinn. Hver er orsökin? R. J. Útvarpið í dag. 10,00 Veðurfregnir. 12,15 Hádegisútvarp. 15,00 Veðurfregnir. Endurtekning frétta o. fl. Þingfréttir. 19,00 Tónleikar. 19,10 Veðurfregnir.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.