Vísir - 06.01.1934, Side 4
V í S I R
„Tpú og sannanip((.
Mér nægir ein sönnun, mín sönnunar „trú“ —
um „sannanir" hiríSi eg ekki — ;
sú trú gafst mér ungum, mín eign er hún nú,
mín eilífu forlög eg þekki.
Meö „sönnunum" hyggjast þeir auka gutSs orö,
því andamir sál þeirra blekkja,
svo hafa þeir týnt sannri trú fyrir borö — s
að trúa er sama og þekkja.
Frá æsku þeir hyggja sig allt hafa þekt,
sem áSur til fræöslu var ritaÖ;
en meö þeirri hjátrú þeir hafa sig blekt,
þvi hvaö fá án trúar þeir vitaö?
Þeir vita’ ekki aö drambsemin dylst þeim í sál:
um „dymar“ þeir vilja’ ekki ganga;
svo veröur öll „spekin“ þeim villa og tál,
á veginn þá leiöir hinn ranga.
B J.
Blaðasala
á öOtnnnm.
Frá formanni bamaverndar-
nefndar Reykjavikur hefir bla'ö-
inu borist eftirfarandi gtein til
birtingar, um reglur þær er nefnd- j
in hefir sett um blaöasölu og bóka '
á götum úti.
Það inun hvergi tíökast í ná-
lægum löndum að börn hafi blaða-
eöa bókasölu á hendi, síst á göt-
um úti; i Englandi er blaðasalan i
beinlínis skipulögð, þannig, að
hver blaðsali, sem vitanlega eru
aðeins fullorðnir menn, þar eins og
annarsstaðar erlendis, hafa hver
sitt ákveðna svæði fyrir sig, þar
sem þeir mega selja blöð sín og
bækur. Hér hefir þessu verið
öðm vísi farið og svo er enn. Nú
hafa verið gefin út lög og reglu-
gerð er nýlega samin og staðfest,
sem ætlast er til að geri breytingu
á þessu nú um áramótin og er
Barnaverndarnefnd Reykjavikur
falið að hafa hönd í bagga með
slikri sölu framvegis hér í bæn-
um.
Síðan blaða- og bókasala hófst
hér á götum úti, heíir fjöldi
barna, þ. á. m. stúlkubörn, jafn-
vel s—6 ára að aldri, næstunr dag-
lcga sést hér ráfandi um göt-
urnar, klæðlítil, köld, með blaða-
ströngla undir hendinni í hvaða
veðri sem er, hröklast til og frá
fyrir bíla- og mannauinferö,
stimpast hvert við annað, með
hávaða og gauragangi. Oft og ein-
att hafa svo þessir vesalingar
orðið að hörfa undan einhvcrri
bylgusunni eða helliskúrinni inn i
næsta anddyri húsa eða verslunar-
búða til að leita sér skjóls, en
margoft verið hraktir þaðan út á
götuna aftur. Æði oft hafa börn-
in verið látin hrópa upp fjnir-
sagnir greina þeirra og ritgerða
sem í blöðunum hafa -staöið, og
hafa þær ekki ávalt verið fagrar.
Heiðarlegar undantekningar hafa
þó verið á þessu.
Má af þessu sjá, að blaðasala
barna hér í bænum heíir veriö
stórhneykslanleg og síst af öllu
vel til þess fallin að vera gotí
uppeldismeðal fyrir þau.
Nú iiefir barnaverndarnefndin
hugsað sér að reyna að ráða ein-
hverja bót á þessu og hefir því
ákveðið, að fyrst um sinn megi yf-
irleitt ekki yngri börn en io ára
að aldri hafa blaða- og bókasölu
á hendi, og ekkert þeirra án leyfis
og samþykkis foreldra þeirra eða
aðstandenda.
Börnin fá merki, sem þau bera
á brjósti sér. Auk þess fá þau
skírteini, sem sýna á, og sanna, að
þau hafi leyfí nefndarinnar til að
selja blöð og bækur á götum úti.
Nefndin skrásetur nöfn bamanna,
heimilisfang, fæðingardag og ár,
ásamt nöfnum foreldra og að-
standenda í sérstaka bók og hefir
hvert sölubarn sitt ákveðna tölu-
merki á skírteini sínu og í skránni,
en afrit af henni verður í vörslum
lögreglustjóra.
Sölubörnum er bannað að aug-
lýsa söluna með því að seg'ja frá
innihaldi blaðanna og bókanna,
einstakra fyrirsagna, greina eða
ritgerða, sem í þeim kunna að
birtast. Nefndin telur óhæfilegt að
sölubörn eða aðrir, hrópi út til al-
mennings fyrirsagnir greina og
ritgerða, sem eru hneykslanlegar,
særandi fyrir einstaka menn, fé-
lög og stofnanir o. s. frv. Það
lýsir ekki miklum menningar-
þroska þjóðarinnar, að láta fólk,
scm um göturnar gengur, heyra
siíkan óþverra.
Nefndin gengur þess ekki dulin,
að ráðstafanir hennar í þessu efni
muni mæta einhverjum misskiln-
ingi og mótþróa hinna eldri —
enda er oftast því að venjast með
flestar nýjungar þótt til umbóta
horfi — en hún væntir þess, að
allir góðir menn styðji böniin í
starfi þeirra, og að enginn leggi
Stein í götu fyrir þau, enda er
það sem hér er um að ræða, gert
öllum hlutaðeigendum til góðs, en
engum til meins eða miska. Nefnd-
in vonar, að með þessari tilhögun
sé gerð tilraun til bctri og ineiri
reglu í blaða- og bókasölu bama
á götum úti hér í bænum cg jafn-
framt að börnin sjálf telji sér sómi
í því ger, að þau geta nú sýnt
þess vott opinberlega, með merki
sínu og skírteini, að þeim, yngstu
borgurum bæjarins, séu falin trún-
aðarstörf, sem mikils sé varðandi
fyrir þau og aðra, hvemig þau
eru af hendi leyst.
Blaða- og bókasölubörnin eiga
þar athvarfs og skjóls að leita,
sem barnavemdarnefndin og lög-
regla bæjarins er, en tnega búast
við því, að ef þau breyla út af
fyrirmælum nefndarinnar, þá verði
þau svift söluleyfinu.
Reykjavík, 29. des. 1933.
F. h. bamaverndarnefndar Rvíkur.
Jón Pálsson,
p. t. form.
Norskar
loftskeytafregnir.
Oslo, 5. jan.
NRP. _ FB.
VerkalýðsfiokksmaSur ásakaður
um óheiðarleg „fjáraflaplön“.
Edward Mörk, verkalýðsflokks-
maður. hefir orðið að hverfa frá
Kildebo útungunarvélar hafa selst meira hér á landi
en nokkur önnur tegund, sökum sinna framúr-
skarandi útungunarárangra samfara afar lágu
verði.
Kildebo er mjög auðvelt að passa, sökum þess að liita-
stillirinn er afar öruggur og heldur hitanum jöfn-
um, og sjálfsnúari er snýr öllum eggjunum í einu.
Kildebo er mjög steinolíuspör og er því mjög ódýr í
notkun.
Ef þið riljið fá marga og hrausta unga, þá kaupið
Kildebo.
Kildebo verksmiðjan framleiðir útungunarvélar frá
100 eggja stærð upp í alt að 10 þúsund eggja. Enn-
fremur fósturmæður og annað er nð fuglarækt
lýtur.
Mynda- og verðlistar sendir þeim er óska.
Jóli. Ólafsson & Co.,
Símn.: Juwel. REYKJAVÍK. Sími: 1630.
Aðalumboðsmenn á íslandi fyrir:
„Kildebo“ Rugemaskinfabrik, Sorö.
KILDEBO
ÍÍlll!EIIIIIIKiia!IiIB!lKK!»ilKil!B!ISIIEHEI!!IISIilBlIIIIKIIiIIIII!IIIIIIIIIIIII!Í8l
störfum sínum fyrir bæjarfélagiö i
Oslo, vegna ásakana, sein Slaatta
húsameistari heir borið fram.Mörk
hefir, að því er Slaatta segir kraí-
ist hluta af þóknun hans frá
„Kampens. Bygningsselskap", en í
því er Mörk formaður. — Mörk
hefir tilkynt, að hann muni höfða
mál á hendur húsameistaranum.
Áfengisbrotum fækkar í Oslo.
Samkvæmt . skýrslum lögregl-
unnar í Oslo hafa brot framin at
ölvuðu fólki minkað úr 13.380 i
12.504 árið sem leið.
Nýtt mótorskip fer reynsluferð.
Nýtt mótorskip, „Toulouse“,
eign Wilhelmsens útgm. fór
reynsluferð í gær og gekk ágæt-
lega. Skipið náði 17 tnílna hraða.
Leiðangur Balchens og Ells-
I worths.
Samkvæmt Sjöfartstidende er
skip Ellsworths og Balchens kom-
ið út úr ísbreiðunni eftir 12 daga
og er nú í 400 mílna fjarlægð frá
Hvalflóa. Balchen meiddist, þegar
skipið rakst á jaka. Slengdist
hann á vegginn í stýrisklefanum
og meiddist á eyra og hægri hand-
legg.
Landskjálftar 1932.
Þess er getið i ársyfirliti því
um veðurfar á íslandi 1932, sem
Veðurstofan hefir samið og gefið
út, að landskjálftamælarnir hér
hafi sýnt 97 liræringar á árinu.
Þess er jafnframt gétið, að 83
þessara hræringa hafi átt' „upptök
á íslandi eða í námunda við það“.
„Mest kvað að landskjálftum 2.
nóvember; varð þá vart 34 hrær-
inga, og jæssu næst 17. apríl, 20
hræringa. Flestir áttu landskjálít-
ar þessir upptok á Reykjanesskag-
atunn eða þar í nánd, 7 á Suður-
landi, 70)—120 km. frá Retykja-
vík, jiar af 4 í janúar. Um
upþtök 3 hræringa j>. 29. sept. er
cigi anuað kunnugt, en að ]>au
voru 135 km. írá Reykjavík. Af
14 landskjálftum, sem koniu lengra
að, áttu.4 (13. febr., 14. apríl og
2. og 5. ágúst) upptök suðvestur t
Atlantshafi 1000—1200 km. frá
Reykjavík, en upptök hinna 8 voru
íjarlægari“.
Flestir voru landskjálftakippir
þessir vægir og vafalaust hefir
allur almenningur alls ekki orðið
var við suma þeirra eða jafnvel
meirihlutann.
IBIllllflHllllllllilllEIIIlEIIIIIIIIIIIIg
Gúmmístimplar
eru búnir til í
Félagsprentsmiðjunni.
Vandaðir og ódýrir.
TILKYNNING
UNOLST. UNNUR. Fundur á
morgun kl. 10 f. h. Skýrt frá
jólafagnaði. (93
Sá sem lók skiðasleðann í
portinu hjá Daníel Ólafssyni
bakara, er beðinn að koma hon-
um þangað strax aftur. (88
Ljósmyndastofa Alfreðs er á
Klapparstig 37 (milli Grettisgötu
og Njálsgötu. Sími: 4539. (478
I
1
LEIGA
Lítið kjallarapláss (verk-
stæðispláss) helst í mið- eða
austurbæ, óskast. Tilboð leggist
inn á Vísi, merkt : ..Verkstæði'
(98
[ KAUPSKAPUR | Glænýtt, íslenskt smjör, súr sundmagi, hvalur, hákarl, hangikjöt og íslensk jarðepli- Verslun Rr. J. Hagbarð. (90
Mjög Ijúffengt saltkjöt, gul- rófur og Viktoríubaunir. Versl- un Kristinar J. Hagbarð. (89
Bætiefnaríkustu eggin fáið þér með að hringja í sima 2397. — Kænsnabúið Bjargi. (539.
| VINNA { Stiilka óskast á litið heimili í Grindavík. Uppl. hjá Ingibjörgu Jónsdóttur, Klapparstíg 10. (92
Góð stúlka óskast í vist nú þegar á barnlaust lieimili. Uppl. Bergstaðastræti 64. (103
Geng í hús og krulla. Einnig heima. Guðfinna Guðjónsdóttir, Aðalstræti 9. Sími 2048. (102
Stúlka óskast í vist liálfan daginn. Tvent í heimili. Uppl- hjá Gísla Halldórssvni, Baróns- stíg 49. * (100-
Unglingsstidka óskast. Soffía Guðlaugsdóttir, Kirkjustræti 10. (97
Stúlka óskast í vist. Njáls- götu 82. (46
Þvottahús Kristínar Sigurðar- dóttur, Hafnarstræti 18. Sími 3927. (68
| HÚSNÆÐI | Stofa með sérinngangi, ljósi. liita og ræstingu til leigu fyrir reglusaman mann. Verð 40 kr. Sími 4940. Nýlendugötu 15. miðhæð. (104
Gott bílstæði til leigu nú þegar. Uppl. í síma 2985. (101
Þægindaíbúð óskast frá 1 maí, 2 herbergi og eldhús. Til- boð, merkt: „ABC“, sendist afgreiðslu blaðsins fyrir 10. þ. m. (99
Gott kjallarahei’bergi til leigu með ljósi og hita. Uppl. í sírna 3388, í miðbænum. (96
2 herbergi og eldliús óskast til leigu i austurbænum nú þeg- ar eða 14. þ. m. Tilboð, merkt: „Trygg leiga“, sendist afgr. Vís- is fyrir 10. þ. m. (95
Herbergi með miðstöðvar- hita, óskast til leigu. Tilboð, merkt: „B“, sendist afgr. Vísis, (77
Forstofustofa til leigu á Laufásvegi 27. Uppl, eftir kl., 6 y2 e. h. (106
| TAPAÐ-FUNDIÐ ( Upphlutsskyrtuhnappur hefir tapast. Finnandi geri aðvart í síma 3981. (91
Rauður Lindarpenni (Parker Duofold) tapaðist 2. þ. m. Uppi. á afgr. Vísis. (9-4
Gullarmband tapaðist um áx’amótin. Fundarlaun. A. v. á. (107
Skíðasleði i óskilum á Lauf- ásvegi 27. (105
FÉLAGSPRENTSMIÐJAN.
\