Vísir - 07.03.1934, Side 2
É)) Marom » Olsihm ÍI!Í
Danskar
Hollenskar
Norskar
____VlSIR______________
Afkoma ríkissjöös
Símskeyti
Berlin, 6. mars.
Unitcd Press. — FB.
Hagiir þýska ríkisbankans.
Samkvæmt skýrslu Rikis-
bankans fyrir árið 1933 var liag-
ur af rekstri bankans 63.3 milj.
rikismarka minni 1933 en 1932
eða 186.7 milj. rm. Tilkynt hef-
ir verið, að ágóðahluti hafi ver-
ið ákveðinn 12%.
Amsterdam, 6. mars.
United Press. — FB.
Gullforði Hollandsbanka.
Tilkjmt hefir verið, að út-
streymi gullforða Hollands-
banka liafi nú stöðvasl. Gull-
forði bankans er nú 792.7 milj.
gyllina.
Madrid, 7. mars.
Frá Spáni. Lerroux flytur ræðu á
þingi.
í rae'Su þeirri, sem Lerroux flutti
i gær á þingi, til þess aö gera
grein fyrir stefnuskrá hinnar nýju
stjórnar sinnar, lofaði hann ná-
inni samvinnu við |>jóSj)ingið í öll-
um málum. Einnig lofaSi hann
almennri sakaruppgjöf pólitískum
föngum til handa þ. 14. apríl.'á af-
ínæli' lýöveldisins. Lerroux hvatti
þingmenn eindregið til þess að
styðja minnihlutastjórnina og
lauk máli sínu með j>vi að segja.
að hann myndi fara frá ]>egar og í
Ijós kæmi. að hann nyti ekki
trausts forsetans og almcnnings i
landinu. (United Press. — FB.).
Lissabon, 7. mars.
Stjórnin í Portúgal bannar verk-
föll og verkbönn.
Ríkisstjórnin í Portúgal hefir
gefið út tilskipun jress efnis, að
atvinnurekendum er hannað að
stofna til verkbanna og verka-
mönnum til verkfalla, að viðíögð-
um þungum sektum og fangelsi.
Segir i tilskipuninni, að atvinnu-
rekendur og verkamenn sem valda
atvinnu og víðskiftalífstjóni með-
a! þjóðarinnar með verkbönnum og
verkföllum megi dæma í alt að
100.000 escudos sekt og tíu ára
fangelsi. (United Press —- FB.).
Utan af landi,
—o—.
Ólafsvík, 6. inars. I'tj.
/Flöskuskeyti.
Flöskuskeyti fann Adolf Ás-
björnsson frá Olafsvík í gær rek-
ið á fjörum vestan við Ólafsvikur-
enni. Skeytið var merkt: nr. 78 frá
vísindastofmminni Yakutsk og
haföi }>ví verið varpað i sjó við
Siberiuströnd árið 1927.
Aflabrögð.
Sæmilegar gæftir og ágætur
afli var á Sandi og i Ólafsvík síð-
astliðna viku. Aður var gæftaleysi
og afli mjög tregur. Allir bátar úr
þessum veiðistöðvum voru á sjó i
dag.
Húsavik, 6. mars. FU.
Skemtun.
Skólabönt hér héldu skemti
samkomu fyrir almenning í gær-
kyeldi. Skemtunin var í 8 flokkum,
þannig að liver bekkur var út af
fyrir sig, með sjálfstæð skemtiat-
riði. í barnasksólanum eru 7 bekk-
ir og unglingadeild. Skemtunin var
jafnframt einskonar próf á þroska,
leikni og lærdóm barnanna.
Skemtiatriðin voru ræður, upplest-
ur, söngur, litill sjónleikur, álfa-
dans með skrautljósum, samtals-
leikur og fleira. Skemtun þessi fór
vel frarn, enda mjög vel undirbú-
in. Ágóði af skemtuninni gengttr
til bókasafns barnaskólans.
(frindavík, 6. mars. FU.
Afalbrögð. í
Aliir bátar hér i Grindavík réru
i nótt. Sjóveður var ágætt, en
íiskur mjög tregtir, 2—3 sk]>. á
bát.
Sex bátar ttr Keflavik réru í
nótt. en engir úr Njarðvíkum.
Bátarnir voru að koma að um miö-
aftansleytið í dag, og var þá ekki
kunnugt um afla. Veðttr var hvasst
i morgun og hamlaði ]>að almennri
sjósókn.
í Höfnum réru allir bátar að
einum undanskildum. Sjóveður var
allgott en fiskur fremur tregur,
1—4 skp. á bát.
Frá Sandgerði réru allir útilegu-
bátar og nokkrir l>átar heimilis-
fastir þar. Afli var tregur og mjög
misjafn.
Iskyggilegar horfur
i Saar-héraði.
—o—•
Þjóðabandalagið hefir nú til at-
Iiugunar hvernig komið verði í veg
fyrir alvarlegar óeirðir í Saar-hér-
aðinu, vegna fregna sem borist
hafa um það, að bæði nazistar og
andstæðingar ]>eirra búi sig ttndir
það að gripa til vopna. Er ]>vi
ráðgert, að auka lögrcgluliðið i
héraðinu eða jafnvel stofna þar al-
þjóðalögreglu tih]>ess að varðveita
friðinn og hafi hún þetta hlutverk
með höndum, uns þjóðaratkvæðið,
setn þar á aö fara fram að ári, er
utn garð gengiö. Embættismenn
Þjóðabandalagsins óttast. að til al-
varlegra óeirða kunni að koma' þá
og þegar, því að um miklar æsing-
ar er að ræða i héraðinu. Kjósend-
u.rnir i Saar eiga um þrent að
velja : 1) Innlimun í Frakkland, 2)
Jnnlinum í Þýskaland og 3) sjálf-
ráeði, eins og nú, undir eftirliti
i ’jóðabandalagsins.
Ráð Þjóðabandalagsins tekur
íullnaðarákvörðun um framtið hér-
aðsins, í samræmi við úrslit
þjóöaratkvæðisins.
Það virðist koma æ skýrara i
Ijós, eftir þvi sem undirbúningn-
um undir atkvæðagreiðsluna miðar
áfrant, að hætt sé við að æsingin
i héraðintt fari vaxandi og áð of-
beldisverk muni færast i vöxt.
, Ritstjóraskifti við Lögberg.
Heimir Þorgrímsson frá Lttttd-
ar. Manitoba, hefir tekið við rit-
stjórn Lögbergs. Hann er sonttr
Adams heitins Þorgrímssonar. —•
(FP».).
1933.
Samkvæmt því, er forsætis
og fjármálaráðherra skýrði frá
i útvarpserindi sínu i gærkveldi
um fjárhag og afkomu ríkis-
sjóðs árið sem leið, hafa tekjur
nunrið 13.308.600 kr., en gjöld
13.083.688 kr. og er þá tekju-
afgangur samkvænrt því 224.-
912 krónur. — Skatta- og tolla-
tekjur námu sanrtals 11.150.000
kr., tekjur af ríkisstofnunum
1.700.000 kr. — Árið 1932 nánui
skaltar og lollar tæpum 9 mil-
jónum króna og lrafa því hækk-
að um rúnrar 2 miljónir. Tekju-
og eignarskattur hefir hækkað
um 150 þiisund krónur, „ef tal-
ið er að hinar auknu eftirstöðv-
ar mæti vanhöldunr“. -— Árið
1933 var tekjuskattur innheinit-
ur með 40% álagi, cn árið áð-
ur með 25% álagi. Bifreiðaskatt-
ur lrefir hækkað um 130 þús-
und krónur (breytl löggjöf), tó-
bakstollur um 200 þúsund kr„
vörutollur um 470 þúsund kr.
verðtollur uni 900 þús. kr„ gjald
Asgeir Asgeirsson forsætis-
ráðherra skýrði frá þvi í gær-
kvöldi í útvarpserindi sínu um
fjárhagsafkomn ríkisins 1933,
að nýlega hefði verið lokið við
samninga um að hreyla enska
iáninu frá 1921 þannig, að vexl-
ir lækki frá 1. sept. 11.k. úr 7%
i 5%. Hefir stjórnin um skeið
unnið að þessu og hefir aðal-
ráðunautur hennar og fulltrúi
í þessu máli verið Magnús
bankastjóri Sigurðsson, enda
þakkar rikisstjórnin honum að-
allega, að ]>cssi mikilvæga breyt-
ing á láninu hefir fengist. Eftir-
stöðvar lánsins eru nú 409.650
stpd. að nafnverði og kostar
breytingin um 18. þús. stpd. •:)
yfirstandandi ári i „yfirkúrs“
og þóknun, en hins vegar er tal-
ið, að breytingin spari um 5500
slpd. á ári, það sem eftir er af
lánstímanum þ. e. 17 ár, eða
samt. 93.500 stpd. eða með nú-
verandi gengi rúmar 2 milj. ísi.
kr. Aðferðin við lánbreytinguna
er sú, að öllu lánimt verður sagl
upp til innlausnar 1. sept. n.k.,
en með því móti þó, að eigend-
um skuldabréfanna gcfst kostur
Aldarmmning
Wiliiam Horris.
London, í mars. — FB.
í yfirstandandi mánuði er
öld liðin i'rá fæðingu enska
skáldsins og listamannsins
Williams Morris, en hann lést
1896. í tilefni af því var haldin
sýning' á vcrkum hans i Lon-
don og var hún opnuð í annari
viku febrúarmánaðar af Stan-
ley Baldwin ráðherra. Sýningin
var lialdin í Victoria and Alhert
Múseum og bar þess ljósan
vott, hve Morris hafði látið mik-
ið eftir sig liggja í ýmsum
greinum listarinnar. Ilann var
meðstofnandi listiðnaðarfirma
og stofnaði sjálfur prentsmiðju,
Tlie Kelmscott Press, en í henni
voru prentaðar skrautútgáfur
ýmissa hóka. Morris var skáld
gott og var efnið í verkum hans
ai' innlendum tollvörum um 90
þús. kr. Skemlanaskattur hefir
orðið 100 þúsund krónur (og
ríkissjóður hirt hann allan) og
veitingaskattur 50 þús. kr.
Margir gjaldliðir hafa farið
stórkostlega fram úr áætlun,
svo sem vextir af skuldum rikis-
sjóðs. Þeir voru áætlaðir 1.406.-
000 kr„ en urðu 1650.000 kr.
Af öðrum gjaldliðum, sem far-
ið hafa mjög fram úr áætlun,
skulu þessir nefndir: Alþingis-
kostnaður og yfirskoðun lands-
reikninga (áætlun 233 þúsund,
greitt 308þils.)dómgæsla og lög-
reglustjórn (áætlun 922 þús„
greilt 1588 þús.), vegamál (986
þús., greitt 1132 þús.), alm.
styrktarstarfsemi (868 þús.,
greilt 1171 þús.). — Jarðabóta-
styrkurinn varð 570 þúsund kr.
og fór 120 þúsund fram úr
áætlun.
Skuldir ríkissjóðs í árslok
1933 eru taldar alls krónur
41.127.545.85.
á að láta stimpla á skuldabréf-
in, að þeim sé breytt í 5% frá
1. sept. n.k. í stað 7%, sem bréf-
in nú gefa af sér. Réttur til inn-
lausnar fellur niður í 10 ár eða
til 1. sept. 1944 og fá skulda-
hréfaeigendur um leið og
stimplunin fer fram, 3 stpd. af
hverju 100 stpd. bréfi, en það
er aukagreiðsla sú, sem upphaf-
lega var áskilin fvrir innlausn
mcð uppsögn.
Því til tryggingar, að elcki
þurfi að innleysa bréfin vegna
þess, að hlulabréfaeigendur óski
ekki að taka vaxtalækkuninni,
auglýsa firmun Helbert, Wagg
&Go. og Higginson&Co., að þau
taki að sér að kaupa hréfiií, og
laka þau fyrir það þóknun,
sem nemur 1 '/2% af eftirstöðv-
um lánsins, ei' upphæðin fer
ekki fram úr 200.000 stpd., en
2% ef upphæðin verður hærri,
en iiflar líkur eru laldar til þess,
að hún verði það. Er með þessu
fengin trvgging fyrir því, að að
eins lítinn hluta lánsins þurfi að
innlevsa vegtia uppságnarinnar.
tíðast frá miðölrfum og fornöld.
Morris ferðaðist m. a. til ís-
lands og skrifaði upp úr þeirri
i'erð „The storv of Sigurd the
Vöisung“.
Auk þess sem hér hefir sagt
verið hafði Morris milcinn á-
huga fyrir heimilis og hvers-
konar handiðnaði og heitli sér
fyrir því, að menn vanrækti
ekki ytra útlit lilutanna. Hann
sagði, að nytsemin og fegurðin
ætti að haldast í hendur. Gerði
hann sjálfur uppdrætti að
myndum á áhreiður, veggfóð-
ur, húsgögn og ýmsa muni aðra.
Var alt, sem frá hans hendi
kom sérkennilegl og fagurl og
frábruðgið því, sem venjulegt
er. Munir þeir, sem eru efl-
ir i'yrirmyndum Iians og skraut-
iitgáfur Kelmscotl Ih’ess eru nú
mjög eftii’sóttar al' þeim, sem
safna sjaldgæfum og verðmæt-
um munum og hókum.
I. O. O. F. 11537 Spilakveld.
Föstuguðsþjónusta
í dómkirkjunni í kveld kl. Sýá.
Sira Friörik Hallgrímsson.
Veðrið x morgun.
Frost unx land alt. í Reykjavík
2 stig, Isafiröi 3, Akureyri 3, Seyð-
isfirði 4. Vestmannaeyjum 3,
Grímsey 4, Stykkishólmi I,
Blönduósi 3, Hólum í HomafirSi
2, Grindavík 3, Færeyjum -f- 2,
Julianehaab -}- 2, Jan Mayen -p I,
Angmagsalik —- 7, Hjaltlandi -f-
3 stig. Mestitr hiti hér í gær — o
stig, minstur — 3. Sólskin 94. st.
Yfirlit: Víðáttumikil lægð um Suð'-
ur-Grænland og hafið fyrir suð-
vestan ísland. Hreyfist hægt aust-
ur eftir. Horfur: Suðvesturland,
Faxaflói, Breiðafjörðttr: Hægviðri
og bjartviðri í dag. en þyknar upp
mcð suðaustan átt í kvekl. Vest-
firðir, Norðurland, norðausturland,
Austfirðir: Norðan gola og sum-
staðar éljagangur í dag, en léttir
til með suðaustanátt t nótt. Suð-
austurland: Noröan gola. Bjart-
viðri.
Kirkjublað,
2. árg., 5. tbl. er nýlega komið
út. Efni: Fljótið mikla. Ræða flutt
i fríkirkjunni í Reykjavík, eftir
síra Benjamin KristjánsSon. T7rétt-
ir o. fl. '
Iðnaðarmannafélagið
Fundur verður hakliun í Bað-
stofu félagsins annað kveld kl.
8J4. Til umræðti verða lagabreyt-
ingar, upptaka í Lands.samband
iðnaðarmanria o. fl.
Af veiðum
kom í morguii Skailagrímur með
63 föt lifrar og Þórólfur með 41.
Línuv. Nonni
kom af veiöum í gærkveldi.
Háskólafyrirlestur
um sálarlif barna og unglinga
flytur Agúst H. Bjarnason pró-
fessor i Háskólanum í kveld kl. 6.
Ollum heimill aðgangxtr,
Frithiof Hansen,
förstjóri hinnar stóru veiðar-
færaverksmiðju John Hanseii
Sönner. Bergen, kom með Lyru og'
dvelur hér nokkra daga. Haiin býr
að Hótel Borg.
Leikfélagið
sýnir „Mann og konu“ annað-
kvekl í 27. sinn.
Aðalfundi Merkúrs
er frestað til næsta miðviku-
dagskvelds.
Kenslukvikmynd
í einmennings-útiíþróttum hefir
stjórn í. S. I. nýlega fengið frá
Danmörku. Verður hún sýnd ,í
kveld kl. 8J/2 í íþöku og annað-
kveld. Öllum þeim seni iðka ein-
mennings útiíþróttir er heimill að-
gangur meðan hitsrúm Ieyfir.
Ingvar Sigurðsson
heit.ii' 300 króna verðlaununi
hverjum þeim, sem getur gefið
upplýsingar um þaö hvað orðiS
hafi af bankaseðlunum, sem hurfú
á dögunum. Komi hið sanna í ljós
innan mánaðar hækka verölaunin
up]) i 500 kr.
íslenska vikan.
Fresturinn til.að skila teikning-
utu í auglýsingasamke]>uinni hefit
veriö framlengdur til laugardags.
S. P. R.
Læknareikningar greiddirnrestk.
fimtudag kl. 8 -9 síöd.
Enska lánið.