Vísir - 08.03.1934, Page 4
VlSIR
Útvarpið í kveld:
ig,oo Tónleikar, 19,10 Veður-
fregnir. Lesin dagskrá næstu viku.
19,25 Enskukensla. 19,50 Tónleik-
ar. 20,00 Klukkpsláttur. Fréttir.
20,30 Erindi: Á ferð meS þorskin-
um (Árni Friðriksson). 21,00 Tón-
feikar: — a) Útvarpshljómsveitin.
— b) Einsöngur (Pétur Jónsson).
— c) Danslög.
Utan af landi.
Blönduós, 6. mars. FÚ.
Búnaðarsamband Húnavatnssýslu.
Aðalfundur Austurdeildar Bún-
aðarsambands Húnavatnssýslu var
haldinn á Blönduósi 24. og 25. f.m.
Fundinn sátu 19 fulltrúar frá 8
búnaðarfélögum. Ennfremur sat
fundinn Guðmundur Jósafatsson,
Austurhlíð, og flutti erindi um
heimasútun skinna og hafði sýnis-
horn meðferðis.
Hagur félagsins er þannig:
Fastasjóður A. B. S. H. var við
árslok kr. 1600,00. Árstekjur áætl-
aðar um 4000 kr. þar af varið til
ýmsrar styrktarstarfsemi kr.
1300,00. í sjóði til uæsta árs kr.
900,00, auk fastasjóðsins. Helstu
tillögur, sem samþykktar voru:
Fundurinn skoraði á næsta fjár-
laga þing, að láta lögin um Verk-
færasjóð koma tafarlaust til fram-
kvæmda aftur.
Fundurinn felur stjórn A. B. S.
H. að undirbúa málið frekar fyr-
ir aðalfund A. B. S. H., sem hald-
inn verður á næsta vori.
Fttndurinn telur nauðsynlegt,
aö vextir af fasteignalánum land-
búnaðarins verði ekki hærri en
.4%. Ennfremur telur fundurinn;
að lánskjör Byggingar og land-
námssjóös ættu að batna til sam-
ræmis við slíka vaxtalækkun.
Fundurinn átelur þing ogstjórn,
fyrir að ltafa ekki sint kröfu lands-
fundar bænda, frá s. 1. vetri, um
rannsókn á myntamálum landsins,
og skorar á væntanlegan lands-
fund bænda, að vinna að því eftir
megni, að rannsakað verði hvort
nýr myntfótur reistur á fram-
kiðslu landsins, sé ekki heppileg
leið út úr fjárhagsörðugleikum at-
vinnuveganna.
Fundurinn telur að gengi ís-
lenskrar krónur þyrfti að lækka
um 25%.
Fundurinn telur nauðsynlegt, að
framleiöendur landbúnaðarvara
geri allsherjar samtök um sölu af-
urða sinna og samræmingu verð-
lagsins
Stjórninni er falið að beita sér
fyrir því, að búnaðamámskeið
verði haldið í sýslunni á næsta
vori.
Fundurinn skorar á sýslunefnd-
ina að hlutast um að vel hæfur
læknir verði skipaður í héraðið.
Fundurinn skorar á Kaupfélag
Húnvetninga að taka kommölun-
armálið til rækilegrar athugunar á
ræsta aðalfundi sínum.
Kosnir voni þessir fulltrúar á
landsfund bsenda:
Iíafsteinn Pétursson, Gunn-
steinsstöðum og Ágúst Jónsson
'Hofi, en varamenn þeir Runólfur
Björnsson Korná og Bjarni Frí-
smannsson.
tJtvappsfpéttip.
London í gærkvöldi. FÚ.
Gullsending tapast.
16. febrúar lagði eimskipið
„Balmoral Castle“ af stað frá
Höfðaborg með gullsendingu,
sem um gat i fréttunum i kvöld,
og nam gullið 6 þúsundum ster-
lingspunda. Var um það búið i
Kenslu-leikföng
handa börnum, nýkomin. — Kensluleikföng hjálpa börnun-
um til að starfa og hugsa, lesa, skrifa, reikna, jafnframt þvi,
sem þau gleðja börnin.
Gefið bömum yðar því kensluleikfang frá
K. Einarsson & Bjðrnsson,
Bankastræti 11.
Nýju bækurnar:
Sögur frá ýmsum löndum, II. bindi, ib. 10,00.
Sagan um San Michele eftir Munthe, ib. 17,50 og 22,00.
Sögur handa bömura og unglingum, III. bindi, ib. 2,50.
Egils saga Skallagrímssonar, útg. Fomritafélagsins, ib. 15,00,
Bðkaverslnn Sigf Eymnndssonar
og Bókabúð Austurbæjar B. S. E. Laugavegi 34.
trékassa, og svo tryggilega frá
þvi gengið, sem venja er til um
gullsendingar. í morgun var
kassinn opnaður i Englands-
banka. Hann var fluttur í klefa
i skipinu, sem algerlega er tal-
inn öruggur, enda engin merki
þess, að við honum hafi verið
reynt að hrófla. Varúð öll um
sendingu gullsins er óvéfengd.
Engin skýring er enn fengin á
gullhvarfinu. — (Samkv. fyrri
fregn var kassinn fullur af ce-
menti og nöglum, er liann var
opnaður í Englandsbanka).
London í gærkvöldi. FÚ.
„Tsjeljuskin“-leiðangurinn.
78 manns af skipbrotsmönn-
unum af „Tsjeljuskin" eru enn-
þá eftir á isjakanum, og hefir
ekki tekist að bjarga þeim.
Kalundborg í gærkv. FÚ.
Verkföll og verkbönn.
Á Spáni er komin fram ný
tillaga um það, hvenær verkföll
og verkbönn skuli vera lögleg,
og var hún rædd i þinginu í dag.
— Samkvæmt henni má ekki
framkvæma verkföll eða verk-
bönn með minna en 30 daga
fyrirvara. Tillagan er frá stjóm-
inni.
Berl'nt í morgun. FÚ.
Bretar og afvopnunarmálin.
Fréttastofa Reuters segir frá því,
að afvopnunarboSskapur Frakka
til Breta muni ekki verSa sendur
fyr en í næstu viku, vegna þess
aS stjórnin þarf íjtsí aö bera
orSalag hans undir landvarnarráS-
iS. Mun þá hin opinbera skýrsla
bresku stjórnarinnar urn árangur-
inn af för Edens ekki veröa birt
fyr en í lok næstu viku í fyrsta-
Berlín í morgun. FÚ.
63 verkamenn brenna inni.
Eldur kom upp í verkamanna-
skúrum í bæ einum í Austur-Kína
í fyrradag og brunnu 63 verka-
inenn inni. Grunur leikur á, aS um
íkveikju sé aS ræSa.
Belgíukonungur
flytur útvarpsræðu.
London, í gærkveldi. FÚ.
Leopold Belgíukonungur hélt
ræðu í útvarpið í Belgíu í dag,
þar sem hann flutli öllunt
þeim þakkir, er sýnt höfðu hon-
um, fjölskyldu hans og belg-
isku þjóðinni samúð við fráfall
föður hans og árnað sér heilla.
Kvað hann slíkan samúðarvott
hafa borist sér hvaðanæfa úr
úr veyöld. Þessar kveðjur og
heillaóskir kvað hann nú
mundi verða sér hvöt og styrk-
ur til þess að leysa hið vanda-
sama verkefni sitt af hendi. Að
lokum flutti konungur þakkir
belgisku þjóðarinnar fyrir auð-
sýnda samúð.
Dnalskartöflur
í pokom og
lausri vigt.
Vorsl. Vísir.
K.F.U.K.
Almennur foreldrafundur föstu-
daginn 9. niars, kl. 8% síðd. i
liúsi K.F.U.M. — Síra Friðrik
Hallgrímsson talar um heimilin
og æskulýðinn. Allir velkomnir.
Vopnabirgðir uppreistarsinna
í Parfs gerðar upptækar.
Berlín, i morgun. — FÚ.
Franska blaðið „L’Ouevre“
skýrir frá því, að i París hafi
komist upp um tilraun til þess
að efna til borgarastyrjaldar, og
hefði bæði kommúnistar og fas-
istar staðið að uppreistaráform-
unum. Á ráðheiTafundi í Paris
í gær, segir blaðið, gáfu bæði
hermálaráðherra og innanrikis-
ráðherra skýrslur um málið, og
skýrðu frá því, að allmiklar
vopnabirgðir hefði verið gerðar
upptækar.
Afvopnunarmálin.
Afstaða Belgfumanna.
Berlín, í morgun. — FÚ.
Forsætisráðherra Belgíu, de
Broqueville, hefir haldið ræðu
um afvopnunarmálið, og lýsti
hann því yfir, að belgiska
stjómin væri á eitt sátt um, að
samþykkja jafnrétti Þýska-
lands. Ræðan hefir vakið mikla
eftirtekt um alla Evrópu, og
verður m. a. enskum blöðum
tíðrætt um hana. „Daily Mail“
segir, að þarna liafi Þýskalandi
bæst nýr og óvæntur samherji,
og sé það nú að koma æ betur
í Ijós, hve Frakkar séu orðnir
einangraðir í afvopnunarmál-
inu.
Frakkar óánægðir.
Barthou, utanríkisráðherra
Frakka, mun fara til Briissel
nú í vikunni til fundar við ut-
anríkisráðherra Belga, að því er
fréttastofa Havas skýrir frá.
Þykir líklegt, að ræða de Bro-
quevilles sé ástæðan til þessarar
farar.
Norskar
loftskeytafregnir.
--O—*
Oslo 7. mars. FB.
Ný veðurathugunarstöð.
ÁkveöiS hefir veriS aS koma á
fót veSurathugunarstöð á Gaustad-
tindi.
Trúlofanarhringar
Fjallkonu skóáburður er fyrir
löngu orðinn þjóðkunnur fyrir
að mýkja leðrið, en brennir það
ekki. — Það er Fjallkonu skó-
áburðurinn, sem setur hinn
spegilfagra glans á skófatnað-
inn.
Fljótvirkari reynast þeir við
skóburstinguna, er nota Fjall-
konu skóáburðinn frá
H.f. Efnagerð Reykjavfknr
Sveskjur, rúsínur, apríkósur,
epli, ný, appelsínur, frá 10 aura
stykkið.
altaf fyrirliggjandi.
Haraldur Haganc
Sími: 3890. Austurstræti 3,-
■:% ....
I KAUPSKAPUR I
Sumarbústaður, sem næst
Reykjavík, óskast til kaups eða
leigu. Lóð undir sumarbústað
getur komið til greina. Uppl. i
Barónsbúð. Sími 1851. (148'
Barnavagn til sölu með tæki-
færisverði á Öldugötu 26. (133
Fallégur silfurrefur óskast
keyptur. Uppl. í síma 3436. (129
Píanó (Homung & Möller) til
sölu. Uppl. í síma 4343. (127
Haraldur Sveinbjarnarson selur
vandað bifreiðagúmmí, dekk,
slöngur, viftureimar, mottur og
hætur. (126
PÁLL HALLBJÖRNS
Laugaveg 55. Sími 3448.
Rakvélablöð
hinna vel rökuðu, óviðjafnan-
leg að gæðum.
iö sem færustu
matreiðslukonur
þessa lands hafa
gefiö sin BESTU
MEÐMÆLI.
% vinna
Stúlka óskast í vist nú þegar,
vegna forfalla annarar. A. v. á.
(147
Unglingsstúlka óskast nú þeg-
ar. Rósa Þorleifsdóttir, Þing-
lioltsstræti 3. (140
Stúlka óskast í vist. Uppl. á
Holtsgötu 13, uppi. (139
Stúlka óskast í vist. — Uppl.
Austurbakka við Bmnnstíg. —
(137
Góð stúlka óskast strax. Hó-
tel Björninn, Hafnarfirði. (136
Góður skósmiður óskar eftir
atvinnu. Má vera úti á landi.
Uppl. í síma 9121. (128
Fótaaðgerðir. Tek burtu lík-
þorn og harða húð, laga inn-
grónar neglur. Hefi rafmagn og
nudd við þreyttum fótum. Við-
talstími 10—12, 3—5 og eftir
umtali. Sigurbjörg Magnúsdótt-
ir, Pósthússtræti 17. Sími 3016.
(125
Stúlka óskasl til húsverka
fyrri hluta dags. Uppl. á Grett-
isgötu 67, uppi. (145
Stúlka óskast í vist, um ó-
ókveðinn tíma. Uppl. á Ásvalla-
götu 14 (uppi). (143
HÚSNÆÐI
Dönsk hjón, barnslaus, óska
eftir 2 herbergjum og eldhúsi,
með öllum þægindum. Uppl. i
sima 4119, milli kl. 8—9 e. h.
lil sunnudags. (151
Litið herbergi i mið- eða vest-
urbænum, óskast slrax. Uppl. i
síma 4994, kl. 5—8. (14(5"-
2—3 lierbergi og eldhús ósk-
ast 14 .maí. 2 í heimili. Maður
i fastri stöðu. — Uppl. i síma
3023, eftir kl. 6y2. (141
Herbergi til leigu fyrir eiu-
hleypa á Framnesveg 48. (138
3 stofur og eldhús til leigu
14. maí. Uppl. á Laugaveg 8.
Jón Sigmundsson. (135
2 herbergi og eldhús óskasb
Tilbð, merkt: „75“, sendist afgr.
Vísis. (134
Til leigu 1. eða 14. maí stór
stofa og eldhús í kjallara í nýju
húsi. A. v. á. (131
3 herbergi og eldhús til leigu
14. maí. Grundarstíg 4, uppi. —
(13CT
3 herbergi og eldhús, með öll-
um þægindum, óskast 14. maí.
Tilboð, merkt: „404“, sendist
Visi, helst strax. * (144
Lítið herbergi óskast, helst
innarlega við Laugaveg. Uppl.
í síma 4940. (142'
KENSLA
Geng í hús og kenni börnum
að lesa. — Uppl. Þórsgölu 17A,
niðri. (112
TAPAÐ-FUNDIÐ
Silfurarmband tapaðist á
grímudansleik Ármanns, laug-
ard. 3. þ. m. Fundarlaun. Sími
4853. - (132
I TILKYNNING |
I. O. G. T.
SL Dröfn. Fundur i kvöld kl.
8V2. Ilelgi Helgason les upp.
— Æ.T. (150
FÉLAGSPRENTSMIÐJAN.