Vísir - 02.06.1934, Síða 4
VISIR
Útvarpsfréttir.
Ófriðarskuldirnar.
London, 1. júní. FÚ.
Boðskapur Roosevelts Banda-
ríkjaforseta, um skuldamálin,
var sendur þinginu i dag. I boð-
skapnum er komist svo að orði,
að ekki sé nauðsynlegt og ekki
æskilegt, að setja löggjöf um
þessi efni á því þingi, sem nú
situr, en liins vegar beri að gera
alt, sem unt sé, til þess að sánn-
færa skuldunauta Bandaríkj-
anna um það, að skuldbinding-
ar þeirra beri að hafa i heiðri.
Enn fremur segir forsetinn, að
ræða eigi hispurslaust við þjóð-
ir þessar um skuldamál og
möguleika á greiðslum frá
þeim, „Ameriska þjóðin hefir
enga tilhneigingu til þess,“ seg-
ir forsetinn, „að leggja ó-
bærilegar byrðar á herðar öðr-
um þjóðum, sem standa i skuld
við hana, en hefir hins vegar
fullan rétt til þess, að þessar
þjóðir leggi á sig nokkurar
fórnir, til þess að standa í skil-
um. Skuldamálin hafa gert öll
viðskifti okkar við aðrar þjóð-
ir erfið árum saman. — Finn-
land er eina landið, sem hefir
greitt allar afborganir sínar að
fullu“. Að lokum segist forset-
inn vænta þess, að þær þjóðir,
sem skuldi Bandarikjunum,
geri alt, sem í þeirra valdi
stendur, til þess að standa í
skilum framvegis.
Ný tollalög í Hollandi.
London, 1. júní. FÚ.
Hollendingar eru að endur-
skoða tollalöggjöf sína. Búist er
við þvi, að frumvarp til nýrra
tollalaga verði lagt fyrir þing-
ið í byrjun júlí n.k. Gert er ráð
fyrir lækkun á ýmsum tollum,
svo sem á sykri, te og kaffi.
Landskjálftar í Afghanistan.
London, 1. júni. FÚ.
I Afghanistan liafa orðið al-
varlegir landskjálftar og vald-
ið lalsverðu tjóni. Eitt smáþorp
hefir lagst gersamlega í eyði.
Björgunarráðstafanir hafa þeg-
ar verið gerðar. t
Kappflugið til Ástralíu.
London, 1. júní. FÚ.
Nú þegar liafa 42 flugmenn
gefið sig fram til þátttöku í
kappfluginu frá Englandi til
Ástralíu: 8 frá Stóra-Bretlandi,
11 frá Bandaríkjunum, en hin-
ir frá Frakklandi, Ítalíu, írlandi,
Hollandi, Svíþjóð, Danmörku
og Kóreu.
MILDAR OG ILMANDl
TEOfANI
Ciaarettur
fa'st
hvarvelrna
r
KAUPSKAPUR
Jörðin Mið-Meðalholt í Flóa,
er til sölu og ábúðar i næstu
fardögum. Bílvegur heim að
bæ. Nánari uppl. Vesturgötu 24.
Þuriður Markúsdóttir. (53
Postulinsblóm og fleiri fjöl-
ærar plöntur til sölu í Pósthús-
stræti 17. (1572
Góður 1% tons vörubíll
óskast lii kaups. Bergur Arin-
bjarnarson, c/o. Danske Lloyd.
(38
Áfengismálin.
—o-
LÁTIÐ GRAFA
| nafn yðar á sjálfblekunginn
i áður en þér týnið honum.
Eins nianns rúm til sölu. -—
Uppl. á Þórsgötu 28. (50
Notuð eldavél óskast. Uppl.
5—9 í Skólabæ, Suðurgötu 26B.
(45
Það hefir verið hljótt um
bannmálið undanfarna mánuði.
Þegar þjóðaratkvæðið var um
garð gengið lieyrðust liáværar
raddir um það, að nú þyrfti að
sjá um, að innflutningur sterkra
drykkja gæti byrjað sem fyrst,
svo að ríkissjóður misli ekki
lengur af þeim tekjum, sem
þarna væri að hafa, og þá eigi
síður vegna þess, að þá fyrst,
er sterku vínin væri komin á
markaðinn, yrði alt smygl og
launbruggun brátt úr sögunni.
Það var nú ekki flanað að því
að veita flóði sterkra drykkja
til landsins. Frekari aðgerðir
vegna afnáms bannsins bíða
næsta þings. Menn liafa sætt sig
við þennan frest möglunarlaust,
að þvi er virðist, og menn virð-
ast yfirleitt ekki bíða sterku
drykkjanna erlendis frá með
neinni óþreyju. Það er yfirleitt
ekki minst á þessi mál, nema
þegar upp kemst um bruggun
einhversstaðar. Verður ekki
annað séð, en að vel horfi um
uppræting bruggunarinnar í
sveitunum. Ekki skal þó full-
yrt um það, að takast muni að
uppræta hana alveg. Sennilega
tekur langan tíma að vinna
bug á henni. En það geta menn
gert sér Ijóst þegar, hafi þeir
enn ekki áttað sig á því, að inn-
flutningur sterku drykkjauna
mun ekki liafa veruleg áhrif í
þeim efnum. Þessari skoðun
hafa margir góðir bindindis-
vinir stöðugt haldið fram og
það er þetta, sem þegar er kom-
ið í ljós í Bandaríkjunum, þar
sem bannið var afnumið með
þjóðaratkvæði. Þar er enn
smvglað í jafnstórum — ef
ekki stærri stíl en áður — að
því er amerísk blöð herma. Og
laun-bruggun og ólögleg sala
Ingólfshvoh. — Sími: 2354.
áfengis þrífst hið besta, þrátt
fyrir það, að nú er ekkert bann
lengur í Bandaríkjunum, og
nóg áfengi, bæði létt og sterk
vín, sé hvarvetna að fá. Hvað
sem seinna verður hefir ástand-
ið ekki batnað þar vestra, vegna
afnáms bannsins, að minsta
kosti ekki enn sem komið er.
Amerísk blöð ræða þessi mál
nú mjög mikið og það leynir
sér ekki, að menn hafa miklar
áhyggjur af þessu, ekki síst
ýmsir samviskusamir andbann-
ingar, sem töldu vist, að af-
námið leiddi óhjákvæmilega af
sér, að menn myndi liætta þeg-
ar i stað að smygla inn áfengi
og brugga það á laun.
Bindindismaður.
Roosevelt Bandaríkjaforseti
hefir farið fram á það við þjóð-
þingið, að það veiti á fjárhags-
árinu 1. júli 1934—1. júlí 1935
940 milj. dollara til verklegra
framkvæmda, atvinnubóta o. s.
frv., til lierskipasmíða 400 milj.
dollara, til rafvirkjunarinnar og
annara framkvæmda í Tennes-
see-dalniun 48 milj. dollara o.
s. frv. Verði allar þær tillögur,
sem Roosevelt leggur fyrir þing-
ið, samþyktar, verða ríkisskuld-
ir Bandaríkjanna konmar upp
í 31—32 miljarða i lok fjárhags-
ársins, sem hefst 1. júlí n.k. —
Frá þeim tíma gerir Roosevelt
ráð fyrir, að hægt verði að af-
greiða tekjuhallalaus fjárlög.
Baðker, 5 Vh fel, með öllu
tilheyrandi, ásamt vask og 150
lítra dúnk, með tækifærisverði.
Alt nýtt. (44
Kálplöntur. Fallegar hvítkáls-
og hlómkálsplöntur, einnig alls-
konar blómaplöntur, fást i
Görðum. Sími 3572. Sent heim.
(54
4 nýlegir fjaðrastólar með
rauðu plussi (65.00) til sölu
fyrir liálfvirði. A. v. á. (34
Haraldur Sveinbjarnarson
selur allskonar varahluti í Ford
og Chevrolet. (1256
5 manna bifreið (2ja dyra)
til sölu ódýrt á Bifreiðaverkst.
Trvggva & Egils, Sölvhólsgötu.
(57
VINNA }
Örkin lians Nóa, Klapparstig
37. Sími 4271, Lagfærir allskon-
ar bilanir á barnavögnum,
saumavélum, grammófónum,
reiðhjólum og regnhlifum og
mörgu fleiru. Munið að fleygja
ekki þeim lilutum sem liægt er
að lagfæra. (1523
Hraust unglingsstúlka óskast
strax. Grundarst. 11, 2. hæð.(41
Telpa, 10 til 14 ára, óskast til
að gæta barns. Sauðagerði C.
(58
Slúlka óskast yfir sumarið á
Myndastofu Sigríðar Zoega &
Co„ Austurslræti 10. (56
Þrifna og duglega unglings-
stúlku vantar til að gæta 2ja
barna. Helga Ólafson, Pósthús-
slræti 3. — Sími 3003, kl. 6—7.
(33
Stúlka óskast að Úlfarsá. —
Uppl. á Óðinsgötu 26, uppi. (52
Góða» stúlku vantar strax á
Hótel Bjöminn i Hafnarfirði.
Simi 9292. (51
Dugleg stúlka óskast i vist,
sökum veikinda annarar.Ránar-
gölu 3, neðstu liæð. (48
Stúlka óskast á gotl lieimili í
Keflavík. Uppl. á Njálsgötu 49.
(43
Telpa óskast á gott heimili
auslur i sveit, til að gæta barna.
Uppl. á Grettisgötu 70. (28
Ágætt kjallaraherbergi til
leigu slrax. Vetsurgötu 33. (40
Eitt herbergi til leigu í mið-
bænum strax. A. v. á. (37
Herbergi til leigu ódýrt. Vest-
urgötu 24, með eða án hús-
gagna. (36
Mjög vistlegt herbergi með'
húsgögnum og öllum þægind-
um, lil leigu i miðbænum. A.v.á.
(35.
......... 1 ...... " ... - f
, Kona, sem AÚnnur úti í bæ„.
óskar eftir litlu herbergi, lielst
í kjallara. — Uppl. í’síma 3683.
(49
Stofa til leigu fýrir einhleypa.
Sérinngangur. Uppl. Njálsgötu
16. — (47~
Einbýlishús eða útbygging,
óskast leigð. Tilboð, með leigu-
uppliæð, leggist á afgr. Vísis,
merkt: „6“. (54
Góð kjallaraibúð til leigu í
Heílusundi 3. (55
LEIGA
Söluhúð fvrir mjólk og brauð
eða annað, til leigu á góðunv
stað. Uppl. j síma 3144. (42:
Túnblettur og kálgarður til'
leigu. Uppl. Skálholtsstíg 7.
(39
Lítið tjald, brúkað, óskast til
leigu eða keypt. Vonarstræti U
(46
Litil, en snotur verslunarbúð,.
er til leigu á Laugaveg 65. —
Uppl. á rakarastofunni þar í
húsinu. (59
FÉLAGSPRENTSMIÐJAN.
MUNAÐARLEYSINGI.
fram og íilbeðið hana — ef hann hefði tjáð henni
ást sina og lofast henni, mundi eg hafa grátið í ein-
veru og kyrð nælurinnar, en eg hefði ekki borið
sorg mína á ahnannavegi. Og siðar mundi eg hafa
dáðst að hinni fögru konu og óskað þess af hjarta,
að þau mætti njóta mikillar hamingju.
Það bar við einn daginn, sem gestirnir dvöldust
á Thornfield, að lierra Rochester þurfti að fara til
MiIIcot mikilvægra erinda. Mér fanst sá dagur und-
arlega lengi að líða og fegnari varð eg, en frá megi
segja, er húsbóndinn kom heim um kveldið. — Eg
man enn vel eftir þessum degi. Veðrið var leiðinlegt,
regn og kalsi, og gestirnir urðu að hírast inni. Og
samræðurnar milíi þeirra voru fjörlausar og einskis-
verðar. Það var bersýnilegt, að sá væri ekki við-
staddur, s.em ávalt var lífið og sálin á heimilinu, en
var því miður langt of sjaldan heima.
Það var orðið áliðið dags og bráðlega kominn tími
til þess að skifta um klæðnað, áður en sest væri að
borðum. x— Eg sat undir Adele litlu, hugsaði um
alt og ekkert þessa stundina og lét mér leiðast. Þá
var það, að Adele leit út um gluggann, æpti af gleði,
klappaði saman lófunum og lirópaði:
„Ilæ — gaman! Þarna kemur herra Rochester!“
Eg leit ósjálfrátt út í gluggann, en ungfrú Ingram
spralt upp úr sæti sinu, auðsjáanlega alls liugar feg-
in. — Aðrir hlustuðu i eflirvæntingu og bráðlega
lieyrðist vagnskrölt úti á veginum.
„Hvernig gelur því vikið við, að hann skuli nú
koma akandi?“ spurði ungfrú Blanclie Ingram. —
„Hann fór þó ríðandi í morgun“.
Þetta var þá póstvagninn og þótti engum mikið
iil lians koma. En liann nam staðar við hliðið og
ferðamaður nokkur steig út úr honum. Það var ekki
herra Rochester, heldur einhver hráðókunnugur
maður.
„Þú ert ljóti kjáninn“, sagði ungfrú Ingram og
þreif óþyrmilega í hárið á Adele litlu. „Þú ættir skil-
ið að fá ráðningu fyrir að narra okkur svona“.
Við heyrðum einhverjar viðræður úti í anddyrinu
og litlu síðar geklc ókunnugur maður í stofuna. Hann
hneigði sig kurteislega fyrir konunum, sem þarna
voru fyrir, cn mælti þvi næst við frú Ingram:
„Svo er að sjá, sem eg hafi valið heldur óhent-
ugan líma til heimsóknarinnar, því að mér hefir
verið skýrt svo frá, að herra Rochester sé ekki Iieima
sem stendur. — Eg er um langan veg kominn og
hefi þreyst nokkuð á þvi ferðalagi. Eg er gamall
vinur húsbóndans hérna, herra Rocliesters, og þvi
er það, að eg geri mér von um, að honum mislíki
ekki við mig, þó að eg setjist hér um kyrt og bíði:
komu hans.“
Hann talaði með dáhtið „framandi“ raddkeim,-
en þó bar ekki á þvi nema á sumum orðum og á-
herslum. Mér virtist hann mundi vera á svipuðumi.
aldri og lierra Rochester, einhvers staðar milli þri-
tugs og fertugs. — Hann var fölur yfirlitum, þessi
ókunni maður, og gat það borið vitni um óhreysti..
Hann var laglegur maður og þó einkum við fyrstu
sýn. Þegar maður fór að virða liann fyrir sér, gat
ekki hjá því farið, að manni þætti hann lílt aðlað-
andi. Það var eitthvað i andlitssvipnum, sem varð
þess valdandi, að manni leið ekki sem best í návist
hans. — Hann var stóreygur og úteygur, en ekki
jiótti Úiér augnaráðið bera vott um miklar gáfur.
J þessum svifum var liringt í bjöllu. Það var merki
þess, að senn væri matmálstími og hæfilegt að gest-
irnir byggist nú um til miðdegisverðar. ,Þeir létu
ekki segja sér það tvisvar, heldur hvarf nú hver og
einn til síns lierbergis.
Eg sá nú ekki hinn nýkomna gest aftur, fyrr en
að máltíð lokinni. — Þá var hann með nokkuð öðr-
um brag og hegðaði sér „éins og hann væri heima
hjá sér“. — Og mér geðjaðist öllu ver að honum,
er liann var kominn í þann liam.
Eg sat á „gamla staðnum“ og lét sem allra minst