Vísir


Vísir - 29.06.1934, Qupperneq 2

Vísir - 29.06.1934, Qupperneq 2
VtSIR M)n 1ÚU H< Ensnai 3 tegundip. net Verzlun Ben. S. Þörarinssonar bf8r liezt kaug. Hryðjuverk í Austurríki. Vínarborg, 28. júní. — FB. Aðfaranótt miðvikudags s. 1. voru fleiri hryðjuverk framin í Austurríki en nokkuru sinni áð- ur. Sprengikúlum var varpað á ýmsum stöðum, einkanlega í nánd við járnbrautarstöðvar og opinberar byggingar. Hafa nazistar sig livarvetna mcira í frammi nú en nokkuru sinni síðan er þeir hófu liryðjuverka- sókn sína gegn Dollfussstjórn- inni. Samkvæmt áreiðanlegum heimildum ætla jafnaðarmcnn og.nazistar að liefja sameigin- lega sókn gegn ríkisstjórninni , þ. 1. júlí. (United Press). Viðskiftastríð milli Breta og Þjdðverja ? London, 28. júní. — FB. Bretar og Frakkar liafa nú gert með sér viðskiftasamning og liefir hann verið undirskrií- aður. Samningurinn gengur í gildi frá og með 1. júli að telja. Er þar með lokið viðskiftamála- deilum Frakka og Breta, sem hafa staðið yfir mánuðum sam- an, og segja má, að þeir hafi átt í viðskiftastríði síðan snemma á yfirstandandi ári. Eftirtekt vekur, að einmitt nú, er lokið er viðskiftastríðinu milli Frakka og Breta, er við- skiftastríð í þann veginn að hefjast milli Breta og Þjóðverja, nema samkomulag náist um deilurnar út af skuldagreiðslu- fresti Þjóðverja. Hafa Þjóðverj- ar, eins og áður hefir verið símað um, sent 4 fulltrúa til London, og standa nú yfir við- ræður milli þeirra og bresku stjórnarinnar. (United Press). Bæjar- og STeitastj ðrnarko sningar I írlandi. Dublin, 28. júní. — FB. í bæjar- og sveitarstjórnar- kosningunum í fríríkinu hefir flokkur de Valera komið að 190 fulltrúum, flokkur O’Duffy 146, óháðir 110 og verlcalýðs- flokkurinn 40. Fullnaðarúrslili eru ekki kunn. Búist er við, að mjög margir fulltrúar óháða flokksins muni veita O’Duffy stuðning sinn. (United Press). Karolina Björnson látin. Osló, 28. júní. — FB. Karólina Björnson, ekkja skáldsins Björnstjerne Björn- son, andaðist siðari hluta dags í gær að Aulestad. Hún liafði legið þungt lialdin i tæpan mánuð. Hún var fædd 1. desem- her 1835, í Bergen. Þ. 11. sept. 1858 giftist hún Björnson, sem þá var leikhússtjóri í Bergen. Nýtt itak. Það er nú orðið augljóst, að ekki verður unað við þa breyt- iugu, sem gerð licfir verið á kosningafyrirkomulaginu, með stjórnarskrárbreytingunni frá siðasta þingi og kosningalaga- ákvæðum þeim, sem henni fylgdu. Það er augljóst af úr- siitum síðustu kosninga. Enn ef það svo, að minnihluti kjós- enda getur ráðið meirihluta á Alþingi. Það er fyrirsjáanlégt, að alþýðuflokkurinn og fram- sóknarflokkurinn muni skipa að minsta kosti 25 þingsæti á næsta þingi. Báðir til samans hafa þeir þó ekki nálægt þvi hehning greiddra atkvæða við kosningarnar. Menn sáu það nú fyrir, að svo mundi geta farið. En það hálfa skref, sem stigið var, til þess að tryggja jafnrétti kjós- endanna og þar með fullkomið lýðræði, var stigið fyrst og fremst í þeim tilgangi, að bæta með því aðstöðu lýðræðisflokk- anna til þess að ná fullu rétt- læti. Enda hafa þessir flokkar, sjálfslæðisflokkurinn og al- þýðuflokkurinn, skuldbundið sig til þess, að láta ekki liér við sitja, heldur þegar í stað að stíga skrefið til fulls á næsta þingi. Það er fyrirsjáanlegt, að sjálfstæðisflokkurinn og al- þýðuflokkurinn ná sameigin- lega svo miklum ineiri liluta á næsta þingi, að þeim er í lófa lagið að koma fram nýrri stjórnarskrárbreytingu, er full- komlega tryggi það, að þingið verði altaf skipað samkvæmt lýðræðisreglum, að meirihluti kjósanda ráði yfir minnihluta á Alþingi. Og er þess þá að vænta, að þegar verði undið að þvi, að koma þeirri breytingu fram. Utan af landi —o-- Ólafsvík, 28. júní. — FÚ. Hafnarbætur o. fl. í Ólafsvik og á Sandi er nú unnið í þremur 20 manna flokk- um að hafnarhótum og i þjóð- veginum. Fyrir innan Ólafsvik eru 18—20 manns i vegagerða- vinnu. Ný brú á Fossá var opn- uð til afnota fyrra föstudag. Kljótir að svíkjal Alþýðubroddarnir fallnir frá 7 króna lágmapksverðinu á síldinni og afnámi síldartollsins. Nú, þegar fyrirsjáanlegt er orðið, að alþýðuflokkurinn muni fá aðstöðu til þess að geta knúið fram kröfu sína um af- nám síldartollsins, er hann fljótur að bregða við og svíkja öll loforð sín um slíkt! Fyrir kosningarnar kvað það við á hverjum degi, að afnám síldartollsins strandaði á sjálf- stæðisflokknum. Alþýðuflokk- urinn skuldbatt sig til þess að beita sér af alefli fyrir því, að þessi rangláti tollur yrði af- numinn. Og til þess að styðja kröfuna um það, var sjómönn- um bannað að ráða sig á síld- veiðar, nema gegn þvi að trygt v^eri 7 króna lágmarksverð á síld. Þessu verði var talið kleift að ná, ef síldartollurinn vrði afnuminn. Nú er það fyrirsjáanlegt, að alþýðuflokkurinn og fram- sóknarflokkurinn muni ná meirihluta á næsta þingi. Það er jafnvel líklegast, að þeir taki við stjórninni i sameiningu næstu daga. En þegar svo er komið, hregða alþýðubrodd- arnir við, falla frá kröfunni um lágmarksverðið, sem samþykt hafði verið rétt fyrir kosning- arnar, og, að því er virðist, einn- ig frá því, að síldartollurinn verði afnuminn! Alþýðuflokkurinn gæti, ef hann vildi, knúið frani kröfuna um afnám síldartollsins. Það er að vísu látið í veðri vaka, að tollurinn verði ef til vill afnum- inn, og þá eigi sjómcnnirnir að njóta þess. En livers vegna er krafan ekki komin fram þegar i stað? — Auðvitað af því, að krafan var aldrci annað en beita, scm nota átti i kosning- unum, en siðan gerði minna til hvað um yrði! — Ælli það fari ekki svo um fleiri kosningalof- orð alþýðubroddanna? Samverkamakr Ton Fapen’s settnr í fangelsí. Berlín, 29. júní. FB. Samkvæmt árei'Sanlegum heim- ildum var einn af nánustu sam- verkamönnum von Papens, Jung að nafni, handtekinn fyrir skömmu. von Papen hefir per- sónulega gert ítrekaSar tilraunir ti! þess aö fá hann látinn lausan, en þær tilraunir hafa engan árangur boriö. (United Press). Frá Pðllandi. Nýr innanríkisráðherra skipað- ur í stað Pieracki, sem myrtur var nýlega. Varsjá, 29. júni. FB. Kosckialowski borgarstjóri í Varsjá hefir veriö skipaður innan- ríkisráöherra, í staö Pieracki, sem myrtur var á dögunum. Landbún- aöarráöherrann, Nakoni Ecznikoff aö nafni, hefir látið af embætti, en í hans staö héfir verið skipaöur stjórnmálamaður aö nafni Ponia- towski. Talið er að vali þessara manna í ráöherrastöðurnar veröi sæmilega tekið af vinstri flokkun- um. (United Press). Rosningaárslit. BarÖastrandarsýsla. Kosinn var Bergur Jónsson (F) með 508 atkvæðum. Jónas Magn- .ússon (S) fékk 266, Sigurður Ein- arsson (J) 292, Hákon Kristó- fersson (B) 140 og Hallgrímur Hallgrímsson (K) 70. Atkvæði féllu þannig á landlista flokkanna : A: 10, B : 14, C: 8, D : 3, E: io. — Eru landlista atkvæðin talin meö atkvæðum frambjóöenda hér að framan. Á kjörskrá voru i689 kjóséndur.; •(Viö kosningarnar í fyrrasumar fékk B. J. 465 atki/., Sig. Krist- jánsson (S) 293, P. Þorbjarnar- son (J) 82 og Andrés Straumland (K) 75- v I Eyjafjarðarsýsla. Atkvæði féllu jiannig á fram- bjóöendur (landlistaatkvæði meö- talin) : Bernh. Stefánsson (F) 1319, Einar Arnason (F) 1251, Garðar‘Þorsteinsson (S) 917, Ein- ar Jónasson (S) 905, Stefán Ste- fánsson (B) 348, Pétur Eggerz (B) 301, Baröi Guðmundsson (J) 371, Halldór Friðjónsson (J) 303, Þóroddur Gi+ðmundsson (K) 237, Gunnar Jóhannsson (K) 262. Á kjörskrá voru 4100. (Viö kosningarnar í fyrrasum- ar fékk B. St. 928, E. á. 819, E. J. 503, G. Þ. 483, Stgr. Aðalsteins- son (K) 256. G. J. 253, Jóh. Fr. Guðmundsson (J) 114 og Felix Guöjnundsson (J) 103). Draagnrinn og stálkan á tánins. Eitt áí’ lielstu afreksverkum framsóknarstj órnarinnar var það, að því er kosningableðill Jónasar skýrði frá nýlega, að hafa stúlku á Arnarliólstúninu á sumrin! Segir bleðillinn, að þetta hafi eingöngu verið gert fyrir Reyk- víkiiiga, og sé ósköp til þess að vila, að þeir skuli ekki liafa kunnað að meta slíkt! Þá er og frá þvi skýrl, að „draugur“ liafi staðið i „hlið- inu“, en Jónas hafi rekið liann á flótta og búið til „fallegasta hliðið í landinu“! — Er gefið i skyn, að draugsi liafi eitthvað dasast af yfirsöngvum Jónasar og ekki þorað að koma í fallega hliðið, og eins að stúlkan hafi setið í friði á túninu upp frá því, uns „íhaldið" liafi slökt henni á flótta! Nú er stúlkan horfin af tún- inu, en þess ekki beinlínis get- ið, hvort draugurinn muni kominn í hliðið á riýjan leik, en Jónas á bersýnilega von á honum. Að lokum er frá því skýrt, með ofurlitlum keim af mikil- læti, að „stúlkan á túninu“ hafi borið órækt vitni um stórhug og framsýni Jónasar! Vonandi hefir Jónas ekki mjög slrangar áhyggjur af draugsa, þó að liann kynni að fara að rjála eitthvað við hlið- ið. Þetta er að vísu í nágrenni við liann og stutt að fara í sam- bandshúsið, en öllu ætti þó að vera óhætt, meðan nóttin er björt sem dagur. RúðuFnap og atkvædin. Ivosningableðill Jónasar gat þess nýlega, að þær væri orðnar 699, brotnu rúðurnar í sund- höllinni! Og bleðillinn er auð- sjáanlega meira en lítið liróð- ugur yfir dugnaði spellvirlcja þeirra, sem þarna hafa verið að verki. Lítur lielsl út fyrir, að Tíma- kommúnistar hér i bænum hafi strengt þess lieit, að engin rúða skyldi vera lieil í sundhöllinni, er kosningar færi fram. Munu kosningasmalar flokksins liafa átt að keppa við liina, er það embætti höfðu, að brjóta rúð- urnar, þannig, að hver brotin rúða væri launuð með einu at- kvæði handa Hannesi dýra- lækni! Það er víst dálílið óvenjuleg aðferð, sem hér hefir verið beitt. Sumir keppast við að brjóta rúður, en fyrir aðra er lagt, að koma með eitt atkvæði fyrir hverja rúðu, sem liinum liefir tekist að mölva! „Það mætti ekki minna vera, en að ílialdið misti að minsta kosti eitt atkvæði fyrir hverja rúðu, sem brotin er,“ segir bleð- illinn. — En þetta hefir ekki lánast upp á það besta. Þeir, sem tóku að sér að mölva rúðurnar, hafa auðsjáanlega verið miklu dug- legri en Irinir, sem settir voru í það, að útvega Hannesi at- kvæði frá Sjálfstæðisflokkin- um! Happdrættl Háskðlans. Dr. Alexander Jóhannesson skýrði hlaðamönnum frá því i gær, hvernig gengið liefði sala happdrættismiða, horfum um framhaldssölu á yfirstandandi ári, fyrirætlunum á næsta ári o. fl. Verður liér sagl frá jiví helsta, sem hann tók fram í yf- irliti því, sem hann gaf í viður- vist hlaðamannanna. Sala happdrættismiðanna hefir gengið ágætlega til þessa og framtíðarhorfur góðar. Upphaflega var gert ráð fyr- ir að gefa út á yfírstandandi ári A, B, C og D miða, en það varð að ráði, að gefa að eins út A og B(fjórðungsmiða)fyrir kr. 750.000. Salan hefir verið sem hér ségir: Selst hafa 42.500 fjórðungs- miðar í I. flokki, 44.500 miðar í II. floklri, 45.000 nriðar í III. flokki og sennilega hefir salan í IV. flokki verið svipuð, en fullnaðarskýrslu vantar um það enn sem komið er. Óseldir eru um 5000 miðar eða tæplega það og er gert ráð fyrir, að þeir seljist fyrir ára- mót. Að visu verða þeir kaup- endur, sem bætast við, að kaupa miðana frá byrjun, en líkurnar fyrir að viilna, vaxa með mán- uði hverjum og er hámarkinu náð í desember. Utborgun vinninga. Nú hefir dráttur farið fram 4 sinnum og er búið að borga út vinninga 94.300 kr. I des- ember verða dregnir % af öll- um vinningum ársins og verð- ur þá útborgað í vinningum 224.500 kr.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.