Vísir - 21.07.1934, Blaðsíða 3

Vísir - 21.07.1934, Blaðsíða 3
VISIR Stjórnar- skiftin. Það er nú altalað, að loks- ins hafi rauðu flokkunum tek- ist," eftir stórkostlegar þreng- ingar og vandræði, að koma sér stunan um ráðherraefni. Og valið hefir tekist þannig, að bændastéttin hefir orðið al- gerlega afskift, þó að tvö ráð- herraefnih sé að vísu að nafni til fulltrúar fyrir landbúnaðar- kjördæmi. — Talið er, að þessir „rauðu“ menn verði nú gerðir að ráð- herrum: Hermann Jónasson, Eysteinn Jónsson, Haraldur Guðmundsson. Um þá H. J. og' E. J. er það að segja, að þeir eru ekkert amiað en vikapiltar Jónasar frá Hriflu. — Þeir eru í raun réttri kommúnistar, alveg eins og húsbóndi þeirra, þó að ann- að sé tálið uppi, þegar talað er við bændur og búalið. Jónasi Jónssyni hafði ckki tekisl að afla sér nema eitt- hvað 8 eða 9 fylgismanna til stjórnarmýndunar. Hinir höfðu aftekið með öllu, að styðja hann til valdatöku. Svo fvlgis- laus og lítilsvirtur er hann nú orðinn, jafnvel meðal rauðu fiokkanna. En liann var ekki af haki dottinn fyrir því. Og nú er sagt, að honum hafi, með einiiverj- um ráðum, tekist að véla rauða liðið til þess, að sam- þykkja, að tveir allra þægustu og ösjálfstæðustu vikapiltarnir verði teknir í stjórnina. Fregnin er ósennileg. Það er ósennilegt, og i rauninni alveg furðulegt, að framsóknarmenn liafi látið iilunnfara sig með þessum hætti. Það er ótrúlegt, að þeir geti varið það fyrir samvisku sinni og heilbrigðri skynsemi, að algerlega óreynd- um mönnum, lítilhæfum ærsla- belgjum, verði hleypt i stjórn landsins. Slíkt kæruleysi er ekki æll- andi reyndum og ráðsettum mönnum. En það hafa menn ætlað hingað til, að þeir væri, sumir þingmenn Framsóknar- flokksins. Austurrískir nazistar í Þýska- landi hafa í hótunum við Doll- fussstjórnina. Munchen, 20. júlí. — FB. Frauenfeld, liinn nýi tals- maður „austurrísku fylkingar- innar“ i Bayern flutti útvarps- ræðu á fimtudagskveld og hafði í hótunum við Dollfuss. Kvað hann ólöglegt með öllu að her- r'éttur dæmi í máli þeirra sjö nazista, sem leiddir verða fyrir rétt i dag. Kvað Frauenfeld ör- lög Dollfussstjórnarinnar undir því komin, hvernig dóm nazist- arnir fengi. (United Préss). Þrumuveður í Noregi. Mikið þrumuveður gekk yfir Oslo og mikinn hluta Austur- Noregs i gær og stóð það yfir í nokkurar klukkustundir. Eld- ingu laust niður á mörgum stöðum. Símalínur slitnuðu og' járnbrautarlestum seinkaði. Var Oslo sambandslaus við ýmsa staði. Lestunum seinkaði einkum á Vestbanen. Messur á morgun. I dómkirkjunni: Kl. 11, síra Bjarni Jónsson. Landakotskirkja: Lágmessa kl. 6V2 árd. Söngmessa kl. 9 árd. í Hafnarfjarðarkirkju: Kl. 2, síra Garðar Þorsteinsson. Veðrið í morg-un. Eliti í Reykjavík 12 st., Isafirði 12, Akureyri 14, Skálanesi 12, Vest- mannaeyjum 11, Ivvígindisdal' 11, Hesteyri 13, Gjögri 11, Blönduósi 14. Siglunesi 10, Grímsey 12, Skál- um 8, Fagradal 10, Hólum í Horna- firÖi 11. Fagurhólsmýri 13, Reykja- nesvita 12. Færeyjum 13. Mestur hiti hér í gær 14 st., minstur 10. Sólskin 8,5 st; — Yfirlit: Háþrýsti- svæði fyrir sunnan land, en lægð fyrir vestan. Fregnir vantar frá Grænlandi. — Horfur: Suðvestur- land, Faxaflói, Brei'ðafjörður, Vest- firðir: Hægviðri og úrkomulaust í dag. en sennilega sunnanátt og rigning í nótt. Norðurland, norð- austurland, Austfirðir: Hægviðri. Úrkomulaust og víða léttskýjað. Suðausturland: Léttskýjað í dag, en þyknar upp með suðvestanátt í nótt. 40 ára er i dag Geir Magnússon, leg- steinasmiður, Bergþórugötu 1. Hjúskapur. Þ. 11. þ. m. voru gefin saman i hjónaband í Borgarkirkju á Mýrum ungfrú Jóna G. Jóns- dóttir og Ágúst Kristjánsson. í dag verða gefin saman í hjóna- band ungfrú Vilborg Ámundadótt- ir, Hverfisgötu 37, og Huxley Ól- afsson, verslunarmaður, Þjórsár- túni. Heimili þeirra verður á Hverfisgötu 37. Skip Eimskipafélagsins. Lagarfoss er væntanlegur hing- að kl. 3—4 í dag. Gullfoss er hér. Fer áleiÖis vestur og norður á mánudag. Goðafoss er íi Akureyri. Brúarfoss kom til Leith í gærkveldi. Dettifoss fór frá Hamborg í dag áleiðis til Hull. Selfoss er á Akur- éyri. E.s. Hekla fór frá Genúa í gær áleiðis lil Tripolis og tekur þar saltfarm. Gullverð ísl. krónu er nú 50.21, miðað við frakkn. franka. Kvikmyndahúsin. Garnla Bíó sýriir i fyrsta sinni í kvekl kvikrn. ,,Hollywoodhetjan“. Aðalhlutverk leika Stuart Erwin, Joan Blondell, Ben. Turpin o. fl. — Nýja Bíó sýnir kvtkm. .„Egipsk- ar nætur“, sem gerð er af Ufa- félaginu þýska. Aðalhlutverk leika Renate Múller og Willy Fritsch. Næturlæknir er í nólt Þórður Þórðarson, Eiríksgötu 11. Sími 4655. — Næturvörður i Reykjavíkur apoteki og Lyf jabúðinni Iðunni. I gærkveldi sýndu nokkrir menn úr glímufélaginu Ármann, íslenska glímu fyrir dönsku knattspyrnu- mennina í fimleikasal Menta- skólans. Voru áhorfendur mjög hrifnir á glimunni. Hraðritunarskólinn. Athygli skal vakin á augl. frá Hraðritunarskólanum, sem hirt er í blaðinu i dag. Notkun hrað- ritunar við ýmiskonar starf- semi hér í hænum eykst nú með ári hverju og má af því marka áhug'á manna i þessum grein- um, að menn eru byrj aðir að læra hraðritun nú um hásum- arið, lil undirbúnings vetrar- starfinu. h. Gengið í dag. Sterlingspund ........... kr. 22.15 Dollar............... -—■ 4.40^2 100 ríkismörk......... — 171.46 — fránskir frankar — 29.12 — belgur............ ■—• 102.64 — svissn. frankar .. — 14348 — lírur ............... — 38.24 ■— finsk mörk ........ •— 9.93 — pesetar .............. — 60.92 — gvllini.............. — 297.94 — tékkósl. krónur . . — 18.58 — sænskar krónur . . — 114.36 — norskar krónur .. — m-44 -— danskar krónur . . — 100.00 Áíafosshlaupið verður háð á morgun og liefst á fþróttavellinum lcl. 4% e. h. Þaðan verður hlaupið að Ála- fossi og endað þar. Meðal kepp- enda em: Bjarni Bjarnason úr fþróttafélagi Borgfirðinga, Jó- liann Jóhannesson (A.), Bjarni Magnússon (Á.) og Árni Stef- ánsson (A.). Samsæti verður dönsku knattspyrnu- möniiunum haldið í Oddfellow- húsinu i kveld, að afstöðnum kappleiknum. Á eftir verður dansað. Urslitakappleikurinn verður i kvöld á milli H.I.K. og úrvalsliðsins. Eru áhorfendur vin- samlega beðnir að muna það, að hinir dönsku knattspýrnumenn eru gestir okkar, og því ber öllum a'ð koma kurteislega fram við þá og drengilega. Munu allir sannir í- þróttamenn óska, að þessi knatt- spyrnuleikur fari vel og drengilega fram, og verði öllum til sórna. B. G. W. Danska íþróttafélagið hélt knattspyrnuflokki H.I.K. samsæti í gærkveldi á Hótel Borg. Formaður D. í. afhenti fararstjóra H.I.K. fallegan silfurbikar, til minningar um komu þeirra hingað, en fararstjóri þakkaði og gaf D. í. fallegan fána (merki H.I.K.) á fánastöng. Að því loknu flutti for- . seti LS.Í. fróðlegt og ítarlegt er- indi um ísl. íþróttir. — Samsætið stóð til miðnættis og fór hið besta fram. Viðstaddur. Útvarpið í kveld. Kl. 19.10: Veðurfregnii’. Til- kynningar. — 19.25: Tónleikar. — 19.50: Tónleikar. — 20.00: Klukkusláttur. Tónleikar (Út- varpstríóið). — 20.30: Erindi: Kagwa, postuli Japana. (Frú Guðrún Lárusdóttir). —- 21.00: Fréttir. — 21.30: Grammófón- kórsöngur. — Danslög til kl. 24. Kappleiknrinn og dómarinn. Það var ekki einasta rétt af K.R.-liðinu, að yfirgefa leik- vanginn, eftir þrautrevnda rangsleitni dómarans í kapp- leiknum í fvrrakveld, lieldur sjálfsögð neyðarvörn, liin.ein- asta, sem knattspyrnuflokki er gefin í svipuðum kringumstæð- um. Það þýðir ekki fyrir þá, sem vilja ásaka K.R.-liðið fvrir þetta, að halda þvi fram, að slikt sé einsdæmi og allra sist situr það á kappliðsmönnun- um sjálfum, að gefa slíkt í skyn, þar sem þeim hlýtur að vera kunnugt um svipuð atvik frá síðari ára millirikjakepni á Norðurlöndum. Og það er óneitanlega einkennileg kur- teisi, að mæta á fyrsta kapp- leiknum með allskonar útbún- að til að gera hávaða og gaura- gang, en þola svo ekki íslensk- um áhorfendum réttmæta reiði, heldur býsnast vfir liehni og fullyrða, að áhorfendur liafi ekkert vit á því, sem þeir eru að horfa á. Þá er það fjarstæða að telja, að aðrar leikreglur gildi hér en annarsstaðar og jafnvel skilningur á reglunum. Það er firra að halda því fram, að dómari geti altaf séð, þegar „liönd“ er gerð viljandi, og ef stöðva á leik, áður en hættu- leikur kernur fvrir, gæti hjart- veikur dómari eins vel skijiað öðru liðinu að standa kyrru, á meðan hitt skorar mörkin! — Hvort tveggja er í revndinni jafmnikil fjarstæða. Sannleikurinn um sveitirnar, sem hér liafa áttst við, er sá, að þær eru svo jafnar (shr. úr- slitin 2:1 í tveimur kappleikj- um), að önnur getur ekki sigr- að með greinilegúm yfirburð- um, og er óþarfi að þykkjast út af því eða neyta til þess nokkurra bragða. Að Islend- ingar geti vel tekið ósigri i knattspyrnu með jafnaðargeði, má greinilega minnast frá kappleikjunum við Skotana síðast. Það var eins og einn áhorfandi sagði, „ánægja að láta þá bursta sig“! L. S. Mfja stjðrnia I Japan og friðarmálin. —o— Hirota, utanríkismálaráð- herra nýju japönsku stjórnar- innar, kvaddi erlenda blaða- menn á sinn fund eigi alls fyr- ir löngu, og kvað það fastan ásetning stjórnarinnar, að efla vinsamlega sambúð Japana við aðrar þjóðir. Enn fremur sagði bann, að innan skamms væri væntanlegir til Tokio þeir Sai- to, sendiherra Japana i "Was- hington, og Sato, sendiherra þeirra i París. Þegar þeir kæmi myndi stjórnin ræða vi'ð þá um þátttöku Japana í alþjóðasam- vinnu um friðarmálin. „Nú er tími til kominn,“ sagði Hirota, „að stórveldin taki til athug- unar liver ábyrgð hvílir á þeim, að því er varðveislu frið- arins i heiminum snertir. Er það mjög mikilvægt, að gagn- kvæmur skilningur þjóða milli aukist, svo að unt verði að upp- ræta tortrygni þjóðanna, en hún er einliver mesta orsök þess, að ekki verður ágengt með að koma friðarmálunum áleiðis.“ Ekki þykja þessi unnnæli koma vel heim við breytni Jap- ana i Mansjúriu og Kina, en vera má, að einhver breyting sé nú að verða i Japan. Mun þó flestum þykja valt að treysta því. Hins vegar er þess að geta, að nýja stjórnin er samsteypustjórn, sem leitar samvinnu allra flokka i land- inu, og má því vera, að liern- aðarsinnarnir liafi ekki allar sínar kröfur fram, eins og ver- ið hefir, en af því hefir leitt, að tortrygni hefir vaknað i hugum flestra þjóða til Japana og sýnilegt er, að nýja stjórn- in telur það lilutverk sitt, að reyna að draga úr þeirri tor- trvgni. Ferðalðg norska skátanna. Isafirði, 20 júlí. — FÚ. Fjórtán norskir skátar, sem útvarpið liefir áður getið um, komu til ísafjarðar undir stjórn síra Ole Eger frá Hamar með togaranum Sindra 11. þ. m. Daginn eftir héldu þeir ásamt 12 ísfirskum skátum undir sljórn Gunnars Andrew skáta- foringja inn í Kaldalón, og var dvalið þar í tjöldum i 5 daga. Tjaldið var i hléi við neðstu jökulröndina og er þar gróið grasi og kjarri. Ferðast var um lónið og fram á skriðjökul. Skriðjökull sá er styttri nú en nokkuru sinni fyrr. Einn dag- inn var gengið á jökulinn alla leið á svonefnda Hrollleifsborg, fjallstind er stendur upp úr jöklinum. Þokusúld var er skát- arnir voru á jöklinum, en tind- inn fundu þeir með því að styðj- ast við áttavita, landsuppdrátt og hæðarmæli. Úr lóninu var haldið að Ármúla og Melgras- eyri og þaðan í Reykjanes og lieim til ísafjarðar í gærkveldi. Skátarnir norksu héldu því næst ’með Goðafossi lil Akureyrar i boði skáta þar. Signrðnr Skagfield söngvari hefir lengi dvalist vestan hafs óg sungið meðal íslendinga þar við góðan orðstir. Hafa við og við birst lofsamleg ummæli um söng lians i vestanblöðunum ís- lensku og fleiri blöðum. Hann liafði ráðgert að koma heim lil Islands í sumar, en af því verður þó að likindum ekki, því að honum hefir boðist at- vinna í Toronto, sem liann sá sér ekki færl að hafna. Eins og menn vita er nú hið mesta at- vinnuleysi meðal söngvara og annara listamanna víða um heim, og hefir það einkum bitn- að á útlendingum. Má það vera gleðiefni vinum Sigurðar, að honum liefir nú boðist söngv- arastarf meðalframandi manna, því að það ber vitni um bvers álits hann nýtur. Sigurður hélt kveðjusöng- skemtun í Winnipeg áður en hann fór þaðan i vor og var honum þá flutt kvæði það, sem hér fer á eftir. Hefir Visi verið sent kvæðið með eindreginni ósk 11111, að það yrði birt. Til Sigurðar Skagfields (við burtför hans frá Winnipeg 1934). Augum sálarsjónar Sé eg æfðan her: — Eins og þægir þjónar, Þar sem stjórnsamt er Æðstu unaðs tónar Allir lúta þér. Grunt og djúpt má grafa, Grafa í jörð og höf; Leita lifsins gjafa, Leita fram að gröf: Fæstir fundið hafa Fegi’i vöggugjöf. Lj ós þitt skina láttu líkt og himneskt bál; Auðga á alla háttu Alheims tungumál. — Opnar leiðir áttu Inn í hverja sál. Héðan burt þó haldir, Hækkar vegur þinn; Stutta stund þó tjaldir, Stækkar hróður þinn: —• Gegn um ár og aldir Ómar söngur þinn. Sig. Júl. Jóhannesson.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.