Vísir - 18.08.1934, Page 2
yisiR
Það ep
of seint að fegra blettinn yðar.
Sláið hann með
„Serva“
handsláttuvél og s.jáið árangurinn.
Nokkrar vélar
óseldar-
Hitler
og þjóSaratkvæðið. —
„Þjóðverjar standa sam-
einaðir“, segir Hitler í
ræðu í Hamborg í gær.
Hamborg, 17. ágúst. FB.
Hitler kanslari kom hingað í
dag loftleiðis. Er nú alt undir-
búið útvarp á ræðu lians, en
henni verður útvarpað um ger-
valt landið í kveld og er þar
með hámarki kosningabarátt-
unnar náð. — Hitler liefir farið
í heimsókn á skipasmiðastöðv-
arnar. í ræðu, sem liann hélt þar
i viðurvist starfsmanna skipa-
smíðastöðvanna sagði liann:
„Þjóðverjar hafa ekki átt frum-
kvæði að deilum við aðrar þjóð-
ir og vér viljum ekki stofna til
deilna við þær að óþörfu. Aðr-
ar þjóðir eru að sannfærast um,
að Þjóðverjar eru þjóð, sem
tvístrast ekki. Þeir munu standa
sameinaðir og einliuga livað
sem yfir dynur. Aðrar þjóðir
ætti að lála oss afskiftalausa".
(United Press).
Þjöíverjar mótmæla
ummælum blaðanna í
Saar og telur stjórnin
þau hafa móðgað þýska
þjóðarleiðtoga.
Berlín, 17. ágúst. FB.
Ríkisstjórnin í Þýskalandi
liefir sent hvassyrta orðsend-
ingu til stjórnarnefndarinnar í
Saar út af ummælum Saarblað-
anna í tilefni af fráfalli Hinden-
burgs forseta og telur blöðin
hafa farið móðgandi orðum um
þýska þjóðarleiðtoga og fer
fram á, að stjórnarnefndin láti
slíkt ekki koma fyrir oftar.
(United Press).
Kafað eftiF gnlli.
Londonderry 17. ágúst. — FB.
A8 undanförnu hefir verið unn-
iS að þvi aS ná því, sem eftir er
af gullinu úr skipinu Laurentic,
sem skotiö var í kaf i heimsstyrj-
öldinni (1917). Hefir köfurum
frá björgunarskipinu, sem notaS
hefir veriö við þetta starf nú tek-
ist a'S ná öllu því gulli sem eftir
var í skipinu þar sem þa'S liggur
á hafsbotni. Er taliö aS síSasti
fengur þeirra hafi veriS aS ver'S-
mæti um 1 miljón sterlingspunda.
Þegar Laurentic var sökt 1917
var þaS á leiS til Bandaríkjanna
og var verSmæti gullsins sem þaS
hafSi meSferSis sex miljónir ster-
lingspunda. (United Press).
Hráefnaskortarinn
f Þýskalandi.
Berlín 17. ágúst. — FB.
Schacht hefir i viStali viS blaSa-
menn rætt um hina yfirstandandi
fjárhags- og viSskiftalifserfiS-
leika og hversu mikiS væri undir
því komiS fyrir Þýskaland, aS úr
rættist gjaldeyriserfiSleikunum og
hráefnaskortinum. KvaS hann Hitl-
er hafa lagt svo fyrir aS alt skyldi
gert sem unt væri til þess aS hraSa
tilraunum þeim, sem veriS er aS
framkvæma, meS þaS fyrir aug-
um aS nota innlend efnr í staS
erlendra hráefna. Hann kvaS Hitl-
er hafa hafnaS öllum tillögum um
aS fella gjaldmiðilinn í verSi.
( United Press).
Hafnargerðin
á Akranesi.
Steinnökkvanum
var sökt í gær.
Akranesi 17. ágúst. FÚ.
í dag var sökt til framleng-
ingar hafnargarðinum á Akra-
nesi steinskipi, sem keypt var
lil þess í Noregi i vor. Lengist
garðurinn við það um 60 metra.
Skipið hefir legið á Hvamrns-
vík, og þar var steypt í það svo
mikið sem burðarmagn þess
Ieyfði. Dráttarbáturinn Magni
frá Reykjavík dró það til Akra-
ness. Tveir kafarar hafa undan-
farið jafnað malarlagi undir
skipið, og var því verki nýlokið.
Verður nú unnið að því, að
fylla skipið með tveggja metra
þykkum steypuveggjum í hlið-
arnar, en miðbikið verður fylt
með grjóti. Vafasamt er hvort
tími og veður leyfa að þessum
hluta garðsins verði lokið í
haust.
Samningaumleitanir
Norðmanna og Þjóðverja.
Bergen, 14. ágúst. — FB.
Fundurinn í Sandefjord um
tilboð þýsku stjórnarinnar
stendur nú yfir og verður vænt-
anlega lokið í kveld.
Vinna hafin í Röros.
Vinna hefst í Röros verk í
dag og fá þar 70 menn atvinnu.
Dresden-strandið.
Stavanger Skibsophuggnings-
kompagni liefir keypt skipið
Dresden, sem strandaði við
Noreg í sumar. Skipið er keypt
til niðurrifs. Vinna við það
hefst innan skamms.
Ranði Kross íslands
1933.
Skýrsla formanns Rau'öa Kross
íslands til aöalfundar þ. 18. júní
1934 hefur veriö prentuö og er
fyrir skömniu út komin. Aöalstjórn
félagsins skipuöu á árinu (1933) :
Björgúlfur Ólafsson læknir, form.,
ti! 23. okt., en dr. Gunnl. Claessen
frá 23. okt., Guðm. Thoroddsen
prófessor, varafórmaöur, L. Kaab-
er bankastjóri, gjaldkeri, Björn
Ólafsson stórkaupm.,ritari, Magn-
ús Kjaran stórkaupm., Þorst. Sch.
Thorsteinsson - lyísali, Tryggvi
Þórhallsson bankastjóri, Jóh. Jó-
hannesson fyrv. bæjarfógeti, Stein-
grímur Matthíasson héraðslæknir,
Þórður Thoroddsen læknir, Inga
L. Lárusdóttir kennari, Hallgr.
Benediktsson stórkaupm., Matth.
Einarsson læknir, Pétur Ingimund-
arson slökkvili'ðsstjóri og Svein-
björn Egilson ritstjóri. Auk for-
manns, varaformanns og ritara
voru í framkvæmdanefnd þeir
Magnús Kjaran og Þorst. Sch.
Thorsteinsson.
Um fjárhag félagsins er það
helst að segja, að í ársbyrjun voru
í sjóöi kr. 123,701,65. „Tekjur voru
á árinu kr. 10,946,84, en gjöld kr.
8,451,34. I árslok voru eignir fé-
lagsins kr. 26,197,15. Þar að auki
á félagið blaðið „Unga ísland“ og
var kaupverð þess kr. 3,000,00.
Ennfremur átti félagið sjúkrabif-
reið, nokkuð af hjúkrunargögnum
o. fl. smávegis“.
Félagatala var í árslok 669. —
Styrks naut félagið ekki frá Al-
þingi á þessu ári (þ. e. 1933), „en
vonandi sér fjárveitingavaldið sér
fært að veita R. Kr. styrk á ný,
svo margvísleg og gagnleg störf,
seni hann hefur með höndum, er
koma almenningi að notum víða
um land, viðvíkjandi heilsuvernd
og hjúkrun“. — Félagið annaðist
á árinu flutning 582 sjúklinga, þar
af flutti sjúkrabifreiðin í Reykja-
vík 455. en sjúkrabifreiðin á Ak-
ureyri 127. „Það er mikið og
vandasamt verk að flytja alt að'
600 veika menn, suma þungt
haldna, oft langar leiðir, og víða
á vondum vegum“. Slökkviliðs-
menn hafa annast sjúkraflutning-
ana hér syðra, undir stjórn Péturs
Ingimundarsonar slökkviliðsstjóra
og Kristófers Sigúrðssonar vara-
slökkviliðsstjóra, „sem báðir hafa
látið sér rnjög ant um þetta starf“.
Eins og'kunnugt'er hefur sjúkra-
bifreiðin í Reylcjavík verið seld og
var í hennar stað keypt ný sjúkra-
bifreið af bestu gerð.
í skýrslunni- er ennfremur rætt
um námskeið í hjúkrun, sem fé-
lagið hefir haldið, og hjálp í við-
lögum. Námskeiðin fóru fram á
Akureyri, Isafirði, Bíldudal og í
Reykjavík og voru þátttakenclur
alls 112, flestir á Akureyri (54).
en fæstir í Réykjavík (15). Kensl-
una annaðist hjúkrunarkona R.
Kr„ Sigríður Bachmann. Þá er
rætt um sjómannahjúkrun félags-
ins í Sandgerði, Akureyraraeild-
ina og Rauða-Kross-blaðið „Unga
ísland“.o. fl.
Rauði Kross íslands hefur þeg-
ar unnið mikið og gott starf og á
það vafalaust fyrir sér að aukast
ntikið á næstu árum.
Frá Bergen.
Bergen, 14. ágúst. — FB.
Samkvæmt nýbirtum skýrsl-
um eru skattskyldar tekjur í
Bergen 75.8 milj. kr., en í fyrra
76.4 milj. kr. í Bergen eru nú
yfir 20 miljónaeigendur og 30
miljónafélög.
Búkarfrego.
Víðbætir við Sálmabók
til kirkju- og heima-
söngs.
Bók þessi er gefin út „að til-
hlutun hinnar íslensku þjóð-
kirkju“ á „forlag Preslsekkna-
sjóðsins“. Eins og kunnugt er
liafa orðið miklar blaðadeilur
um þessa bók. Hefir verið fund-
ið að ]>ví, liversu mikið af lé-
legum sálmakveðskap liafi ver-
ið tekið í hana, og verður því
eigi neitað, að þær aðfinslur
liafa við mikið að styðjast, en á
liitt er og að líta, að í lienni er
margt ágætra sálma. En það er
mjög leitt — og í rauninni ófor-
svaranlegt með öllu, — að
fjölda niörgum sálmum, sem
teknir liafa verið í safnið, liefir
verið breytt og eru breytingarn-
ar síst til bóta. Hefir þetta leitt
til þess, að margir höfundanna
liafa krafist þess, að bókin
verði gerð upptæki Það verður
að líta svo á, að útgáfunefnd-
inni liafi verið skylt að virða
svo mikils verk þeirra höfunda,
sem hún valdi sálma eftir, að
birta þá eins og höfundarnir
gengu frá þeim. Það er eðlilegt
og sjálfsagt, að liöfundar geri
þær kröfur, að verk þeirra séu
eigi birt án leyfis þeirra, né að
þeim sé breytt á nokkurn hátt.
Hafi verið ástæður til þess að
gera einhverjar breylingar, bar
að sjálfsögðu að ræða það við
höfundana, því að þeir einir
liafa rétt til ákvörðunar um
slíkt og mundu einnig vafalaust
liafa kosið að gera breytingarn-
ar sjálfir, ef þeir annars liefði
fallist á það, að nokkurra breyt-
inga væri þörf. Um verk látinna
manna er eg, sem þessar linur
rita, þeirrar skoðunar, að það sé
með öllu óheimilt og óforsvar-
anlegt að gera á þeim nokkur-
ar breytingar. Að talca sér fyrir
hendur að breyta verkum
þeirra, sem látnir eru, og verk-
um lifandi höfunda í óleyfi
þeirra, ber vott um virðingar-
leysi, scm verður að átelja og
má ekki þola.
Það er mjög leitt, að svo
skuli liafa tekisl til um útgáfu
þessa viðbætis og úr þvi verður
að bæta. Höfundum tekur sárt
til þess, er verk þcirra eru af-
bökuð, og eins niðjum þeirra
skálda, sem látnir eru. Mér þyk-
ir rétt að geta þess, að í þennan
viðbæti liafa verið teknir nokkr-
ir sálmar, eftir föður minn,
frumsamdir og þýddir. Bókin
liefst á lofsöngnum „Guð, hæst
i hæð“ og hefir í engu verið
liróflað við lionum, en aftur
hefir þótt ástæða lil að breyta
þýðingunni á sálminum „Dvel
lijá oss, er dagur linígur“,
og verð eg að átelja það. Tel
eg, að þýðingunni sé mjög
spilt með breytingunum. Er það
í rauninni alveg furðulegt, að
íslenskum mentamönnum skuli
gela dottið í hug, að menn láti
sér slíkt framferði lynda, en
þvi miður liefir látnum höfund-
um liér á landi verið sýnt slílct
virðingarleysi áður, en verður
vænlanl. ekki þolaðframar. Mér,
eins og sjálfsagt mörgum öðr-
um, sem finna hjá sér köllun til
andmæla vegna þessarar fram-
koinu nefndarinnar, eða þeirra
í henni, sem breytingarnar hafa
gert, er óljúft um þetta að ræða,
en eg lel mér skylt að fimia að
þessu opinberlega. Hinsvegar er
eg þeirrar skoðunar, að æskilegt
væri að um mál þetta væri skrif-
að æsingalaust og unnið að því
af velvild og góðum hug, að
bókin verðí gefin út á ný með
öllum sálmunum i þeim bún-
ingi, sem höfundarnir sjálfir
völdu þeim. Verði það ofan á,
að horfíð verði að þessu ráði,
vildi eg benda á, að til er margt
fagurra trúarljóða, einkum
þýddra, sem mundu sóma sér
vel í víðbætínum, og mætti þá
að skaðlausu fella burt sumt af
því, sem slæðst hefir með í
þessa mishepnuðu útgáfu.
A Th.
Júgóslavar
veitto an8turrískn
nagistanam aðstoð.
í símskeyti frá Vínarborg 4. þ.
m. er því haldiö fram, að Júgó-
slavar hafi, ekki síöur en ÞjóS-
verjar, stutt austurrísku nasistana,
sem ætlu'öu að hrinda af stað bytt-
ingu daginn, sem Dollfuss kansl-
ari var myrtur, fyrir skömmu.
Þaugað til byltingartilraunin hófst
voru margir þátttakendanna í
henni í Júgóslaviu, en byltingar-
daginn fóru þeir yfir landamærin
inn í Austurrjki alvopnaöir, meö
fullu samþykki yfirvaldanna.
jiessu var haldið fram mjög á-
kveöiS og einarðlega í blaöinu
Weltblatt, sem aö nokkru leyti get-
ur talist oj^inbert málgagn austur-
rxsku stjórnarinnar. — Blaö-
iö segir, aö nasistaflokkarnir frá
Júgóslavu hafi barist heiftarlega
gegn stjórnhollu, austurrísku her-
‘sveitunum i Carinthia, og þá fyrst,
er þær höföu betur, og'nasístarnir
uröu aö flýja til Júgóslavíu aftur,
voru þeir afvopnaöir þar og settir
í hermannabúðir. Weltblatt heldur
])ví fram, aö nasistaflokkarnir frá
Júgóslavíu hafi fariö af staö, er
þeim hafði borist orö um, að bylt-
ingarsinnar í noröurhluta Carin-
thiu væru lagöir af staö suður á
bóginn, og var tilgangurinn að
sameinast þeim, en þetta mishepn-
aöist alt því aö flokkunum og'
heimwehrliöi lenti saman, áður en
þeir gætu sameinast. — Þessi
framkoma júgóslavneskra yfir-
valda hefur vakiö nokkra undrun
isegir í símfregninni, en talið sé,
aö eitthvert sanikoniulag hafi ver-
iö gert um þetta viö Þjóöverja.
Júgóslavar hafi hallast á sveif með
þeirn, vegna þess aö Mussolini
hefir lýst sig nokkurskonar
verndara Austurríkis, en eins og
kurinugt er, þá er mjög grunt á því
góöa milli Júgóslava og ítala. —
Fregnirnar um, aö italskar her-
sveitir væri reiðubúnar til þess aö
fara inn í Austurríki til hjálpar
Austurríkismönnum, ef á þyrfti
aö halda, völctu mikla gremju í
Júgóslavíu. Þar litu menn svo á,
aö ef af því yrði, væri þaö hið
sama og að ítalir færöu landamæri
sín að JúgósJavíu.
ópíumsnautn
vex í Bandaríkjunum.
Samkvæmt símfergnum frá Wash-
ington í byrjun ])essa mánaðar
vex ópíumsnautn mjög í Banda-
rikjunum. Eiturefninu er smyglað
inn í landið, aöallega frá Kína og
Mansjuriu (Mansjúkó-ríkinu). Ár-
iö 1933 var helmingi meira gert
upptækt af smygluöu ópíum i
Bandaríkjunutn en 1932.---Ágóö-
inn af aö smygla eiturlyfjum er
svo mikill, þegar alt fer eftir á-
ætlun, að stöðugt fleiri menn taka
sér fyrir hendur aö vinna aö út-
breiðslu notkunar þessa hættulega
eiturlyfs.