Vísir - 31.08.1934, Síða 3
VISIR
Stóp útsala á taubútum
hefst á morgun, laugardag 1. sept. — Selt verður: Ágætir taubútar í drengjaföt, drengjabuxur og verka-
mannabuxur. — Nokkur karlmannaföt verða seld fvrir liálft verð. — Hvergi eins góð vara fyrir lítið verð.
Komið í
Afgr. Álafoss,
Þingholtsstræti 2.
Nýslátrað dilka og Alikálfakjðt
Medisterpylsa, Wínarpylsa, Miðdagspylsa, Brúnsvíkurpvlsa,
Lifrarpylsa, — Bjúgu. — Reykt síld á 20 aura stvkkið.
Allskonar grænmeti og Ávextir.
/
Matarverslnn Témasar Jðnssonar.
Laugaveg' 2.
Bræðraborgarstíg 16.
Sími 2125.
Sími 1112.
Laugaveg 32.
Sími 2112.
Þýski
Vataajökulsleifl angurinn.
30. ágúst. FÚ.
M.s. Dronning Alexandrine
er væntanleg hingað í fyrramál-
ið að vestan og norðan. Fer héð-
an á sunnudag'skveld kl. 8, áleiðis
til Kaupmannahafnar.
Athygli
skal vakin á því, að augl.
kvikmyndaliúsanna eru á 4.
•síðu i dag.
Gengið í dag:
Sterlingspund ........... kr. 22.15
Dollar................. ;— 4 AllA
joo ríkismörk ............. — 175.77
— franskir frankar . — 29.67
— belgur...... —- 105.11
— svissn. frankar .. — 146-35
— lirur .............. — 38-95
finsk mörk ........... — 9-93
—: pesetar ............ ■—- 61.92
— gyllini ............ — 3°3-33
— tékkósl. krónur . . — 18.98
— sænskar krónur .. — 114-36
— norskar krónur . . — 111 -44
-— danskar krónur .. — 100.00
Gullverð
ísl. krónu er nú 49.30, miðað
við frakkneskan franka.
Dörnin frá Silungapolli
koma á morgun, laugardag 1.
sept. kl. 4 e. h. Óskast þeirfa vitj-
að á Lækjartorg' um það leyti.
II. flokks mó'tið.
í kveld kl. 7 keppa Fram og'
Valur. Aðgangur ókeypis.
-Nýja Bíó
sýnir í fyrsta sinn í kveld kvik-
rnyndina „Riddarinn í Draugadaln-
um“, Er það amerísk talmynd, sem
Cowboykappinn Tom Keene leik-
ur aðalhlutverkið í. Aukam'ynd:
Frá Kínaströndum.
IHáðuleg för.
Blöð kommúnista gerðu fyrir
skömmu mikið veður út af því,
að stjórn í. S. í. neitaði nokkrum
Hagyrðinga og
Kvæðamannafélag
Reykjavíknr,
fer til Selfjallsskála 11. k. sunnu-
dag kl. 1 e. b. Farið verður frá
bifreiðastöð Steindórs.
STJÓRNIN.
íþróttamönnum um leyfi til að
sækja -hið svo nefnda anti-fasista
íþróttamót i París, sem þar er nú
nýafstaðið. Eigi að síður fóru
tveir, ungh' menn héðan og ætluðu
á mót þetta. Stóö Verkalýðsblað-
iö fyrir samskotum handa þeim,
upp i fargjöldin. Fóru þeir með
Lagarfossi til Antwerpen, en er
þangað kom, var enginn til að
taka á móti þeim, þrátt fyrir lof-
I orð um að þar skyldi líiða Jreirra
I ein af hinum svo kölluðu „hjálpar-
| nefndum" kommúnista. Þótti ís-
‘ lendingunúm þetta súrt i broti
og sneru við aftur áleiðis heim með
Lagarfossi, án þess að komast á
iþróttamótið. Um þenna atburð
hafa „Kommar" sem minst viljað
tala, enda engin furða, því Jretta
* mun með háðulegri sendiförum
i hérlendra manna. F.
Næturlæknir
er í nótt Hannes Guðinundsson,
Hverfisgötu 12. Sími 3105. Næt-
urvör.ður í Reykjavíkur gpoteki og
Lyfjabúðinni Iðunni.
Útvarpið í kveld.
19.10 Veðurfregnir.— Tilkynn-'
ingar. 19.25 Grammófóntónleikar.
19.50 Tónleikar. 20.00 Kltikkuslátt-
iir Grámmófóntónleikar: Beetho-
ven : Symphonía nr. 5.-20.30 Frétt-
ir. 21.00 Upplestur (Björn Guð-
finnsson). 21.30 Grammófónn:
Lög úr óp'erum.
Vatnajökulsfararnir þrir, þeir
dr. Ernst Hermann og félagar
hans, voru í dag á Ivirkjubæjar-
klaiístri, og átti Guðmundur Ein-
arsson frá Miðdal þar tal við dr.
Hermann um jökulförina. Guð-
mundur skýrir útvarpinu þannig
frá samtali þeirra:
Leiðangursmenn voru fluttir frá
Kálfafelli upp að jöklinum, og
hóf-u þeir göngu sína á jökulinn
vestan Djúpár. Stóðu þeir nú mun
betur að vígi en í sinnj fyrri för.
því bæði voru þeir nú kunnugri
uppgöngum á jökulinn og höfðu
nú hentugri farangur en áður. Figi
að síður var uppgangan yfir Síðu-
jökul, sem er afar úfinn skriðjök-
ull, mjög erfið, og urðu þeir að
selflytja farangur sinn, og fóru
þeir því mjög stuttar dagleiðir
fyrst í stað.
Þegar komiS var upp á hájök-
ulinn batnaSi færSin, og gekk nú
ferSin greiSlega alla leiö til eld-
stöSvanna. VeSur voru stirS á
jöklinum og öSru hyoru hríSar,
en eigi að si'ður telja þeir sig haía
gert merkar athuganir í námunda
viS gíginn.
Jökullinn virSist iiú mjög
breyttur frá því sem hann var í
vor, er fyrri leiSangrar vom farn-
ir. Snjóa hefSi leyst af jökulisnum
aS mestu leyti, og vikur var mik-
ill; en sérstaklega vakti þaS at-
hygli þeirra, hve jökullinn er fljót-
ur aS hylja öll verksummerki goss-
I ins. Skriðjöklar ganga nú allört úr
þrem áttum fram í gosdalinn og
fylla hann smátt og smátt. ASeins
aS suSvestanverSu eru standbjörg,
N o r s k a r
loftskeytafregnir.
—0—
Oslo 30. ágúst. — FB.
ítölsk viðskiftasendinefnd
í Noregi.
ítölsk viðskiftasendinefnd kom
til Oslo í dag. í nefndinni eru
átta menn.
sem veita jöklinum viSnám frá
þeirri hliS.
Gígarnir eru ekki ennþá kuln-
aðir út, og lagði úr þeim reyki,
og virtust vera þar nolckur um-
brot, enda hafa allmargir Skaft-
fellingar orðið varir við litilshátt-
ar gosmökk yfir eldstöðvunum
fram til þessa, ef heiðskírt er yfir
jöklinum. Að sjálfum gígunum varð
ekki komist ,vegna þess að þeir
eru umflotnir vatni.
Leiðangursmenn gerðu sér far
um að rannsaka ýms verksummerki
éldgosa á fornum eldstöSvum á
leiS þeirra frá Hágöngum og inn
aS eldstöSvum og fundu þar merki-
leg rannsóknarefni.
Við Vatnajökulsgnípu fundu
leiðangursmenn leifar af nokkrum
hluta farangurs þess, er dr. Niels
Nielsen skildi þar eftir í vor. Tjald
sem þar1 var skiliS eftir var í slitr-
um, en föt og skór o. þ. h. lítiS
skemt. LeiSangursmenn gerðu leit
aS vísindatækjum Jieim er dr. Niels
Nielsen skildi eftir, en á þeim
stöSvum hafSi jökullinn tekið svo
miklum breytingum, aS ekki tókst
að finna þau.
Af samanburSi á staSháttum á
jöklinum nú og í vor, er fyrri
leiSangrarnir voru þar á ferS,
komust þeir dr. Hermann og fé-
lag’ar hans aS þeirri niSurstöSu,
að best mundi að ganga á jök-
ulinn síSari hluta vetrar, í rnars-
mánuSi og aprílniánuöi, þrátt fyrir
frost og hríðar, er vænta má um
það leyti árs. Vikur liggúr nú í
hrönnum á hájöklinum, en er neS-
ar dregur, eru miklar jökulsprung-
ur og vatnsagi, og tefur alt þetta
mjög för þeirra er á jöktilinn
Oslo 30. ágúst. — FB.
Sumarferðalög í Noregi.
Samkvæmt Morgenbladet komu
100,000 erlendir ferSamenn til Nor-
egs í sumar. Tekjurnar, sem NorS-
menn höfSu í ár vegna ferSalaga
útlendinga námu 35 milj. króna a'ð
því er áætlaS er.
M.s. Dronning
Alexandrine
fer sunnudaginn 2. sept. kl.
8 síðd. til Kaupmannahafn-
ar (um Vestmannaeyjar og
Thorshávn).
Farþegar sæki farseðla í
dag eða fyrir hádegi á
morgun. — Tekið á mótí
vörum til hádegis á morg-
un.
Skipaafgreiðsla
Jes Zimsen.
Tryggvagötu. — Sími 3025.
fmmmmmmmmmmmmmmmmmmmammmmmmmmmmmmmmmmmmammmmmmaBmmmmmmmrn'
Borðstoíu-
sett.
Buffet (slétt), matborð og 4
eða 6 stólar, óskast keypt. —■
Uppl. í síma 4166 í dág og 2576,
eftir kl. 7 í kveld.
„Lagarfoss“
fer annað kvöld um Vestmanna-
evjar til Leith, Noregs og Kaup-
mannaliafnar.
Farseðlar óskast sóttir fyrir
liádegi á morgun.
! Best aS ænglýsa í flsi.
INDRIÐI EINARSSON:
Ffir til æsknstfiðva.
Frh.
því, að hann hefði unnið mildð
um dagana. Þau bjónin liöfðu
haldið silfurbrúðkaup og hann
var tæpt fimtugur, en konan
lians yngri. Steinhúsið sagði
liann mér að liefði kostað sig í
útlögðum peningum 10.000 kr.
Sína eigin vinnu og heima-
manna sinna, flutninga og þess
háttar verðlagði liann ekki, en í
Reykjavík hefði svona „Villa“
efalaust kostað 40.000 kr. Þegar
eg skildi við hann, var sem eg
liefði þekt hann i heilan manns-
aldur.
Trjá- og blómsturgarðurinn á
Víðivöllúm. Flugumýrar-
hvammur, Réttarholt. Þú veist
vegna hvers eg elska þig.
Þriðja sólarlagið.
Eitt það merkasta sem eg sá
á ferðinni, var trjá- og jurta-
garðurinn á Víðivöllum. Sigrid
Unset sagði i ræðu, sem hún
liélt í veislu, scm henni var
haldin i Reykjavík: Eg vildi
óska fslandi þess, að á hverjum
hæ væri trjá- og jurlagarður
eins og á Víðivöllum, því það
mundi koma menningunm í
blóma. Það eru margir trjá- og
jurtagarðar i Skagafirði. Líttu
suður fyrir bæina, þar eru þeir.
Þessir garðar eru oftast settir í
rækt af einhverri heimasæt-
unni á bænum. Aldurinn get-
urðu hér um bil giskað á af
aldri reynitrjánna, sem standa
þar, auk annars. Þau eru kjör-
viður hvers íslensks hjarta. Sá
sem gefur sig við því, að rækta
trjá- og blómagarða, verður
haldinn af hæglátum unaði yfir
þvi, að vinna með náttúrunni
að því fegursta, sem hún gefur
mönnunum. Þessi garður mun
vera stolt alls fremri liluta
Skagafjarðar. Á Sauðárkróki,
hjá héraðslækni er garður, sem
er yngri, en sérstaklega fagur.
Við erum kallaðar söðulkerl-
ingar, sagði Salóme bróðurdótt-
ir mín, þegar við riðum út
Blöndulilíðina. Allar eldri kon-
ur ríða þar í söðli, en y-ngri kon-
ur í hnökkum, og þar af leið-
andi vanalegast í pokabuxum.
Tilsýndar er lílill munur á
konu í linakk og lcarlmanni, og'
það er sjálfsagt hentugra reið-
ver, en kvensöðullinn. En kven-
prýðin gamla á hestbaki liverf-
ur, og hennar sakna þeir, sem
eru hinu gamla vanir. Við kom-
um að Flugumýrarhvamini til
Solveigar, bróðurdóttur minn-
ar og Rögnvalds Jónssonar.
Hann er kvæntur Ingibj. dóttur
Jóns á Flugumýri. Við gistum
þar meðfram i þéirri von, að
Sigríður Halldórsdótlir kynni
að koma þar að utan, en það
varð ekki. Rögnvaldur sá eg að
var a'ð hæta húsakynni sín, sem
voru þó góð, með því að þilja
veggi imvi í bænum, svo eklci
sæi í torfið. Solveig frænka mín
liafði liaft Basedow-sj úkdóm-
inn. Henni var sagt að liann
batnaði ekki, en henni hafði þó
batnað algerlega og fann ekki
tii neinna óþæginda, nema ef
vera skyldi einhverra lítilla ó-
þæginda við sjónina, sem hún
gerði ráð fyrir að kærni þaðan.
Andlitið og' augun voru alger-
lega komin í lag.
Eg hafði kveðjur frá Katrinu
Viðar að Réttarholti og þangað
komurn við. Freyja Norðmann,
föðursystir hennar, var. hin kát-
asta, og hafði vfir rnikið af
ljóðum eftir Jón Norðmann,
sem sýndu, að hún liafði verið
kjörsystir lians. Sigríður Rögn-
valdsdóttir tók sig upp með
okkur, glaðleg kona og gáfuleg,
og fylgdi okkur að Ytra-Vall-
holti. Þar var Biönduhlíðar leið-
angurinn rofinn.
Eg hefi ávalt liaft sérstaka
velvild til Solveigar bróðurdótt-
ur minnar. Hún er svo prúð og
kvenleg, dömuleg mætti segja,
að eg hefi ósjálfrátt metið hana
einna mest af bróðurdætruni
mínum fyrir norðan. Hinar hafa
þó marga kostina til að iiera.
Salóme er hókhneigð og skýr,
verkhög' og gamansöm. Fríða er
dugleg' með afbrigðum.og gæða-
kona. Eg hygg að hvorug þeirra
liafi nokkurn tíma látið lvug-
fallast. Þegar eg kvaddi Sol-
veigu sagði eg við liana: „Þu
veist vegna hvers eg elska þig,‘s
Hún brosti ofurlitið og stilli-
lega. „Já, eg veit það, frændi
minn.“
Ivlukkan mín var liy2 þegar
Ari Arason kom inn í Vallliolti
og sagði, að nú yrði fallegt sól-
arlag. Bærinn stendur lítið eitt
fyrir ofan láglendið. Eg sá and-
litið á lionum, þegar hann gekk
fyrir gluggann og það var rautt,