Vísir - 04.09.1934, Blaðsíða 2

Vísir - 04.09.1934, Blaðsíða 2
V I S I E og Bandapíkj amanna. Rússar iiafa ekki lárnstpaust í Bandaríkjunum. Washington í ágúst. — FB. Skýrslur þær, sem verslunarrá'ö- iö birti í byrjun þessa mánaöar,um viöskifti Bandaríkjamanna . og Rússa, leiða mjög glögt í ljós, aö voair þær, sem Bandaríkjamenn gerðu sér um aukin viðskifti viö Rússa, aö afstaöinni viðurkenningu Bandaríkjastjórnar á Sovét-Rúss- íandi, hafa ekki ræst nema aö litlu leyti. En áður en viðurkenningin hafðist fram var alrnent búist viö því, að af henni myndi leiða stór- um aukin viðskifti, jafnvel að þau myndi nema ioo miljónum dollara á ári. Útkoman varð hinsvegar sú, að á fyrra misseri yfirstandandi árs seldu Bandaríkjamenn vörur fyrir $6,410,000 en í fyrra á sama tima fyrir $ 2,429,000. Er og at- hugandi aö dollarinn er nú í lægra verði en hann var þá. — Ástæðan fyrir þessu er talin sú, aö ekki hefir tekist aö ná samningum um gömlu skuldirnar, þ. e. skuldir þær sem Rússar stofnuðu til i Banda- ríkjunum, áöur en kommúnistar náöu þar völdum. Rússar eru, sam- kvæmt Johnsonlögunum, taldir til vanskilaþjóða í Bandarikjunum, og meðan svo er, geta þeir ekki feng- ið lán svo nokkru nemi til vöru- lcaupa vestra. Þeir hafa því samiö við Breta og aðrar þjóöir um kaup á ýmsu, sem þeir ella hefði keypt í Bandaríkjunum. Samningaum- leitanir milli Rússa og Bandaríkja- manna um þessar gömlu skuldir Rússa hafa nú staöið yfir nokkra mánuði en engin lausn fengist á því deilumáli enn sem komiö er. (United Press). Hækkun kjöt?erösms. Hún nemnr he'r í Heykjayík 30 til 40 anrnm á kg. og veldur sennilega þverrandi kjfitneysln. ÞafS er tilkynt í Alþýðublað- inu, sem út kom í gær, að liækk- un ltjötverðsins, sem boðuð liafði verið í stjórnarblöðunum, sé nú komin til framkvæmda. ■—• Þessi verðhækkun gæti orðið til jvess, að kjötsalan liér innan lands minkaði stórkostlega. Mér þykir ekki fært að draga það í efa að svo komnu, að stjórnin hafi búist við því í ein- feldni sinni, að liin svokallaða „skipulagning“ kj ötsölunnar yrði bændum til hagsbóta. En mér finst margt benda til þess, að svo verði ekki. Það er mjög sennilegt, ef ekki alveg óhjá- kvæmilegt, að kjötsalan minki til muna í kaupstöðunum, er verðið hækkar stórkostlega. Eg liefi ekki orðið þess var, að stjórnin hafi gert neinar ráð- stafanir til þess, að verkamenn, til dæmis að taka, beri úr býtum kaupliækkun, sem svari til verðhækkunarinnar á kjötinu. — Og éklci hefir heldur liorið neitt á því, að stjórnin hafi gert neinar ráðstafanir til þess, að bæta úr atvinnuleysinu. Það hefir verið reynt að telja verkamönnunum liér í Reykja- vík trú um, að fyrir þá hafi vegavinnukaupið verið liæklcað frá 1. ágúst siðastliðnum. En þetta er ekkert annað en blekk- ing. Sú hækkun snertir tiltölu- lega mjög fáa Reykvíkinga, og auk þess er í rauninni meira en vafasamt, hvort um er að ræða nokkura liækkun tekna lijá þessum fáu mönnum. Þegar ríkissjóður hækkar kaup í op- inberri vinnu, sem fé er veitt til á fjárlögum, þá verður sú ráð- stöfun þannig í framkvæmd- inni, að vinnutími hvers ein- staks manns styttist i hlutfalli við kaupliækkunina. Yerkamað- urinn ber úr býtum nokkurum aurum meira fyrir hverja vinnustund, en vinnustundirnar fækka jafnframt. Niðurstaðan verður sú, að verkamaðurinn missir vinnuna nokkuru fyr en ella hefði orðið og að vegar- spottinn, sem hann vann að, verður dálítið styttri en orðið hefði með óbreyttu kaupi. Verkamaðurinn fer svo heim til sín, í þessu dæmi í atvinnuleys- ið liér i Reykjavík, með álíka margar krónur í buddunni, og hann hefði haft án kauphækk- unarinnar. Munurinn er ein- ungis sá, að hann kennir nokk- urum dögum fyr en orðið liefði, ef kaupið hefði ekki liækkað. — En hann liefir engan liagnað liaft af kauphækkuninni annan en þann, að komast nokkuru fyr í hóp atvinnuleysingjanna. Tekjur hans liafa ekki vaxið. Þetta hefði horft öðruvísi við, ef stjórnin hefði séð svo um, að vegavinnumanninum væri gerð- ur greiður aðgangur að annari vinnu, er lieim kæmi. Þá hefðu tekjur hans aukisl raunveru- lega. En það hefir hún vanrækt með öllu og því er það ekki annað en blekking, að tala uin að kaupgeta mannsins liafi auk- ist við liækkun vegavinnukaups- ins. — Hún er i raun réttri liin sama, eins og áður var sagt, nema því að eins, að mannin- um sé séð fyrir annari vinnu, er hinni opinberu vinnu er lokið. Hækkun vegavinnukaupsins er ekki gerð með hag reyk- vískra verkamanna fyrir aug- um. Þeir eru tiltölulega mjög fáir í þessari vinnu, og liafa vist fæstir að öðru að hverfa en at- vinnuleysi, þegar hinni opin- heru vinnu er lokið. — Hins vegar getur hækkunin orðið sveitamönnum að dálitlu gagni. Þeir hverfa til verka sinna heima fyrir að lokinni vega- vinnu eða brúargerð, og standa því alt öðru vísi og belur að vigi i þeim efnum en kaupstað- arbúinn. Alþýðuforingjarnir liafa í raun réttri svikið verkafólkið hér í bænum á liinn lúalegasta liátt, er þeir fóru út í þessa al- ræmdu verðhækkunar-verslun við liina svokölluðu framsókn- armenn. Með hækkun kjötverðs- ins — algerlega óeðlilegri liækk- un — semja þeir um það, að þungbær skattur skidi lagður á alla alþýðu manna í kaupstöð- um og kauptúnum. Og verka- mennirnir fá ekkert í aðra liönd annað en það, að vinnutími þeirra í opinberri vinnu styttist um fáeina daga, en lieildartekj- urnar í þeirri vinnu verða sviji- aðar. Sanngjarnir menn og ó- blindaðir munu líta svo á, að þvílík samningagerð bafi ekki verið framkvæmd með hags- muni verkafóksins fvrir augum. Um það verður ekki deilt, að atvinnuleysið liér í bænum er mjög alvarlegt. Framsóknar- loddararnir hafa tælt fólkið úr sveitunum með ýmsum ráðum mörg síðustu árin, og margt af því fólki, sem þeim hefir tekist að „losa um“ í sveitum lands- ins, hefir leitað hingað. Því hef- ir verið sagt, að liér væri upp- gripa vinna allan ársins liring og kaupið hátt. Þetla liefir sum- part veriö gert fyrir heimsku sakir og kæruleysis um liag al- mennings, jafnt til sveila og við sjó, en sumpart til þess, að hér safnaðist saman atvinnulaust og óánægt fólk, er síðar mætti nota sem þægileg verkfæri í höndum byltingarsinnaðra mis- indismanna, sem þrá það lieit- ara en flest annað, að koma bæjarfélaginu á kné. Skal ckki farið nánara úí í það mál að sinni, en tekið verður það til íhugunar síðar. Foringjar verkafólksins bafa brugðist skyldu sinni mjög á- takanlega, er þeir féllust á hina miklu verðhækkun á kjöti, sem nú hefir dunið yfir. Þessi liækk- un er nýr og þungbær skatlur á efnalitla alþýðu. Og hún fær ekkert í aðra hönd. — En þá er á það að líta, hvort líkur bendi til, að bændur hagn- ist á „skipulagningunni“. Engin skynsamleg ástæða hefir verið borin fram, er bendi lil þess, að svo muni rcynast. — Það er sitt hvað að setja reglur um það, að kjötverðið skuli vera svo eða svo liátt, eða þá hitt, að fá fólk- ið til þess að kaupa kjötið hinu uppsjirengda verði. Engin stjórn getur sagt við neytandann: Þú skalt kaupa kjötið, þó að þér þyki verðið óeðlilega hátt. Neyt- andinn mundi fara sínu fram, hvort sem stjórninni líkaði bet- ur eða ver. Hann mundi draga úr kjötkaupunum, ef lionum fyndist tilraun til þess gerð, að Dýraverndunarfélag íslands. FUNDUR verður lialdinn í Dýraverndunarfélagi Islands, miðvikudaginn 5. þ. m. kl. 8VÍ> siðd. í Oddfélagahúsinu. STJÓRNIN. liafa hann að féþúfu, jafnvel þó að hann liefði næg peningaráð. Hinir, sem litla hafa peningana, kippa að sér hendinni að sjálf- sögðu og minka kjötkaupin, Þeir hafa annað við aura sína að gera, en að verja þeim til þess, að kaupa vörutegundir, sem verðlagðar eru óeðlilega hátt. Það eru því allar liorfur á því, að kaupstaðabúar treystist ekki til þess, af ýmsum ástæð- um, að kaupa jafnmikið af kjöti nú í liaust og þeir hafa gert að undanförnu. Afleiðingin verður sú, að liið dýra kjöt selst ekki svo greiðlega, sem æskilegt væri og bændur liafa að sjálf- sögðu þörf fyrir. — Likur benda þvi til þess, að „skipulagning kjötsölunnar“ verði bændunum til lítils farn- aðar. Hilt er skoðun mjög margra, bænda og annara, að vandi’æða-fálm stjórnarinnar í þessum efnum verði öllum til óþæginda og tjóns. 2. sept. s. flæjarbruni. Frá því var skýrt í hádegisfrétt- um útvarpsins í dag, að bærinn að Búrfelli í Grhnsnesi heföi brunn- iö til kaldra kola í gærkveldi. Vísir átti í dag tal viö bónd- ann i Ásgaröi í Grímsnesi og sagö- ist honum svo frá, aö eldurinn mundi hafa komiö upp milli kl. 4—6. Heima var aöeins stúlka og 2 börn. Kviknaö mun hafa út frá reykháfi, því aö stúlkan varö vör viö reyk og gat komið boðum til fóllcs, sem var á engjum, en er þaö kom logaði út úr gluggum. Brann húsiö til kaldra kola á 1 klukku- stund og varö engu bjárgaö úr ])vi. Manntjón varö ekkert viö brunann. Húsiö var allstórt, 12 eöa 13 og 10 álnir, bygt af timbri kringum 1890, og vöru áfastir viö þaö 2 skúrar. Voru bændurnir á , Búrfelli, þeir bræöur , Páll og Halldór Diörikssynir, búnir aö láta gera mikið viö það. — Vega- vinnumenn, er sáu eldinn, komu á vettvang fjölmennir, en húsið var þá alelda. Tókst þeim þó aö koma i veg fyrir, að hlaöa í nánd viö húsiö brynni. Kirkjan stendur skamt frá þar sem húsið stóð, en eldurinn komst ekki i hana. Hús- ið var vátrygt í Brunabótafélagi íslands, en húsmunir munu hafa veriö óvátrygöir. Páll Diöriksson bóndi hefir ver- ið hér í Reykjavík að undanförnu, i vinnu hjá Sláturfélagi Suður- lands, 0g kona hans mun hafa far- iö áleiðis hingað suður í fyrra- kveld. Tjónið af brunanum er mjög mikið og tilfinnanlegt. >0£X Veðrið í morgun: Hiti í Reykjavík 10 stig, Bol- ungarvík 8, Akureyri 9, Skálanesi 11, Vestmannaeyjum 10, Sandi 9, Kvígindisdal 9, Hesteyri 5, Gjögri 7, Blönduósi 8, Siglunesi 6, Gríms- ey 6, Raufarhöfn 8, Skálurn 8, Fagradal 9, Papey 8, Hólum í Hornafirði 9, Fagurhólsmýri 10, Færeyjum 12 stig. Mestur hiti hér í gær 12 stig, minstur 8. Úrkoma 3.0 mm. Sólskin 1.2 st. — Yfirlit: I.ægðin er nú milli íslands og Fær- eyja og fer minkandi. Horfur: Suövesturland, Faxaflói: Noröan- kaldi. Víðast úrkomulaust. Breiða- fjöröur: Noröaustan kaldi. Sum- staðar dálítil rigning. Vestfirðir(j Norðaustan átt. Hvass úti fyrir. Rigning. Norðurland, noröaustur- land, Austfiröir: Norðan kaldí. Rigning. Suöausturland: Hæg- viðri. Sumstaöar skúrir. Aflasala. Max Pemberton hefir selt ís- fiskafla í Þýskalandi fyrir 18,000 ríkismörk. , Dr. Light flaug héöan í gærmorgun snemma, en varö að snúa við veð- urs vegna, eins og frá var skýrt í blaöinu í gær. Undir hádegi var veður versnandi og um sama leyti fékk hann þær fregnir frá Thors- havn, aö óráðlegt væri að lenda þar veðurs vegna, en frá Norður- Skotlandi voru engu betri veður- fregnir. Ákvað dr. Light þá að snúa við. Hafði hann stöðugt sanr- band við loftskeytastöðina i Vest- mannaeyjum og var aö hugsa um að fljúga til Seyðisfjarðar, en hætti við þaö og flaug hingaö. Var svo hvast hér á höfninni af norðvestri, áö eigi var unt að lenda hér, og hvarf dr. Light þá að því ráði að lenda á Skerjafirði. Bensíni var bætt í geyma flugvélarinnar \ morgun við Shellstöðina þar og hafði dr. Light í huga að leggja af stað aftur í dag, ef ve'8urfregn- ir reyndust hagstæðár. Ensku flugbátarnir. Eins og áður hefir veriö getið er hingað von á 2 enskum flug- bátum (e. t. v. 3) í yfirstandandi viku. Shellfélagið hér, en hjá því fær leiðangurinn bensín, hefir fengið tilkynningu um, að búast megi við flugbátunum hingað frá 5. þ. m. -— Foringi leiðangurs- manna er Lloyd flugbátaflokks- foringi (wing commander). Flug- bátarnir munu vera af samskonar eða mjög svipaðri gerð og flug- bátar þeir, sem hingað komu frá Bretlandi 1930. Línuveiðarinn Atli er kominn af síldveiðum. Happdrætti Háskólans. Á morgun er síðasti endurnýj- unardagur fyrir 7. flokk. Sjómannakveðjur. FB. — 3. sept. Byrjaðir á fiskveiðum. Vellíðan. Kærar kveðjur. Skipshöfnin á Hilmi. Erum á leið til Þýskalands. Vellíðan. Kærar kveöjur. Skipverjar á Gulltoppi.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.