Vísir - 13.11.1934, Blaðsíða 3
Umbúðapappír,
allar stærðir,
nýkominn.
Landsmálaíélagið Vörðnr
heldur fund í Varðarhúsinu í dag kl. 8l/2 síðdegis.
Umræðuefni:
Samvinna fólksins í sveitum og kaupstöðum.
Frummælandi: Jón Pálmason alþingism. frá Akri.
Allir jSjálfstæðismenn velkomnir.
STJÓRNIN.
um þessi efni, liafa verið send-
ir menn héðan að heiman ti)
þess að annast þær. Öllum
flokkum liefir hingað til verið
jafn augljós sii nauðsyn. Og
þó að ágreiningur kunni að
vera um það, að altaf hafi vel
tekist með þá samninga, þá
munu þó engir trúa því í alvöru,
að betur hefði farið, ef íslend-
ingar liefðu ekki komið þar
nærri.
Ottinn við það, að Islend-
ingar þurfi endilega að lenda i
mannliraki, þegar þeir taka ut-
anríkismálin i sínar hendur, er
áslæðulaus með öllu. Islending-
ar hafa sjálfir annast sin
stærstu utanríkismál síðan
1918.
En það er ekki nóg. íslcnd-
Ingar þurfa að taka öll sin ut-
anríkismál í eigin hendur. Þeir
mega ekki við því, að utanrík-
isrnálum þeirra sé þannig fvrir
komið, að aðrar þjóðir hljóti að
lita á ísland sem danska ný-
lendu.
Þeir mega. ekki við því, að
l)úa lengur en nauðsyn krefur
við það hættulega ástand, að
önnur þjóð geti gripið fram
fyrir hendur þeirra á sviði ul-
anríkismálauna. Af því geta
skapasl stórfeldir örðugleikar
fyrir lif og afkomu isleiiskrar
'þjóðar.
Guðmundur Benediktsson.
I Stefán Kr. Bjarnason.l
fyrrverandi skipstjóri.
Á morgun (miðvikudag)
"verður lil moldar borinn Stef-
án Kr. Bjarnason, fyrrverand'
skipstjóri, sem ]). (i. þ. m. lést
að heimili sínu hér í bæ, eftir
Jangvinna vanheilsu.
Stefán var fæddur i Efsladal
i Laugardal þ. 8. apríl 1800, en
hingað fluttist hann með for-
eldrum sínum fyrir nærri 41
árum og hefir æ verið húsettur
Iiér síðan. Stefán hafði sterkan
hug á ,að koma sér áfram, er
hingað kom, og með einheitni,
áræði og dugnaði, tókst honum
það. Tók hann að stunda sjó-
jnensku og sá hrátt, að dugandi
■sjómönnum mundi mörg tæki-
færi opnast, og jafnframt a.ð
hann þurfti að mentast í slík-
urn fræðum. Fyrir þvi hóf hann
nám i Stýrimannaskólanum
hér og lauk prófi árið 1896. Sjó-
mensku stundaði Stefán svo
meðan heilsan leyfði. Var hann
lengstuin skipstjóri eftir það,
reglu- og stjórnsamur og nýt-
inn, án þess að vera smásmug-
.legur, og naut hann hins hesta
trausts yfirhoðara sinna og vin-
sælda þcirra, sem undir liann
voru gefnir.
Þann 1. ágúst 1893 gekk Stef-
án að eiga eftirlifandi konu sína
Ingibjörgu Zakaríasdóttur, og
eignuðust þau f jögur börn, Sig-
ríði, gifta Þorleifi Gunnarssvni
hókhandsm., Magnús, heildsala
hér í hænum, Stefaníu, gifta
Arna .lónssyni verslunarerind-
reka, og Hjálmar, skrifstofu-
mann.
Stefán heitinn lagði, sem fyrr
var sagt, aðallega stund á sjó-
niensku. Skipstjóri var hann
lengsl af á þilskipum og vann
við iitgerð Brydesverslunar.
bæði hér og í Hafnarfirði. Þeg-
ar þilskipaútgerðin lagðist nið-
ur, varð liann skipstjóri á mót-
orskipum og sótti mörg þeirra
lil útlanda á styrjaldarárunum
og eins síðar,. og farnaðist altai
vel.
Sama einbeitni og áliugi ein-
kendi Stefán við dagleg störf
og kom það einnig 'í ljós hjá
honum, að því er tekur til af-
skifta af landsmálum. Hann var
eindregipn landvarnarmaður,
meðan landvarnarflokkurinn
var við lýði, en öll síðari ár sín
fvlgdi hann Sjálfstæðisflokkn-
uin að málum, enda var hann
viðsýnn maður og frjálslyndur
í stjórnmálum. Talsverðan þátl
tók hann í félagastarfsemi,
einkum í félagi skipstjóra (Ald-
an).
Stefán var mjög bóklmeigður
maður og átti talsvert af bók-
um, sem ekki eru á hvprju strái.
Mun hann, er lieldur tók að
halla undan fæti, hafa hugað,
að liann gæti liafl mikla ánægju
af bókunum i ellinni, en þær
óskir rættust ekki að öllu leyti,
því að sjón hans tók mjög að
daprast fyrir nokkurum árum
og hann var blindur öll hin síð-
ari ár. Átti liann og orðið erfilt
um mál, en virtist ekki liafa
miklar likamlegar þjáningar.
Með Stel'áni Kr. Bjarnasyni
er Iiorfinn úr þessum hæ áhuga-
sannir og nýtur borgari, einn
þeirra mörgu, sem Reykjavik á
vöxt sinn og viðgang að þakka.
Stefán var jjrúður maður i
framkomu, hæglátur og kurt-
eis, en jafnframt ákveðinn og
þéltur fvrir, drengur hinn hesti
í hvívetna og' vinsæll.
Veðrið í morgun.
Hiti í Reykjavík 5 stig', Bolung-
arvík 4. Akureyri 5, Skálanesi 5,
Vestmannaeyium 7, Sandi 4, Kvíg-
indisdal 4. Gjögri -|. Blönduósi 4.
Siglunesi 4, Raufarhöfn 4, Skál-
um 4, Fagradal 5, Papey 5, Hólum
í Hornafirði 6, Fagurhójsmýri 5,
Reykjanesi 5. Mestur hiti hér í gær
7 stig, minstur 4. Urkoma 5.1 mm.
Yfirlit: Lægðin er nú skamt suð-
vestur af Reykjanesi og fer mink-
andi. — Horfur: Suðvesturland.
Faxaflói, Breiðafjörður: Suöaust-
an og sunnan kaldi. Rigning öðru
hverju. Vestfirðir, Norðurland:
Minkandi norðaustan og austanátt.
Þíðviðri og .dálítil rigning. Norð-
,austurland : Suðaustan kaldi. Úr-
komulítið. Austfirð.ir, suðaustur-
land : Suðaustan kaldi. Rigning.
Silfurbrúðkaupsdag
eiga í dag (13. nóv.) frú Ragn-
iieiður Benediktsdóttir og Þor-
steinn Einarsson, trésmíðameistari,
Holtsgötu 16.
Aflasölur.
Þórólfur hefir selt ísfiskafla í
Cuxhaven fyrir 25,383 ríkismörk.
Karlsefni hefir selt bátafisk í
%
Brétlandi fyrir 1159 stpd. og Andri
ivrir 1243 stpd.
Meyjaskemman
verður leikin í Iðnó annað kveld
Lækkað verð.
Landsmálafél. Vörður
heldiir fund í Várðarhúsinu kl.
8J/2 í kveld. Umræðuefni: Sam-
vihna fólksins í sveitum og kaup-
stöðum. —- Frummælandi: Jón
Pálmason alþm. frá Akri. — Allir
< sjálfstæðismenn eru velkomnir á
fundinn.
Félag vefnaðarvörukaupmanna.
Á aðalfundi félagsins, sem ný-
lega var haldinn, var stjórnin end-
urkosin, en hana skipa: Ragnar
Blöndal, form., Jón Björnsson,
Sigríður Bjömsdóttir, Arni Árna-
son og Axel Ketilsson.
Ný ljóðabók.
Það mun nokkurn veginn ein-
rónia skoðun allra þeirra, sem
þektu frú Björgu/C. Þorláksson,
aö hún hafi verið ein hin mesta
gáfukona. Hún var vísindakona að
eðlisfari og hefir ritað bækur um
vísindaleg efni, m. a. doktorsrit
sitt. er hún varði við sjálfan Par-
ísar-háskóla. Mun hún vera eini
íslendingurinn. sem doktorsnafp-
bót hefir hlotið við þann fræga
háskóla. Hún vann og mikið og
merkilegt starf við undirbúning og
útgáfu orðabókar þeirrar hinnar
miklu, sem Sigfús bókavörður
Blöndaljiefir saman tekið og gefið
út dg hlotið doktorsnafnbót fyrir
við Háskóla íslands. — Þetta er
öllum kunnugt. Blitt var ekki á vit-
orði margra, að frú Björg heitin
íengist við "skáldskap. Hún hafði
að vísu samið eitt leikrit og gefið
út fyrir nokkurum árum, en' ekki
var þar mikill skáldskapur á borð
borinn, þó að margt væri þar skyn-
samlegra athugana um mannlegt
líf. —- En nú hefir verið gefin út
ljóðabók (Ljóðmæli) eftir frú
Björgu að henni látinni. Kvæðin
eru ekki merkileg írá sjónarmiði
braglistarinnar og líkléga fá eða
engin gallalaus að formi. Kostur
þeirra er sá, að þar birtast margar
fagrar og merkilegar hugsanir. Síð-
ast í bókinni er kvæðaflokkur eða
leikrit í ljóðum (Jólanóttin. Gönml
þjóðsögn. Notuð sem táknrænmynd,
er sýni baráttu andstæðra eiginda
mannssálarinnar í nútið eigi síður
en fortíð). — I þessuih ljóðaflokki
eru ef til vill sutn bestu ljóðin, að
því er til formsins tekur. Og margt
er þar spaklegra hugsana. — ísa-
foldarprentsmiðja er útgefandi
bókarinnar og hefir vandað til út-
gáfunnar.
Vilh. Finsen,
fulltrúi íslensku rikisstjórnar-
innar í Noregi, var meðal farþega
á Lyru.
Hjónaefni.
Siðastliðinn laugardag opinber-
uðu trúlofun sína ungfrú Guörún
Þorsteinsdóttir, verslunarmær,
Grettisgötu 44A, og Njáll Guðna-
son í Garðahverfi.
Matreiðslunámskeið.
Næstkomandi mánudag hefjast
matreiðslunámskeið hér í bænum,
í Vallarstræti 4, eins og auglýst
hefir verið. Verður þar hægt að fá
tilsögn i öllum matartilbúningi og
bökun. Margar stúlkur og konur
eiga erfitt með að taka þátt i þeim
á hverjum degi, Og hefir bláðið
]>ví verið beðið að g'eta þess, að í
einum flokki fer kensla íram að-
eins annan hvern dag. Sýningar-
kensla fer frant á kveldin frá kl.
8—10. Þær. sem ætla að taka ])átt
i einhverju ])essara námskeiða.ættu
að sækja sem allra fyrst.
E.s. Lyra
kom frá útlöndum í nótt. Meðal
farþega voru Jóhannes Sigurðsson,
frú Nielsen o. fl.
Dýraverndunarfélag íslands.
H lutavelta Dýraverndunarfé-
lagsins á sunndagskveldið hófst kl.
2. og var lokið laust fyrir 12. Á
hlutaveltunni voru margir góðir
munir, og sumir veromiklir. Hinn
sérstaklegá auglýsta drátt, matvör-
ur fyrir talsvert á annað hundrað
krónur. hlaut Svcinn Ólafssön,
Lækjargötu 10B. Allir munirnir
sem á hlutaveltunni voru, seldu^t.
Og jafnvel þótt drátturinn að lok-
um væri seldur við lækkuðu verði,
hefir Dýravemdunarfélagið vænt-
anlega hagnast nokkuð á hluta-
veltunni. Það ber og gleðilegan
vott um skilning bæjarbúa á mál-
um félagsins, hve mikla velvild
þeir sýndu ])essari viðleitni þess
til aö afla sér fjár. Kom velvild
bæjarmanna bæði fram í mjög al-
mennum gjöfum til hlutaveltunnar
og því, hve margir sóttu hana.
E.s. Hekla
fer héðan í kveld eða nótt áleið-
is til útlanda.
Hreinn Pálsson
syngur í Nýja Bió annað kveld
kl. /Jú. Páll ísólfsson aðstoðar. —
Síðast. er Hreinn Pálsson söng.
urðu margir frá að hverfa, og verð-
ur Nýja Bíó vafalaust fullskijrað
á söngskemtun hans annað kveld.
Málverkasýning
Sveins Þórarinssonar og konu
hans, Kirkjutorgi 4, verður opin
alla þessa viku og næsta sunnu-
dag kl. 10—9 daglega.
Skip Eimskipafélagsins.
Brúarfoss kom aö vestan og
norðan í gærkveldi. Fer héðan í
kveld áleiðis til útlanda. Selfoss er
á útleið. Gullfoss fór frá Leith í
morgun áleiðis, hingað til lands.
Goðafoss fór héðan í gærkveldi
áleiðis vestur og norður. Dettifoss
íer frá Hamborg annað kveld. Lag'-
arfoss var á Reyðarfirði i morgun.
E. s. Súðin
kom til ísafjarðar í dag.
Áskorun til útvarpsins.
Á morgun, miðvikudag, fer fram
í London knattspyrnukappleikur
milli úrvalsliðs Englendinga og
ítala. — ítalir unnu í vor, sem
kunnugt er, heimsmeistaratitil
F. I.F.A., sem er alheimssamband
áhugamanna, i knattspyrnu, og eru
])vi heimsmeistarar. — Lið Eng-
lendinga mun eingöngu verða skip-
að atvinnumönnum. Þeir eru að á-
liti fjölmargra er vit hafa á, bestu
knattspyrnumenn heimsins. en
hafa þó ekki enn viljað taka ])átt
i heimsmeistaramótinu. — Biöa nú
íþróttavinir um allan heim með
óþreyju frétta af þessum leik, til að
fá úr því skorið, hverjir séu i raun
og veru bestir, og skora eg hér
með á Útvarpið, að skýra hlust-
endum frá kappleiknum annað
kveld og úrslitum hans. Fréttir
af honum er hægt að taka frá öll-
um útvarpsstöðvum Bretlands kl.
5 annað kveld og National-stöðv-
unum kl. 8. H.
Næturlæknir
er í nótt Halldór Stefánsson,
Lækjargötu 4. Simi 2234. — Næt-
urvörður í Laugavegs apóteki og
Ingólfs apóteki.
Farsóttir og manndauði
í Reykjavík vikuna 28. okt. til 3.
nóv. (i svigum tölur næstu úiku á
undan) : Hálsbólga 43 (39). Kvef-
sótt 50 (46). Iðrakvef 15 (15).
| Taksótt 1 (o); Skarlatssótt 2 (2).
1 Munnangur 5 (2). Heimakoma o
(1). Hlaupabóla 1 (o). Stingsótt 1
(o). Mannskjt 3 (n). — Land-
læknisskrifstofan. (FB).
Farsóttatilfelli
voru 1252 talsins á öllu landinu
í októbermánuði, þar af 537 í
Reykjavík, 247 á Suðurlandi, 167
á Vesturlandi, 195 á Norðurlandi
og 105 á Austurlandi.* Kvefsóttar-
tilfellin voru langsamlega ílest eða
547. þar næst kverkabólgutilfellin
1369). þá iðrakvefs (188), skar-
latssóttar (62), munnangurs (26),
kveflungnabólgu (14), taksóttar
(I3) o. s.frv. Skarlatssóttartilfellin
voru sem hér segir: 10 í Reykjavík,
1 i Grímsneshéraði, t í Keflavík-
urhéraöi, 7 i Hafnarfirði, 5 í Ólafs-
vikurhéraði,-7 í Dalahéraði, 18 í
Þingeyjarhéraði, 2 í ísafjarðarhér-
aði, 5 í Akureyrarhéraði, 4 í
Vopnarfjaúðarhéraði. 2 i Reykjar-
fjarðarhéraði. Mænusóttartilfelli
var 1. í Blönduóshéraði. (Land-
læknisskrifstofan. — FB).
Gengið í dag:
Sterlingspund .......... kr. 22.15
Dollar................ —- 4.4514
IOO ríkismörk ............ — 178.44
— franskir frankar . — 29.42
— belgur .............. — 103.78
— svissn. frankar .. — 144.82
*
— lírur .............. — 38.60
— finsk mörk .......... — 9.93
— pesetar ...... —- 61.52
— gyllini .......... . — 300.95
— tékkósl. krónur 1. . —- 18.93
— sænskar krónur .. — 114.36
— norskar krónur . . — 111.44
— danskar krónur , — 100.00
Útvarpið í kveld.
19,00 Tónleikar. 19,10 Veður-
fregnir. 19,20 Þingfréttir. 20,00
Klukkusláttur. Fréttir. 20.30 Er-
indi: Starfshættir Alþingis (For-
seti samein. ])ings, Jón Baldvins-
son). 21,00 Tónleikar: a) Píanó-
sóló (Emil Thoroddsen) : b)
Grammófónn: íslensk lög; c)
-Danslög.
Osló 12. nóv. FB.
Kunnur Norðmaður látinn.
Schöning fyrrverandi póstmeist-
ari í Osló og eitt sinn ráðherra
lést i dag. 78 ára að aldri.