Vísir - 09.12.1934, Síða 3
/
VÍSIR
og sokkar í stóru úrvali. Komið meðan nógu er úr að
velja.
SkóFinn
Laugaveg 6
Sími: 3212.
Árangur
mjólkurlagafálmsins ver'öur
víst einkum tvennskonar. I
fyrsta lagi sá, að eyðileggja
alla mjólkurframleiðslu í
Reykjavík og koma smábænd-
unum þar á kaldan klaka. I>eir
hafa unnið gott starf og þess
vegna er auðvitað ráðist á þá.
Það er segin saga að núverandi
stjórnarvöld landsins ráðast á
alt heilbrigt atvinnulíf og reyna
að troða skóinn niður af hverj-
um þeim manni, sem eitthvað
hefir orðið þjóðinni að liði. Og
upp á þetta horfa bæjarbúar
aðgerðalausir, enda hefir Jónas
sagt, að þeir sé svo miklir ræfl-
ar, að þeir eigi víst fáa sína
lika. — Hitt atriðið eða árang-
urinn er sá, að fjölda margar
allslausar stúlkur verða reknar
út á gaddinn. Hvað varðar
rauðu níðingana um það, þó
að svo sem 80 stúlkur bætist
við í hóp atvinnuleysingjanna?
Þeir láta sér slíkt vel líka og
hælast um yfir því. En sérstak-
lega eru þeir þó hróðugir yfir
því afreksverki, að geta ráðið
niðurlögum smábændanna fyr-
ir þá ofdirfsku þeirra, að hafa
ræktað tún hér í bæjarlandinu
og framleitt ágæta mjólk. Fyr-
ir það eru þeir dauðaverðir, að
minsta kosti í efnalegum skiln-
ingi. — Enginn skyldi láta sér
detta i liug, að svikahrappar
þessir efni orð sín um lækkun
mjólkurverðsins hér i bænum
niður í 34 aura. En livað segir
alþýðan um þessa svikara, sem
níðast á öllu heilbrigðu og
sómasamlegu og standa aldrei
við orð sin? ,
Barnamaður.
I 0.0.F.3 = 11812108=E T.
2-8V21
Vísir
er sex síður í dag. Sagan o. fl.
er í aukablaSinu.
Gluggasýningar.
I gærkveldi og frain eftir nóttu
var unniö aö því í ýmsum versl-
unum bæjarins aö ganga frá
giuggasýningum á margskonar
jólavarningi. Er árlega um rneiri
framför að ræöa hér í bæ, að því
er þetta snertir, og munu smekk-
legustu gluggasýningar hér fylli-
lega sambærilegar við það, sem
er að sjá í gluggum verslana í stór-
borgum erlendis.
Lögreglan
setti tvo menn i gæsluvarðhald
í gær. Voru þeir grunaðir um að
vera valdir að innbrotinu í Café
Royal fyrir skömmu. Annar þeirra
játaði á sig innbrotið í gærkveldi
og kvað hinn manninn hafa tekið
þátt í því með sér. — Báðir hafa
gerst brotlegir viö lög áður.
í Aðventkirkjunni
prédikar O. Frenning í kveld kl.
8. Ræðuefni: „Ekki er neinn rétt-
látur, ekki einn“. „Ranglátir munu
ekki Guðsríki erfa“. „Hver getur
þá orðið hólpinn?" Allir hjartan-
lega velkomnir.
Vetrarhjálpin
beinir þeirri ósk til þeirra bæjar-
búa, sem styrkja vilja starfsemina
með gjöfum, t. d. matvælum, pen-
ingum eða fötum, að þeir geri að-
vart á Laugaveg 3, sími 4658, frá
kl. iþú—4. — Hafið hugfast, að
óðum styttist til jólanna, og þá er
mest þörf fyrir ýmsan glaðning
handa fátækum börnum.
Jólasala á leirmunum.
í Listvinahúsjnu hefir verið opn-
uð jólasala á íslenskum leirmun-
um. Sjá augl.
Hjúskapur.
1. des síðastl. voru gefin saman
í hjónaband af síra Friðrik Hall-
grímssyni, Margrét Arnadóttir og
Magnús Jóhannesson trésmiður.
Heimili þeirra er á Brávallagötu
10.
E.s. Súðin
fór í hringferð í gærkveldi.
Stúkan Víkingur
heldur hátíðlegt 30 ára afmæli
sitt annað kveld kl. 8. Hefst af-
mælishátíðin með fundi og inn-
töku nýrra félaga. Því næst verð-
ur sameiginleg kaffidrykkja, söng-
ur (Templarakórinn), samspil,
sjónleikur i 2 þáttum og loks verð-
ur dans stiginn. Sjá nánara í aug.,
sem birt er í blaðinu í dag.
Leikhúsið.
„Straumrof", leikrit Halldórs
K. Laxness, verður sýnt í kveld
kl. 8.
Kvikmyndahúsin.
Athygli skal vakin á því, að
auglýsingar kvikmyndahúsanna
eru á 4. síðu í blaðinu að þessu
sinni.
K. F. U. K.
Yngri deild: Fundur kl. 5 i dag.
Fjölmennið (framhaldssagan).
Söngfélag I. O. G. T.
heldur fjölbreytta skemtun í G.
T.-húsinu í kveld kl. 9. Skemtiat-
riði eru mörg. Sjá nánara í augl.
G.s. ísland
kom hingað í morgun frá út-
löndum.
E.s. Goðafoss
var væntanlegur hingað árdegis
i dag frá útlöndum.
Gamla Bíó
sýnir í fyrsta sinni i kveld kvik-
myndina „Lögreglumál nr. 909. —
Aðalhlutverk leika Liane Haid o.
fl. —- Kl. 7 veröur sýnd kvikm.
„Tarsan og hvita stúlkan".
Næturlæknir
er í nótt Ólafur Helgason, Ing-
ólfsstræti 6. Sími 2128. — Nætur-
vörður í Laugavegs apóteki og
Ingólfs apóteki.
Áheit á Strandarkirkju,
afhent Visi: 5 kr. frá S., 2 kr.
gamalt áheit frá N. N., 1 kr. frá
S. M.
Til fátæka mannsins,
afhent Vísi: 5 kr. frá N. N., 2
kr. frá N. N., 5 kr. frá E. S., 2 kr.
frá A., 2 kr. frá Þ. X., 14 kr. frá
ónefndum.
Áheit
á Hallgrímskirkju í Saurbæ, af-
hent Vísi: 1 kr. frá Ragnheiði, 10
kr. frá J. G.
Hjálpræðisherinn.
Samkomur í dag: Helgunarsam-
koma kl. 11 árd. Sunnudagaskóli
kl. 2. Hjálpræöissamkoma kl. 8.
Mikill söngur og hljóðfærasláttur.
EKKERT ER EINS
HRESSANDI ÁRLA
MORGUNS OG GÓÐ-
UR KAFFISOPI.
I
■
O. J. & K.-KAFFI
MUN ALDREI
BREGDAST YÐUR.
Allir velkomnir. — Heimilasam-
bandið heldur opinbera útbreiðslu-
samkomu á mánudag 10. des. kl.
8)4 síðd. — Fjölbreytt efnisskrá,
kaffi o. fl. Síra Bjarni Jónsson tal-
ar. Allir velkomnir.
Betanía
Laufásveg 13. Samkoma í kveld
kl. 8)4- Allir velkomnir.
Heimatrúhoð leikmanna
Vatnsstíg 3. Samkomur í dag:
Bænasamkoma kl. 10 f. h. Barna-
samkoma kl. 2 e. h. Almenn sam-
koma kl. 8 e. h. Allir velkomnir.
K. F. U. M. og K., Hafnarfirði.
Almenn samkoma í kveld kl.
8)4- — Síra Sigurður Pálsson,
Hraungerði, talar. Allir velkomnir.
Útvarpið í dag.
9,50 Enskukensla. 10,15 Dönsku-
kensla. 10,40 Veðurfregnir. 11,00
Messa í dómkirkjunni (síra Frið-
rik Hallgrímsson). 15,00 Erindi:
Hvert stefnir uppeldið? (frú Krist-
ín Matthíasson). 15,40 Tónleikar.
18,20 Þýskukensla. 18,45 Barna-
tími: Sögukafli (Axel Guðmunds-
son). 19,10 Veðurfregnir. 19,20
Kvartett- söngur (Þorgeir Gests-
son, Steinþór Gestsson, Jakob
Havsteen og Jón Jónsson). 20,00
Klukkusláttur. Fréttir. 20,30 Er-
indi: Amerikumenn og íslendingar
(Ragnar E. Kvaran). 21,00
Grannnófónn : — Tschaikowsky :
Symphonia nr. 4. — Danslög til
kl. 24.
Ungrerjar
fara fratn á endurakoðan
friðarsamninganna.
Laval mælti í mót beiðn-
inni, en Italir standa með
Ungverjum.
Genf 8. des. — FB.
A fundi ráðs bandalagsins í dag
mælti Laval í móti beiðni Ung-
verja um endurskoðun friðarsamn-
mganna og kvað friðinum hættu
búna, ef farið væri út á þessa
braut. Aloisi studdi kröfur Ung-
verja i öllu gegn Jugoslaviti og
Frakklandi. ('United Press).
-- .■■iTi«aasanr—-
Regnkápup
fyrir Dömur, Herra og Börn.
Ávalt smekklegast úrval.
99
66
AOeins í 3 daga
seljum við
Bónkústa ................................. Kr. 11.00
Emailleraðar fötur.......................... — 2.00
Náttpotta .................................. — 1.25
Smádiska ................................... — 0.95
Bollapör ................................... — 0.35
Ávaxtasett, áður kr. 6.50 nú................ — 4.00
Skálasett, 6 stk............................ — 4.50
Þvottabretti ............................... — 2.50
Katla .................................... — 0.90
og margt fleira ódýrt.
HAMBORG.
Tækifærið grlpta greitt
Epli, 3 tegundir
Appelsínur, 3 stærðir.
Melónur grænar.
Sítrónur.
Vínbep, sépstak-
lega góð.
Spyrjið um gæði, en ekki verð, því góða vöru kaup-
ir enginn of dýrt, samanborið við þá miður góðu.
Vesturbæingar!
kaupa öll leikföng í
Jötabúð Vesiorbæjar
Vesturgötu 23.
6