Vísir - 23.12.1934, Síða 3
VlSIR
Vellíðan í hverjum sopa
■ :
: ■ ;■*
EKKI BARA „KAFFI“,
HELDUR 0. J. & K.4AFFI!
VAR SIJ TÍÐ,
AÐ EG HAFÐI ÞÁ SKOÐUN, AÐ ÞAÐ GERÐI ENG-
AN MUN HVAÐA KAFFI VÆRI LÁTIÐ Á KÖNN-
UNA. EG KENDI KONUNNI UM, EF ILLA TÓKST
TIL OG MORGUNSOPINN VAR VERRI EN ELLA.
EG KENDI HENNI UM, ÞEGAR EG FÓR ÚRILL-
UR OG ÁHUGALAUS TIL VINNU.
Ég Iiélt aö ramma bragöiö væri
lienni að kenna,
NÚ EH TÍÐIN ÖNNUR.
jf ■
NÚ BREGST MORGUNSOPINN MÉR EKKI LENG-
UR, ÞVÍ NÚ ER ÞAÐ EKKI BARA „KAFFI“,
„Nú ex* þad
O. J. & HL- ka.iii“.
Dýravemdunarfél. íslands
heldur fund í dag kl. 8)4 e. h. í
VarSarhúsinu. Sjá augl.
Heimatrúboð leikmanna.
Samkomur á Vatnsstíg 3 í dag:
Kl. 10 f. h. bænasamkoma, kl. 2
e. h. barnasamkoma, kl. 8 e. h.
almenn samkoma. j ólasamkomur:
1. jóladag kl. 10 f. h. bænasam-
koma, kl. 8 e. h. almenn samk'oma.
2. jóladag kl. 8 e. h. almenn sam-
koma. — í Hafnarfirði, Linnets-
stíg 2. í dag kl. 4 e. h. almenn
samkoma. Jólasamkomur: 1. jóla-
dag kl. 10 f. h. bænasamkoma, kl.
4 e. h. almenn samkoma. 2. jóla-
dag kl. 8 e. h. almenn samkoma.
Allir hjartanlega velkomnir.
Betanía
Lauíásveg 13. Samkomur í
kveld kl. 8j4. Á jóladag samkoma
kl. 6 síðdegis. ZionskóriS syngur.
Annan jóladag kl. 8j4. Allir vel-
komnir á samkómurnar.
Hjálpræðisherinn.
Samkomur í dag: Helgunarsam-
koma kl. II árd. Deildarsamkoma
fyrir börn kl. 2. Útisamkoma á
Austurvelli kl. 3^2, ef veður leyfir.
Hjálpræ'Sissamkoma kl. 8. Allir
velkomnir.
Útvarpið í dag.
10,40 Veöurfregnir. 14,00 Barna-
gu'ðsþjónusta í dómkirkjunni (síra
Friörik Hallgrímsson). 15,00 Tón-
leikar frá Hótel .ísland. (Hljórn-
sveit Felzmanns). 18,45 Barna-
tími: Saga (Dóra Haraldsdóttir,
10 ára). 19,10 Veðurfregnir. 19,20
Einsöngur (Eggert Stefánsson).
20,00 Klukkusláttur. Fréttir. 20,30
Upplestur (Siguröur Skúlason
magister). 21,00 Grammófónt'ón-
leikar: Berlioz : Symphonie fanta-
stique. Danslög til kl. 24.
Nýtt iðnfyrirtæki.
Lakkrísgerð Reykjavíkur h.f.
Fyrir nokkuru tók hér til starfa
nýtt iðnfyrirtæki, Lakkrísgerð
Reykjavíkur h.f. Hefir, eins og
kunnugt er, verið flutt mikið til
landsins af þessari vörutegund, og
verður hiklaust. að telja það til
framfara, að hafist hefir verið
handa um að stofna til framleiðslu
á þessari vöru innanlands, til þess
að geta fullnægt eftirspuriiinni, í
stað þess að flytja vöru þessa frá
öðrum löndum. Hefir þegar all-
margt manna. fengið atvinnu við
lakkrisgerðina, en varan er fyrir
nokkuru komin i nærri allar versl-
anir, sem slíkar vörur hafa á boð-
stólum, og hefir líkað jirýðilega, en
eftirspurnin hefir íarið jafnt og
þétt vaxandi. Mikil áhersla er lögð
á að vandvirkni og fylsta hrein-
lætis gætt. T. d. er vert að taka
það fram, að mannshöndin hreyfir
ekki vöruna frá því hráefnin fara
i vélarnar, þar til hún er koniin í
umbúðir. Aðeins fyrsta flokks ný-
tísku vélar eru notaðar og hefir
yfirstjórn þeirra á hendi þaulvan-
ur maður og lærður i iðninni, svo
að engin mistök getur verið um að
ræða í þessari framleiðslu. Verk-
smiðjan hefir svo fullkomnar vél-
ar, að hún getur framleitt alt það,
er land okkar þárf af þessari vöru,
og vinnur nú í verksmiðjunni 10
manns.
Framleiðsla Lakkrísgerðaf Reykja-
vikur h.f. er fyllilega samkcpnisfær
við samskonar vörur erlendar, bæði
að þvi er verð og gæði snertir.
Japanar segja upp Washington-
samningunum.
London 22. des. — FÚ.
Japan hefir nú formlega sagt
upp Washingtonsamningunum.
Uppsögnin var símuð japanska
sendiherranum í Washington og
afhenti hann hana Cordell Hull.
Ú ívai'psfpéttií*.
Flugslys.
London 22. des. —- FÚ.
Frönsk flugvél, sem ætlaði að
lenda í dag í Croydon, en sá ekki
til fyrir þoku, fór fram hjá vell-
inum og lenti á húshlið og fór í
gegn um hana og inn í eldhús, og
staðnæmdust skrúfurnar rétt fyrir
framan eldavélina. Hvorki flug-
maður né loftskeytamaður flug-
vélarinnar meiddust nokkuð að
ráði, en tvéir íbúar hússins særð-
ust. Olían úr vélinni spýttist út um
alt gólf, en húsmóðirin kom í veg
fyrir að kviknaði í með því að
slökkva þegar á gasinu.
Jólapósti bjargað.
London 22. des. — FÚ.
Tekist hefir að bjarga nokkru
af jólapóstinum, sem hollenska
flugvélin hafði meðferðis.
Fjárlög Japan.
London 22. des. — FÚ.
Japönsku f járlögin fyrir 1935
liafa verið lögð fram. Þau gera
ráð fyrir miklum tekjuhalla
og ætlar stjórnin að gefa út
skuldabréf fyrir hallanum.
Hernaðargjöldin eru nú orð-
in helmingur af öllum gjöldum
japanska ríkissjóðsins, en voru
fjórðungur fyrir fjórum árum.
Stjórnin gerir ráð fyrir, að
koma á’ sérstökum gróðaskatti,
einkum á gróða liergagnaverk-
smiðja, sem undanfarið liafa
liagnast mjög á framleiðslu
sinni.
Setuliðið í Rín.
London 22. des. — FÚ-
Síðustu deildir bresku hersveit-
anna, sem eiga að hafa lögreglu-
stjórn í Saar, komu til Saarbrúck-
en í dag.
Svíarnir komu einnig í dag, og
það sem ókomið var af ítalska lið-
inu. Eru þá aðeins Hollendingar
ókomnir.
í
Járnbrautarslys.
London 22. des. — FÚ.
Járnbrautarslys varð í dag ná-
lægt Wúrtemberg. Tvær lestir rák-
ust á. Nokkrir fórust og allmargir
hlutu meiðsl.
Nýir líflátsdómar í Rússlandi.
Kalundborg, 22. des. FÚ.
Ýms félög í Rússlandi, og
einkum i Leningrad, krefjast
]iess, að tafarlaust verði lálið til
skarar skríða gegn Sinovieff og
félögum hans, og þeir teknir af
lífi. Fimm embættismenn í mat-
vælastjórninni voru dæmdir til
dauða í dag.
Kirkjudeilan þýska.
London 22. des. — FÚ.
í dag virtist á tímabili sem
samkomulag myndi nást rnilli
aðilanna i kirkjudeilunni þýsku,
og liafði fundurinn komið sér
saman um að kjósa nefnd til
þess að draga upp samningana,
en þegar tií kastanna lcom, náð-
ist ekki samkomutag um það,
hvernig nefndin skyldi skipuð,
og livað marga nefndarmenn
liver flokkur skyldi kjósa.
Flogið með jólapóst frá Belgíu
til Congo.
London 22. des. — FÚ.
Kennetli Waller er kominn
lieilu og liöldnu til Yestur-Af-
ríku, með jólapóstinn frá
Bruxelles til Belgiska Kongo.
Harin lagði af stað frá Oran í
morgun, og flaug yfir Saliara-
eyðimörk með 350 kilómetra
meðalhraða á klukkustund.
Bretlandsþingi slitið.
London 22. des. — FÚ.
Báðar málstofur breska þings-
ins liættu fundum í dag. Neðri
málstofan kemur aftur saman
f
Frii Ouðrði) firvnjðllsddltir
andaðist á Landspítalanum hinn
29. f. m. eftir langvarandi van-
heilsu. Frú Guðrún var fædd 12.
mars 1867, að Mýrum í Dýrafirði,
og giftist áriS 1889 eftirlifandi
manni sínum Árna Sveinssyni,
kaupmanni. VarS þeim fimm barna
auSið, sem öll eru á lífi: Ragnar,
í Ameríku, Lára, gift Steingrími
Jónssyni rafmagnsstjóra, Nikólina,
gift SörenSörenssyni lækni,Brynj-
ólfur lögfræSingur og Árni, kaup-
maSur, eigandi Vöruhússins, alt
myndar- og dugnaSar fólk, enda
ekki langt aS sækja þaS.
Frú GuSrún var mesta dugnaSar
og myndarkona, og sópaSi tölu-
vert aS henni, en þó einstaklega
viSmótsgóS og aðlaSandi, enda
hændust margir, bæSi ungir og
gamlir, aS heimili þeirra hjóna.
Var þar oft glatt á hjalla, gest-
risni mikiþog má margur núhugsa
til liSinna stunda á því heimili,
enda hafSi húsfreyja gott lag á
aS skemta gestum sínum. En þótt
frú Guðrún væri mikil gleSikona,
átti hún samt mikla stillingu til aS
bera og mun þaS, ásamt trúar-
hneigS hennar, hafa hjálpaS henni
mikiS í andstreymi hinna síSustu
ára, er veikindi steSjuSu aS heim-
ilii hennar árum saman. Reyndi
þá mikiS á kjark hennar og dugn-
aS, en alltaf var skapiS hiS sama,
cg glaSlyndiS. — Hún skildi eitt-
hvaS eftir hjá öllum vinum sínum.
O. B. A.
22. janúar, og efri málstofan
degi síðar.
Götubardagar í Tennessee.
London 22. des. — FÚ.
Fjórir menn hafa nú látið
lífið vegna sára sem þeir hlutu
í götubardögum í Shelbyville i
Tennessee í Bandaríkjunum s.
1. miðvikudag og fimtudag, út
af árásinni á dómliús bæjar-
ins. Alt er þar nú með kyrrum
kjörum, og aukalierliðið, sem
lcvatt liafði verið þangað, er á
förum þaðan aftur.
Grikkir semja um smíði á
herskipum.
London 22. des. —- FÚ.
Stjórn Grikklands hefir pant-
að smíði á tveimur tundurbát-
uin, lijá Vickers skipasmíða-
stöðinni í Englandi.
N o r s k a r
loftskeytafregnir.
Skattskyldar tekjur í Oslo minka.
Oslo 22. des. — FB.
Samkvæmt nýbirtum skýrslum
hafa skatskyldar tekjur í Oslo á
yfirstandandi fjárhagsári minkaS
um 5 milj. króna.
Norðmenn ætla að sæma skipverja
á „New York“ heiðursmerkjum
fyrir björgun skipsmanna á
e.s. Sisto.
Oslo 22. des. — FB.
Sjöfartstidende og mörg önnur
norsk blöS hafa vakiS máls á þvi,
að NorSmenn heiðri skipshöfnina
á New York, sem bjargaSi skip-
verjum á e.s. Sisto, á viSeigandi
hátt. — Kobro ráSherra, sem
gegnir störfum forsætisráSherra í
fjarveru Mowinckels, hefir tilkynt
aS máliS verSi rætt á ráSuneytis-
fundi þ. 4. n. m. — Samlcvæmt
fregnum, sem blöSin birta, eru lik-
ur til, aS björgunarmennirnir fái
hei'Surspening úr gulli og gjafir.
Fulltrúi norsku stjórnarinnar í
Berlín hefir fariS í heimsólcn í
þýska utanríkismálaráSuneytiS til
þess aS tjá þýsku stjórninni þakk-
ir NorSmanna fyrir björgunina.
Sjómannadeilunni í Noregi lokið.
Oslo 22. des. — FB.
Norska sjómannasambandiS hef-
ir samþykt tillögur sáttasemjara í
sjómannadeilunni. SamiS er til 1.
nóvember 1936.
Landvarnir Frakka.
París 22. des. — FB.
Öldungadeild þjóSþingsins hefir
samþykt aukafjárveitingu aS upp-
hæS 800 milj. franka til aukinna
landvarna og herbúnaSar. Tals-
veröur hluti fjárins fer til þess aS
treysta víggirSingar á landamær-
unum og til skotfæraframleiSslu
og hergagna. (United Press).
Métekja og
langaferöip.
Sú var tíðin, að Reykviking-
ar notuðu mó (svörð) nær ein-
göngu til eldsneytis. Mómýr-
arnar hér í kring um bæinn
þóttu ágætar. — Hvert einasta
heimili í bænum aflaði sér
svarðarforða að haustinu. Þá
var lítið um kolaeyðslu á lieim-
ilunum, samanborið við það,
sem nú er. 1
Mórinn var eiginlega af-
hragðs eldsneyti. Hitinn jafn og
góður og auðvelt að halda eld-
inum lifandi yfir nóttina. Eg er
nú orðin nokkuð gömul i hett-
unni og felli mig ekki við sumt
hið nýja. Og eg sakna þess, eins
og svo margs annars, að eiga
þess ekki kost lengur, að fá
keyptan svarðarköggul að
haustinu. Nú brenna allir kol-
um og mór er ófáanlegur. .
Mér mun verða svarað þvi til,
að bættur sé slcaðinn. Mórinn
liafi verið til óþrifnaðar og
annars ekki. Mómylsnan hafi
rokið um alt, óhreinkað alt.
Satt er það að vísu, að mylsnan
gat rokið víða, ef ógætilega var
farið. en það getur kolasallinn
líka, svo að þar er minst á mun-
unum. En það er annað, sem
mælir gegn mónotkuninni. Og
það er, að liann er rúmfrekur
og fólk mundi ekki hafa liús-
næði yfir hann, því að nú er bú-
ið að rífa niður flesta hjalla og
skúra, sem áður voru hafðir til
mógeymslu. Kolin eru ekki
eins rúmfrek, enda hægt að
afla þeirra smátt og' smátt, eftir
því sem þörfin lcrefur. En þau
eru dýr, enda er liitunarkostn-
aður íhúðanna liér í Reykjavík
ólikt meiri nú en gerðist í mínu
ungdæmi.
Mér eru enn í minni mó-
liraukarnir hér í mýrunum í
kring um bæinn. Sérstaklega
blöstu þeir vel við í Vatnsmýr-
inni. Þar var eins og í skóg sæi.
Okkur krökkunum þótti bein-
linis gaman að því að „vera í
mó“ með fullorðna fólkinu.
Sérstaklega þótti okkur gaman
að hreykja. Það var alls ekki
eins vandalaust og margur
kann að halda, að lilaða mó-
hraulca — hlaða þá svo að þeir
bæri nokkurnveginn af sér rign-
inguna. Sumir voru snillingar í
þessu, einkum gamlir karlar og
kerlingar, sem við þetta höfðu
fengist frá blautu barnsbeini.
Nú eru mómýrarnar orðnar
að túnum. Það er búið að
slétta yfir liandarvik kynslóð-
anna i þessu efni sem mörgum
öðrum. Það eru sjálfsagt mikl-
ar framfarir í sliku — eg efast
ekki um það. Mér þykir gaman
að sjá töðuvellina liérna fyrir
sunnan tjörnina. Þeir eru falleg-
ir og setja einlivern búsældar-
svip á umliverfi bæjarins.
Sama er að segja um mómýr-
arnar hér innan við bæinn.
Hinar útgröfnu mýrar eru allar
orðnar að túnum. — En mó-
tekjan er liorfin og við gömlu
konurnar getum ekki fengið
móköggul i landareign höfuð-
staðarins. Við verðum að fara
upp að Esju, ef við eigum að sjá
móhrauk. Kjalnesingar taka
enn upp mó, að þvi er eg best
veit. —
r