Vísir - 19.03.1935, Blaðsíða 3

Vísir - 19.03.1935, Blaðsíða 3
VÍKINGASKIP íanst fyrir skömmu í jörS í Danmörku og þykir sá fundur a?S von- um afar merkilegnr. Á myndinni hér aS ofan en mynd af víkinga- skipi og t. v. af víkingi, er hlevpur fyrir borö í bardaga. bjargað frá hruni, með aðstoð hins opinhera. 4) 14.000 bankar hafi verið opnaðir fyrir milligöngu eða með aðstoð rikisins. 5) TeTcjur verkamanna og bænda liafa aukist um yfir milj- arð dollara vegna viðreisnar- framkvæmda ríkisstjórnarinn- ar. 6) Viðskifti hafa aukist ;að miklum mun, fyrir atheina rik- isstjórnariimar. Opnir gluggar. Safn af smásögum meö þessu nafni er nýlega komiS át. Höf. er Sig. B. Gröndal og er hann áður kunnur af tveim bókum, er hann hefir samiS. —: Er hin fyrri ljófia- kver, er höf. nefndi „Glettur'*. ÞaS kom út 1929. ■— SíSari bókin, „Bárujám" (sögur) komu út 1932. Sig. B. Gröndal er önnum kafinn maSur viS dagleg störf og mun ekki geta sint skáldskapnum nema á hlaupum. Hann hefir nú gefíö út þrjár bækur á fáum árum og sýn- ir þaö dugnaö hans og áhuga við ritstörfin. Eg ætla ekki að dæma um skáld- skap Sigurðar, enda býst eg við jjví, að blaöið leggi dóm á bók hans síSar. En eg vildi Ieyfa mér að bénda á þaS, að engan þarf aö undra, þó aS nokkur lykkjuföll lcunni aS vera á verki höfundar, sem verður að sinna bókmenta- störfum þreyttur og aö næturlagi, veröur að hlaupa í þetta, jxegar hann hefir einhverja stund af- gangs. Mér þykir Sigurður ærið af- kastamikill við ritstörfin. í joess- ari síöustu bók hans eru ellefu smásögur. Eg ætla mér ekki aö lýsa þeim á neinn hátt né rekja efni þeirra. Þessar línur eru ein- ungis til þess ritaSar, aS vekja at- hygli almennings á því, að smá- sagnasafn þetta sé út komiö. Mér finst að höfundurinn eigi jiaö skil- iö, aö bók hans sé keypt og lesin. Sk. Utan af landi, —0— Lá við slysi. Flateyri 18. mars. FÚ. Gísli jóhannsson húsmaöur á Flateyri féll útbyröis í dag af vél- bátnum Auöuni. NáSist hann meSvitundarlaus en raknaði við eftir nokkurn tíma og díður hon- uín sæmilega eftir atvikum. Gæftir aflabrögð 0. fl. Vestmannaeyjum 18. mars. FÚ. Oísaveður af austri var í dag í Vestmannaeyjum. Ellefu bátar íóru í róöur. Tveir þeirra snéru áftur og 5 voru komnir úr róðri er skeytið var sent klukkan 17,30 i dag. — VaröskipiS Þór, sem var statt 8 sjómílur suðvestur af þrí- dröngum segir í skeyti, sem var þá nýkomiS, að þaö hafi séö 6 báta á sjó. Samkvæmt skýrslu yfirfiski- matsmannsins til fréttaritarans hafa aflast í Vestmannaeyjum frá 1. til 15. þ. m. 993,380 kg. fiskj- ar. Ógæftir hafa veriS en afli jafn- an ágætur þegar hefir gefiS á sjó. — Salthtið hefir veriö undanfarið í Vestmannaeyjum. Saltskip sem kom s. I. föstudag liggur enn óaf- fermt sakir óveSurs. Hafnfirsku togaramir. HafnarfirSi 18. mars. FÚ. Síðastliöinn iaugardag komu af veiöum til Hafnarfjarðar: Ven- us meö 67 föt lifrar, og i dag Kópur með 70 föt, Surprise meö 80 föt.og Júpíter meS 57 föt. Frá Akranesbátum. Akranesí x8. mars. 'FÚ. AHir bátar hér á Akranesi hafa róíð síðustu daga og fiskaö frern- ur vel. Hæst var í dag 25—30 skp. — 15. þ. m. var Hafþór, sem er aflahæstur búinn að salta 400 skp. —• Línuveiðarínn Ólafur Bjarna- son lagði á land í dag 200 skp. eftir 13 daga útivist. — Nova lestaði í dag 400 tunnur söltuð hrogn. Nýir kaupendur Vísis fá blaðið ókeypis til mánaða- móta. — Veðrið í morgun. í Reykjavík 3 stig, Bolungavik — O, Akureyri — 1, Skálanesi — O, Vestmannaeyjum 2, Kvígindisdal — 1, Hesteyri — 2, Gjögri — 1, Blönduósi 1, Siglunesi — 3, Gríms- ey — 1, Fagradal •— 1, Hólurn í HornafirÖi o, Fagurhólsmýri 1, Reykjanesi 2, Færeyjum 6. Mestur hiti hér í gær 4 stig, minstur — o. Úrkoma 0,8 mm. Sólskin í gær 0,2 st. — Yfirlit: Djúp lægð viS, suð- urströnd íslands, en hæð fyrir norðan. — Horfur: SuSvesturland, Faxaflói: Hvass austan. Dálítil slydda eöa rigning. BreiSafjöröur, VestfirSir: Austan stormur, snjó- koma, einkum í dag. NorSurland, noröausturland: Austan stormur. Snjókoma. Austfirðir, suðaustur- land: Hvass austan. Snjókoma og síöar rigning. Skip Eimskipafélagsins. Selfoss er í Reykjavík. Lagar- foss var á Patreksfiröi i morgun. Brúarfoss er í Kaupmannahöfn. Dettifoss er væntanlegur til ísa- fjarSar kl. 2—3 í dag. Goöafoss er í Hull. Gullfoss er á leiö til Vestmannaeyja frá Leith. Skemtikveld heldur Glímufél. Ármann i ISnó (uppi) annaS kveld. Þar verður glatt á hjalla eins og vant er. — Fundurinn byrjar kl. 9 og eru menn beSnir að mæta stundvíslega. Af veiðum hafa komið Skallagrimur meö 72 tn., Otur með 74, Gulltoppur meö 130, Hafsteinn með 60 og Tryggvi gamli með 90 tn. lifrar. Væntanlegir eru í dag Bragi, Gyll- ir og Karlsefni. 85 ára verður á morgun frú Ingveldur Guðmundsdóttir, Bergi. Lyra er væntanleg hingað kl. 5—6 i dag. E.s. Esja fer í hringferö í kveld. 1900 útvarpsnotendur höfðu neytt at- kvæðisréttar síns hér í bænum í gærkveldi. — I kveld veröa þeir að ininsta kosti orönir 2000! — B-Iistinn er listi Sjálfstæðisflokks- ins. Kjósið hann! Gengið í dag. Sterlingspund ........ kr. 22.15 Dollar................ — 4.6 7$4 100 ríkismörk ...... — 185.41 — franskir frankar . — 3°-95 — belgur............. — 108.77 — svissn. frankar .. — iSt-39 — lírur ............. — 3945 — finsk mörk .... , — 9.93 — pesetar ........... — 64.77 — gyllini............ — 316.68 — tékkósl. krónur .. — t9-87 — sænskar krónur .. — 114.36 — norskar krónur .. — m.44 — danskar krónur .. — 100.00 Gullverð isl. krónu er 47,24, miöaS við frakkneskan franka. Minningargjafasjóður Landspítal- ans styrkir efnalitla sjúklinga er dvelja á Landspítalanum. Styrkt- ar þörfin er mikil og fer æ vax- andi, enda gengur hver eyrir sem sjóSnum áskotnast í minningar- gjöfum jafnótt til styrkveitinga. Minningarspjöld sjóðsins eru af- greidd á þessum stöðum hér í bæn- um: í austurbænum hjá frk. Á- gústu Magnúsdóttur, Bókabúð I Austurbæjar, Laugaveg 36. í mið- bænum í hljóðfæraverslun Katrín- ar Viðar. í vesturbænum hjá frk. Guðfinnu Jónsdóttur, Vesturgötu 12. — Sömuleiðis afgTeiöir Land- síminn samúðarskeyti sjóösins, bæði innan bæjar og til allra land- símastöSva landsins, og afgreiöa þær einnig samúðarskeyti hver til annarar. —- Allir þeir, sem láta Minningargjafasjóð Landspítalans njóta gjafa, veita sjúkum og snauSum beina og brýna hjálp. Vordraumar. Svo nefnist ljóðabók. sem ný- lega er komin út. Höfundurinn er Kjartan Olafsson, brunavöröur hér í Reykjavík. Hann er áður kunnur orðinn af kveðskap sínum og gaf út ljóöasafn eftir sig áriö 1932 (Dagdrauma). i blöðum og tímaritum hefir birst allmikið af kvæöum eftir K. Ó. á undanförn- um árum. Bókar jiessarar verður væntanlega siðar getið hér í blaö- inu. Skólaleikurinn. Mentaskólanemendur svna „Henrik og Pernillu", hinn á- gæta gamanleik Holbergs i síðasta sinn í kveld. — Leikurinn þykir bráSskemtilegur. H'ann verSur alls ekki sýndur oftar og eru jiví síöustu forvöö að sjá hann í kveld. — Hinir ungu leikendur vænta þess, að bæjarbúar fjölmenni. Næturlæknir er í nótt Þórður Þóröarson, Eiríksgötu 11. Sími 4655. — Næt- urvörður í Laugavegs aixíteki og Lyfjabúðinni ISunni. Heimatrúboð leikmanna Vatnsstíg 3. Samkoma í kveld kl. 8. — í Hafnarfiröi, Linnetsstíg 2. Samkoma annaS kveld kl. 8. — Allir velkonmir. Verslunarmannafél. Reykjavíkur heldur fund annaö kveld kl. 8J4 í Kaupþingssalnum. Framhalds- umræSur um fyrningu verslunar- skulda o. fl. Sjá augl. Arreboe Clausen. Þessa dagana er pýning á nokkr- um fallegum myndum í Aðalstræti i einum glugga Vöruhússins — Hótel ísland. Myndirnar eru eftir manu sem gaman og yndi hefir af að mála — okkar þekta Ixirg- ara, Arreboe Clatisen. Z. Dóttir eðjukóngsins, hin gullfallega saga H. C. And- ersen, i þýSingu Stgr. Thorsteins- son, sem birtist í Vísi' í vetur, hef- ir nú verið sérprentuð á vandaðan pappír. Upplagiö er lítið. Brot er sama og á ævintýrunum „Kalaf', „Tröila-Elínu“ og „Glensbróður“, sem hlotið hafa almennar vinsæld- ir. Bókin er 108 bls. og fæst í bókaversl. Kirkjustr. 4 kl. 4—7 daglega. Útvarpið í kveld. 19,00 Tónleikar. 19,10 Veöurfr. 19,20 Þingfréttir. 20,00 Klukku- sláttur. Fréttir. 20,30 Erindi: At- vinnusaga íslendinga, VI (Dr. Þorkell Jóhannesson) 21,00 Píanó- sóló (Emil Thoroddsen). 21,20 Upplestur (Þorst. ■ O. Stephensen, leikari). 21,40 Tónleikar (plötur) : a) íslensk lög; b) Danslög. Eftirmáli. Eg þakka Vísi innilega fyrir birtingu greinarinnar, og somu- leiðis fyrir athugasemdina, sem henni fylgdi. Get eg að sjálfsögöu fallist á, að athugasemdin sé á rök- um bygð. — Hinsvegar er það skoöun min, og hélt eg því fram í grein minni: „ÚtvarpiS og upp- lesturinn", aö |)að mundi auðveld- ast og aðgengilegást, aö kynna sér starfssögu útvarpsins hér, á eftir- komandi tímum, meö jiví aö geta fengið þann fróSleik beint í gegn- mn þetta daglega yfirlit, sem eg var aö benda á, að útvarpinu væri nauðsynlegt aö hafa. — Enda hef - ir þaö komiö í ljós, aö |>vi er mér viröist, að jiessir tveir starfsmenn útvarpúns, er eg nefndi í grein- arkorninu, hafa átt furðu erfitt með að átta sig á dagskrárefni út- varpsins frá liönum tímum. — ESa Jiá, aS þeir hafa eigi kosið að leggja á sig erfiSi viö mikla leit í lauslegum heftum og blöðum út- varpsins, til j)ess aö komast aS réttri niöurstööu um ágreinings- efni sitt um endurtekningu út- varjisefnis. 16. mars. 1935. Hlustandi. Kisa mín. Hún var grábröndótt á litinn, ljómandi fallegur köttur, skyn- söm og þrifin. Hún er dauð fyrir mörgum árum, og nú ætla eg ekki að láta það dragast lengur, að segja eina sögu, sem ber vitni um skynsemi kisu minnar. En mér hefir alt af verið það töluvert undrunarefni, hvernig gamla kisa hefir fengið að vita um brúðkaupið hennar dóttur minnar og alt umstangið, sem því mundi verða samfara. En hitt er efalaust, að með ein- hverjum hætti hefir hún vitað, að ráðlegra mundi, að koma „börnunum“ á óhultan stað og hafa þau ekki á gangveginum, þegar hinn mikli dagur nálgað- ist. Kisa mín gamla átti ósköpin öll af „bömum“. Og eg hafði ekki brjóst til þess, að taka þau frá henni. Hún fekk að hafa krakkana lijá sér meðan hún vildi. En meður þvi að hún var annálaður veiðiköttur, þá urðu margir til þess, að falast eftir afkvæmum liennar. Mér urðu því ekki vandræði úr ketlingun- um og gat æfinlega komið þeim af mér á bæina i kring. Nú stóð svo á, að brúðkaups- veisla átti að vera á heimili mínu eftir nokkura daga. Gest- irnir áttu að vera nokkuð marg- ir, eftir því sem í sveitum ger- ist, og eg fekk stúlku til þess að hljápa mér við baksturinn. Hún kom tveim dögum áður en hjónavigslan átti fram að fara. Og við vorum nálega allar stundir i eldhúsinu siðustu dægrin. Kisa min „lá á sæng“ um þessar mundir, eða hafði legið. Ketlingarnir voru farnir að sjá. Og þeir voru famir að verða óþekkir við mömmu sina — farnir að skríða upp úr kassan- um og skondra út um alt gólf. — Kisa gætti þeirra af mikilli prýði, tók þá í kjaftinn og bar þá í kassann jafnharðan. Stund- um kom það þó fyrir, að hún lofaði þeim að eiga sig, en alt af hafði hún vakandi auga á því, að þeir færi sér ekki að voða. Brúðkaupsdaginn voru allir snemma á fótum og ys og þys um allan bæ. — Þegar eg er að klæða mig í húsinu okkar i öðr- uin enda baðstofunnar, heyri eg að klórað er í hurðina. Eg sinti þessu ekki, en þá heyri eg að tekið er að mjálma. Eg þekti röddina. Þetta var gamla kisa og hún mjálmaði alveg eins og hún var vön að gera, þegar hún hafði mús i kjaftinum. En það var siður hennar, að koma rak- leitt inn til mín með allar þær mýs, sem hún veiddi. Hún lagði þær venjulega fyrir fætur mér og leit því næst á mig, býsna hróðug á svipinn. — Ertu nú að koma með eitt- livert músar-greyið til mín, gamla kisa, sagði eg og opnaði hurðina. ( Og jafnskjótt og hurðin opn- aðist, skaust kisa innfyrir. En hún var ekki með mús í kjaft- inum, lieldur einn af ketlingun- um sinum. — Hún slepti ekki ketlingnum, nam staðar á gólfinu, horfði á mig og mjáhnaði, en ketlingur- inn spriklaði ákaflega og hefir vafalaust fundist ævi sin ill. — Mér datt í hug, að eitthvað mundi vera að ketlingnum og spurði kisu mína að þvi. — Þá vatt hún sér upp i rúmið mitt, lét ketlinginn í hornið til fóta, stökk siðan niður á gólf, nam staðar fyrir framan mig, mjálmaði og liorfði ýmist á dyrnar eða rúmið. Eg strauk henni vingjarnlega, en hún néri sér upp við mig. En alt i einu þeyttist hún af stað — út úr xerberginu, fram haðstofugólf- ið og niður stiga. Eg kallaði niður og bað stúlkurnar, sem komnar voru í eldliúsið, að gæta þess, að dyrn- ar væri liafðar opnar. Þvi næst tók eg kembukassa, sem eg átti, lét i hann eitthvað af tuskum og íieið átekta. Ketlingurinn var farinn að leika sér í rúminu. Það leið ekki á löngu að kisa mín kæmi með annað barna sinna í kjaftinuiu. Og húu stökk upp í rúmið og lét þenn- an ketlinginn hjá hinum. Þvi næst ætlaði hún að rjúka af stað eftir þeim þrxðja. Eg kallaði á hana, sýndi henni kassann og sagði að þarna mætti hún hafa börnin sin, ef hún vildi. Svo tók eg ketling- ana úr rúminu og lét þá í kass- ann. Kisa kom að vörmu spori með þriðja ómagann og skilaði honum í kassann, Og svona hélt hún áfram, þar til er allur barnahópurinn var kominn í kembukassann. Þó íók hún til að þvo krökkunurn, sleikti þá vandlega einn af öðrum, en lagðist svo fyrir og lét þá fara að sjúga. — Eg hafði i mörgu að snúast þenna morgun, en ekki gleymdi eg því, að láta nógan mat inn til kisu minnar, mjólk og annað, áður en eg færi til kirkjunnar. Veislan hófst síðari hluta dagsins og stóð alla nóttina. Var sifeldur erill og umgangur og þá ekki síst i eldhúslnu, þar sem kisa hafði haft bústað sinn. Þegar gestirnir voru farnir daginn eftir, og heiMilið komið í venjulegar skörður, var eg . ...*U.*ÍttW\j ■ - 1 lengi i feldhúsinu ao huga að ýmsu og koma i sámt lag. Þá heyri eg alt i einti þfusk nokk- urt í horhinu fýrir framan eldavélina. Sé eg þá, að kisa min er þar komin og er að drasla einum ketlingnum upp i kassann sinn. Eg skifti mér ekki af lienni og bíð átekta. Og eftir litla stund er hún búin að flytja alla „krakksma“ í gamla bústaðinn. — Kemtir hún þá til mín, stekkur upp ó eldhúsborð- ið, malar ánægjulega og nudd- ar sér upp við mig. — Eg gef henni vænan mjóikursopa og sé þá, að hún munit hafa verið orðin þyrst. Síðaxi gef eg lienni ýmislegt fleira, er eg vissi að lienni þótti gott, en hún tók við og át með góðri lyst. Að mállið lokinnx fór hún til barna sinna. Og nú liófst ná- kvæmur þvottur og hreingern- ingar, eins og daginn áður. — Þvi næst raðaði uíigviðið sér á spenana, en kisa rnalaði hátt og ánægjulega. — Sveitakona. Ekki leiðum aö iííkjast. Hann (viS unnustuna). Er þaö satt, Þorbjörg, aö jni hafir leyft honum Ara aS kyssa þig á dans- leiknum í gærkvekl.i? Ilún: Nei, jxaS er ekki satt. — Fg leyfSi jxaS ekki. Hann: En hann kysti júg' samt? Hún: SkrifaS stendur: GuS líö- ur svo margt, sem hann leyfir ckki. Mér finst nú a'S ekki sitji á mér, óbreyttri yinnukonunni, aS vera strangari en gu'S almáttugur! Gat ekki fiofnað. Fangavörðurinn: — Þú ert ekki sofnaSur enn j)á! Innbrotsþjófurmn: Nei. — Eg er ekki vanur því a,VS liggja inni í bæli um miSjar nætur og sofa. Fangavörðurinn: Þetta lagast meS tímanum.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.