Vísir - 31.05.1935, Side 3
VISIR
hnefana. — Hann hafði enga
löngun til þess, að taka þátt í
fífiálátiinum „inni i bæ lijá
mömniu“, labbaði út á tún og
ætlaði að sofa í hesthúsi aðra
nóttina til.
Þeir hittust á túninu morgun-
inn eftir, bræðurnir.
: „Nei — ertu þarna, bróðir,“
sagði, Þór glaðlega. —- „Þú
komst aldrei i konungsgarðinn.“
„Víst kom eg. — En eg' lenti
í ógurlega stórri liringekju og
svo tafðist eg hka við húsbruna.
— Eg stóð í þeirri meiningu, að
eg hefði nægan tíma.“
„Já — eg átti von á þessu,“
sagði bróðir hans. —
litítt síðar keypti Þór vildis-
jörð og' reisti bú. Honum liður
ágætlega. Hann er sístarfandi,
vrkir jörðina og gerir húsabæt-
ur eftir þörfum. — Hann heimt-
ar a!t af sjálfum sér, en ekkert
ag öðmm. —
Kpiitur heldur áfram að
bíða eftir hinum miklu tæki-
færum. En þau koma ekki. —
— Og hann er orðinn þeirrar
skoðunar, að hann eigi jörðina
hans bróður síns, engu síður en
hann. — Hann er þeirrar skoð-
unar, að allir eigi alt og eng-
inn neitt sérstaklega. Ómensk-
an hefir gert liann „rauðan“.
(Úr norsku).
Japðhitinn
á Reykjum.
Fródlegar
upplýsingar.
30. maí. FÚ.
Á jarðhitasvœðinu t>ið Reyki í
Mósfellssveit eru nú, að því er best
verður vitað, sprottnir upp rúmlega
170 lítrar af 84—86 stiga heitu vatni
á sekúndu hverri, — en það er
minsta vatnsmagn, sem upphaflega
var búist við að mundi þurfa til
þess að svarað gæti kostnaði að
leiða vatnið til Reykjavikur.
Þegar borunin hófst, spruttu upp
á jarðhitasvæðinu í nánd við Reyki
um 110 lítrar af hveravatni, en úr
io holum -— þar af 9 fullboruð-
um — koma samtals 64 lítrar, ;og
virðist sem aðeins 4 lítrar hafi dreg-
ist frá því sem áður kom upp á
jarðhitasvæðinu.
Állar þœr holiir, sem hingað til
hafa verið boraðar, eru í tún-inu eða
við túnið á Reykjum. En jqrðhita-
svœöið er miklu stœrra, og verkið
heldur áfram.
Verkstjórinn við borunina, Einar
Jónsson, lýsir þannig holunum og
starfsaðferðum við horunina:
Holurnar eru aí ymsum ástæðum
talsvert misdjúpar. Dýptin er sem
hér segir: Fyrsta 209 metra, önn-
ur 152 rnetra, þriðja 168 metra,
fjórða 160 metra, fimta 135 metra,
sjötta 255 metra, sjöunda 169 metra,
áttunda 163 metra, níunda 249
metra og tíunda, sem verið er að
bora, er orðin 164 metra djúp. —
Þvermál hverrar holu er 11 cm.
Upphaflega hefir kornið heitt
vatn upp úr öllum 'þeim holum, sem
boraðar hafa verið, en nú orðið
kemur ekkert vatn upp úr þeim
þrem holum, sem fyrst voru borað-
ar, og' lítur út fyrir að nálægar
holur hafi dregið frá þeim.
Vatnsmagnið i holunum — að
frátöldum þrem þeim elstu — er
sem hér segir:
I fjórðu 9,3 lítrar á sek. í fimtu
4,1 lítri á sek. I sjöttu 15,6 lítrar á
sek. I sjöundu 2,9 lítrar á sek. í
áttundu 9,1 lítri á sek. 1 níundu
20,0 lítrar á sek. og í tíundu 3 lítr-
ar á sek.
Vatnshorð fyrstu holu er um 4
metra undir yfirborði jarðar, en
vatnsborð annarar og þriðju holu
er við yfirborð jarðar. Rennur því
ekki sjálfkrafa úr þessum þrem hol-
um, eins og nú hagar til. í öllum
öðrum holum er meiri og minni
vatnsþrý'sting upp fyrir yfirborð
jarðar. Langmest vatnsþrýsting er
í níundu holunni, og mundi vatn
úr henni stíga í 15—20 metra hæð,
ef það kæmist ekki aðra íeið frá
holunni. Vatnsmagn hefir og aukist
i þeirri holu eftir að hún var boruð.
Var það upphaflega um 19 lítra á
sekúndu, en er nú 20 lítrar á sek.,
sem fyr er sagt.
Heita vatnið sprettur einkum upp
úr mjúkurn jarðlögum •— sandi eða
leir, — á 146—150 metra dýpi. —
í dýpstu holunni sprettur vatni'ð
þó upp á 252 metra dýpi. — Jarð-
lögin hafa ekki verið rannsökuð af
jarðfræðingi, en þau eru all-breyti-
leg. Ofan til eru þau laus í sér',
en þéttast er niður dregur, og eru
sumstaðar einna hörðust á 70 metra
dýpi og líkjast þá blágrýti. Heita
vatnið virðist einkum síast úr
sprungnum leir eða sandi. — í einni
holunni, þeirri fjórðu, var borað
gegnum steingráan, rnjúkan tálgu-
stein. Hafa þeir, sem vinna við bor-
unina, tálgað úr honurn ýmsa muni,
svo sem brjóstlíkön, staup og ösku-
liikara, og þykja það eigulegir
gripir.
Við borunina er notað: hreyfill,
dæla, borvél, gálgi og vinda. Bor-
inn er snúningsbor, gerður af hol-
um stálrörum, skrúfuðum saman.
Þessi bor snýst í vatni ofan á stál-
höglum, sem höfð eru i botni hol-
unnar til þess að mylja berglögin.
Þar sem berglög eru hörð myndast
við borunina sívalur bergbútur eða
kjarni, sem gengur upp í svonefnt
kjarnarör neðst í bornum og festist
þar. Bergbútar þessir eða kjarnar
eru síðan dregnir upp með bornum
við og við. Þegar upp kemur, er
bergbúturinn losaður úr bornum og
borun hefst á nýjan leik. — Mjúk
jarðlög og salli, sem fellur til við
borunina, skolast með vatni upp á
yfirborðið utan við borinn.
Við borunina kemur það fyrir,
að borstengur brotna og getur þá
orðið erfitt að ná upp neðri hluta
borsins, og tekst það því að eins,
að brotið verði skrúfað við stöng,
sem er í því skyni sett niður í
holuna. Mestum erfiðleikum er
þetta bundið, éf borinn hefir brotn-
að þar, sem skápar eru í holunni.
Géngur þá illa að hitta endann. —
Ef borinn brotnar svo neðarlega,
að lcir, sem er jafnan neðan til í
holuimi, nær upp fyrir stahgarend-
ann, þá getur orðið ógjörningur að
ná bornum og verðúr þá að hætta
við holuna.
Við boranirnar á Reykjum hafa
borar brotnað að eins tvivegis, í
öðru sinni á miklu dýpi, en hitt
skiftið á 5.70 metra dýpi; annars
hefir verkið unnist vel.
Við borunina vinna Einar Jóns-
son verkstjóri, Jón Hansson og
Matthías Einarsson.
Ferðafélasj íslands
—0—
Útvarpskveld Ferðafélagsins
var í gærkveldi og var hiS fjöl-
hreyttasta og fróölegasta, því aö
vel var til þess vandað. Munu er-
indi þau, er flutt voru, verða til
þess að vekja almenna athygli á
starfsemi félagsins, sem að vísu
er löngu orðin landskunn, en öll-
um ber saman um hversu þörf hún
er. Utvarpskveldið og hin aukna
starfsemi féiagsins og meiri þátt-
taka í feröum þess leiðir vafalaust
til jiess, að félagatala þess aukist
enn meira en orðið er, en það
er skilyrði til þess að félagið
haldi áfr'am að stækka og eílast.
Skemtiferðin í gær.
I henni tóku þátt 14 manns héð-
an úr bænum, þar af tveir drengir
innan fermingaraldurs, en þrjár
stúlkur úr. Hafnaríirði b'ættust í
hópinn á leiðinni. Farið var í bif-
reið um Hafnarfjörð upp undir
Kalclársel og komið í skála K. F.
U. M. og- því næst gengið á Helga-
fell. Var farið upp að sunnan-
verðu. Er þar einkennilega fall-
egur, gróinn skorningur, og kletta-
brú yfir á einum stað. Eykur það
mjög á ánægju þeirra, sem ganga
á Flelgafell, að fara þessa leið nið-
ur fellið, Því næst var gengið suð-
ur meö fellinu og suður hraunið
og skoðaðir þar ýmsir einkenni-
legir staðir, en því næst stefnt í
áttina til austurenda Elliðavatns
og gengið meðfram vatninu að
sunnanverðu, staðnæmst ])ar á ein-
um stað hálfa klukkustund, en
göngunni lauk hjá Vatnsendastöð-
inni, þar sem bifreið beið til þess
að flytja fararþátttakendur til
bæjarins. Ferð þessi var hin á-
nægjulegasta, en þátttakan mun
ekki hafa orðið eins mikil og raun
varð á, vegna hinnar fjölmennu
Akranesferöar K. R.
SkemtiferSaáætlunin.
Á fundi í Oddfellowhúsinu í
gærkveldi var lögð fram og rædd
eftirfarandi skemtiferðaáætlun
skemtiferðanefndar Ferðafélags
Islands en hana skipa Skúli Skúla-
son ritstj., Kr. Ó. Skagfjörð heild-
sali og Pálmi Hannesson rektor:
Skemtiferðanefnd Ferðafélags
íslands hefir að svo stöddu ekki
séð sér fært að leggja fram heild-
aráætlun fyrir sumarið. Sjö ferð-
ir hafa þegar verið farnar, auk
tveggja mjög fjölmennra ferða,
sem Ferðafélagið hefir gengist
fyrir, með börn sem tekið hafa
fullnaðarpróf í barnaskólunr
Reykjavíkur. Slíkar ferðir hefir
félagið látið sér hugarhaldið urn
frá byrjun starfsemi sinnar.
Þær ferðir félagsins, sem farn-
ar hafa verið eru þessar: 1) Kleif-
arvatn, 2) Reykjanes, 3) Raufar-
hólshellir urn Þrengsli austur og
Lágaskarð vestur, 4) Hengill,
milli hrauns og hlíða austur og af
Hengli um Innstadal og Sleggju-
beinsdal aö Kolviðarhóli, 5) Hóp-
íerð til Þingvalla, í Bolabás, á
Hofnlannaflöt — með siglingu um
vatnið að Mjóanesi og göngu á
\
Arnarfell, göngu á Lágafell og
þaðan yfir þverar Sandkluftir
norðan vatnsins og um Ármanns- j
íell og i þriöja lagi á Súlur. Þátt- 1
takendur voru alls í þessari þre- |
földu ferð 169, auk hundraða |
manna, sem komu á Þingvöll til að
hlýða á erindi þau, sem þeir próf.
Ólafur Lárusson og rektor Pálmi
Hannesson fluttu á Þingvöllum, að
tilmælum Ferðafélagsins, 6)
Gönguför frá- Svanastöðum á
Skálalell og þaðan í Svinaskarð,
7) Kaldársel — Vatnsendi.
2. júní. 8) Næsta ferð Ferðafé-
lagsins er ákveðin á sunnudaginn
kernur, klukkan 8 árdegis — eins
og vant er — upp á Skjaldbreið.
Það er 8. ferð félagsins og er
ferðin sett fyr, en nokkurn tíma
hefir heyrst, að hópur manna hafi
gengið á Skjaldbreið áður.
9) Sama clag verður gengiö á
Esju og er sú för bæði ódýrari og
auðveldari. En þeir sem á hvorugt
þessara fjalla hafa komið, skyldu
sjá Esju fyrst.
8. júní. 10) Þetta er laugardag-
ur fyrir Hvítasunnu og þá eru
3 ferðir ráðgerðar. Laugardags-
ferðin er í Þjórsárdal og verður
Véi* höfum
nýlega fengið nýtísku áhöld til
framköllunar og „kopieringa“
sniðin eftir áhöldum Agfa stofn-
unarinnar i Berlín og getum nú
boðið viðskiftavinum vorum
fljóta og nákvæma afgreiðslu.
Góða mynd
fáið þér með því að lála okkur
framkalla og „kopiera“ fyrir y'ð-
ur.
THIELE, Auslurslræti 20.
farið kl. 6 síðdegis 8. júní og
komið aftur annan dag Hvita-
sunnu þ. 10. júni kl. 10—11 síð-
degis. Tíminn verður notaður til
þess, að sjá alt, sem markvert er i
Þjórsárdal og geta þeir sem vilja
gengið á Búrfell og skoðaö foss-
ana í Þjórsá. En aðalstáðir á
þeirri leið verða: Hjálp, Gjáin og
Háifoss.
11 b) Hvítasunnumorgun verður
far'ið á Skarðsheiði. Siglt á Akra-
nes og farið þaðan með bifreiðum
svo langt sem komist verður upp
undir heiðina.
12. c) Á annan dag hvítasunnu
verður farið í Krísuvík. Gangandi
frá Kaldárseli til Grindavíkur.
16. júní. 13) Fjallabaksvegur.
Reykjavík — Vík — Kirkjubæj-
arklaustur — Hlíð — Kýlingar —
Landmannahellir. (6 daga ferð).
14) Sama dag, 16. júní, verður
ferð farin til Gullfoss — Geysis,
um Skálholt, kerið og Pjaxa.
22. júní. 15) Laugard. 22. júní:
í Hítardal. Með skipi um kveldið
í Borgarnes, þaðan áfram að
Staðarhrauni og Hítardal.
16) Sunnudag 23. júní: Þóris-
dalur.
29. júní. 17) Láugardag. Ferð
til Mývatns. Sumarleyfisferð. —
Tækifæri, ef nógu margir þátttak-
endur fást að halda áfram í Öskju.
Mývatnsferð 8 dagar. Öskjuferð
12—15 dagar.
18) Sunnudag. Iiekla og Hraun-
teigur.
6. júlí. 19) Laugardag, 6. júli:
Ok og Eiríksjökull.
20) Sunnudag 7. júlí: Hrafna-
björg.
13. júlí. 21) Laugardag 13. júlí;
Borgarfjörður. Borgarnes - Reyk-
holt — Húsafell — Kaldidalur —
Þingvellir.
22) Sunnudag 14. júlí: Súlur.
. 20. júlí. 23) Laugardag 20. júlí:
Fljótshlíð •— Þórsmörk — Eyja-
íjöll.
24) Stmnudag 21. júlí: Grafn-
ingshálsar — Ingólfsfjall.
27. júlí. 25) I-augardag 27. júlí:
Þingvellir - Hlöðuvellir - Geysir.
26) Sunnudag 28. júlí: Krýsi-
vik — Grindavík.
3. ágúst.. 27) Laugardag 3.
ágúst ■ Hvitárvatn.
28) Sunnudag 4. ágúst: Dvr-
fjöli, sunuan Þingvallavatns t.ð
Sogi.
10. ágúst. 29) Laugardag 10.
ágúst: Tindaf jallajökull og Fljóts-
hlíð.
30) Sunnudag 1.1. ágúst: Vífils-
fell — Jósefsdalur — Bláfjöll.
Það verður ekki annað sagt, en
að þeir sem vilja lyfta sér upp á
vegum Ferðafélagsins í sumar,
hafi úr nógu að velja. Ýmsar ferð-
irnar munu vafálaust verða mjög
Nýtt
Grænmeti
Tomatar,
Agúrkur,
Blómkál,
Rabarbari,
Gulrætur.
Lækkað verð.
CiUiaUaldL
fjölmennar. Þeir, sem ekki hafa
tnn komið í Þjórsárdal, ætti að
veita sérstaka athygli því tæki-
færi, sem nú býðst( um hvítasunn-
una), því 'að í Þjórsárdal er svo
margt að skoða, en til þess þarf
nokkurn tíma, ef vel á að vera,
en í þessari fyrirhuguðu ferð
Ferðafélagsins þangað ætti menn
að geta skoðað þar alla markverð-
ustu staðina. — Einnig er vertl aö
vekja sérstaka eftirtekt á Fjalla-
baksvegarferðinni og Mývatns-
ferðinni og seinast en ekki síst
Hítardals-ferðinni. Þar er lagt á
slóðir, sem fæstum Reykvíkingum
eru kunnar, og þangað munu fáir
skemtiferðlangar hafa lagt leið
sína. En það mun enginn sjá eftir
að vera með í þeirri för, ef veður1
verður hagstætt. Ráðgert er að
fara sjóleiðis í Borgarnes á laug-
,ardegi 22. júní. (Vonandi verð-
ur hið nýja Suðurland þá komið),
en þaðan í bifreiðum að Staðar-
hrauni. Þaðan verður farið að bæn-
um Hítardal og' alla leið inn að
vatni. Auk þess sem Hítardalur
er einn af merkustu sögustöðum
landsins er margt einkennilegft og
fagurt að sjá þar uppi i dalnum.
Margt fleira mætti henda á úr
skemtiferðaáætluninni. Til dæmis
gönguna á Ingólfsfjall. Ekki er ó-
liklegt, að margir þátttakendur
verði í þeirri för og raunar mörg'-
um öðrum.
Ferðafélag íslands vinnur hiö
þarfasta verk með staríi sínu öllu,
en ekki minst með því, að hvetja
rnenn til þess að ferðast um sitt
eigið land og kynnast því. Það
þroskar menn og fræðir, en auk
þess eru ferðirnar hin besta skemt-
un og göngur, einkum fjallgöng-
ur, hafa holl og styrkjandi áhrif
á allt sæmilega hraust fólk, og
fólki. sem vinnur kyrsetustörf all-
an ársins hring, er það beinlinis
nauðsyn, að lyfta sér upp á þenn-
an hátt. a.
LAWRENCE,
breski æfintýramaðwrinn,. sem ný-
lega lést. Hann gerði Bretum ó-
metanlegt gagn i heimss.tyrjöld-
inni, því að hann var afar laginn
að koma sér í mjúkinn hj<á ara-
biskum þjóðhöfðingjum og sam-
einaði þá í baráttunni gegn Tyrkj-
um. Var Lawrence þá kallaður
hinn „ókrýndi konungur Arabiu“..
Mussolini
ætlar enn að auka herafl-
ann. ítalir haTa nú yfir
miljón manna undir vopn^
um.
Rómaborg 31. maí. FB.
Samkvæmt áreiðanlegum heim-
ildum ætlar Mussolini að kveðja
aukið lið til vopna ijinan skamms.
Hafa þá ítalir yfir 1 miljón manna
MUSSOLTNI.
undir vopnum. Muss .bni éetlar sér
að sýna þjóðunum — eftir því sem
fuilyrt er frá sömu hsimildum —
að ástandið í Evrópu muni ekjci
hafa nein áhrif í þá átt ,að draga
úr þéim ráðstöfunum, sem hann er
að gera vegna Abessiniu og á-
standsins í Afríku. (United Press)
6, Raufarhöfn 8, Skálum 6, Fagra-
dal 7, Hólum i Hornaíirði 8, Fag-
urhólsmýri 9, Reykjanesvita 11 st.
Mestur hiti hér í gær 14 st„ minst-
ur 9 st. Sólskin 2,5 stundir. All-
stór lægð og nærri kyrstæö suður
Veðrið í morgun.
Reykjavík 11 st., Bolungarvík
7, Akureyri 6, Skálanesi 12, Vest-
mannaeyjum 8, Sandi 9, Kvígind-
isdal 9, Hesteyri 8, Gjögri 7,
Blönduósi 5, Siglunesi 6, Grímsey
og suðvestur af íslandi. Horfur:
Suðvesturland: Stinningskaldi á
iuðaustan. Skýjað en víöast úr-
komulaust. Faxaflói: Austan og
suðaustan gola. Skýjað en úr-
komulaust. Breiðafjörður, Vest-
firðir. Norðurland, norðaustur-
lancl, Austtirðir: Breytileg átt og
hægviðri. \ íða þoka, einkum í
nótt. Annars bjartviðri. Suðaust-
urlapd : Austan gola. Úrkomulaust
að mestu.
Hún fórst nýlega af völdum áreksturs, eins og
FLUGVELIN „MAXIM GORKp'.
hermt var 1 skeytum og brðu 48 ittenn bana. „Maxim Gorki“ var stærsta flugvél í heimi.