Vísir - 13.10.1935, Side 3
VÍSIR
t
Guírún Ölafsflóttir.
3. þessa mánaðar dó á Reyni-
stað í Skagafirði Guðrún Ölafs-
dóttir, fædd 27. febrúar 1843, á
Ánastöðum; dótlir Ólafs bónda
þar, Guðmundssonar og konu
Ólafs: Helgu Jónsdóttur, prests,
siðast á Rafnseyri, Benedikts-
sonar. Guðrún var tvígift. Fyrri
maður hennar var Sigurður
Björnsson söðlasmiður á Eyr-
arbakka, en seinni maður Jón
Símonarson trésmiður í Reykja-
vik (dó 1889). Hún var höfð-
ingleg, gáfuð og vel að sér. —
B.
þá, sem meS völdin færi á hverjum
tíma. En því hefSi þó veriö lýst
yfir fyrir kosningarnar, aö flolck-
urinn mundi leita samvinnu viS
framsóknarflokkinn og þaö væri
því hann einn, sem haldi'ö heföi
fast viö stefnu flokksins.
Jónas Guðmimdsson, fulltrúi al-
þýtSufl. í kjörbréfanefndinni, kvað
yfirlýsingu M. T. gerbreyta öllu
málinu. Úr því að hann væri enn
í bændafl., þá væri þetta ekkert
annað en heimiliserjur innan
ílokksins og kærni Alþingi ekkert
viö. Hinsvegar kvaöst hann sem
landskjörinn þm. veröa aö mót-
mæla því, aö landskjörnu þing-
mennirnir yröi geröir aö ófrjálsum
þrælum í þinginu, með því að láta
aðrar reglur gilda um flokksað-
stööu þeirra en um aðra þingmenn.
Ákvæöin um úthlutun uppbótar-
þingsætanna ættu aðeins viö aö
nýafstöðnum kosningum, en síðan
yröu landskjömir þm. aö vera
jafn frjálsir gagnvart flokkum sin-
um og aðrir þm.
Hannes Jónsson kvaðst ekki
skilja þá staðhæfingu M. T. að
hann hefði slitið samstarfi viö
bændafl. og væri þó enn í'honum.
Hefði hann þá slitið samstarfi við
sjálfan sig? Þetta væri ómögu-
legt, nema með því aö ganga úr
flokknum. En M. T. mundi vera
farinn að sjá það, að réttur hans
til þingsetu bygðist á því, að hann
væri í flokknum og því héldi hann
nú dauöaháldi í það.
Magnús Guðmundsson svaraði
Jónasi Guðmundssyni og sagöi, aö
það væri tilgangslaust að vera að
þrátta um það, hvort lögin væri
eins og æskilegt væri eða ekki.
Þau væri nú þannig, að samkvæmt
þeim yrði aðstaða þm. mismun-
andi. Það væri tvær tegundir þing-
manna. Þetta væri augljóst af 133.
gr. kosningalaganna. Það væri vit-
leysa, að kosningalögin bryti í bág
viö stjórnarskrána, því að stj.skr.
mælti svo fyrir, að reglur um
kosningar, afstöðu og rétt þing-
manna yrði settar með kosninga-
lögum. Landskjörnir þingmenn
þyrftu ekki að vera neinir þrælar,
því að þejm væri frjálst aö segja
sig úr flokki, en þeir j'rðu þá að
taka afleiðingunum og leggja nið-
ur þingmensku. En sú þriðja teg-
und þingmanna, sem flokkslausir
uppbótarþingmenn yrðu, væri ekki
til samkvæmt kosningalögum og
stj.skr.
Ólafur Thors sagði aö ef ekki
væri heimild í lögum til þess að
víkja af þingi uppbótarþingmanni
sent hefði brugðist flolcki sínum,
þá væri það af því einu að svo
hefir verið litið á, að slíkt gæti
ekki komið fyrir, af því að það
hefði verið talið sjálfsagt, að ef
uppbótarþm. yfirgæfi flokk sinn,
þá rnundi hann um leið leggja nið-
ur þingmensku. í fornrómverskum
lögum hefði heldur ekki verið
ákveðin nein refsing fyrir föður-
rnorð, af því að slíkur glæpur hefði
verið talinn óhugsandi. Kvaðst
hann svo bera fram breytingartil-
lögu við dagskrártillögu meirihl.
þannig, að á eftir orðunum „taka
ekki kæruna til greina“, kæmi
Aðaltundup
Koattspyrnntél. Vaiar
verður haldinn i húsi K. F. U. M. miðvikudag, 16. þ. m., kl.
8 eftir hádegi.
Stjórnin.
STÆRST —
BÓNUSHÆST —
TRYGGINGAHÆST
Viö gerum
alla ánægða.
£r 8ú rétta —
„enda þótt Alþingi telji, að þing-
maðurinn ætti að sjá sóma sinn í
því að leggja niður þingmensku.“
Magnús Jónsson sagði meðal
annars, að uppbótarþingmenn væri
þingmenn flokkanna á sama hátt
og aðrir þm. væri þm. kjördæm-
anna. Það væri lögákveðið, hve
inarga þm. hvert kjördæmi skyldi
hafa, og ef þingrn. kjördæmis
félli frá væri skylt að láta kjósa
í hans stað þegar. — Það væri
lika lögákveðið, hve marga upp-
bótarþingmenn flokkarnir skyldu
fá, þó að það væri ekki ákveðið í
eitt skifti fyrir öll, eins og þing-
menn kjördæmanna. En þeir ættu
að vera eins margir og hlutfalls-
tölurnar sýndu, og ef einhver
þeirra félli frá, þá ætti þegar i
stað að koma maður í hans stað,
varamaðurinn, og eins ætti það að
vera með hvaða hætti sem flokkur
misti þingmann. Það væri því aug-
ljóst, að bæta ætti bændaflokkin-
ttm það upp, að hann hefir mist
einn uppbótarþingmann sinn.
Auk þeirra, sem hér haía verið
taldir, töluðu þeir Jón Baldvins-
son og Hermann Jónasson, én að
lokum varö að fresta umræðunni
og ákveðin framhaldsumræða á
mánudag.
I O.O.F. 3 = 10710148 =
Doktorspróf.
1 gær fór fram, í lestrarsal
Landsbókasafnsins, doktorspróf
Árna Árnasonar, béraðslæknis í
Ólafsvík. Hófst athöfnin kl.
IV2 og stóð í þrjár klukkustund-
ir. Andmælendur af liálfu
læknadeildar háskólans voru
þeir próf. Niels Dungal og próf.
Guðm. Ilannesson. — Höfðu
þeir silt hvað út á verk höfund-
arins að setja, en fóru lofsam-
legum orðum um dugnað lians
og elju. — Hefir dr. Árni unnið
að vcrki sínu í tómstundum og
við óhæg skilyrði og ber það
vitni um lofsverðan áhuga.
Aflasölur.
Otur seldi 772 vættir af ísfiski
í Grimsby í fyrradag fyrir 883
stpd. og Arinbjörn hersir 1202
vættir i Aberdeen nýlega fyrir
1350 stpd.
65 ára
er í dag Jóhanna Guðmundsdótt-
ir, Traðarkotssundi 3.
70 ára
er í dag ekkjan Kristín Einars-
dóttir, Austurgötu 8, Hafnarfirði.
Leikhúsið.
„Æfintýrið" verður leikið í
allra síðasta sinn í kveld.
Næturlæknir
er í nótt Halldór Stefánsson,
Lækjargötu 4. Sími 2234. Nætur-
vörður í Laugavegs apóteki og
lyfjabúðinni Iðunni.
ísland í erlendum blöðum.
í Völkischer Beobachter 19.
sept. birtist löng grein eftir Alex-
ander Funkenberg: Sommerreise
auf Island. — Cornwall, Ontario,
hefir birt ritstjórnargrein í dag-
blaði (nafn ókunnugt) urn land-
nám íslendinga í Vesturheimi og
orðstír þann, sgm Islendingar hafa
getið sér vestra. Greinin nefnist
„Icelanders good settlers". (FB).
Taflfélag Reykjavíkur
hefir hafið vetrarstarfsemi sína.
Kappskákir byrja í öllum flokk-
um þann 17. þ. m. Félagið hefir
aðsetur sitt i Oddfellowhúsinu
uppi, á mánud., þriðjud., fimtud.
og föstud. kl. 8/—\2/2 e. h. og
á sunnud. kl. i/2—6 e. h.
Til Hallgrímskirkju í Saurbæ.
Afhent af frú Lilju Kristjáns-
dóttur: Áheit frá ónefndri konu í
Hafnarfirði kr. 2,00. Áheit frá K.
B. 5.00. Bestu þakkir.
Ásm. Gestsson.
Áheit á Strandarkirkju,
afhent Vísi: 5 kr. frá A. G., 5
kr. frá Guðrúnu, 50 kr. írá H. M.,
7 kr. frá konu i Hafnarfirði, 3
kr. frá F. B., 2 kr. gamalt áheit
frá K. J., 3 kr. frá M. B., 26 kr.
frá ónefndri konu i Keflavík, 2 kr.
frá ónefndum, 5 kr. frá „39“.
Áheit
á Hallgrímskirkju í Saurbæ, af-
hent Vísi. 1 kr. frá N. N.
Bókasafn „Anglia“
i lireska konúslatinu er nú opið
á mánudögum og miðvikudögum
kl. 9—10 e. h. Margar nýjar bækur
eru komnar. og allir enskulesandi
menn eru velkomnir.
Þurkaðir ávextir.
Á öndverðu þessu ári flutti
heildverslun hér í bænum inn
nokkur hundruö kassa af þurkuð-
urn ávöxtum, aðallega sveskjum;
voru ávextirnir californiskir aö
uppruna en voru fluttir hingað frá
Spáni og hafði kaupandi aðeins
. leyfi til innflutnings þaðan.
Nú er það svo, að upprunaskír-
teinis er krafist með hverri send-
ingu, hverrar tegundar sem varan
er, en í þetta skipti, mun starfs-
mönnum tollstjóra hér hafa fund-
ist upprunaskírteinið svo vafasamt
að jieir stöðvuðu sendinguna, sem
legið hefir síðan í vörugeymslu-
húsi Eitnskipafélags íslands, og
hefir staðið í stappi milli innflytj-
anda og gjaldeyrisnefndar um
sendingu þessa.
En nú hefir heyrst, að gjaldeyr-
isnefndin hafi veitt leyfi fyrir
sendingunni og ef satt er, þá hefir
gjaldeyrisnefndin verðlaunað vel,
ef um tilraun h’efir verið aö ræða
til sviksamlegs innflutnings, og er
hérmeð skorað á formann nefndar-
innar að upplýsa hið sanna í þessu
máli. Innflytjandi.
Farsóttir og manndauði
í Reykjavík vikuna 15.—21.
sept. (í svigum tölur næstu viku
á undan): Hálsbólga 42 (53).
Kvefsótt 35 (31). Barnaveiki 1
(1). Iðrakvef 16 (18). Mislingar
o (1). Kveflungnabólga 2 (o).
Taksótt 1 (o). Skarlatssótt 1 (0).
Mænusótt 9 (4). Hlaupabóla 1 (o).
Mannslát 9 (7). — Landlæknis-
skrifstofan. (FB).
Úrvalsliðið og Valur.
Það liafði verið ráðgert, að
Knattspyrnufélágið Valur og
úrvalsliðið, sem fór lil Þýska-
lands, hefðu kappleik sín á
milli, en úr því verður nú ekk-
ert að sinni, af ]iví að tveir
menn úr úrvalsliðinu (K. R.)
geta ekki tekið þált 1 leiknum.
Skákfélagið Fjölnir
hefir einnig aðsetur sitt í Odd-
fellowhúsinu, á mánudags-, þriðju-
dags- og föstudagskveldum.
Áheit
á Barnaheimilið Vorblómið
(Happakrossinn), afhent Vísi, 20
kr. frá J. E.
„Örlög á sjúkrastofu K“.
heitir kvikmynd, sem gerð er
samkvæmt víðkunnri sögu eftir
A. J. Cronin, en hún var birt í
„Hjemmet", sem margir hér lesa.
Kvikmynd þessi hefir vakið mikla
athygli erlendis og verður hún
. sýnd í Nýja Bíó í kveld í fyrsta
sinn.
Betanía.
Samkoma í kveld kl. 8/2. Allir
velkomnir.
Hjónaefni.
í gær birtu trúlofun sína
ungfrú Guðrún Scheving frá
Vestmannaeyjum og Karl O.
J. Bjömsson, bakari.
Heimatrúboð leikmanna
Flverfisgötu 50. Samkomur í
dag: Bænasamkoma kl. 10 f. h.
Almenn samkoma kl. 8 e. h. — í
Hafnarfirði, Linnetsstíg 2. Sam-
koma kl. 4 e. h. Allir velkomnir.
Hlutaveltu
heldur st. Vikingur í Templara-
húsinu i dag. Þar verður margt
gagnlegra muna á boðstólum. Hús-
ið verður opnað kl. 4 e. h.
Útvarpið í dag.
10,40 Veðurfregnir..11,00 Messa
í dómkirkjunni (síra Bjarni Jóns-
son). 12,00 Hádegisútvarp. 15,00
Tónleikar frá Hótel ísland. 18,30
Barnatími: a) Fuglabjarg í Fær-
eyjum (Aðalsteinn Sigmundsson
kennari) : b) Lætt lög; c) Sagan
um fólkið í Svartagili (ólafur
Jóh. Sigurðsson). 19,10 Veður-
fregnir. 19,20 Hljqmplötur: Sígild
skemtilög. 19,45 Fréttir. 20,15 Er-
indi: Jörundur hundadagakönung-
ur, I (Jóhannes skáld úr Kötlurn).
20,40 Hljómplötur: Tónverk frá
17. og 18. öld. 21,05 Upplestur: Úr
Eyrbyggju og Gisla sögu Súrsson-
ar( Helgi Hjörvar). 21,30 Hljóm-
plötur: Bruckner-tónleikar. 21,50
Danslög til kl. 24.
Reknetabátar
bætt komnir.
Reknetahátar, sem veiðar
stunda á Faxaflóa, fóru flestir
eða allir á veiðar í fyrradag,
enda voru veðurhorfur taldar
góðar, en veður versnaði skyndi-
lega og í fyrrakveld seint var
komið brim og stormur á vest-
an. Mistu ýnisir bátanna mikið
af veiðarfærum, en að svo
stöddu verður eigi sagt hversu
miklu tjóniðnemur. Slysavarna-
félagið sendi skeyti til skipa
viðvíkjandi fjórum skipum,
sem ekki voru komin fram ár-
degis í gær. Voru það þessi
skip: „Snarfari“ og „Bragi“ úr
IíeflaVík, „Ægir“ úr Stykkis-
hólmi og „Herjólfur“. Þegar
Visir átti tal við Slysavárnafé-
lagið siðdegis í gær voru öll
skip, sem félaginu hafði verið
lilkynt um, að ekki væri komin
fram, búin að ná höfn.
Bálfarafélag íslands 1934
heitir dálítill ritlingur, sem Bál-
farafélag Islands hefir gefið út ný-
lega. Er í honum skýrt frá til-
drögunum til stofnunar félagsins
og stofnfundi. Ennfremur eru
þarna birt lög félagsins, eins og
þáu voru sámþykt á stofnfundi 6.
febrúar 1934, og listi yfir þá, sem
innritaðir voru í félagið á fundin-
um. Ennfremur er skýrt frá fyrsta
aðalfundi félagsins, er haldinn var
26. júní s. 1., störfum stjórnarinn-
ar 0. s.. frv. Enn er þetta efni ritl-
ingsins: Rekstursreikningur. Bál-
faramál erlendis. Horfur. Seinasti
kaflinn — um horfurnar — er tek-
inn hér upp í heilu lagi:
„Það sést á þessu stutta yfirliti
um bálfaramál í nágrannalöndun-
um, að þessi hreyfing á sér vöxt
°g viðgang. Nýjar bálstofur eru
reistar, og víðast hvar aukast bál-
farir móts við jarðarfarir. Sum
bálfarafélögin ytra eru búin að
eiga 50 ára afmæli sitt, svo ekki
verður talið að rasað sé fyrir ráð
fram, þó íslendingar taki upp
þenna skynsamlega útfararsið,
sem hefir reynst einfaldur og
ódýr. Bálfarafélag íslands sækir
nú fast að fá ókeypis lóð á hent-
ugurn stað undir bálstofu í höfuð-
staðnum. En vér þykjumst vissir
um, að bálstofur muni komast upp
með tímanum víðar hér á landi“.
iBálfarafél. íslands tekst vænt-
anlega innan skamms að koma því
til leiðar, að bálstofa komist upp
Best að anglysa I Tfsi.
í Reykjavík. Ætti allir þeir, sem
áhuga hafa fyrir því máli, að
stuðla að því, með því að ganga
í félagið.
Hitt og þetta*
Flughöfnin í Croydon
á Englandi átli 16. afmælisdag
sinn þ. 25. ágúst siðastliðinn.
Þann dag árið 1919 lagði fyrsta
farþegaflugvél af stað þaðan
áleiðis til Parísarborgar. 1 flug-
vélinni var áð elns einn mótor,
360 heslafla og flugvélin var
yfir 4 klukkustundir á leiðinni.
Farþegarnir voru að eins tveir.
Framfarirnar á flugvélasviðinu
undanfarin 16 ár eru undra-
verðar, eins og m. a. má marka
af þvi, að þ. 25. ágúst í sumar
lögðu nálægt því 200 flugvélar
af stað frá Croydon. Þó var ekki
um neina flugsýningu að ræða
eða neitt óvanalegt. Þennan dag
fóru álíka margar flugvélar frá
Croydon og aðra daga í sumar.
Mestar eru framfarirnar — að
þvi er aukningu skipulagsbund-
inna flugferöa snertir — sein-
ustu árin. Breskar flugvélar eru
nú i reglubundnum flugferðum
á 40 flugleiðum (air routes), en
fyrir þremur árum á að eins 6.
Flugvélanotkun eykst stöðugt
og flugferðirnar verða álmenn-
ari, en i öllum flugvélaverk-
smiðjum landsins er unnið dag
og nótt. Á venjulegum flugleið-
um fljúga flugvélar nú yfir 100
miljónir mílna árlega og mikill
liluti þessara flugvéla eru bresk-
ar. Póstflutningar í breskum
flugvélum jukust um 70% árið
sem leið, miðað við þyngd.
Ferðamannastraumurinn
til Bretlands
er stöðugt að aukast, þótt Bret-
land sé ekki vanalega talið með
ferðamannalöndunum. En á
undanförnum árum liefir mikið
verið gert til þess að liæna er-
lenda ferðamenn til landsins.
Talið er, að árið 1935 niuni
fleiri ferðamenn koma til Bret-
lands en á nokkuru ári öðru frá
1931, sem var Jágmarksár í
þessum efnum. 1 júlimánuði s. 1.
komu 61.699 ferðamenn til
Bretlands, þar af 7.337 í við-
skiftaerindum. Þar með voru
ekki taldir ferðamenn frá
Frakklandi og Belgiu, sem ferð-
ast án vegabréfa, og koma að
cins til stuttrar dvalar, aðallega
um helgar. Tekjur af ferða-
mönnum á Bretlandi árið sem
leið voru taldar nema yfir 25
miljónum stpd. Til samanburð-
ar má geta þess, að kolaút-
flutningur Breta það ár nam
31.854.000 stpd.
Baráttan gegn glæpamönnunum í
Bandaríkjunum.
Ístjórnartíð Roosevelts forseta
hefir veriö unniö ósleitilega aö því
aö klekkja á starfsemi bófafélaga
víösvegar um Bandaríkin, og hefir
lögregla hinna einstöku ríkja meö
aöstoö sambandslögreglunnar orö-
iö mikiö ágengt i seinni tíð. í sum-
ar hefir amerísku lögreglunni tek-
ist að uppræta starfsemi tveggja
alræmdra bófaflokka, sem einkum
„störfuöu“ í miðvesturnkjunum
svokölluöu, og náö höfðu á sitt
vald i ránsferðum’um þremur milj-
ónum dollara á fveimur árum.
Bófaflokkar þessir voru O’Malley-
bófaflokkurinn, svo nefndur eftir
hinum írska íoringja sínum,
O’Malley, og „Six Daring Bandits,.
Inc.“, en svo nefndist hinn. Allir
félagar í þessunf tvejmur flokkum
hafa veriö handteknir og ýmsir
auka-starfsmenn þeirra. Taliö er,
aö lögreglunni hafi örðiö svo vel
ágengt sem raun varö á í sumar,
meö aö klófesta bóía þessa, sökum
þess, aö hún lét ekkert uppskátt
um fyrirætlanir sínar og vann að
því í kyrþei, aö leita uppi bóf-
ana. Blöðunum voru engar upplýs-
ingar látnar í té, eins og oft hefir
verið, og kom það sér illa fyrir
bófana. Lögreglan vann að undir-
búningi aö því, aö handtaka þá
í rúmt ár, áður en hún lét til
skarar skríða, því að hún hirti
ekki um aö handtaka einstaka
menn úr flokkinum. O’Malley var
áöur félagi glæpamannsins Alvin
Karpis, en nafn hans er sem stend-
ur efst á lista glæpamanna Banda-
rikjanna, sem lögreglan er aö leita
uppi, til þess aö koma lögum yfir
þá.