Vísir - 17.03.1936, Page 3
VlSIR
á metunum, eins og komiö hef-
ir fram í ræðum leiðtoga þjóð-
ernisjafnaðarmanna, m. a.
Hitlers sjiálfs. Og í þriðju grein
stefnuskrár flokksins er þess
krafist, að þýska ríkið verði
eklcj afskift um nýlendur.
Þýskaland krefst nýlendna
vegna hraefnaskorts heima fyr-
ir, og það krefst nýlendna fyrir
þá þýska menn og konur, sem
ekki komast fyrir heima sakir
þrengsla og landleysis.
Hindenburg, fyrv. forseti,
komst þannig að orði: „Meðan
engar eru nýlendur, er engin
vissa fyrir því, að ávalt fáist
naegileg hráefni. Án hráefna
getur enginn iðnaður dafnað,
án iðnaðar fæst ekki næg at-
viana, og þessvegna verðum
vér Þjóðverjar að eiga nýlend-
ur“. Dr. Schacht ríkishanka-
stjóri hefir tekið í sama streng-
inn, o,g enskir stjórnmálamenn
hafa orðið að kannast við rétt-
mæli þessara orða hins látna
forseta. — Er það ljóst af því,
að áhrifamiklir stjórnmála-
menn Breta hafa stungið upp á
því, að láta alla fá aðgang að
hnáefnalöndunum, til að lijálpa
ríkjum eins og Þýskalandi,
Ítalíu og Japan, sexn eiga við
hráefnaskort að búa. ,
En þeirri lausn málanna
liafna Þjóðverjar og segja, að
þetta sé í raun og veru engin
lausn, því að þá yrði þeir að
greiða andvirði hráefnanna í
erlendum gjaldeyri, en það geti
þeir ekki. Og jafnvel þótt örð-
ugleikar utanrikisverslunarinn-
ar minkuðu, yrði hráefna-
greiðslurnar drápsklyfjar á iðn-
aðinum. Og þeir vilja ekki fall-
ast á að leyfa Þjóðverjum að
setjast að i þeim nýlendum,
sem eru undir stjórn annara
þjóða, því að um leið hætta
þeir að vei’ða þegnar hins þýska
ríkis.
Þá yrði' það ekki lítil viður-
kenning á jafnrétti Þjóðverja,
ef þeir fengi nýlendurnar aftur.
Þjóðverjar beita svipuðum rök-
um i nýlendukröfum sínum og
i vigbúnaðarmálunum. Þeir
segja bandamenn hafi þver-
brotið öll loforð á þeim grund-
velli, sem lagður var, er Þýska-
land hét því að afvopnast.
Þýskaland hafi uppfylt þær
kröfur, sein til þess voru gerð-
ar, en bandamenn ekki. Þýska-
land muni því verða fjand-
mönnuin sínum að auðfenginni
bráð, ef haldið yrði áfram þann-
ig, að þeir stæði framvegis
vopnlausir fyrir albrynjuðum
óvinum, er aulc þess réði yfir
Öllum nýlendum.
Þýskaland hóf seint að leita
sér nýlendna, og þeir mishrestir,
sem þar komu fram, hafa jafn-
aH komið i ljós hjá öðrum byrj-
ö'nduin á því sviði. Þeiin stað-
hæfjngum, að Þjóðverjar væri
ohaafir og óverðugir til að
stjórha nýlendmn, er kollvarp-
að nieð þeirri staðreynd, að i
ófriðarbyrjun var breska
stjórnin að semja um að leggja
ýmis landflæmi undir yfirráð
Þjóðverja. En vegna þess að
Þjóðverjar biðu ósigur í lieims-
styrjöldinni, eru þeir ekki leng-
Ur taldir meðal framfaraþjóða
°S menningarþjóða!
Þjóðverjar sögðu sig úr
Þjóðabandalaginu 21. okt. 1935
°g s>ðan liafa þeir selt nýlendu-
hröfur sínar mjög skýrt fram.
Þeir vilja ekki aðeins, að ný-
didurnar vcrði settar undir
v°rnd þeirra, heldur óska þeir
^tir þeim til fullrar eignar.
‘ íl ma réttilega benda,
s, Þýskaland mundi ekki liafa
l^t meiri sanngirni, ef það
staðið sem sigurvegari
u. j • Jafnréttiskrafa jieirra i
eádumálum mundi og meira
■ , hti nú um lieim allan, ef kyn-
^ttastríðið og Gyðingalögin
liefði ekki orðið þeim til álits-
hnekkis. Þá er og það, að skír-
skotun þýsku stjórnarinnar til
siðgaeðisliugsjóna þjóðanna,
kemur nokkuð spænskt fyrir, er
litið er til ýmislegs þess, sem
nýlega er um garð gengið.
En þrátt fyrir þetta mega
menn ekki skjóta skolleyrunum
við kröfum Þjóðverja um ný-
lendur eða gleyma afleiðingun-
um, ef kröfunum verður hafn-
að. Þjóðverjar vænta þess nú af
Englandi, liinu mikla nýlendu-
veldi, að það komi vel fram i
þessu efni. Allir Þjóðverjar,
liverrar skoðunar sem þeir eru
að öðru leyti munu fagna því,
ef England lætur að óskum hins
þýska ríkis. Það yrði hverjum
þýskum borgara hvatning og
styrkur til dáða.
Fyr eða síðar mun þessari
réttmætu kröfu Þjóðverja verða
sint, annaðhvort vegna þess, að
réttmæti hennar lilýtur fulla
viðurkenningu eða af öðrum
orsökum.
Fái Þjóðverjar aftur nýlend-
ur sínar, má það vel verða til
þess, að leysa ýmis önnur al-
heimsvandamál. Á þeirri á-
kvörðun getur oltið, hvort
Þjóðabandalagið heldur uppi
sóma sínum og verður að ó-
metanlegu gagni eða lognast út
af. — En allir munu óska þess,
að friður megi ríkja með mönn-
um og þjóðum, því að ella er
voði fyrir dyrum.
(Þýlt úr amerísku blaði, lítils-
háttar stytt).
H. P.
Atvinnuleysið í
Reykjavík.
Skráning atvinnulausra
manna hér í Reykjavík fór
fram 3.—5. febrúar s. 1. og
komu þá til skráningar 690
manns, að því er frá er skýrt í
Hagtíðindum, febrúarhlaðinu.
„Þar af höfðu 94 vinnu, þegar
skráning fór fram, en höfðu
verið vinnulausir lengri eða
slcemri tíma á undanförnum 3
mánuðum. — 596 voru hins veg-
ar atvinnulausir þegar skrán-
ing fór fram, og er það hér um
hil sama tala eins og um sama
leyli í fyrra“.
Eftir atvinnustétt skiftust at-
vinnuleysingjar þeir, sem skráð-
ir voru, sem hér segir: Verka-
menn (eyrarvinna o. þ. h.) voru
630, en þar af höfðu 83 vinnu
skráningardagana. Sjómenn, 47
að tölu, voru taldir vinnulausir,
en 8 þeirra höfðu þó vinnu, er
skráð var. —-13 iðnlærðir menn
töldust atvinnulausir, en 3
þeirra voru í vinnu skráningar-
dagana. t
Af þessum 690 mönnum, sem
skráðir voru alls, töldust 615 i
verklýðs- eða iðnstéttarfélög-
um. Af þeim höfðu 88 vinnu
skráningardagana.
Meðal skráðra atvinnuleys-
ingja voru 18 konur, en 4 þeirra
höfðu vinnu, þegar skráning
fór fram. — ,
Ókvæntir voru alls 247 menn,
en 426 kvæntir. — 17 eru taldir
„áður giflir“.
Ómagafjöldi hinna atvinnu-
Iausu manna var alls 1062 og
koma þá 2.4 á livern ómaga-
mann að meðaltali. — Sumir
atvinnuleysingjanna voru ein-
hleypir og ómagalausir.
„Atvinnudagar allra þessara
manna næstu 3 mánuði á undan
skráningunni voru taldir sam-
tals 16.193 eða 23.5 á mann“ að
meðaltali. ,
„72 menn liafa verið taldir
með engan atvinnudag næstu 3
mánuði á undan talningunni“.
Gjaldþrot árið 1935.
„Hagtíðindi“ skýra frá því,
að árið sem leið hafi gjaldþrot
hér á landi orðið 29. — Er það
nokkuru meira en næsta ár á
undan, en þá voru gjaldþrotin
26. —
Árin 1908—1911 urðu gjald-
þrotin að meðaltali árlega 28.5,
1912—1920 voru þau 5.9 að
meðaltali, árin 1921—1925 20.6,
árin 1926—1930 20.0 og 1931—
1935 hefir meðaltalið verið 30.8.
— Árin 1931, 1932 og 1933 urðu
gjaldþrotin: 26.29 og 24. —
Gjaldþrotin 1935 skiftast
þannig: Reykjavík 14, aðrir
kaupstaðir 7, verslunarstaðir 3
og sveitir 5. (
Meðal þeirra, sem gjaldþrota
urðu 1935, voru 4 félög, tvö sem
ráku útgerð, eitt iðnað og eitt
verslun.
, . t-*- »■ - v -'ffv'
JLeflckvöld -
Menta-":i
skólans.
Á mánudaginn var höfðu
nemendur Mentaskólans í
Reykjavík frumsýningu á „Rak-
aranum í Sevilla“ eftir Beau-
marchais. Er það gamanleikur
frá síðari hluta 18. aldar og var
fyrst sýndur í París árið 1775.
Leikritið fjallar um ást og af-
brýðissemi og ýmsar glellur, en
annars verður efni þess ekki
rakið nákvæmlega liér, heldur
nægir að segja, að það er fjör-
ugt og fult af gáska, svo að
maður getur ekki hláturs bund-
ist.
Leikendur eru allir úr skól-
anum, og hafa ekki nema tveir
þeirra komið á leiksvið áður,
þeir Ævar R. Kvaran og Sigurð-
ur Ólafsson, sem einnig léku í
skólaleiknum í fyrra. Ævar
leikur elskliugann, tiginn Spán-
verja, og er i þvi gerfi mjög
elskulegur og aðlaðandi, enda
finst Rosine (Guðrúnu Hav-
stein) það, en hún er ung hefð-
arstúlka, sem e'r liöfuðsetin. af
gömlum fjárhaldsmanni, Bart-
holo lækni (Sig. Ólafssyni) sem
vill eiga hana. En með hjálp
rakarans (Gunnars Stefánsson-
sonar), sem er mesti bragða-
refur, lekst greifanum (Ævari)
að ná í hana, og alt endar í gleði
og ánægju, jafnvel fyrir læknin-
um, sem fær að halda fé því,
sem hann hefir dregið sér.
Leikendur leika yfirleitt allir
eins vel, og við er hægt að bú-
ast. Ævar er, eins og áður er
sagt, mjög elskulegur aðalsmað-’
ur með laglega söngrödd, og
Guðrún jafn-elskuleg ung aðals-
mær, en rödd hennar og fram-
hurður, sem að vísu er skýr og
heyrist vel, er ef til vill full-til-
gerðarlegl stundum. Sigurður
Ólafsson undirstrikar kannske
full-mikið sérkenni Iæknisins,
en er annars mjög skemlilegur
leikari. Gunnar Stefánsson er
alveg málulega skiálkslegur í
gerfi rakarans, fjörugur og
glettinn. Jón Árnason (Don Ba-
zile organisti) er ekta aurasál,
en þó að gerfi hans sé lilægilegt,
keniur ekki nægilega fram í
því slægð lians og undirferli, en
það er ekki Jóni að kcnna; hann
gerir eins mikið úr því, og hægt
er. Þór Guðjónsson og Helgi H.
Bergs (þjónar lijá Don Bartho-
lo) eru nokkuð ýktir og aflvára-
legir, en varla mikið um skör
fram. —
Gylfi Þ. Gislason liafði samið
söngvana( nema tvo, sem eru
þýddir) og lögin, og er hvort-
tveggja gott; einkum eru lögin
]iýð og skemtileg. Gylfi er sonur
Misiisgarnir.
Eiít tilfelli í gær og annað
í morgun.
Eitt mislingatilfelli kom fyrir
hér í bænum í gær. Var það bif-
reiðarstjóri hjá Sig. Þ. Skjald-
herg kaupmanni, Laugaveg 49,
sem veiktist, og var hann flutt-
ur í sóttvarnarliúsið. Eigi er
kunnugt, að maður þessi hafi
haft neitt samhand við mann
þann frá Bíldudal, sem veiktist
af mislingum liér i vetur, eins
og áður hefir verið getið.
Annað mislingatilfelli kom
fyrir í morgun hér i bænum.
Sagði héraðslæknir blaðinu, að
lieldur eigi væri kunnugt, að
þessi sjúklingur hefði haft
nokkurt samband við manninn
frá Bíldudal.
Þrír mislingasjúklingar frá
Sandgerði voru fluttir til bæj-
arins í Sóttvarnarhúsið í gær og
aðrir þrír væntanlegir þaðan í
dag.
Veðrið í morgun:
í Reykjavik —0, Bolungarvík
—4, Akureyri 1, Skálanesi 2,
Vestmannaeyjum 1, Sandi —2,
Kvígindisdal —4, Hesteyri —6,
Gjögri —3, Blönduósi —2,
Siglunesi —3, Grimsey —1,
Raufarliöfn —1, Skálum 0,
Fagradal 1, Papey 3, Hólum í
Hornafirði 2, Fagurliólsmýri 1,
Reykjanesi —1. Mestur hiti hér
i gær 6 stig, mest frost 1 stig.
Úrkoma 1,2 mm. Sólskin 0,4 st.
Yfirlit: Lægð við norðurströnd
íslands á liægri lireyfingu aust-
ur eftir. Horfur: Suðvestur-
land, Faxaflói: Vestan- og norð-
vestanátt, stundum allhvass.
Dálilill éljagangur. Breiðaf|örð-
ur: Stinningskaldi á vestán i
dag, en gengur í norður eða
norðausturátt i kveld. Éljagang-
ur. Vestfirðir: Allhvass norð-
austan. Hríðarveður. Norður-
land: Vestan og norðvestan
kaldi. Éljagangur í útsveitum.
Norðausturland, Austfirðir,
suðausturland: Vestankaldi.
Viðast úrkomulaust.
Gerðardómurinn.
Gerðardómurinn út af Sogs-
verkfallinu kemur saman kl. 6
e. h. í dag. Verður málaflutn-
ingi væntanlega lokið í kveld og
málið lagl í dóm.
Þegar gerðardómurinn kom
saman i gær voru lagðar fram
kröfur verklýðsfélaganna. —
Krefjast þau þess, að gerðar-
dómurinn vísi málinu frá,
með því að eigi sé um brot að
ræða á samningum, að firmað
Höjgaard & Scliultz verði dæmt
til að greiða allan kostnað gerð-
ardómsins, að firmað Höjgaard
& Schultz verði dæmt til að
greiða 10.000 kr. sekt i verlc-
fallssjóð Dagsbrúnar fyrir að
vekja óþarfa þrælu.
Skipafregnir.
Gullfoss var á Þjngeyri í
morgun. Goðafoss fór héðan í
gær áleiðis vestur og norður.
Væntanlegur til ísafjarðar kl.
Þorst. Gislasonar skálds og er
nemandi í 6. bekk.
Bjarni Guðmundsson hafði
þýtt leikinn fjörlega og annast
leikstjórn.
Næst verður leikið (fyrir al-
menning) annað kvöld, og mun
epgan iðra þess, að fara að sjá
þenna bráð-fjöruga Ieik.
Jakob Jóh. Smári.
3 Leggiö í bleyti í
= og hreinþvoiö
i
þá verður þvott-
urinn blæfagur.
iiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiminminmmiiinmiiiiiiiiiiiiiiiiimnmi
Fermingar-
kjólaefni.
Barnasokkar.
Kápur og Kjólahnappar,
fjölhreytt úrval
¥ersl. Frón,
Njálsgötu 1.
A besta stad
neðarlega við Laugaveg, er
m jög gott verslunarpláss til
leigu. (Búð, ásamt rúm-
góðu bakherbergi), einnig
hentugt fyrir iðnrekstur. —
Leigan er mjög lág.
Lysthafendur sendi nöfn
sín í lokuðu umslagi,
merkt: „1936“ á afgr. Visis.
A L C O
stálullin er það besta til að
hreinsa og færna með alum-
inium.
Birgðir fyrirliggjandi.
Heiídverslun
Garðars Gfslasouar.
norðlenskt, í 1/4, 1/2 og
1/1 tunnum, fyrirliggjandi i
Heildverslun
Garðars Gíslasonar.
fi.s. Island
fer miðvikudaginn 18. þ.
m., kl. 6 síðd. til ísaf jarðar,
Sigluf jarðar, Akureyrar. —
Þaðan sömu leið til baka. .
Farþegar sæki farseðla í
dag.
Fylgibréf yfir vörur
komi í dag.
Sklpaafgreiðsla
JES ZÍMSEN.
Tryggvagötu 28. — Sími: 3025.
2 í dag. Dettifoss er í Hamborg.
Brúarfoss kom til Leith í morg-
un. Lagarfoss er væntanlegur til
Reykjavikur kl. 6—7 í dag. Sel-
foss fer áleiðis til Keflavíkur
og Gautaborgar á morgun. G.s.
ísland kom frá útlöndum í
morgun.
Mislingar á færeysku skipi.
Færeyskt seglskip, „Leuten-
ant Vedrines“ kom hingað í gær
með lík tveggja skipsmanna,
sem dáið höfðu úr mislingum.
Fjórir skipverja höfðu veikst,
en tveir náðu sér. Skipið fór frá
Færeyjum 17. febr. Likin verða
flutt til Færeyja til greftrunar.
Áhöfn skipsins verður einangr-
uð fvrst um sinn. Heilbrigðis-
stjórnin liefir ákveðið, að lækn-
isskoðun skuli fram fara á öll-
um skipum, sem frá Færeyjum
koma uns öðru visi verður á-
kveðið.
Flokka(glíma Ármanns,
innanfélags, var lialdin í í-
þróttahúsinu s. 1. sunnudag. Úr-
slit urðu þessi: í fyrsta þyngdar-
flokki (yfir 70 kg.) voru 7
keppendur. 1. kappglímuverð-
laun ldaut Skúli Þorleifsson, 2.
Gunnar Salomonsson og 3. Árni
Jónsson. Skúli fékk 1. fegurðar-
glímuverðlaun, 2. Árni Jónsson
og 3. Gústaf Guðjónsson. — I
öðrum þyngdarflokki (60—70
kg.) voru 9 keppendur, en tveir
hættu. Kappglíman fór þannig:
1. verðlaun fékk Ilaraldur Jóns-
son, 2. Guðmundur V. Hjálm-
Nýip
kaupendup
Vísis.
M Þeir, sem gerast áskrif-
M endur þessa dagana, fá
M blaðið ókeypis til mánaða-
S móta.
arsson og 3. Sig. Guðmundsson.
Fegurðarglímuverðlaun fengu
1. Maraldur, 2. Guðmundur og
3. lvristófer Kjostófersson. _ 1
þriðja flokki (undir 60 kg.)
voru fjórir keppendur. Kapp-
glímuverðlaun fengu: 1. Hörð-
ur Markan, 2. Kristján Guð-
mundsson og 3. Sigurjón Ilall-
björnsson, sem fékk líka 1. feg-
urðarglímuverðlaun. 2. fékk
Kristján en Hörður 3. fegurðar-
glimuverðlaun.
Föstuguðsþjónusta
í frikirkjunni annað kvöld kl.
814, sr. Árni Sigurðsson prédik-
ar.
Háskólafyrirlestur á þýsku.
Þýski sendikennarinn, dr. W.
Iwan, flytur í kvöld kl. 8,05 fyr-
irlestur í háskólanum. Efni:
„Der romantische Rhein“.