Vísir - 12.05.1936, Síða 2

Vísir - 12.05.1936, Síða 2
VÍSIR Abessinia og þjáflabandalagifl. Ráð Þjóðabandalagsins hefir nú tekið Abessiniumál- in til meðferðar, en óvíst, að ákvarðanir verði teknar að sinni. Frakkar og ákvörðun Itala viðvíkjandi Abessiniu. — Smáþjóðirnar og framtíð Þjóðabanda- lagsins. - Syrtir enn í lofti - Síidarverksmiðjnr ríklsins Stjórn þeirra vikið frá með bráðabirgðalögum.. Verður Abessiníumálinu frestað þar til seinni hluta næsta mánaðar? Osló, 11. maí. Vegna stjórnarskiftanria í Frakklandi, sem fram fara eftir næstu mánaðamót er talið ekki ólíklegt, að Þjóðabandalagið fresti að taka ákvörðun um Abessiníumálið þar til síðari hluta júnímánaðar. Fulltrúa Abessiníu liefir verið boðið að taka þátt í ráðsfundinum í dag. (NRP. — FB.). Frakkneska stjórnin vill hafa óbundnar hendur til þess að taka afstöðu til þeirrar ákvörð- unar ítala, að gera Abessiníu að hjálendu. Osló, 11. maí. Frakkneska rikistjórnin hélt fund í gær, sem stóð yfir í þrjár klukkustundir samfleytt. Á fundinum var tekin ákvörðun um að tilkynna ítölsku rikis- stjórninni, að Frakkland áskilji sér fullan rétt í öllu, þegar að því komi, að ríkisstjórnin taki London í morgun. Frá Madrid er símað, að at- höfnin í þjóðþinginu, er Manuel Azana vann forsetaeið sinn, hafi verið hin, hátíðlegasía. Vann liann eið að því, að liann í ríkisforsetaembætti sinu skyldi i öllu fura samkvæmt ákvæðum stjórnarskrárinnar og laga, sem ekki bryti í hág við ákvæði London í morgun. Herflutningar frá Egiptalandi til Palestina eru byrjaðir sökum þess, að Bretar óttast að til frekari óeirða kunni að koma þar, en að undanförnu hefir ver- ið óeirðasamt þar í landi, vegna ósamkomulags milli Móham- eðstrúarmanna og Gyðinga og lenti í blóðugum skærum. Við umræðurnar um utanríkismálin í neðri málstofunni í gær var vikið að þessu máli og var því Refsiaðgerðunum haldið áfram. ítalir hafa í hótunum við Þjóða- bandalagið. Oslo í dag. Ráð Þj óðabandalagsins liefir ákveðið að fresta Abessiniumál- inu til auka-fundar 15. júní. Fulltrúi Abessiniu tók þátt í ^ ráðsfundinum í gær og mót- mælti Aloisi barón því. Refsi- aðgerðunum gegn Ítalíu verður haldið áfram fyrst um sinn og hafa ítölsku blöðin í hótunum við Þjóðabandalagið og segja, afstöðu til þeirrar ákvörðunar Itala, að lýsa yfir innlimun Abessiníu í ítalska ríkið. Smáþjóðirnar í Norður-Evrópu og Þjóðabandalagið. Osló, 11. maí. Koht, utanríkismálaráðherra Noregs, sem dvelst í Genf um þessar mundir, flutti ræðu í gær, sem var útvarpað. Hann sagði, að á fundi hinna hlut- lausu ríkja, sem haldinn var i Genf á laugardag, hefði náðst samkomulag um það, að smá- ríkin skyldi vera áfram í Þjóða- bandalaginu, og aö nkin í Norð- ur-Evrópu ætti framvegis að lialda því sæti, sem þau nú hefði í ráði handalagsins. Fulltrúi Danmerkur gengur úr ráðinu í haust er kosið verður í það á ný, og er þess þá vænst, sagði Koht, að fulltrúi frá Sviþjóð verði valinn í hans stað og kem- ur hann þá fram fyrir hönd allra Norður-Evrópuríkjanna. (NRP. — FB.). hennar. Að athöfninrii í þjóðþinginu lokinni baðst Barcias forsætis- ráðherra lausnar fyrir sig og ráðuneyti sitt. Azana hóf í morgun viðræð- ur við stjórnmálaleiðlogana um myndun nýrrar stjórnar. — (United Press. — FB.). lýst yfir fyrir hönd ríkisstjórn- arinnar, að vegna ástandsins í Palestina liefði verið ákveðið að flytja þrjár herdeildir frá E- giptalandi til Palestina. í her- deildum þessum eru eingöngu hermenn frá Bretlandseyjum. — í umr’æðunum um utanríkis- málin var og rætt um þá á- kvörðun ítölsku stjórnarinnar, að gera Abessiniu að ítalskri hjálendu. (United Press—FB). að ítalir muni ekki ganga til samninga fyrr en refsiaðgerð- irnar séu afnumdar. (NRP— FB). Blóðugt verkfall í New York. New York í dag. FB. Sjómannaverkfall er hafið í New Yorlc og er þátttaka í þvi ekki almenn enn. Til blóðugra óeirða hefir komið milli sjó- manna og lögreglunnar. Iiefir hún handtekið um 250 sjómenn, sem þátttakendur eru í verkfall- inu. (NRP). Hætt er við að mörgum manninum verði það vonbrigði, hversu stjórn og þing hefir snú- ist við liöfuð-málefnum þjóðfé- lagsins á þessum óvenjulegu örðugleikatímum. Annað atr- iði, sem og mun valda sárum vonbrigðum, er það, að ekki skuli hafa verið við það staðið, er heitið var á þingi í fyrra, að lélt skyldi af lollum þeirn og sköttum, sem þá voru á lagðir til viðbótar því sem fyrir var. Því var þá heitið, að þessar nýju álögur skyldi að eins heimtaðar eitt ár, þ. e. árið sem nú er að liða. — Þessu var heitið statt og stöðugt, svo sem menn muna. Stjórnarandstæðingar gerðu sér að vísu litlar eða engar vonir um, að við loforðin yrði staðið. Og þeir létu þá skoðun sína í ljós, bæði á þingi og í blöðum. Við það æstust stjórnarliðar og sögðu sem svo, að þelta væri á- stæðulaus ótti. Það mundi sann- ast á sínum tíma, að stjórnin stæði við orð sín. Það er nú komið á daginn, að loforð liennar í ]>essuni efnum hafa verið fals eitt. Stjórnar- flokkarnir liafa samþykt, að slaka í engu til. Hinir óbærilegu tollar og skattar verða heimt- aðir — eða reynt að heimta þá — alt árið 1937 og vafalaust miklu lengur. Stjórnin og flokkar hennar hafa Iítið til þess gert, að létta atvinnuvegunum vonlitinn róð- ur. Hilt mun heldur, að þar liafi ríkt hið mesta kæru- leysi. Bændur þykjast lcenna allmikils kulda í sinn garð úr stjórnarherbúðunum, enda vart við öðru að búast, er höfuð- óvinir þeirra, socialistar, eru öllu ráðandi i stjórn og á þingi. Framsóknar-væflurnar eru bara ómerkilegar og þægar undir- tyllur, eins og menn vita. — Bændum er Ijóst, að afurða- sölu-löggjöfin liefir ekki orðið þeim að neinu gagni, heldur þvert á móti. Það er ekki sakir þess, að löggjöf, sem fer í svip- aða átt, gæti ekki orðið til bóta, ef vel væri á lialdið. En bæði kjötsölulög og mjólkursölulög hafa verið framkvæmd með hagsmnni annara en framleið- anda sjálfra fyrir augum. Soci- alistar liafa þar tögl og haldir og þessvegna hefir bændum ekki notast að afurðasölulögun- um á nokkurn hátt. Fram- kvæmd þessarar löggjafar hefir verið svik við bændur. Fisícsölumálin liafa stjórnar- flokkarnir sölsað undir sig og liafa þeir þó eklci hið allra minsta vit á neinu því sem að útgerð Iýtur. Olíusali einn hefir verið gerður að æðsta ráði þar í sveit! Hann er socialisti eða kommúnisti — eflir atvikum — og ærið traust-lítill að vonuni. — Hann er gerður að formanni fiskimálanefndar, vafalaust samkvæmt eigin kröí'u. Þvi starfi fylgja allmikil laun. Það er nú talið, að 17 — seytján— menn stjórni fisksölu- málunum. Nægja mundi að hafa menn þessa helmingi færri að minsta kosti. Við það mundi sparast í launum 50—60 þúsund krónur. En enginn veit hvert tjón sumir þessara manna kunna að gera. Það getur orðið ómetanlegt. Vitanlega hefði átt að fela stjórn „Sölusam- bands íslenskra fiskframleið- enda“ allar framkvæmdir í fisksölumálunum, því að þar er reynslan og þekkingin. Og sennilega hefði orðið affara- sælla og öruggara fyrir þjóð- ina, að setja formann fiskimála- nefndar og félaga lians hina rauðu í nefndinni á eftirlaun, heldur en að láta þá vera að vasast í málum, sem þeir hafa ekkert vit á að stjórna. — Sölusambandið (S. í. F.) lief- ir reynst vel og unnið ágætt starf. Og því hefði áreiðanlega verið best treystandi til þess, að stjórna fisksölumálunum af skynscmd og hagsýni. — En við það var ekki komandi. Rauða liðið, bitlinga-gráðugt og fávíst um öll útgerðarmál, ruddist inn í stjórn fiskimiál- anna og gleypir þar stórfé i laun fyrir störf, sem það er ekki fært um að leysa sóma- samlega af hendi. Það er hinn mesti voði, eins og allir vita, að fá þekkingar- lausum of urkappsmönnum mik- ilvöld i liendur,því að’þeir verða æfinlega til tjóns. Og þvi hættu- legra er þetta þess meira sem við liggur, að vel sé unnið. Fiskaflinn liefir verið mjög lítill það sem af er þessu ári. Vertíðin hefir brugðist. Afli sá, sem á land hefir komið síðan um áramót, er liklega helmingi minni en á sama tíma i fyrra. Það er því bersýnilegt, að höfuð- útflutningsvara landsmanna muni verða mjög lítil í ár, sam- anborið við það, sem verið hefir að undanförnu. Erlendur gjald- eyrir, sem til fellur á árinu, verður þvi sennilega með lang- minsta móti. Það mun því reyn- ast svo, að örðugt verði að standa í skilum við erlcnda lán- ardrotna. — Skuldir landsins erlendis — opinberar skuldir, þ. e. skuldir ríkissjóðs og bæjarfélaga, og skuldir einstakra manna og verslunarfyrirtækja — eru nú sagðar nema fast að eða jafnvel fullum 100 — eitt hundrað — miljónum króna. Það er ótrú- legt, að þessi litla og fátæka þjóð skuli vera orðin svona stórskuldug, en satt er það samt, því miður. Það mun því láta nærri að buið sé að safna erlendis skuldum sem nema ná- lega 1000 — eitt þúsund — kr. á hvert einasta mannsbarn á landinu! Þetta er svo ægilegt, að engu tali tekur. Og hvernig á örsnauð þjóð, að standa strauin af því- líkum ósköpum og greiða að fullu — með vöxtum og vaxta- vöxtum! En með þennan voða fyrir augum ærslast stjórnarflokk- arnir áfram á eyðslubrautinni, líta hvorki til hægri né vinstri og hegða sér eins og vitfirring- ar! Það getur hugsasl, að þjóðin sé ekki búin að átta sig á því enn þá til fullrar hlítar, livernig með hana hefir verið farið, síð- an er sjálfstæðismenn létu af völdum sumarið 1927. Iiún hefir að vísu nú þegar orðið fyrir miklum vonbrigð- um, en hún mun ckki — enn sem komið er — liafa gert sér ljósan til fulls hinn ægilega voða, sem fyrir dyrum stendur. Svo er að sjá, sem nú sé farið að rofa til í nágrannalöndunum óg víðar um heim. Kreppu- vandræðunum er heldur tekið að linna, þó að hægt fari. — En hér syrtir alt af meira og meira. — Glímufélagið Ármann heldur skemlifund annað kvöld i Iðnó (uppi). Er þetta síðasti fundurinn á starfsárinu, og verður þar til skemtunar söngur, upplestur o. fl. Fundur- inn hefst kl. 9. — Síðdegis í gær var Yísi skýrt frá því, samkvæmt áreiðanleg- um heimildum, að ríkisstjórn- in væri búin að síma út til kon- ungsstaðfestingar bráðabirgða- lög um breyting á stjórn Síld- arverksmiðja ríkisins. Var þelta gert i gær, sam- kvæmt því, sem heimildarmað- ur blaðsins sagði. Þessi ráðstöf- un stjórnarinnar, rétt eftir að þingið er farið heim, er ótvíræð sönnun þess, að liún liefir ekki treyst sér lil þess að koma gegn- um þingið breytingum þeim, sem nú liafa verið gerðar. Er hér um gerræði að ræða, sem ekki mun dæmi til í þing- sögu íslendinga. Framsóknar- menn vilja fá aukin völd í verk- smiðjunum. Fulltrúar socialista í stjórn verksmiðjanna lögð- ust á móti fyrirætlunum fram- sóknarmanna. Framsóknar- menn voru æfir yfir brottvikn- ingu Jóns Gunnarssonar verkfr. og ráðningu Gísla Halldórsson- ar sem framkvstj. Nú hafa framsóknarmenn haft sitt fram, með því að lióta socialistum þingrofi og nýjum kosningum. Fulltrúum socialista i verk- smiðjustj. var skipað að segja af sér og svo voru bráðabirgða- lögin gefin út. Úrsögn Jóns Sigurðssonar og Páls Þorbjarn- arsonar var notuð sem átylla. í verksmiðjustjórninni voru auk Jóns og Páls, Sveinn Bene- diktsson og Jón Þórðarson, kjörnir af þingflokki sjálfstæð- ismanna, og Þormóður Eyjólfs- son, sldpaður af atvinnumála- ráðherra. —a— Bíldudal, 10. maí. — FÚ. Ær gengur af með dilkum sínum. Ær ein tvilembd, sem Guð- mundur Ólafsson í Bildudal átti, gekk af í vetur með báðum lömbunum. — Var hún um tíma í klettahlíð þeirri er Skor- ur nefnast, og treystist þá eng- inn að ná henni sakir svella og annars farartálma, og var hún i fjallinu í allan vetur. Þann 27. apríl var hún sótt og er ærin nú borin og tvílembd á ný. Allar kindurar voru vel feitar eftir ástæðum. 11. mai. FÚ. Mikil Selveiði við Oddbjarnar- sker og Selsker á Breiðafirði. Bændur úr Flatey og Hergils- ey veiddu um sumarmálin 58 seli, á tveim skerjum í Breiða- firði, þar af 34 síðasta vetrar- dag á Oddbjarnarskeri og 24 fyrsta sumardag á Selskeri í Flateyjarlöndum. Nokkru aður veiddu bændur úr sömu eyjum 22 seli í einni véiðiför, sem fyr er gctið. AIls eru þetta 80 selir og muna menn ekki slíka veiði um þetta leyti árs. Selir þessir voru „lagðir inn“ eins og Breið- firðingar orða það. — Símahleranirnar. Fundur var lialdinn í Stúd- entafélagi Reykjavíkur í gær- kveldi til þess að ræða um liler- anamálið og lióf Bjarni próf. Benediktsson umræður. Enginn maður mælti lileranastarfsem- inni bót, nema ef telja skyldi einn Tímamann, sem virtist liafa einhvern hug á því, að verja hið þokkalega athæfi. Ákveðið er, að Finnur Jóns- son og Þorsleinn M. Jónssou verði skipaðir i stjórn verk- smiðjanna, en óráðið um þriðja. mann. Þetla tiltæki stjórnarinnar og floklca liennar var með öllu á- stæðulaust og mun eitt hið svi- virðilegasta, sem dæmi finnast. tik -----o---- I fyrra var verð á síldarlýsf miklu lægra heldur en það er nú. Síldarverksm. ríkisins seldu í fyrra mikið af sínu síldarlýsi fyrirfram fyrir £ 10—0—0 pr* smál. Núverandi verksmiðjustj. er búin að selja mikinn hluta lýsisins af þessa árs framleiðslu íyrir £ 17—10—0 pr. smál. 1 fyrra 'fekst um kr. 9.00 verð- mæti upp úr einu síldarmáli, og ákvað þáverandi verksmiðju- stjóm að greiða kr. 4.00—4.50 •fyrir málið, en með því verði sem verksmiðjurnar hafa nú selt fyrirfram mjöl og lýsi, nemur verðmæti afurðanna úr einu rnáli um kr. 11.80. Þess vegna hefir það verið talið sjálf- sagt, að verð á hrásíldinni myndi hækka sem svarar hækk- uninni á afurðaverði verksmiðj- anna, sem er um kr. 2.80 á mál- ið, og nú verði greitt kr. 6.00— 7.00 fyrir málið. Hinni nýju stjórn er ætlað að hætta að kaupa síldina föstu fyrirfram ákveðnu verði, eins og hingað til hefir verið gert, en taka við síldinni til vinslu og greiða út á hana hluta af áætl- unarverði, eins og síldareinka- salan gerði forðum. Fyrstl kn attspyrnnka p|i Iei kur ársins fer fram í lcveld á I- þróttavellinum. Eru það hin góðkunnu félög, K. R. og Valur, sem leiða saman liesta sína í fyrsta sinn á sumrinu og fer kappleikurinn fram í tilefni af 25 ára afmæli Vals, sem var í gær, 11. maí. — Hvorugt liðið mun vera fullþjáll'að énnþá, en nokkuð mun þó mega ráða af úrslitum þessa leiks, livernig knattspyrnumótin rnuni fara í sumar. Eins og kunnugt er, hafa Valur og K. R. verið sterkustu félögin á mörgum undanförn- um knattspyrnumótum, og hef- ir baráttan ætið verið hörðust á íslandsmótinu, sem er aðal- knaltspyrnumót ársins. Er oft- ast mjótt á mununum milli þeirra, og munar sjaldan nema einu marki. Hafa þau skift Iiróðurlega á milli sin vinning- unum á síðustu sex íslandsmót- um, eða síðan Valur vann það í fyrsta sinni (1930) og að því meðtöldu. Sem stendur eru Vals í nenn íslandsmeis tarar. Þeir unnu titilinn i fyrra og sigruðu þá K. R. sem lcunnugt er, með 1—0, eftir f jörugan leik. í fyrrahaust reyndu þau aftur með sér og vann Valur enn, nú með 2—1. K. R.-ingar eru vaslc- ir menn og kappsamir og munu því liafa fullan liug á að sigra í kveld og jafna metin, en fslands- meistararnir mun lieldur elcki láta sitt eftir liggja. Þeir munu vafalaust gera sitt besta til að þessi afmælishátíð mætti verða sem stórfenglegust, og væri nýr sigur yfir K. R. alveg tilvalin af- mælisgjöf. Kappleilcurinn hefst kl. 8 í Stj órnarskifti á Spáni. Azana vann embættiseið sinn í gær. — Barcias- stjórnin hefir beðist lausnar og á Azana nú viðræð- ur við leiðtoga flokkanna um myndun nýrrar stjórn- ar.- Bretar senda heriið til Palestioa. Þrjár herdeildir hafa verið sendar til Palestina frá Egiptalandi, vegna ósamkomulags milli Gyðinga og Araba. 1 herdeildum þessum eru eingöngu menn frá Bretlandseyjum. Utan aí iandi

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.