Vísir - 20.06.1936, Blaðsíða 3
VÍSIR
Ritfrep.
Hannes Finnsson biskup í
Skálholti. Eftir Jón Helga-
son, dr. theol, biskup. —
Reykjavík. — ísafoldar-
prentsmiðja h. f. — 1936.
Dr. tlieol. Jón biskup Ilelga-
son er einn af mikilvirkustu
fræðimönnum þjóðar vorrar.
Þrátt fyrir miklar embættisann-
ir liefir liann samið livert stór-
verkið á fætur öðru. í fyrra
kom út eftir hann mikil hók,
Meistari Hálfdan. Æfi- og aldar-
farslýsing frá 18. öld. Áður voru
komin út eftir hann fjölda
mörg stór rit sögulegs efnis,
svo sem Almenn kristnisaga í
fjórum bindum og Kristnisaga
um þarft verk og þakkarvert
með því að kynna þeim, hetur
en áður liefir verið gert, þenn-
an íiiætismann, og hins vegar
vonin um, að það geti orðið til
þess, að hann hlyti í vitund al-
þjóðar þann sess, sem honum
her. Svo litil skil hafa minningu
ijans verið gerð liingað til, að
síst er furða, þótt þeirri kyn-
slóð, sem nú er i uppvexti, ger-
ist óljós þakkarskuldin, sem
þjóð vor er í við þennan son
sinn. En því betur, sem eg, af
lieimildum þeim, sem fyrir
liendi eru varðandi Hannes
Finnsson, hefi kynst honum
sem einkamanni, lærdóms-
manni og emhættismanni, þvi
betur liefi eg sannfærst um, að
hér væri um mannkostamann
að ræða, sem að atgerfi andans
og glæsimensku víðfaðma lær-
lan helor sannað
að SUNLIGHT-SÁPAN
er best.
Það sýnir árangurinn.
Þetta er Sunlight-gos
og eins er með þvottinn.
Notið eintjönp SBNLIGHT- SÁPUNA.
Kirkjnfandnrinn
fyrir Sinnlenáingd'
fjörðung
liefst á morgun, sunnudag, kk
2 e. h., með guðsþjónustu í
dómkirkjunni. Síra Erlendur
Þórðarson prédikar, en sira
Jón Þorvarðsson verður fyrir
altari. Kl. 4.30 verður fuudur-
inn settur í liúsi K.F.U.M. Rætt
verður um prestakallaskipuu
og söfnuði. Framsöguerindi
flytur Gísli Sveinsson sýslum.
KI. 8.30: Erindi i dómkirkjunni
um leikmannastarf erlendis.
Síra Jón Þorvarðsson flytur
erindið. Á mánudag árdegis:
ld. 9 f. h.: Morgunbænir í liúsi
K.F.U.M. Kl. 9.30 Guðbrandur
Jónssón hóndi á Spákelsstöð-
um og Ólafur Björnsson kirkju
ráðsmaður flytja framsöguer-
indi um ferðalög til safnaða og
samtök í söfnuðum. Umræður..
Landsfafldirinn
Miðstjórn Sjálfstæðisflokksins.
Á landsfundinum voru kosn-
ir 4 menn í miðstjórn flokks-
ins, þeir Ólafur Thors, Magnús
Guðmundsson (háðir endur-
kosnir), Árni Jónsson frá Múla
og Bjarni Benediktsson pró-
fessor. Af hálfu ungra sjálf-
stæðismanna var kosinn Krist-
ján Guðlaugsson. Fyrir voru i
miðstjórninni Jakob Möller,
Jón Ólafsson, Magnús Jónsson,
Sigurður Kristjánsson og Val-
týr Stefánsson.
Sambandsþingi ungxa sjálf-
stæðismanna
Hannes Finnsson, biskup.
Finti konnngsglímafl á tslandi.
Konungsglíman á Þingvöllum 1930.
íslands í tveimur hindum. Flest
rita biskupsins eru á íslensku,
en mörg á dönsku og fleiri mál-
um.
Fvrir hið mikla rit um Hann-
es biskup Finnsson sæmdi Há-
skólaráðið biskup vorn verð-
launum af „Héiðurslaunasjóði
Ben. S. Þórarinssonar“,_en ísa-
foldarprentsmiðja hefir gefið
ritið út af rausn og er þess vert
að geta, að þessi stofnun hefir
á síðari árum gefið út allmarg-
ar fræðibækur og vandað hið
hesta til.
Hannes Finnsson hiskup var
síðasti hiskup, er sat í Skálholti.
Hann var sonur Finns hiskups
Jónssonar, hins merkasta
manns. Varð Hannes aðstoðar-
biskup í Skálliolti hjá föður sín-
um, uns hann tók við biskups-
embættinu að fullu.
Biskupinn hefir í formálan-
um gert glögga grein fyrir því
hvers vegna hann tók sér fyrir
hcndur, að semja þetta verlc um
Hannes biskup. Þar segir svo:
„Þótt 18. öldin j'rði alls yfir
eitt hið erfiðasta tímabil í sögu
þjóðar vorrar, átti það alt að
einu, svo sem alkunna er, fyrir
Iienni að liggja, einkum síðari
hluta liennar, að verða hinn eft-
irtektarverðasti vakningar- og
viðreisnartími íslensks menn-
ingar- og vísindalífs. Á þessu
tímaskeiði rís upp með þjóð
vorri fríð fylking afhurða-
manna með logandi áhuga á
þjóðlegri vakningu. Einn þess-
ara vakningarmanna var ágæt-
ismaður sá, sem þetta rit er
helgað, Hannes Finnsson, sið-
astur hiskup í Skálholti.
Þegar eg liefi ráðist í, að
semja æfisögu Hannesar Finns-
sonar, þá er það sérstaklega
tvent, sem hefir hvatt mig til
þess: annars vegar sannfæring-
in um, að eg ynni löndum mín-
dóms stæði jafnvel ofar öllum
þessum vormönnum íslands á
siðari liluta 18. aldar, sem að
maldegleikum hafa rómaðir
\erið sem forgöngumenn í við-
reisnarbaráttu þjóðar vorrar“.
Efni bókarinnar er skift í eft-
irfarandi lcafla, auk formála:
I. Framætt Ilannesar hiskups.
II. Uppvaxtar- og skólaár. III.
Hafnardvölin fyrri (1755—67).
IV. Þriggja. ára dvöl heima
(1767—70). V. Ilafnardvölin
siðari (1770—77). VI. Samband
stóls og skóla í Skálliolti um
og eflir miðja 18. öld. VII. Að-
stoðarbiskup (1777—85). VIII.
Sjálfstæður hiskup (1785—96).
IX. Bókmentaleg afrek. X. Æfi-
lok og eftirmæli. Ágrip af niðja-
tali Finns biskups Jónssonar.
Viðaukar og heimildir. Nafna-
skrá.
Bókin er 272 hls. í stóru hroti
og prýdd fjölda mynda, sem
auka mjög gildi hókarinnar.
Eru þær allar prentaðar á
myndapappír. M. a. eru lieil-
siðumyndir af þeim feðgum
Finni og Hannesi, Ludvig Har-
hoe Sjálandsbiskupi, ' myndir
frá Skálholti og Reykjavílc o.
s. frv.
Þessa merka rits verður
væntanlega nánara getið hér í
hlaðinu. Línur þessar eru rit-
aðar til þess að vekja athygli
manna á því við útkomu þess.
Er það mikil og fögur gjöf, sem
Jón biskup Helgason liér réttir
þjóð sinni, og ánægjulegt, að
það skyldi geta orðið á þeim
tímamótum, sem nú eru i lífi
lians, en biskup vor á sem
Icunnugt er, sjötugsafmæli á
morgun, og er þess minst á öðr-
um stað hér í blaðinu.
A. Th.
Á morgun kl. 5 hefst íslands-
gliman á íþróttavellinum, að
viðstöddum konungi og drotn-
ingu og fylgdarliði þeirra.
Keppendur verða 8, og eru
þeir: Sigurður Thorarensen,
Ágúst Kristjánsson, Skúli Þor-
leifsson, Gústaf A. Guðjónsson,
Árni Jónsson, Jóliannes Bjarna
son, Einar Ólafsson og Guðni
Kristjánsson. Allir keppend-
urnir eru úr Glímufélaginu Ár-
mann, og eru allir kunnir reyk-
vískum áhorfendum — enda
eru þeir glímumenn góðir.
Áður en glíman liefst, sýnir
úrvals flokkur kvenna, úr
glímufél. Ármann, fimleika,
undir stjórn Jóns Þorsteinsson-
ar. En að glímunni lokinni
sýnir liinn vinsæli úrvalsflokk-
ur karla úr Ármanni listir sín-
ar, og síðan verður kepni i
reipdrætti milli Keflvíkinga og
Reykvíkinga, þeirra, sem gerðu
jafntefli um daginn.
Kl. 4 leikur Lúðrasveit
Reykjavíkur á Austurvelli, en
kl. 4.30 verður gengið suður á
íþróttavöll, og kl. 5 mætir
Hans hátign konungurinn og
fvlgdarlið hans á vellinum,
svo í þetta skifti verður Is-
landsglíman líka konungs-
glíma. Þetta er 5. opinhera kon-
ungsglíman hér á landi. 1874
þegar Kristján IX. kom liingað
sem fyrsti konungur, er hér sté
fæti á land, var hann viðstadd-
ur glímur, bæði á Reykj avílcur-
mótinu í Öskjuhlíð og siðar á
Þingvöllum. 1907 var Friðrik
VIII. liér viðstaddur glímur —
en nú er þetta í þriðja sinn,
sem Kristján konungur X. sér
unga og kappsama íslendinga
þreyla liina þjóðlegu iþrótt,
glimuna, og væntum vér, að
það megi vel talcast og verða
háðum til gleði.
Fólk ætti að liafa það hug-
fast, að mikil aðsókn verður og
er þvi liyggilegt að vera kom-
inn út á íþróttavöllinn fyrir
kl. 5.
lauk á Þingvöllum í gær. Kos-
ið var í stjórn og hlutu kosn-
ingu: Kristján Guðlaugsson
(form.), Bjarni Benediktsson,
Jóhann Möller, Jóhann Haf-
stein, Björn Snæhjörnsson. Til
vara: Stefán Jónssön, Sigurður
Jóhannsson, Jónas Jensson,
Jón Árnason, Finnur Egilsson.
Messur á morgun.
I dómkirkjunni: Kl. 10, síra
Bjarni Jónsson. Kl. 2, síra Er-
lendur Þórðarson.
I fríkirkjunni: KI. 5, síra Árni
Sigurðsson.
í Landakotskirkju: Hámessa
kl. 10, kveldguðsþjónusta með
prédikun kl. 6.
í spítalakirkjunni í Hafnar-
fii’ði: Hámessa kl. 9, kveldguðs-
þjónusta með prédikun kl. 6.,
75 ára afmæli.
I dag er 75 ára Ingibjörg
Bjarnadóttir frá Nýjabæ, Þing-
eyri. Er nú til heimilis hjá dótt-
ur sinni og tengdasyni, Skóla-
vörðustíg 16.
Samband
ungra sjálfstæðismanna
og Iieimdallur halda þing-
mönnum sambandsþings ungra
sjálfstæðismanna kaffisamsæti
i Oddfellowhúsinu í kvöld kl.
9. Öllum sjálfstæðismönnum er
heimil aðganga, meðan húsrúm
leyfir.
K. R. III. flokkur
og Isfirðingar keptu á ísa-
firði í fyrradag og sigruðu Is-
firðingar með 3:1.
Frh. á 4. síðu.