Vísir - 14.10.1936, Page 2

Vísir - 14.10.1936, Page 2
. -"rSHHWP V í S IR Hjálparlið oppreistar- maona komið til Oviedo ? Allan daginn í gær var barist & götunum í Oviedo, með dýnamithandsprengjum og venjulegum handsprengjum.- London í morgun. Samkvæmt fregnum frá fréttaritara United Press I Bur- gos, aðsetri stjórnar þeirrar, sem uppreistarmenn settu á laggirnar, eru hjálparsveitir uppreistarmanna tiú í þann veginn að komast til Oviedo eða ef til vill komnar þangað. Fregnir fréttaritarans voru sendar í gærkveldi og segir hann í skeytum sínum, að þeir, er gerst ætti um þetta að vita í Burgos, hafi talið, að fyrstu sveitirnar hafi haldið inn í borg- ina laust fyrir hádegi í gær (þriðjudag). Engin opinber staðfesting hefir fengist á þess- ari fregn, en hinsvegar er áreið- anlegt, að barist var heiftarlega ailan daginn í gær á götunum í Oviedo. Námamannaherinn frá Asturia hélt áfram sókn sinni og höfðu dýnamithandsprengju- sveitirnar sig einkum í frammi eins og fyrri, en uppreistar- menn höfðu aðallega vélbyssur og venjulegar handsprengjur að vopnum. (United Press. — FB.). — Rússar og hlutleysis> samningurinn. Rússar senda nýja orðsendingu til hlutleysis- nefndarinnar og krefjast víðtækra ráðs^afana til þess að komið verði í veg fyrir vopnaflutn- inga til uppreistarmanna. London í morgun. RÚssneska ráðstjómin hefir sent nýja orðsendingu til nefnd- ar þeírrar, sem á að hafa eftir- lit með því, að hlutleysissamn- ingurinn sé haldinn. Að því er United Press hefir fregnað legg- ur rússnseska stjórnin fram á- kveðnar kröfur og tillögur um hversu komið skuli í veg fyrir, London 14. okt. FÚ. í gær urðu aðeins minniháttar viðureignir milli hersveita upp- reistarmanna og spönsku stjórnarinnar, á fimm vígstöðv- um umhverfis Madrid. Virðist það benda til þess, að hersveitir Franco séu ekki enn fullkomlega við því búnár að hefja árásina á Madrid. Flug- vélar uppreistarmanna gerðu þó aðra loflárás á járnbrautar- linuna í gegn um Aranjuez í gæsr. Bendir það til þess, að stjórnin muni enn hafa þá jám- brautarlínu á valdi sinu. , Engar samningaumleitanir um að þyrma Madrid. Bráðabirgðarstjóm uppreist- armanna ber á móti þvi, að samningar standi yfir milli upp- reistarmanna og spænsku stjórnarinnar, um að þjTina Madrid. Hún segir, að annað- hvort verði borgin að gefast upp tafarlaust, ellegar hún verði Iát- in sæta sömu kjörum og San Sebastian og Irun, og þeim mun grimmari, sem mótstaðan sé meiri. Matvælaskömtun í Madrid. í Madrid var í gær byrjað að skamta matvæli og gert ráð fyr- ir, að sama ráð verði tekið í Barcelona. Þá hefir Madrid- sijórnin einnig farið fram á það, að fólk láti af hendi dýnur og ábreiður handa hermönnun- um. Uppreistarmenn viður- kenna, að þeir hafi beðið nokk- urt manntjón í gær, við smá- þorp eitt milii Toledo og Mad- rid, er stjórnarflugvélar og stór- skotaliðssveitir gerðu árás á lið þeirra. Þá gerði stjórnarherinn einnig áliiaup á lið uppreistar- manna við San Marlin, en upp- reistarmenn segjast hafa haldið velli. J Við Estepona hafa hersveitir stjórnarinnar að samningurinn sá brotinn svo sem verið hefir. Halda Kússáf því frárft, að hvéfskoft- ar hergögn streymi óhindrað til uppreistarmanna frá þeim löndum, sem áður hafa verið sökuð um að veita þeim aðstoð a þennan hátt, þ. e. Þýskalandi, Ítalíu og Póllandi. — (United Press—FB). farið halloka fyrir uppreistar- mönnum, að sumu leyti vegna slöðugrar skothríðar af hendi stórskötaliðs uppreistarmanna, og að sumu leyli vegna þess, hve illa þær eru vopnum búnar. Er sagt, að stjórnarliðar hörfi undan í áttina til Marbella, en það er við ströndina, um miðja vegu milli Gibraltar og Malaga. Ciano fer á fund Hitlers þ. 18. okt. og æðstu menn utanríkisráðuneytisins með honum. London i morgun. Fregnir frá Rómaborg herma, að tilkynt hafi verið opinber- lega að Ciano utanríkismála- láðherra leggi af stað til Ber- línar þ. 18. október. Verða, helstu embættismenn utanríkis- málaráðuneytisins með honum i ferðinni, sem er farin til þess að ræða við Hitier. — (United Press — FB.). Spænskir fasistar reknir frá Frakklandi. Rannsóknardómarinn í franska bænum Bayonne hefir vísað úr landi 2 spænskum fas- istum, sem ákærðir eru um að hafa i Frakklandi lialdið uppi njósnarstarfsemi fyrir her- stjórn spænsku uppreistar- mannanna. London, 13. okt. — FÚ. Gullverð í Bandaríkjunum hefir verið ákveðið á $35 únzan. I Bretlandi og Frakldandi verður verð á gulli ákveðið dag frá degi, og talið, að með þvi móti verði auðveldara að hafa eftirlit með gjaldeyris- versluninni. Breski samniDgurinn. Góðar horfur um árangurinn af endurskoð- uninni.- Eins og frá liefir verið sagt í blöðunum á nú að fara. fram endurskoðun á viðskiftasamn- ingi okkar við Breta. Frum- kvæði að þeirri endurskoðun á breska stjórnin, og er samning- urinn við okkur einn af mörg- um viðskiftasamningum Breta, sem þeir vilja nú láta fara fram endurskoðun á. Jafnframt hefir breska, stjórn- in gert kost á því, að auka við hlutdéiid okkar í innflutningi til Brétlands á ísfiski og freð- kjöti á yfirstandandi ári, eins og skýrt hefir verið frá. Hafa það þótt mikil og góð tíðindi, enda talin fyrirboði þess, að hinn endurskoðaði viðskifta- samningur muni verða okkur verulegum mun hagstæðari en sá gamli. Hér við bætist svo það, að það hefir verið gert kuimugt, að Bretar (ásamt Frökkum og Bandaríkjamönnum) ætli að beita sér fyrir því, að öll inn- flutningsskömtun verði feld niður, helst í öllum löndum. En verði þeim fyrirætlunum fram- fylgt, þá er auðsætt, að það eru mestu og bestu tíðindin. Það er hinsvegar augljóst, að Bretár Pipni ekki hafa stofnað tii þessárar endurskoðunar á viðskiftasamningum sínum fyrst og fremst af umhyggju fyrir hagsmunum annara þjóða, þeirra, sem þeir hafa gert samningana við. Að sjálf- sögðu eru það þeirra eigin Iiagsmunir, sem þeir hafa fyrir augum og tilgangurinn er að efla með endurskoðun samn- inganna. Og sá er tilgangur þeirra þá vitanlega einnig með endurskoðun viðskiftasamn- ingsins við okkur. En það er lika kunnugt, að þeir telja að ýmsir annmarkar hafi verið á framkvæmd samningsins af okkar hálfu. Þá ágalla mun eiga að lagfæra með endurskoð- uninni. En að sjálfsögðu getur endurskoðunin eigi að síður orðið báðum aðilum til hags- bóta, því að hagsmunir samn- ingsaðilanna geta vel farið þannig saman. Við skuldum Bretmn nú marga tugi miljóna króna. Af skuldum þessum verðum við að greiða vexti og afborganir árlega, svo miljónum skiftir. En það er því að eins unt, að við getum með einhverjum hætti aflað þess erlenda gjald- eyris, sem til þess þarf. Hags- munir hinna bresku lánar- drotna eru í veði, ef við get- um ekki staðið slcil á þeim greiðslum, en það er hlutverk hinna bresku stjórnarvalda að sjá þeim hagsmunum borgið. Þess vegna getur það lika verið breskum hagsmunum nauðsyn, að hlutdeild okkar í. innflutn- íngnuin ‘ til Bretlands verði aukin. Og skyldi það nú ekki hafa þótt vera komið í 1 j ós,að slík nauðsyn væri nú fyrir hendi? — Það má áreiðanlega gera ráð fyrir því, að lánardrotnar okk- ar á Bretlandi séu sæmilega á verði um hagsmuni okkar að þessu leyti, og það er ekki ó- sennilegt, að þeirra áhrifa hafi gætt fult svo mikið, í sambandi við aukningu innflutningsins á freðkjöti og ísfiski, eins og á- hrifa Ifaralds Guðmundssonar sem blað hans telur að muni liafa verið öllu ráðandi um þetta. ( En hvað sem þessu liður, þá er það tvímælalaust fagnaðar- cfni fyrir okkur, að þessi inn- flutningsheimild okkar á fiski og kjöti til Bretlands hefir ver- ið aukin, þó að það dragi nokk- uð úr, hve óarðvænlegur breski ísfiskmarkaðurin er orðinn. Það miðar þó í rétta átt, og gef- ur vonir um góðan árangur af éndurskoðun viðskiftasamn- ingsins og þar af leiðandi betri afkomu í framtíðinni. Safn Árna Magn- ússonar. Fréttastofa Útvarpsins hefir 18. sept. þ. á. meðtekið svo- hljóðandi einkaskeyti frá Kaup- mannahöfn, sem birt var í dag- blaðinu Vísi 21. s. m. „Stjóm Árna-safns í Kaup- mannahöfn lauk fundi sínum í dag. Á fundi þessum var m. a. ákveðið, að safnið skyldi fram- vegis verða miðstöð vísinda- legra rannsókna á fornislensk- um fræðum, og skyldi verða gert að algerlega sjálfstæðu safni innan Háskólabókasafns- ins, jafnskjótt og læknavísinda- og niáttúruvísindadeildirnar yrðu fluttar burtu í ný húsa- Jtypni) sem reist liefðu verið handa þeim.~~Eínníg var sam- þykt að útbúa í safninu vinnu- herbergi fjTÍr erlenda vísinda- menn, svo að þeir gætu notið sín þar við störf sín. Dr. Einar Munksgaard liefir ákveðið að auka útáfu sína á ljósprentuðum ritum þannig, að bún nái einnig til íslenskra rita fram á 16. öld. Einnig hefir liann ákveðið að gefa út skrá yfir öll rit, sem talist geta til íslenskra fombók- mennla.“ Út af þessu skeyti viljum við undirritaðir fulltrúar Háskóla íslands í Áma-nefnd taka þetta fram: 1. Fundir nefndarinnar voru haldnir dagana frá 31. ágúst þ. á. til 19. sept., og var þeim því ekki lokið, þegar skeytið var sent, eins og í því segir. Skiftir þetta að vísu litlu máli, en óþarft var þó að fara rangt með það. 2. Það kom ekki einu sinni til orða, að gerð yrði samþykt um það, að Árna-safn skyldi verða miðstöð vísindalegra rannsókna á forníslenskum fræðum, enda væri slík sam- þykt auðvitað einber endileysa. Úr því, hvar vera skuli miðstöð slíkra fræða í framtíðinni, verð- ur vitanlega ekki skorið með neinum samþyklum eða yfir- lýsingum, lieldur með hinu, hvar mest og best er unnið, og hvar þeim mönnum, er við þau fræði fást, eru sköpuð best starfsskilyrði. 3. Áma-safn er og hefir alt af verið sjálfstætt safn og að- greint frá Háskólabókasafni Dana. Og hefir því aldrei komið til mála að gera nokkra sam- þykt um það atriði á fundum nefndarinnar. 4. Nefndin hefir og enga á- lyktun gert um húsakynni Árna-safns, enda ræður hún hvorki yfir húsakynnum þess né yfir fé í því skyni. Hins veg- ar var skýrt frá því á fundi nefndarinnar, að í ráði væri að auka og bæta húsakynni safns- ins og gera vinnuherbergi handa fræðimönnum — auð- vitað jafnt innlendum sem er- lendum, — er safnið nota. 5. Þá skal þess að lokum getið, að. dr. Einar Munksgaard hcfir skýrt einum okkar frá því bréflega, að það, sein sagt er í skeytinu um fyrirætlanir lians, sé ekki liaft eftir honum, og að honum hafi ekkert slíkt til hugar komið. Eru þá rakin öll þau atriði, sem í skeytinu greinir. Og má þá sjá, að fullkomlega rangt er frá skýrt í hverju einasta at- riði þess. Reykjavík, 12. okt. 1936. Árni Pálsson, Einar Arnórsson, Sigurður Nordal. Leikhúsið. " Reikningsskil; sjónleikur í 5 sýningum eftir Carl Gandrup. Þessi höf. er gamalkunnugur reykvískum leikhúsgestum, og ekki aS góðu. ÞaS munu vera eitt- hvaö um io ár síSan Leikfélagið sýndi hér leikritið „Þrír skálkar“ eftir hann, sem að veröugu þótti mjög ómerkilegur samsetningur, en fyrst og fremst mjög ógeðsleg- ur vegna klúrleika og margs kon- ar snfékkleysis. Höf., sem er ný- látinn, var fjarri því að vera í fremstu röð danskra höf., og eftir þá kynningu, sem LeikfélagiS haföi áður fengið af honum, hefði það átt að athuga þetta leikrit vendilega áður en það tók það til leiks -— sérstaklega sem fyrsta leikrit vetrarins, því þar sem ann- arsstaðar skiftir upphafið ekki lítlti. Nú er engum blöðum um það að fletta, að þessi tvö leikrit Gandrups eru ekki saman berandi að því leyti, að „Reikningsskil“ er hvorki klúrt né smekklaust, en að efni til og byggingu er það harla veikt. Þrjár sýningar leiksins eru frá- sögn löngu liðinna atvika, en i. og 5. sýning eru samstæður í beinu og óslitnu samhengi og gerast í nútímanum; 2.—4. sýning eru skýring á viðburðum hinna. Fyrir þá sem eru óva(nir síiku fýrir- komulagi verkar það sem hress- andi. nýung, en það er harla ó- frumlegt, blátt áfram margþvælt. Efni leikritsins á að vera and- látshugleiðingar gamallar konu, sem hefir verið þrígift og langar nú til þess að vita með hverjum manna sinna hún eigi að vera sam- vistum í öðru lífi. Hún unni fyrsta manninum hugástum og vill með honum vera, en hinum tveim mönnunm var hún fráhverf. Þessi spurning er ekki tiltakanlega ný, en höf. setur hana aðeins fram — svara gerir hann ekki. Þetta mál hefir hvergi verið betur flutt eða afgreitt en í Laxdælu, er Bolli Bollason spyr Guðrúnu móður sína Ósvífrsdóttur hverjum hún hefði unnað mest manna sinna, en hún haföi verið fjórgift. Guðrún svaraði: „Þeim var ek verst, er ek unna mest“. Við slíkt gat Gand- rup naumast neinu bætt. Annars er harla ólíklegt að þessi spurn- ing vakni í venjulegum heila, síst nú á dögum. Það er 0g sannast að segja, að spurning gömlu konunn- ar er ekki alvörumál hjá höf., heldur aðeins umgerð um æfisögu hennar, umgerð, sem hann heldur að áhorfendum • muni þykja ný- stárleg. Æfisaga gömlu konunnar er vel að gáð harla óprýðileg, og jafnframt óskiljanleg, og virðist eina erindi höf. upp á leiksviðið, ef nokkuð er, vera að berja þar í brestina. Fyrsti eiginmaðurinn er söngvari, hvikur listamaður, en ráðdeildarlaus, eins og sumir halda að listamenn þurfi að vera. Honum er sí-féfátt og hann er bráðuppstökkur, og í einu slíku reiöikasti verður hann rukkara að bana, er dæmdur i fangelsi fyrir og fyrirfer sér þar, en konan stendur ein uppi með barn þeirra. Nú vaknar sú spurning: Því þarf maðurinn að verða mannsbani og fyrirfara sér? Því mátti hann ekki fá að að deyja skikkanlega á sótt- arsæng? Það sem síðar gerist rétt- lætir það ekki. Hugsast gæti að hann ætti að vera skýring- á — nokkurskonar neöanmáisgrein við — lunderni sonar síns — líkt: cg Þjóstólfur við lunderni Hall- gerðar. En pilturinn verður heið- arlegur, trúaður prestur, sem reyndar ber fullkomið skjmbragð á. gilcli peninga, en tekur sig á með það áður en lýkur. Þar eru því engin tengsl, og manndrápin þar af leiðandi út í loftið. Ekkjan er nú í peningavandræðum og' geng- ur að eiga forríkan vínsata til þéss að tryggja framtið, drengs- íns. Vínsalinn ann henní, en hún ekki honum. Þetta er síst verj- andi, en mannlega skiljanlegt. Hún er öll með hugann á fyrrt thann- inum og situr að staðaldri grát- andi yfir bréfum hans þegar síð- ari maðurinn kemur, en þegar hann bér sig. upp undan þessu ger- ist hún hin örðugusta; hún hefir fullan kjark til þess að handsama fjármuni síðari mannsins, en ekki drengskap til þess áð halda sanm- inginn að sínu leyti. Manninum leiðist þófið sem eðlilegt er og tekur fram hjá henni, en þá ætlar hún af göflunum að ganga. Þetta stendur ekki vel af sér óg hefði höf. þurfti að skýra þetta misræmí, en legst það undir höfuð. Nú deyr annar maðurinn, en konan er eftir sem áður með hugann á fyrsta manninum. Hún er nú forrtk, era giftist þó þriðja manninum, mjög; samviskulausum málafiutnings- manni, sem hún frá upphaft hefír andstygð á. Nú knýr hana engin þörf og því gerir hún þá þetta? Þá hefði manni fundist eðlilegra að hún hefði gifst lækni, sein fræ æsku hafði felt hug- til hennar 0g henni hafði altaf þótt geðfeldur, og þá ris spurningin, því hún; ekki gerði það ur því giftast skyldi. Höf. finnur að hér þurfi einhverju að svara og hatm lætur frúna .segja að hún hafi gert þetta til þess að koma drengnum undir sterkan aga, því að hún þykist hafa orðið vör við ýmsa ágalla föðursins í fari hans. Barn er gott til blóra; drengurinn er ágjarn, en faðirinn var sóunarsanmr, dreng- urinn er trúrækin sál, en faðir- inn var léttúðin sjálf. Skýringifi er því röng og þarna er spurn- ingunni ósvarað. Þessi málaflutn- ingsmaður verður síðar dóms- málaráðherra; nú hefði líka verið fróðlegt að fá að vita, hvort höf. heídur að það sé beinlínis skilyrði fyrir því að verða dómsmálaráð- herra að vera bófi. Þetta er ekki lítið af spurningum sem höf. rétt- ir þarna að manni bersýnitega án þess að vita af því og með aðal- spurninguna, spurningu göml'u konunnar, er honum' ekki aívara. Leikritið er því fullkomin botn- leysa, eintómar spurningar en eng- in svör. En einn heimskingi getur svo sem kunnugt er spurt svo, að 10 vitringar geti ekki svarað, og ekki heldur leikhús fult af áhorf- endum. Þegar svona er í pottinn búið frá hendi höf er auðvitað ekki hægt að krefjast mikils af leik- endum, sem hljóta að liggja eins flatir fyrir spurningavaðlinum og aðrir, en því verður þó ekki neitað, að flestir hefðu mátt gera betur. Frú Soffía Guðlaugsdóttir leikur gömlu konuna og gerir það vel í fyrstu og fimtu sýningu, en i hinum sýningunum fer út um þúfur, þvi hún ratar ekki sálar- refilstigu gömlu konutinar, sem síst er að furða, því það er( atinað en gaman að eiga að leika lifandi ispurningarmérki. Frúin söng jafnframt lítið lag, en röddin næg- ir ekki til þess. Sigurður Magnús- son leikur prestinn son hennar og getur ekkert úr honum gert; cleyfðin er sú sama þegar hann er sem afjáðastur í peninga gönilu konunnar og þegar hann iðrast eftir ágirndina. Fyrsta eiginmann-

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.