Vísir - 21.10.1936, Side 2
VÍSIR
Stjðrnarherinn spænski
liefir byrjad gagnsókn og
tekið Illescas á ný.
Ríkisstjórnin hefir á ný hvatt borgarbúa í
Madrid til þess aðtaka þátt í vörn borgarinnar.
London, í morgun.
St jórnarherinn hefir haf-
ið gagnsókn á vígstöðvun-
' við Madrid, við Ilelscas,
og seg'ja nýjustu fregnir, að
liann hafi aftur náð borg-
inni á sitt vald.
Illescas náðu uppreistar-
menn á vald sitt alveg ný-
lega og var þessi sigur
þeirra talinn aíl-mikilvæg-
ur, vegna vegarins, sem
liggur frá Illescas, og talið
var, að uppreistannenn
mundu ná valdi á. En
stjómarsinnar hafa varist
af þrautseigju þarna og
fleiri stöðum í nánd. Þessi
sigur stjórnarhersveitanna,
að ná Illescas aftur, styrkir
aðstöðu þeirra að miklum
mun, og mun hleypa k jarki
í varnarsveitirnar á öðrum
stöðum umhverfis Madrid.
Ríkisstjórnin hefir sent
út nýtt ávai'i) til allra borg-
ara í Madrid að legg ja fram
krafta sína til varnar borg-
inni. _
(United Press. — FB.).
London 21. okt. FÚ.
Spáð hörðum vetri.
Spænska stjórnin hefir farið
fram á það við Madridbúa, að
þeir spari við sig eldsneyti. En
alt bendir til þess, að veturinn,
sem þegar er genginn í garð á
Spáni, muni verða með harðari
vetrum.
(
Uppreistarmenn neita að stjóm-
arherinn hafi tekið Illescas.
í gær gerðu stjórnarhersveit-
ir gagnárás á Illescas, en upp-
reistarmenn tilkynna í gegn um
útvarp sitt í Sevilla, að sú gagn-
árás hafi mistekist. í stjórnar-
útvarpinu er sagt, að lnargir
hafi fallið af liði uppreistar-
manna. Stjórnarherinn gerði
einnig gagnárás á Robledo, en
ekkert er sagt um árangur
bennar.
Hafa Þjódverjar og
ítalir sent uppreistar-
mönnum á Spáni
hergögn?
Spænski sendiherrann í London hefir lagt ný
gögn fyrir Plymouth lávarð, formann hlut-
leysisnefndarinnar, sem eiga að sanna, að ít-
alir og Þjóðverj^r hafi brotið hlutleysissamn-
inginn.
London, í morgun.
Að því er United Press
hefir fregnað samkvæmt á-
reiðanlegum heimildum,
hefir sendiherra spænsku
sl jórnarinnar í London lagt
fyrir formann hlutleysis-
nefndarinnar, Plymouth lá-
varð, nýjar sannanir fyrir
því, að uppreistarmenn
hafi fengið vopn og önnur
Iiergögn frá ítölum og’
Þjóðverjum, um miðbik
októbermánaðar.
(United Press. — FB.).
Aakakosntngar á Bretlandi.
íhaldsframbjóðandinn vann glæsilegan sigur.
London, í morgun.
Aukakosning hefir fram
farið í Birmingham, Er-
dingtonkjördæmi, og bar
frambjóðandi íhaldsflokks-
ins, Wright, sigur úr být-
um. Er hann einn af for-
ingjaliði flokksins. Hlaut
liann 27.088 atkvæði, en
Sex klukku»
stunda
i Ahessiiiiix*
London 21. okt. FÚ.
í frétt frá Róm er sagt frá
hinni stærstu orustu sem háð
liafi verið í Abessiníu, síðan Ad-
dis Abeba var tekin. Þessi or-
usta er nýafstaðin, og átti sér
stað í fylkinu Sidamo, en það
er í suður frá Addis Abeba, og
með frjósömustu héruðum
Abessiniu. Italskur her, sem
farið liafði suður í landið frá
Addis Abeba, mætti abessinsk-
um her, og er sagt að hann hafi
verið ágætlega skipulagður og
vel vopnum búinn. Eftir sex
ldukkustunda látlausan bardaga
tókst ítölum að vinna bug á
frambjóðandi jafnaðar-
manna, Simmons, 20.834
atvæði. Aðrir flokkar höfðu
ekki menn í kjöri. Auka-
kosningin fór fram vegna
andláts þingmanns kjör-
dæmisins, Eales að nafni,
en hann var íhaldsmaður.
(United Press. — FB.).
Abessiníumönnum, en þó aðeins
eftir að flugvélar höfðu verið
lcvaddar á vettvang, og sprengj-
um kastað yfir lið Abessiníu-
manna. Meðal þeirra, sem lágu
cftir á vígvellinum, var herfor-
ingi abessinska hersins.
Fiskmarkaðurinn í Grímsby
í dag:
Besti sólkoli, pr. box .. 70 sh.
Rauðspetta, pr. box .... , 55 —
Stór ýsa, pr. hox , 40 —
Miðlungs ýsa pr. hox ... .25 —
Stór þorskur pr. 20 stk. 58 —
Stór þorskur pr. box . .. . 15 —
Smáþorskur pr. box . .. . 14 —
(Tilk. frá Fiskimálanefnd-FB.)
ungmennafélögiii.
„Dögun í Keflavík“ heitir
grein, sem birtist í Tímadilkn-
um á sunnudaginn. Greinin er
eftir Jónas Jónsson og fjallar
um samkomuhúsbyggingu í
Keflavílc. Fer greinarhöfundur
morgum a'rðum um það, hví-
líkur ómenningarbragur liafi
verið á Keflavík frá upphafi
vega og alt til þessa tíma, t. d.
liafi þorpið til skamms tíma
engin mannvirki átt „til sam-
eiginlegra þarfa, nema dálitla
kirkju og afar illa útbúinn
barnaskóla“. Og segir hann að
það sé „leitt til þess að vita, að
ihaldið í Keflavík og húsbænd-
ur þess í Rvík hafa ekki getað
unt Keflvíkingum að reisa sig
á legg sjálfir i einu máli, hvað
þá meira“!
Það er kunnugt, að sam-
komuhús Keflvíkinga brann í
fyrra. Hús þetta var eign Ung-
mennafélagsins í Keflavík, og
hafði félagið ráðgert, að byggja
nýtt hús í þess stað. Jónas Jóns-
son hefir haldið því mjög á
lofti, að ungmennafélögin í
landinu nyti sérstakrar vernd-
ar framsóknarflokksins, og
sjálfur mun hann telja sig höf-
uð-frömuð ungmennafélags-
hreyfingarinnar liér á landi.
Hefði því mátt ætla, að ung-
mennafélagið i Keflavík hlyti
að eiga þar ,„liauk í horni“, þar
sem hann var, og vísan öflugan
stuðning, af liálfu núverandi
stjórnarvalda, til að koma hús-
byggingarfyrirællunum sínum
í framkvæmd. Hinsvegar hefir
rejmslan orðið alt önnur, því að
það virðist alveg fastráðið af
valdhöfunum, að meina ung-
mennafélaginu algerléga að
byggja nýtt samkomuhús í
Keflavík.
Ungmennafélagið hafði sótt
mn innflutningsleyfi fyrir bygg-
ingarefni í hið nýja samkomu-
hús, en því verið þverneitað um
um það af gjaldeyrisnefnd. Þáð
hafði reynt að fá keypt bygging-
arefni hjá innlendum efnissöl-
um, en þeim hafði þá verið
stranglega bannað að selja því
byggingarefni til að koma upp
húsinu. Félagið liafði þvi „öll
sund lokuð“ til þess að koma
upp nýju samkomuhúsi í Kefla-
vík að sinni, og virtist svo sem
stjórnarvöld framsóknarmanna
og socialista gæti ekki „unt
Keflvíkingumað reisasigá legg
sjálfir“ í þessu liúsbyggingar-
máli! Félagið tók það því til
hragðs, að leigja gamalt hús og
breyta því í samkomuhús til
bi'áðabirgða. En þá kemur upp
úr kafinu, að öðrum hafði verið
leyft að flytja inn byggingar-
efni til að byggja samkomuhús
í Keflavik. Segir .T. J. svo frá,
að það hafi verið „umbóta-
menn“ þorpsins, „sem nú i sum-
ar hafi lcomið sér saman um
að reisa myndarlegt samkomu-
hús fyrir hreppinn“. Þessir
„umbótamenn þorpsins“ eru
socialistar í Reykjavik/ sem
liugsa sér með þessu að ná fót-
festu fyrir flokkinn í Keflavík.
Ungmennafélagarnir eru nú
ekki lengur í tölu umbóta-
manna hjá J. J. Þá nefnir hann
„nokkura misjafna pilta“, sem
hafi byrjað á „að skinna upp á
gamlan húshjall, sem sam-
komustað fyrir sig og sína
lika!“
Það hefði nú ekki þótt lík-
legt, hérna um árið, þegar soc-
ialislar spörkuðu Jónasi úr ráð-
herrastólnum, að hann niundi
leggjast svo hundflatur fyrir
kröfum þeirra og fyrirskipun-
um, sem raun liefir orðið á í
þessu máli.
En sagan er ekki öll sögð
með þessu, því að bersýnilegt
er, að tilgangurinn með þessum
ráðstöfunum stjórnarvaldanna
er að ganga af ungmennafélagi
Keflvíkinga dauðu. Félagið hef-
ir eitt liaft leyfi til kvikmynda-
sýninga í Keflavík. Það leyfi á
nú að taka af því, og veita það
socialistum, til þess að þeir geti
staðið straum af rekstri þessa
samkomuhúss siná’ og iannari
flokksstarfsemi á kostnað alls
almenningsíKeflavík með kvik-
myndasýningum. Og J. J. fagn-
ar því, að þannig skuli vera frá
þessu gengið, að ungmennafé-
lagsstarfsemin í Keflavík geti
nú enga viðreisnarvon átt sér
framar en í staðinn hlaðið und-
ir flokksstarfsemi socialista í
þorpinu með opinberum hlunn-
indaveitingum. En öllum al-
menningi er þetta framferði
stjórnarvaldann ný sönnun
þess, að þau svífast einskis, þeg-
ar um flokksliagsmuni þeirra
er að ræða.
Og hvað líður nú lýðræðis-
liugsjónum stj'órnarflokkanna ?
Mundu þeir geta fallist á það,
að láta almenna atkvæða-
greiðslu fara fram í Keflavík
um það, hvorum skuli heldur
veita sérleyfi til kvikmynda-
sýninga og aðstöðu til sam-
komuhússbyggingar í þorpinu,
socialástum í Reykjavík eða
ungmennafélögunum í Kefla-
vík? —
Rákon Shstelig
professor frá
Bergen
er kominn hingað og flytur
hann fyrirlestra við Há-
skólann og á vegum Nor-
ræna félagsins.
Hákon Shetelig prófessor frá
Bergen var meðal farþega á
Lyru í gær. Er hann hingað
kominn til fyrirlestrahalds, á
vegum Norræna félagsins og
Háskóla íslands.
Hákon Shetelig er formaður
deildar Norræna félagsins í
Bergen og hefir hann verið for-
ínaður hennar frá því hún var
stofnuð og átti sjálfur frum-
kvæði að stofnun hennar.
„Norræna daginn“, þ. 27.
október, flytur Slietelig prófess-
or hér erindi og verður það um
menningarstefnur í Noregi á
síðari árum.
Shetelig prófessor flytur hér
og fyrirlestra á vegum Háskól-
ans um norska menningu á vik-
ingaöldinni og íslenska sagna-
ritun.
Prófessorinn dvelst hér í hálf-
an mánuð. Er Iiér um hinn
merkasta gest að ræða, sem
fengur mikill er að fá til fyrir-
lestrahalds. Ilákon Shetelig er
prófessor í fornum fræðum við
háskólann í Bergen og hefir
haldið fyrirlestra í öllum helstu
horgum álfunnar.
Ritfregn.
Bogi Ólafsson: Kenslubók í
ensku handa byrjöndum. —
Reykjavík. Bókaverslun Sig-
fúsar Eymundssonar. 1936.
Bók þessi er nýlega út kom-
in, og verður ekki betur séð,
en að liún hljóti að reynast
mikill fengur öllum þeim, sem
hana þurfa að nota, jafnt kenn-
urum sem nemöndum.
Menn liafa fundið til þess
síðustu árin, að brýn þörf væri
orðin nýrrar kenslubókar í
ensku. Geirsbólc var ágæt á
sinni tíð, en er nú orðin ófull-
nægjandi um sumt, því að alt
af eru málin að breytast, ný orð
eru búin til eða tekin í notkun,
en önnur hverfa. Framburður
er og ekki óhagganlegur. Er
mikil stund á það lögð, í hinni
nýju kenslubók, að komast
sem næst hinum réttasta fram-
burði, þeim er nú tiðkast með
meptuðum mönnum breskum.
Það er mikilsvert, að rétt sé
fram borið, en örðugt hins veg-
ar, að tákna framburðinn svo,
að ekki geti valdið ruglingi og
rnisskilningi lijá nemöndum,
sem fátt kunna til lilítar. En
svo virðist frá þessu gengið i
bók þeirri, sem hér um ræðir,
að ekki verði á betra kosið.
Það er afar-mikilsvert hverj-
um' þeim, sem erlenda tungu
vill nema, að leggja þegar í
upphafi náms fullkomna alúð
við það, að tileinka sér réttan
framhurð, þvi að „varðar mest
til allra orða — undirstaða rétt
sé fundin“. Og réttur fram-
hurður þjóðtungnanna er vissu-
lega mikilvægur þáttur undir-
stöðunnar við málanám og
málaþekkingu. Sé rangur fram-
burður numinn að upphafi
málanáms, vill liann loða við
æ síðan, trufla og spilla.
Bókin hefst á skýring hljóð-
tákna. Er sá kafli fróðlegur og
skemtilegur, og liið hesta sam-
inn. Þá tekur við málfræðin, i
mörgum köflum. Þar er vel að
verki gengið, og svo ljóst* og
skilmerkilega, að naumast
mun verða á betra lcosið. Það
er ekki smáræðis-kostur á
kenslubók, að liöf. sé svo lærð-
ur, að hann þekki viðfangsefni
sitt til fullrar hlitar, og í ann-
’an stað svo hugkvæmur og hag-
ur, að útlistanin verði ljós
þeim, sem litið vita. En þetta
tekst Boga Ólafssyni, og kem-
ur það raunar ekki að óvöru
•þeim, sem kunnugir eru gáfna-
fari hans og lærdómi. —
Kærkominn mun mörgum
verða kaflinn um „forsetning-
arnar“. IJefir margur nemand-
inn lirasað um enskar forsetn-
ingar, en nú ættí að verða greið-
færara á þeim leiðum, þvi að
vel hefir Bogi varðað þann
andlega Leggjabrjót.
Þegar málfræðinni sleppir,
liefjast „Leskaflar“. Þar er að
upphafi (á fáeinum opnum)
ritað að venjulegum hætli á
fyrri blaðsíðu, en á hinni síð-
ari er sama lesmál ritað eftir
framburði. Þykir það vel fall-
ið og mun koma í góðar þarf-
ir. — Fer naumast lijá því, að
framburður orða festist bet-
ur i minni, er svo er hagað.
Má um leskaflana segja, að
þeir sé hið besta valdir, marg-
ir fróðlegir að einhverju leyti
og sumir skemtilegir. En þá er
vel varið stund við málanám,
ef samtímis því, að læra eitt-
hvað i málinu, slæðist inn í
liugann hagnýt þekking um
annað efni eða önnur. —
Vandað orðasafn rekur lest-
ina, og er þá lokið bókinni.
Eru þar greindar merkingar
2500 orða eða rúmlega það. —
Mundi hver sá taliiin allfær í
enskri tungu eða jafnvel stór-
lærður, er þau orð öll liefði á
hraðbergi, hvenær sem til
þyrfti að taka í ræðu eða riti.
Bókin er, sem áður segir,
mikill fengur öllum þeim, sem
við enskunám fást eða ensku-
kenslu stunda. Hún er um
fimtán arkir að stærð og hið
besta til útgáfunnar vandað.
Pappír er góður og bandið
traust. — Félagsiirentsmiðjan
annaðist prentunina.
Manntalið*
Eftir ákvæðum bráðabirgða-
laga, sem voru gefin út hinn
12. þm., verður manntal tekið
hér í Reykjavík nú í þessum
mánuði, í stað þess að undan-
farin ár hefir manntalið verið
tekið siðari liluta nóvember-
mánaðar. -Er breytingin gerð
vegna þess, hve tíniinn er
naumur frá nóvemberlokum
og þar til ýmsum skrám verð-
ur að lúka, sem gerðar eru eft-
ir manntalinu.
Undanfarna daga voru
manntalsskýrslurnar bornar í
öll liús hér í bænum, og verð-
ur þeirra vitjað í dag og næstu
daga. Eru allir húsráðendur
og þó einkum liúseigendur, al-
varlega mintir á, að útfylla
manntalsskýrsluna nú þegar
og gera það rétt.
Sérstaklega er áríðandi, að
hver maður, sem á heima hér
í hænum, sé talinn á manntals-
slcýrslu, og eigi siður þó að
maður kunni að vera fjar-
staddur nú. Einnig ber að telja
með alla þá, sem dvelja hér í
bænum nú, þó að þeir eigi lög-
heimili annarsstaðar, en þess
skal þó getið í skýrslunni.
Ef vanrækt er, að skrá heim-
ilisfastan mann í manntal, má
búast við því, að hann falli af
kjörskrá og missi kosningar-
rétt sinn.
í öðrum löndum er þess
stranglega gætt, að allir flutn-
ingar fólks séu tilkyntir tafar-
laust. Og eftir því seip borgar-
búum fjölgar hér, verður æ
brýnni nauðsyn þess, að mann-
talið sé altaf rétt.
Þess vegna verður ekki leng-
ur komist hjá því, að kæra til
sekta alla þá húseigendur og
húsráðendur, sem vanræk.i ■*
skyldur sínar um að fylla ná-
kvæmlega út manntalsskýrsl-
una nú við manntalið, eða van-
rækja síðar að tilkynna, er fólk
flytur úr húsum þeirra eða í
þau.
Krýning Játvarðs VIII.
mun án efa draga mikinn fjölda
ferðamanna til Bretlands næsta
vor, úr öllum löndum heims.
Skipafélögin bresku segja, að
alt farþegarúm á skipum þeirra
sé að kalla upp pantað nú þegar
vikurnar fyrir krýninguna. Er í
ráði að taka öll skip, sem liægt
er að ná í, og til fólksflutninga
eru hæf, til þess að geta flutt
sem flesta af þeim, sem fara
vilja til Bretlands af fyrr
nefndu tilefni. Gera Bretar sér
miklar vonir um stórlcostlegan
hagnað á mörgum sviðum,
vegna krýningarinnar.