Vísir - 31.10.1936, Síða 2
1 3 IR
á Madrid siðdegis í
34 menn biðu bana, en um 200 særðust, þ. á.
m. konur og börn.
London í morgun.
Manntjón varð meira í loft-
árás, sem uppreistarmenn
gerðu á Madrid í gær, en nokk-
urri annari loftárás, sem þeir
hafa gert á borgina.
Loftárásin var gerð síðdegis
í gær og var varpað niður um
12 stórum sprengikúlum og er
talið, að m. k. 34 menn hafi
beðið bana af völdum loftárás-
ar þessarar, en um 200 særst,
meðal þeirra margt kvenna og
barna.
Frá Lissabon berast fregnir
um það, að í blaðinu Secule sé
birt skeyti frá Salamanca þess
efnis, að uppreistarmenn hafi
tekið Peguerinos nálægt Es-
corial-höll. (United Press. —
FB.). —
Flupeon stjdrnarinnar i
Midrid hifa'gert loftárás á
Ndvalcarnero
og flugvélaskýli uppreistarmanna í Sala-
manca. Eyðilögðu þeir margar stórar árás-
arflugvélar.
London í morgun.
Fluglið stjórnarinnar hefir
haft sig mjög í frammi og varp-
að niður sprengikúlum á Nav-
alcarnero og marga aðra staði á
vigstöðvunum í nánd við Mad-
rid, sem uppreistarmenn hafa
á sínu valdi. Einnig hafa flug-
menn stjórnarinnar gert loft-
árás á Salamanca, en þar hafa
uppreistarmenn flugvélaskýli.
Télja stjórnarsinnar, að loft-
árásin á flugstöðina í Sala-
manca hafi borið hinn besta ár-
angur og að flugmönnum
þeirra hafi tekist að eyðileggja
margar þríhreyfla árásarflug-
vélar. (United Press. — FB.).
Berlín, 30. okt. — FÚ.
Gagnárásir uppreistarmanna.
Uppreistarmenn á Spáni til-
kynna, að þeir hafi hafið gagn-
árás á stjórnarherinn í nánd við
Madrid. Segir í fregnum þess-
um, að hersveitir Monasterios
ofursta hafi aftur náð stöðvum
þeim við Aranjuez-járnbraut-
ina, sem uppreistarmenn mistu
i gær, og hrakið stjórnarherinn
afturfyrir stöðvar þær, sem
hann hafði hafið áhlaup sitt frá.
: I
Ósamhljóða’fregnir.
London, 31. okt. — FÚ.
Enn liafa orðið grimmar or-
ustur á vígstöðvmium suðvest-
an við Madrid. Stjórnin segist
halda áfram sókn sinni á hend-
ur uppreistarmönnum, og hörfi
þeir hvaðanæfa undan. Upp-
reisarmenn segjast aftur á móti
hafa lxafið gagnárás, með góð-
um árangri.
.(
Biðu 70 börn bana
í loftárásinni?
í gær gerðu uppreistarmenn
loftárás á miðja Madridborg, og
er sagt, að nokkurir menn hafi
heðið bana á götum borgarinu-
ar. Þá Ientu sprengjur á stóru
skólahúsi utanvert við borgina
og er sagt að 70 börn hafi verið
drepin. En tilgangur uppreistar-
manna mun hafa verið, að hæfa
lest af flutningavögnum, sem
voru á leiðinni til Madrid.
I
Nálægt Huesca og Oviedo
telur stjórnin sér sigra.
Við Oviedo segir hún að her-
sveitir hennar hafi náð á vald
sitt f jallaskörðum
og öðrum mikilvægum stöðv-
um, og hafi nú aðstöðu til þess
að lcoma i veg fyrir að uppreist-
armönnum, sem verja nú borg-
ina, herist liðsauki. Uppreistar-
menn segja aftur á móti, að
þeir hafi nú rekið af höndum
sér námamannasveitirnar, sem
höfðu tekið úthverfi borgarinn-
ar.
Flotaaukning
stóvveldanna.
Þau hafa öll aukið her-
skipaflota sína nema
Bandaríkin.
! Wasliington í október.
Samkvæmt skýrslum flota-
málaráðuneytisins ameríska,
hafa öll mestu flotaveldi heims
aukið herskipaflota sína frá 1.
júlí s. 1., nema Bandaríkin.
Herskip Bandaríkjanna voru
384 talsins 1. júlí, en nú 306
(smálestatalan úr 1.080.715 í 1.-
062.875).
Bretar liafa síðan 1. júlí
eignast 2 ný herskip og eru þau
alls nú 309 (smálestatala 1.232,-
854, áður 1.224.329). Japanir
hafa nú 217 herskip í stað 213,
en smálestatala þeirra er 776.-
397, áður 772.797).
Frakkar höfðu 178 herskip 1.
júli nú, en 187 nú, samtals 571.-
734 smál. samt. áður 558.865).
ítalir hafa 195 herskip, en
’höfðu 191 1. júlí. Smálestatala
þeirra er 406.865. Var 403.333.
Þjóðverjar eiga nú 53 lier-
skip, en áttu 49 1. júlí. Smá-
lestatala þýska flotans var 1.
júlí 113.708, en er nú 125.458.
(United Press — FB.)
Miklar æsing-
a? í Eanda-
Fíkjunum
í sambandi við kosning-
arnar sem fram fara 3.
nóv.
London 30. okt. FÚ.
Um gervöll Bandarikin eru
nú miklar æsingar í sambandi
við forsetakosningarnar sem nú
fara í hönd. Mest kveður þó að
æsingum í New York. Þar flutti
Landon, forsetaefni Republik-
ana, síðustu kosningaræðu sína
í gær, en Rosevelt ávarpar kjós-
endur í síðasta sinni á morgun.
Maðkakorn. - Sandborið
rúgmjöi.
Margt er líkt með skyldum.
I.
Á tímum einokunarverslun-
arinnar 'gömlu kom það eigi all-
sjaldan fyrir, að varningur sá,
sem landsmönnum var ætlaður,
væri meira og minna skemdur.
Þannig er oftar en einu sinni
getið um „maðkakorn“, sem
einokunarverslunin eða stjóm
hennar hafi sent liingað, og
þótt fullgott handa sauðsvört-
um almúganum úti hér. Fólkið
liafði reynt að kvarta yfir þessu,
en þeim kvörtunum var víst
sjaldnast gaumur gefinn.
Svona var það nú á þeirri tíð.
íslendingar þóttu ekki ofgóðir
lil þess, að leggja sér skemdan
mat til munns, óþverra, sem
ekki var til nokkurs hlutar að
bjóða annara þjóða fólki. For-
stjórum einokunarinnar þótti
Islendingar réttir til þess, að
éta maðkana.
En íslendingar kunnu þessu
illa. Þeim hauð við möðkunum.
Þegar athugað var innihald
kornpokanna, gaf heldur en
ekki á að líta: Þar var alt á iði!
Maðkarnir þrifust ágætlega á
matvælum þeim, sem Danir
skömtuðu íslendingum.
Nú er þessi danska maðka-
öld liðin. Hún er liðin fyrir 150
árum og íslendingar liöfðu
smám saman tekið alla verslun
landsins í sinar hendur.
Hagur þjóðarinnar hafði
hlómgast og hlessast á þessari
hálfri annari öld. Hörmungar
einokunarinnar gömlu voru að
gleymast eða gleymdar. Fólkið
las að vísu sitt hvað um versl-
unarþrælkunina dönsku, eink-
um í kenslubókum, en engum
datti í hug, að þjóðinni yrði
nokkuru sinni boðið upp á nýja
einokun, nýja verslunar-áþján.
II.
I
Þau undur hafa nú samt gerst
á voru landi, að upp eru risnir
stjórnmálaflokkar, sem virð-
ast liafa það m. a. að marlc-
miði, að endurreisa liina fornu
verslunar-áþján, sem harðast
lék þjóðina og illræmdust varð
fyrr á öldum.
Spellvirkjar þeir, sem á ein-
okunina þykjast trúa, hafa séð
fram á, að fullkominni versl-
unareinokun yrði ekki komið i
framkvðemd, meðan liin dug-
lega og framtakssama verslun-
arstétt fengi að starfa nokkurn
veginn í friði. Þess vegna var
tekið upp á því, að lirifsa úr
höndum kaupsýslustéttarinnar
einstakar vörutegundir og ein-
oka þær í höndum ríkisvalds-
ins. Ár frá ári fjölgar hinum
einokuðu vörugreinum. Og að
sama skapi þrengist hagur
frjálsrar verslunar. Mun og ætl-
anin sú, að þreyta þenna sví-
virðilega einökunar-leik, uns öll
frjáls verslun hér á landi er
undir lok liðin.
Það er alkunna og styðst við
gamla og nýja reynslu, að ein-
okaðar vörur eru verri en sams-
kyns vörur, sem seldar eru í
frjálsum viðskiftum. Einokun-
ar-verslun hugsar ekki um
vöruvöndun. Hún þarf ekki að
óttast samkepni. Hún veit að
fólkið verður að kaupa hinar
einokuðu nauðsynjavörur,
lrvernig sem þær eru, því að
oftast er örðugt eða ómögulegt
I Wall Street er nú veðjað um
það, hvor muni liljóta kosningu,
og er þar veðjað Si3 með Rose-
velt gegn $1 með Landon.
án þéirra að vera. — Verðinu
þarf og ekki í hóf að stiíla, því
að ekki er i „annað liús að
venda“.
Það hefir nú komið á daginn,
að þvi er fréttir herma og get-
ið mun hafa verið í hlöðum,
að sandborið rúgmjöl hafi ver-
ið flutt til landsins, ekki alls
f\rrir löngu.
Það er nú að vísu svo, að
§Iíornvörur munu ekki einokað-
ar i orði kveðnu enn sem komið
er. Mætti því ætla, að einokun-
ar-hrammurinn næði þar ekki
lil — ekki beinlínis. En nú er
það vitað, að kaupsýslumenn
c-ru ófrjálsir að því, að meira
eða minni leyti, hvar þeir kaupa
vörur sínar. Þeir eru reknir af
gömlum og góðum mörkuðum
og vísað eitthvað annað, alt eft-
ir því, hvað stjórnarherrarnir
og skósveinar þeirra álíta hag-
anlegast fyrir einokunar-„hug-
sjóriina“ í það skiftið eða hitt,
og jafnframt verst fyrir kaup-
sýslumennina og hina frjálsu
verslun. —
Svo er talið og vafalaust með
réttu, að hið sandboma rúg-
mjöl sé ekki flutt til landsins
af venjulegum kaupsýslumönn-
urn, heldur af vinum og laun-
samherjum ríkisstjórnarinnar.
Fer það og mjög að líkum, að
þessliáttar fólk laki upp versl-
unarhætti einokunar-kaup-
mannanna dönsku. Þeir buðu
landsfólkinu upp á maðkakorn
og sitt hvað annað álíka heilsu-
samlegt og þrifalegt. Hinir nýju
einokunar-postular hafa liallast
að sandbornu rúgmjöli, svona
til að byrja með. — Má um
þetta segja, að margt sé Iíkt
með skyldum.
Eldsvoöiá
SeyöisfiFdi.
Seyðisfirði 30. okt. FÚ.
Síðastliðnd nótt um kl. 24
varð vart við eld í úthýsi feðg-
anna Benedikts Þórarinssonar,
bankaritara og Þórarins Bene-
diktssonar, Baldurshaga á Seyð-
isfirði. — Voru flestir i fasta
svefni, og er að var komið, var
húsið alelda og nær engu tókst
að bjarga. Inni hrunnu 2 kýr,
1 hestur, nokkur hænsni, 80
liestar taða, aktýgi, reiðfæri,
smíðatól, kjöt og kálmeti, fatn-
aður i þvottaliúsi og ýmislegt
fleira -— alt óvátrygt nema liús
og fatnaður. Upptök eldsins eru
okunn.
Cunniaopr BiSndal
hefir opnað málverkasýn-
. ingu í Kaupmannahöfn.
Kaupmannahöfn, 30. okt. - FÚ.
(Einkaskeyti).
Gunnlaugur Blöndal opnaði í
dag sýningu á 40 málverkum,
flestum frá íslandi, í Arnbachs
Kunsthandel í Kaupmanna-
höfn. Meðal þeirra, er viðstadd-
ir voru, er sýningin var opnuð,
voru Stauning forsætisráðherra,
sendiherrafrú Björnsson, Jón
Sveinbjörnsson, konungsritari,
Hansen stjórnarráðsritari,
Tryggvi Sveinbjörnsson sendi-
herraritari, Jón Krabbe, fulltrúi
i íslandsmálum, Helgi Jacobs-
son forstjóri frá Carlsberg-
söfnunum, Oddur Rafnar og
fjöldi annara þektra íslendinga
og Dana.
Húsakynni í
sveitum.
Þrásinnis hefir verið að því
vikið hér í bla'öimf, livílík ó-
hæfuverk það liafi verið, að
ginna bændur út í stórkostlegar
og rándýrar húsabyggingar.
Eins og menn vita og líklegt
má þykja raunar, gekk Hriflu-
Jónas einna ákafast fram í þvi,
að ginna menn inn á „stein-
kassabrautina", þ. e. hvetja þá
til þess að „byggja upp“ á jörð-
unum, oft og einatt, að því er
séð verður, án alls tillits til getu
mannanna og án allrar fyrir-
liyggju. Margir bændur gleyptu
við þessu, og mun Jónas hafa
komið þar fortölum sínum, að
þeir hugðu sér alla vegi færa.
Svo var ráðist í lántökur, ó-
viðráðanlegar lántökur, gömlu
hæjarhúsin, oft og einatt traust
og stæðileg, jöfnuð við jörðu,
en steinkassi mikill og ljótur og
dýr og óhentugur reistur á
rústunum. —
En bráðlega rak áð því, svo
sem augljóst var þegar í upp-
hafi, að fátækir hændur fengi
ekki undir byggingarkostnaðin-
um risið. Margir þessara stein-
kassa voru og óþarflega stórir,
svo að mörg herbergi standa
auð og ónotuð.
í Heilbrigðisskýrslum fyrir
árið 1934, sem út eru komnar
fyrir skömmu, er vandræðum
bænda út af þessu bygginga-
fargani öllu saman lýst all-skil-
merkilega af héraðslækninum i
Borgarnesshéraði. Munu ýmsir
aðrir læknar hafa svipaða sögu
að segja úr sínum héruðum,
þó að þeir hafi ekki int að því
sérstaklega í skýrslum sínum.
Meður þvi að liinar fróðlegu
Heilbrigðisskýrslur munu í
færri manna höndum en verð-
ugt væri og æskilegt, þykir rétt
að birta hér þau urnmæli Borg-
arness-Iæknis, er vita að húsa-
kynnum og afkomu fátækra
bændá í héraði hans.
Hann segir m. a.:
.... „En það eru liúsakynn-
in í sveitunum, sem eg vildi sér-
staklega tala um í þetta sinn.
Þessa síðustu áratugi, en þó sér-
slaklega síðan Byggingar- og
landnámssjóður tók til starfa,
hefir verið bygt upp á mjög
mörgum bæjum, og torfbæir
munu nú naumast finnast í
mínu héraði. Ríkisstjórnin og
forróðamenn peningamála
Iandsins hafa viljað bændum
vel og sýnt 'þeim itnikið örlæti
með lánum til bygginga, en svo
liefir reyndin orðið sú, að húsin
urðu alt of dýr og alt of stór,
og mér liggur við að segja, að
sumstaðar séu þau ópraktisk.
Skal eg nefna örfá dæmi: Fyrir
fáum árum var eg á ferð i dal
einum í héraði mínu, svo sem
15 kílómetra frá þjóðveginum
og spurði fylgdarmanninn, sem
er hóndi á einni jörðinni og var
að enda við að byggja eitt
Byggingar- og landnámssjóðs-
húsið hjá sér, hvernig honum
vegni, og svaraði hann hispurs-
laust, að nýja húsið setti sig
strax á höfuðið á fyrsta ári. Það
var nú auðvitað ekki úr háum
söðli að detta, því að töluvert
skuldaði hann fyrir í jarðar-
skæklinum og svo eitthvað af
verslunarskuldum, en nú bætt-
ist við 300 lcróna greiðsla á ári
vegna hússins. Túnið var harð-
bali í hraurii — hraun alt í
kring og gegnum það að fara á
engjarnar, sem eru snöggar. Bú-
stofninn er 70 ær, 2 kýr og 4
lieslar. Börnin eru 5, það elzta
um fermingu, lconan dáin fyrir
2 árum, og maðurinn bjó með
ráðskonu. Það er ekki flókið
reikningsdæmi þetta. Maðurinn
hefir ekkert til að lifa áf, þeg-
ar búið er að borga af skuld-
um og kaup ráðskonu. Eg get
þessa vegna þess, að eg álít fá-
tæktina vera undirrót margra
meina og líka sjúkdóma — oft
og einatt — og því miður imm
vera hægt að segja marga sögu
svipaða þessari, um marga, sem
hafa reist sér liurðarás um öxl.
Eg tók líka fram, að mér þættu
mörg hús of stór, Dæmi: Hús,
með kjallara undir, ein hæð og:
port og svo ris. Kjallarinn stór
og dýr með miðstöðvarofni og
nokkrum geymsluklefum, á
liæðinni 4—5 herbergi og eld-
hús, og svo 3—4 herbergi uppi
á lofti. í einu slíku húsi veit
eg til, að ekki býr annað fólk
en bóndinn og ráðskona hans*
sem ekki munu nota nema tvö,
herbergi og eldhúsið, Fólkið er
að verða svo fátt í sveit-
unum: Húsráðandi, kona eða
ráðskona, máske nokkur börn
unx eða innan við ferm-
ingu, og í stöku tilfelli eitt
gamalmenni. Vinnandi fólk ó-
víða nema húsbændur — kaup-
gjaldið of hátt og lífið dauflegt.
Húsin standa hálftóm og mæna
yfir mýraflákana, eins og þau
séu að spyrja, livaða meining
sé i að láta þau verða til. Mið-
stöð er í hverju húsi, en sjaldan
í hana lagt, að rninsta kosti
ekki neitt, sem verulega hitar,
þvi að kol, flutt upp i sveit, eru
flestum of dýr. • . .. . Eg get
þessa vegna þess, að kuldinn i
þessum hálfröku steinhúsum
getur verið hættulegur heilsu
manna. Eg sagði að húsin væri
óhentug. Auk erfiðleika að
lialda hreinni stærri íbúð en
niaður þarf, er það bagalegt
fyrir húsmæður að þurfa að
rása upp og ofan stiga — kenn-
ske tvo — milli ibúðar, eldhúss
og geymslu, — eg tala ekki um,
ef þær eru þungaðar eða með
barn á handlegg. Kona kom ný-
Jega til mín með stokkbólgna
fætur. Hún hafði verið svo
heppin að geta leigt hús-
menskumanni með lítilli fjöl-
skyldu aðalhæð liússins. Sjálf
bjó hún með manni sínum uppi
á lofti, ásamt tveim hömum, i
hæfilegu íbúðarplássi, en eld-
húsið var niðri í kjallara eins
og gengur, og hún varð að
hlaupa upp og ofan 2 stiga
mjög oft á dag. Eg álít, að íhúð-
in eigi að vera öll á sömu liæð,
og stór þarf liún ekki að vera
á smærri jörðunum. Kjallarinn
þarf ekki að vera nema lítil
hola undir einhverju liorninu,
ef vel hagar til. Skúr má hafa
eða skemmu til geymslu, jafn-
vel bygða úr torfi og grjóti eins
og í gamla daga, og miðstöð
þarf óvíða, aðeins einn góðan
ofn. Það virðist blóðugt að festa
peninga í stórum húsum á víð
og dreif úli urn sveitir og dali,
ábúendum til byrði eða falls og
jafnvel heilsuspillis, og þjóðinni
jafnvel til stórtjóns.“
Stjórnar-
bylting í
Irak.
Ný stjórn mynduð.
London 30. okt. FÚ.
Hernaðarleg stjórnarbylting
x ar gerð í írak í, gær. Fregnir
herma, að hernaðarflugvélar
hafi flogið yfir Bagdad og kast-
að niður flugritum, þar sem