Vísir - 05.02.1937, Page 2
VlSIR
VÍSIR
DAGBLAÐ
Útgefandi:
BLAÐAÚTGÁFAN
VlSIR H.F.
Ritstj.: Páll Steingrímsson.
SkrifetofalAusUirstræli 12
og afgr. J
S í m a r :
Afgreiðsla 3400
Ritstjórn 4578
Auglýsingastjóri 2834
, Prentsmiðjan 4578
Verð 2 kr. á mánuði.
Lausasala 10 aurar.
Félagsprentsmiðjan.
Orð og gerðir
Þeir voru allorðniargir um
atvinnuleysisvandræðin i bæn-
um, fulltrúar socialista, á bæj-
arstj órnarfundinum i gær. So-
sialistum er það yfirleitt einkar
tamt, að tala, þegar ekkert
keniur til þeirra kasta að frani-
kvæma það, sem þeir tala um.
Orðin eru svo auðveld í með-
förum, þegar aðrir eiga að ann-
ast um gerðirnar.
Á bæjarstjórnarfundum í
Reykjavik eru þeir ósparir á að
heimta einhverjar aðgerðir af
hálfu bæjarstjórnar til að bæta
úr atvinnuleysinu. En eru þeir
eins heimtufrekir við bæjar-
stjórnina i Hafnarfirði, á
Isafirði eða Seyðisfirði, þar sem
þeir hafa völdin og eiga sjálfir
að annast framkvæmdirnar ?
Seyðfirðingar fengu eitt árið
15 þús. krónur úr ríkissjóði til
atvinnubóta. Það mun láta
nærri, að það svari til þess að
ríkissjóður legði fram 500 þús.
krónur til atvinnubóta i Reykja-
vik á einu ári. Hvers v'egna láta
socialistar í bæjarstjórn Reykja-
víkur sér lynda, að Reykjavík-
urbær fái helmingi minna en
Seyðisfjörður, i hlutfalli við
ibúatölu, af atvinnubótafé
ríkissjóðs? Hvers vegna heimta
þeir ekki, að ríksstjórnin geri
verkalýðnum i Reykjavík jafn-
hátt undir höfði i þessu efni
eins og verkalýðnum á Seyðis-
firði?
Þeir krefjast þess af bæjar-
stjórn Reykjavíkur, að hún
beiti sér fyrir „aukningu“ arð-
bærrar atvinnu í bænum. Þeir
bera ár eftir ár fram tillögur i
bæjarsljórn um að bærinn kaupi
togara og geri þá út. En hvers
vegna beina þeir ekki slikum
kröfum til ríkisstjórnarinnar?
Þeir þykjast liafa gert skyldu
sína í þessum efnum, með því
að skipa fiskimálanefndina og
fá lienni til umráða einnar
miljón króna fúlgu af ríkisfé.
En að hvaða gagni hefir þessi
miljón komið atvinnuvegum
landsmanna eða alvinnulausum
verkalýð víðsvegar um landið?
Það er nú talið, að þessi mil-
jón fiskimálanefndarinnar muni
þegar uppétin. En til hvers
hefir henni þá verið varið
Þegar um það er spurt, þá
hafa socialistar ekkert annað
aðwísa á en liarðfiskinn. En
samkvæmt skýrslu atvinnu-
málaráðherra, í útvarpsræðu
hans á dögunum, nemur alt
andvirði harðfisksframleiðsl-
unnár í landinu i tvö ár, ekki
einu sinni hálfri miljón. Hún
hefir því orðið dýr ríkissjóði
þessi framleiðsla, ef hún hefir
lcostað hann verulegan hluta af
þessari miljón, sem fiskimála-
nefndin fékk til umráða.
En nú er þessi miljón búin,
hvað sem af henni hefir orðið.
Og ríkisstjórnin og stjórnar-
flokkarnir standa ráðþrota
uppi. Atvinnuleysið, sem þeir
ætluðu að bæta úr og afncma
með öllu, hefir aldrei verið
meira en nú, að því er þeir
sjálfir segja. Og nú er það ein-
asta fangaráð þeirra, að skora
á bæjarstjórn Reykjavíkur, að
taka að sér að leysa af hendi
það hlutverk, sem þeir liafa
sjálfir gefist upp við.
Aðgerðalausir eru þeir þó
ekki með öllu, þó að þeir hafi
gefist upp við það að auka at-
* vinnuna í landinu. Þeir hafa
fundið sér annað verkefni, sem
þeir hyggjast að ráða betur við.
Og í stað þess að auka atvinnu
verkalýðsins, virðast þeir nú
leggja alt kapp á að svifta liann
þeim atvinnumöguleikum, sem
liann hefir haft. Á sama tíma
sem socalistar eru að skora á
sjálfstæðismenn í bæjarstjórn
að beita sér fyrir „aukningu
arðbærrar atvinnu“, kaupa tog-
ara og stofna til bæjarútgerðar,
þá róa þeix öllum árum að því
að leggja stærsta atvinnufyrir-
tækið í bænum í rústir.
Svona er allur þeirra ferill.
En þó er verst að hafa rang-
láta ríkisstjórn.
ERLEND VlÐSJÁ.
Floíar
stórveldanna.
Þann 31. des. síSastl. útrunnu
tveir flotamálasamningar, er stór-
veldin höfðu gert með sér. Þá áttu
eftirtöld 5 ríki svo stóra flota, sem
nú skal greina.
BRETAR áttu 203 herskip, að
stærð 411.175 tonn. í smíðum eiga
þeir 78 skip, tonnafjöldi 332.735.
Þ. á m. eru tvo orustuskip, hvort
35 þús. smálestir að stærð. Smíði
annara tveggja orustuskipa af sömu
stærð, verður hafin í aprílmánuði.
Ætla Bretar að verja 935 milj. doll-
ara til nýrra herskipasmíða á
skömmum tíma.
BANDARÍKIN áttu 307 her-
skip, 1.070.475 smálestir að stærð.
Á síðasta ári áttu þeir í smíðum
95 skip, að stærð 288.215 smálestir.
Þau ætla einnig að smíða tvö or-
ustuskip (35 þús. smál.) og á hvort
þeirra að kosta 50 milj. dollara!
JAPANAR eiga 200 herskip, að
stærð samtals 735. 978 smálestir.
Þeir eiga 31 skip (90.194 smál.)
í smíðum. Á fjárlögum fyrir 1937
—38 er veitt 194)4 milj. dollara til
flotans, og af því fer tæpur helm-
ingur í nýjar skipasmíðar. Búist
er við, að Japanar láti smíða or-
ustuskip, er verði stærri, en þau er
Bretland og U.S.A. eiga í smíðum.
FRAKKAR eiga 173 herskip,
sem eru samtals að stærð 546.178
smálestir, og eru að smíða 46 skip,
246.908 smál. að stærð. Við venju-
leg fjárframlög til herskipasmíða
ætla þeir að bæta 572 milj. doll-
ara, til þess m. a. að smíða fimm
35 þús. smál. orustuskip og tíu 10
þús. tonna beitiskip.
ÍTALÍA á 307 skip, að st®rð
1.222.164 smál. Auk þess eiga ítal-
ir í smíðum 34 skip, að stærð 195.-
366 smál., þ. á m. tvö 35 þús. smál.
orustuskip. Jafnframt hafa þeir í
hyggju að bæta við einu eða tveim
35 þús. smál skipum.
ÞÝSKALAND á, enn sem kom-
ið er, minstan skipakost. En eftir
að þeir náðu samkomulagi við
Breta um flotamál, hafa þeir hafist
handa á ný. Um áramót áttu þeir
fullsmíðuð 59 skip, sem námu 128.-
382 smál. að stærð. Nú eiga þeir í
smíðum 38 skip, og nemur smálesta-
tala þeirra 195.366. Meðal þeirra
skipa eru tvö orustuskip (35 þús.
smál.), tvö flugvélaskip (hvort
20.000 smál.), þrjú beitiskip, 4
tundurspillar, 12 torpedóbátar og
14 kafbátar.
Ef raudlidar sigra á
Spáni — segir Franco,
verdur öll álfau kommúnismanam
að bráð.
EINKASKEYTI TIL VÍSIS.
London í morgun.
Frá Avila er síniað, að
Franco hafi veitt viðtal
blaðamanni frá blaðinu
Diaro Vasco í San Sebast-
ian. 1 viðtali þessu segir
Franco, að það væri hægð-
arleikur að taka Madrid
herskildi, ef uppreistar-
menn léti þa& sig engu
skifta, að borgin væri lögð
í rústir. Franco sagði, að
útlendingarnir í her upp-
reistarmanna væri í raun
og veru allir sjálfboðaliðar,
þ. e. þeir hefði allir gengið
í lið með uppreistarmönn-
um af frjálsum vilja. En
svo væri ekki um þá útlend-
inga, sem væri í stjórnar-
hernum, því að í honum
væri heilar rússneskar her-
deildir, sem sendar hefði
verið þangað til þess að rót-
l’esta kommúnismann á
Spáni. Franco fullyrti, að
ef kommúnisminn næði að
festa rætur á Spáni, mundi
öll álfan verða kommún-
ismanum að bráð — og því
næst mundi kommúnism-
inn sigra um allan heim. —
(Unitéd Press):
Áhlaupid á Malaga.
Uppreistarmenn sækja tram til Para
en kepskipaflota þeippa stökt á fiötta.
FRANCO.
VerBfelling krónunnar.
Kaupmannaliöfn, 3. febr. - FÚ.
(Einkaskeyti).
Kaupmannahafnarblöðin
flytja i dag yfirlýsingu frá ís-
lenska sendiráðinu í Kaup-
mannahöfn í tilefni af orðrómi
þeim, sem gengið hefir i ýms-
um Norðurlandablöðum um
það, að íslenska stjórnin hefði
i hyggju að leggja fyrir Alþingi
frumvarp um gengislækkun is-
lenskrar krónu. Sendiráðið lýsir
því yfir fyrir liönd stjórnarinn-
ar, að slíkur orðrómur um
gengisfellingu á íslenskri krónu
liafi ekki við neitt að styðjast.
I sambandi við þessa fregn og
þann hluta liennar, að lillagan
um verðfellingu krónunnar
væri upprunalega fram komin
að tillilutun nefndar sem sænski
liagfræðingurinn Lundberg
liefði verið formaður í, upplýsa
blöðin það, að nefnd sem liafði
atvinnumál Islands til athugun-
ar, hafi árið 1935 ráðfært sig
við Lundberg um ýms hag-
fræðileg atriði, en áð Lundberg.
liafi aldrei verið meðlimur
nefndarinnar og því siður for-
maður, og að þessi nefnd hafi
aldrei komið fram með neina
tillögu um verðfellingu krón-
unnar.
London í morgun.
Áhlaup það hið mikla, sem United Press símaði öllum
fréttasamböndum sínum fyrir nokkurum dögum, að hefjast
myndi í yfirstandandi viku, byrjaði í gær í dagrenning. Um
úrslit bardaganna, sem héldu áfram allan daginn, verður eigi
með fullri vissu sagt að svo stöddu.
Það er kunnugt, að herskip uppreistarmanna, en þeir
höfðu safnað öllum þeim herskipum, sem þeir áttu þar syðra,
til þátttöku í áhlaupinu, hófu skothríð á ýmsa staði á strand-
lengjunni fyrir sunnan Malaga, en þegar flokkur árásarflug-
véla stjórnarinnar kom og flaug yfir flota uppreistarmanna
og byrjaði að kosta niður sprengikúlum, lagði flotinn á flótta.
Það er eigi kunnugt að stjórnarliðinu hafi tekst að sökkva
neinu herskipanna.
Fluglið stjórnarinnar hafði sig talsvert í frammi í áhlaup-
inu, sem gert var á landi, og með talsverðum árangri að því er
virðist. Sækir fótgöngulið uppreistarmanna fram til Para. —
(United Press).
Fiotafomngi upps*eistai?-
manna skorap á sjóliðsmenn
stj ópuapiimap aö gefast upp.
floiii ylir saiorskaitssuæðiO
Frá leidangpi Lars Christensens,
----- ,
London í morgun.
. Frá Avila er símað, að samkvæmt útvarpsfregnum frá
Salamanca hafi flotamálaráðherra uppreistarmanna, Cervera
aðmíráll, hvatt alla sjóliða, sem fylgja stjórninni að málum,
að ganga í lið með uppreistarmönnum og sigla skipum sínum
til hafna þeirra. Lofaði Cervera sjóliðsmönnunum uppgjöf
saka, ef þeir gæfist upp, og klykti út með því, að ef þeir gerði
það mundi það hafa þau áhrif, að styrjöldin yrði fyr til lykta
leidd en ella. (United Press).
EINKASKEYTI TIL VlSIS.
EINKASKEYTI TIL VÍSIS.
EINKASKEYTI TIL VÍSIS.
London í morgun.
Aukakosning hefir fram
farið í Saint Pancras kjör-
dæmi í London, vegna þess,
að þingmaður kjördæmis-
ins, sem er íhaldsmaður, Sir
Ian Fraser, sagði af sér
þingmensku, sökum þess,
að hann hefir verið skipað-
ur forstjóri breska útvarps-
ins (British Broadcasting
Corporation). — íhalds-
menn héldu kjördæminu.
Urðu úrslit aukakosningar-
innar þau, að framb jóðandi
íhaldsflokksins, Grant Hy-
phen Ferris hlaut 11.744
atkvæði, en frambjóðandi
socialista, Tibbles að nafni,
hlaut 11.676 atkvæði. (Uni-
ted Press).
I sambandi við þessa
fregn má geta þess, að ýms
ensk blöð hafa nýlega ráð-
ist allhvatskeytlega að
stjórn breska útvarpsins,
fyrir að þola það, að það
væri notað til grímuklæddr-
ar rauðrar áróðursstarf-
semi. Daily Mail t. d. hefir
kallað B. B. C. „rauða út-
varpið“ (RedRadio) ogvítt
harðlega rauða áróðurs-
starfsemi (red.propaganda)
útvarpsins. Hafa fleiri blöð
tekið í sama streng og þeim
borist f jöldi bréfa frá les-
endum sínum, sem kref jast
algerlega hlutlauss útvarps.
(United Press).
Oslo í dag.
Norsk Telegrambyraa hefir
fengið skeyli frá Lars Christen-
sen. Er það sent frá leiðang-
nrsskipinu Tborshavn og er á
þessa leið: Widerö tilkynnir 31.
janúar, að hvalveiðabáturinn
bafi komið i auðan sjó milli
Enderby-lands og Kemp-lands
(66.16 gr. s. og 57.50 au.) og
þaðan liafi flugvélin liafið sig
til flugs. Svo leit út, sem þarna
væri land skamt frá, en er flug-
vélin var komin upp, sáu flug-
mennirnir, að það, sem þeir
höfðr haldið að væri land, var
eindæma stór borgarisjaki.
Landið, sem þeir hugðu sig vera
i námunda við, lá 50 kilóm.
lengra til suðurs og vesturs en
segir á kortinu. — Stefna var
nú tekin beint yfir Franmes-
fjöllin og var flogið lengi yfir
slórt íshellusvæði og því næst
yfir jökla og fjallgarða. Margir
stórir jöklar og fjallgarðar sá-
ust, sumir fjallgarðanna voru
snævi þaktir, en aðrir ekki.
Leiðangurinn leiddi ennfremur
í Ijós, að á allri strandlengju
Kempslands eru lág fjöll, sem
Edes teknr sér
livíld.
EINKASKEYTI TI'L VlSIS.
London í morgun.
Anthony Eden utanríkismála-
ráðherra er í þann veginn að
leggja af stað til hálfs mánaðar
hvíldar í Suður-Frakklandi seg-
ir í tilkynningu, sem birt var'í
,gaér. Samkvæmt henni var ráð-
gert, áð Eden legði af stað frá
London á morgun (laugardag)
og Halifax lávarður gegndi
störfum utanríkismálaráðherra
í fjarveru hans. Anthony Eden
hafði ætlað að taka sér hvíld
fyrir nokkuru, en varð að fresta
því, þar sem hugsast jgat, að
stjórnmálahorfurnar breyttist
þannig eftir ræðu þá, sem Hitl-
er Þýskalandskanslari flutti 30.
janúar, að óráðlegt væri fyrir
Eden að vera svo lengi að heim-
an. (United Press).
ná alveg i sjó fram. Ennfrem-
ur, að undir Framnesfjöllunum
var fjöldi voga og eyjar marg-
ar og milli þeirra auður sjór,
en íshellusvæði, er lengra kom
út alla leiðina sem flogið var
meðfram landinu. Flugið stóð
yfir í fjórar klukkustundir og
var flogið 800 kílómetra. Thors-
liavn fer alt af i liumáttina á
eftir hvalbátnum, og er stöðugt
loftskeytasamband við flugvél-
ina. (NRP—FB).
Viöskíf'ta—
samvinna,
Enn um samvinnu
„Osló-ríkjanna“.
Kaupmannahöfn, 4. febr. - FÚ.
(Einkaskeyti).
Dr. Munch, utanríkisráðherra
Dana boðaði í dag blaðamenn á
fund sinn, þ. á. m. fréttarilara
Ríkisútvarpsins. Hann sagði
við blaðamennina, að þess
mætti vænta, að fyrir tilhlutun
liollenska forsætisráðherrans
inyndi brátt verða efnt lil ráð-
stefnu milli fulltrúa frá Norð-
urlöndum og Hollands og Belg-
íu til þess að efla samvinnu
þessara landa og færa hana á
hagnýtari grundvöll. Hann
sagði, að ekki mætti vænla þess,
að náðstefna þessi bæri sam-
stundis augsýnilegan árangur.
Á þessari ráðstefnu kvað liann
einnig mundi verða hafinn und-
irbúning að því, að verlca á
stjórnir annara rikja í því skyni
að gera- viðskifti þjóðanna
greiðari og meiri.
Kaupmannahöfn, 3. febr. - FÚ.
(Einkaskeyti).
Viðskiftasamvinna Norðurlanda
Cliristmas Möller, formaður
danska íhaldsflokksins, hefir
komið fram með tillögu um það,
að fulltrúar frá stjórnum Norð-
urlandanna, þingum þeirra og
þjóðbönkum, komi saman á
ráðstefnu innan skamms, til
þess að ræða um að gera tillög-
ur um viðskiftasamvinnu Norð-
urlandanna. Tillögu þessari lief-
ir verið vel tekið.