Vísir - 05.02.1937, Page 3

Vísir - 05.02.1937, Page 3
VÍSIR FRÁ BÆJARSTJÓRNARFUNDI í GÆR. Á fundi bæjarstjómar í gær héldu bæjarfulltrúar „samfylk- ingarinnar“ uppi alllöngum en gagnslitlum umræðum um at- vinnuleysið i bænum. Tóku þeir 5 til máls og töluðu sig allir „dauða“. Einar Olgeirsson reið á vaðið. Hóf hann máls á því, að nú væri skráðir fleiri at- vinnuleysingjar í bænum en nokkuru sinni áður, og kvað ekki við svo búið mega standa, og eitthvað yrði að taka til bragðs til þess að bæta úr þessu. Talaði Einar liátt, að vanda, en liátt var þó eklci risið á úrræðum lians. Gerði hann það að tillögu sinni, að bæjar- stjórnin kveddi á fund með sér alla formenn verklýðsfélaganna í bænum til slcrafs og ráðagerða um þetta. t Upsa og sardínuveiðar. Næstur Einari tók Ólafur Friðrilvsson til máls og flutti ræðu um sardínuveiðar. Jón Axel flutti tillögu um að skora á bæjarráð að taka til alvarlegr- ar athugunar, livort ekki mundi tiltækilegt að bæjarstjórn hlut- aðist til um að farið væri að gera út á ufsaveiðar, en gaf sar- dínum Ólafs engan gaum. Borgarstjóri vakti athygli til- lögumanna á því, að rikisstjórn- in hefði skipað sérstaka nefnd, fiskimálanefnd, til þess að hafa forgöngu um slílca nýbreytni í atvinnurekstrinum, og hefði nefndin fengið allmikið fé til umráða í því skyni, en bæjar- stjórn hefði engin tök á að beita sér fyrir slíkum framlcvæmdum því að mjög væri nú þrengt að möguleikum hennar til fjáröfl- unar. Bar hann síðan fram dag- skrártillögu þess efnis, að til- lögu Jóns Axels skyldi vísað frá með þeim rökstuðningi, að með henni væri seilst inn á verksvið fiskimálanefndar. — Afnám atvinnuleysisins. — Bjarni Benediktsson bar fram dagskrártillögu um frávísun á tillögum Einars Olgeirssonar, og var tillaga Bjarna á þessa leið: , „Þar sem stuðningsflokkar rikisstjórnarinnar liafa þegar lofað að afnema atvinnuleysið i landinu og rikisstj. liefir skip- að sérstaka nefnd (,,Rauðku“) til að ráða bót á því, þó að að- gerðir hennar séu ekki enn þá kunnar, en bæjarstjórnin liefir ekki vald til að taka málið úr höndum ríkisstjórnarinnar, tel- ur bæjarstjórnin ekki ástæðu til að taka afstöðu til framkom- inna íillagna frá Einari Olgeirs- syni og tekur fyrir næsta mál á dagskrá“. Tók nú „samfylkingin“ mjög að færast í aukana, er henni fanst lítið gert úr aðgerðum ríkisstjórnarinnar, og tóku bæj- arfulltrúar socialista að telja upp afrelc hennar er að því mið- uðu að bæta úr atvinnuleysinu. Lof haftanna. M. a. töldu þeir, að hin rnikla aukning iðnaðarins í landinu væri algerlega ríkisstjórninni að þakka. Hér liefði risið upp ýmiskonar iðnaður i skjóli inn- flutningsliaftanna, og væri ó- liugsandi, að hann gæti þrifist, ef innflutningsliöftunum væri aflétt og leyft að flytja inn miklu ódýrari erlendar vörur. Dásömuðu þeir mjög þá „hjálp“ sem ríkisstjórnin hefði þannig veitt aðþrengdum verkalýð landsins: Einar Olgeirsson kvað tillögu Bjarna Benediktssonar sönnun þess, að bæjarstjórnin, eða meirililuti liennar, hefði al- gerlega gefist upp við það að liafa nokkur afskifti af atvinnu- leysinu í bænum, og bar fram tillögu þess efnis, að ef dag- skrártillaga Bjarna yrði sam- þykt, ákvæði bæjarstjórnin að „segja af sér og láta fara fram nýj ar bæj ars t j órnarkosningar nú þegar“. Síðasti þáttur. Bjarni Benediktsson bar þá fram aðra dagskrárlillögu, um að vísa þessari tillögu E. O. frá, og var sú tillaga Bjarna á þessa leið: „Bæjarstjórnin visar tillögu Einars Olgeirssonar frá sem fjarstæðu, þvi að rökstudda dagskráin hvíldi einmitt á þeirri staðreynd, að sjálfstæðismenn geta ekki komið fram þeim úr- ræðum, sem þeir liafa margbent á, til að ráða bót á atvinnu- málum þjóðarinnar nema þeir fái meirihluta á Alþingi, og lægi því nær fyrir bæjarstjómina, ef það þætti við eiga að skora á alþingismenn stjórnarflokk- anna að segja af sér, lieldur en að hún sjálf leggi niður völd, þar sem stjórnarflokkarnir á lunn bóginn' geta, þrátt fyrir minni bluta sinn i bæjarstjórn, komið fram öllum sínum „úr- ræðum“ með ]iví að beita meiri- hluta valdi sínu á Alþingi, og verða þvi hinar sifeldu kröfur þeirra í þessum efnum á liend- ur bæjarstjórn, ekki skildar öðru vísi en sem alger uppgjöf þeirra á þvi verkefni, sem þeir liafa tekið að sér“. Þegar hér var komið, tók heldur að „draga af“ sainfylk- ingarmönnunum, og lauk þess- um umræðum skyndilega. En dagskrártillögur þeirra borgar- síjóra og Bjarna Ben. voru samþyktar. Komu tillögur sam- fylkingarinnar því ekki til at- kvæða, og lét liún við svo búið „tjaldið falla“ fyrir þessari leiksýningu sinni, sem staðið hafði yfir í þrjá og hálfa klukkustund. Lfigreglan og Iannakjör hannar. Á fundinum var samþykt að setja menn til eins árs í lög- regluþjónsstöður þær, 18 tals- ins, sém ríkisstjórnin hefir á- kveðið að stofna til viðbótar lögregluliði bæjarins, auk þeirra tveggja, sem skipað var í á síð- asta fundi. Fór síðan fram at- kvæðagreiðsla um þá menn, sem lögreglustjóri hafði lagt til að settir vrðu í stöðurnar, og voru þeir allir samþyktir, hver í sínu lagi, með mismunandi at- kvæðafjölda. Borgarstjóri bar fram tillögu um að bæta nokkuð launakjör lögregluliðsins, • vegna þess að gert er ráð fyrir, að af fjölgun- inni leiði það, að niður falli að mestu aukaþjónusta sú, sem lögregluþjónar liafa gegnt að undanförnu, og haft nokkr- ura tekjuuppbót af. Var í þessu skyni skv. tillögu bórgarstjóra ákveðið að flytja lögregluþjón- ana upp um einn launaflokk i launasamþykt bæjarins, enda fái þeir framvegis enga auka- borgun fyrir aukaþjónustu, sem þeir kunna að verða að inna af hendi, eftir þvi sem þörf kref- ur. Kosnlngar fastra nefoda og starfsmanna bæjar- stjórnar. höfðu farið fram áður en þess- ar umræður hófust. Forsetar og skrifarar voru kosnir þeir sömu og áður liöfðu verið. Á skipun nefnda urðu engar breytingar af hálfu sjálfstæðismanna, en socialistar skiftu um mann í byggingarnefnd og í stjórn Sjúkrasamlagsins. Kusu þeir Guðm. Ó. Guðmundsson Dags- brúnarformann í stjórn Sjúkra- samlagsins í stað Guðgeirs Jóns- sonar, sem áður hafði átt sæti i stjórn gamla samlagsins. En í fyrra áfeldust þeir sjálfstæðis- menn mjög fyrir það að kjósa „nýja“ menn i samlagsstjórn- ina. Vafasamt mun þó talið að þeir liafi nú sjálfir breytt um til bóta, með því að liafna Guð- geiri. Djaldeyrir kauplélaoanna Nýja Dagblaðið heldur því fram í gær, í sambandi við hin mjög umræddu fiskkaup Kaupfélags Eyfirðinga, að það félag, eins og önnur sam- bandsfélög, afhendi S. I. F. allan fisk sinn og fái aldrei eyri af þeim gjaldeyri sem inn kemur fyrir fiskinn. Þetta er ekki rétt. Það er vitanlegt að Sambandið og fé- lög þess selja blautfisk í stór- um stíl til Danmerkur og Englands án milligöngu S. I. F. og hirða sjálf þann gjald- eyri sem inn kemur. Einnig er kunnugt, að Sambandið hefir keypt hér mikið af harðfiski, fyrir stórar fjár- hæðir, og vita menn ekki til að sá gjaldeyrir hafi komið til bankanna. Það hlýtur að verða krafa þjóðarinnar að lögin nái jafnt yfir alla — gjaldeyrislögin jafnt sem önnur lög. For- maður gjaldeyris- og inn- flutningsnefndar segir í dag í N. Dbl. að kaupfélögin séu háð fyrirmælum nefndarinn- ar sem aðrir innflytjendur. Hver eru fyrirmæli nefndar- innar? Þau eru að kaupfélög- in megi sjálf ráða yfir gjald- eyri sínum. Svona eru heil- indin. Það er ekki gott að hafa rangláta ríkisstjórn. Sænskt skip hverfur. Osló, 3. febrúar. Sænska eimskipið P. L. Paahlson sendi frá sér neyðar- merki í gær siðdegis. Var skipið þá 15 sjómílur frá Hanstholm- en. Slýrisútbúnaður skipsins hafði bilað. Björgunarbáturinn Harald var sendur til hjálpar og kom á staðinn þar sem skip- ið var i gær, snemma i morgun, cn fann það ekki. — Haráfd heldur áfram leitinni. (NRP. - FB.). Utan af landi. Vopnafirði, 4. febr. FÚ. Lungnaveiki í sauðfé í Vopnafirði. Á tveim bæjum i Vopnafirði hefir allverulega borið á lungna- veiki í sauðfé undanfarnar vik- ur. Á Vindfelli liafa drepist 12 kindur og í Krossavík 13 — fleslar í mánuðinum, sem leið. I Vopnafirði liefir tiðarfar lengi verið óstilt, en þó óvenjulega snjólétt sem af er vetri. Hross ganga flest úti og sauðfé er lítið gefið. Eskifirði, 4. febr. FÚ. Eskifjarðarpilturinn, sem varð fyrir skotsári, á batavegi. Pilturinn, Einar Sigurjóns- son, i Eskifirði, er særðist geig- vænlegu skotsári fyrir ofan liægra auga, síðastliðinn föstu- dag, er nú að dómi læknis lal- inn úr allri liættu og líður hon- um vel. Almenn tíðindi. Bleyluhríð liefir verið á Eski- firði undanfarna daga og al- gjört liagbann þar um slóðir. Heybirgðir eru almennt nægar enda einmunatið og bliðviðri allan siðastliðinn mánuð. Síld- veiði hefir verið i net undan- farið, en er nú þverrandi. Strandasýslu, 4. febr. FÚ. Áskorun til ríkisstjórnarinnar um varnir gegn borgfirsku sýkinni. Á hreppsfundi Bæjarhrepps í Strandasýslu 9. þ. m. var lýst yfir því, að fundurinn treysti ríkisvaldinu til þess að gera alt, sem unt verði að gera, til varn- arborgfirskusauðfjársýkinni m. a. með girðingum um ósýkt svæði og sérgirðingum um vafa- söm svæði. Fundurinn lagði og til: Að girðing verði lögð úr Hvammsfirði í Hrútafjörð inn- anverðan og að heilsufar sauð- fjár í Bæjarhreppi verði rann- sakað i vor af sérfróðum manni. Rússlands rauðu goð. Eftir Harry J. Greenwall. Hver eru liin rauðu göð Rúss- lands? Ifver álirif inunu þau liafa á framtið þeirra þjóða, sem byggja lönd Rússa? Hver álirif munu þau hafa, þegar tek- in verður hin örlagaríka á- kvörðun um frið eða styrjöld? Sovét-Rússland verður tuttugu ára haustið 1937. Ný goð eru dýrkuð. Sum liin gömlu hafa verið tekin og kastað burtu, en ekki öllum. Undanfarna tvo ára- tugi hefir Rússland verið land leyndardómanna. Það er það ennþá. Eg ætla fyrst að taka til at- liugunar mjög dularfulla sann- reynd, eina af mörgum dular- fullum sannreyndum, sem snerta mikilvæg mál. Það, sem liér um ræðir, kemur við rúss- neska flotanum. Öll farþegaskip sem koma til Leningrad, fá kaf- bát sér til leiðbeiningar, vitan- lega rússneskan kafbát. Eg heyrði háðfugl nokkurn segja, að ef Rússar ætti fleiri kafbáta en einn, þá mundu fleiri lcafbát- ar verða notaðir til þess að fylgja skipum, sem koma frá Evrópu inn á höfnina í Lenin- grad. Á þeim grundvelli, að alt sé satt, sem sagt sé um Rúss- land, má ununælin um rúss- neska kafbátinn kannske til sanns vegar færa, en ef málið er tekið til rökréttrar atliugun- ar komast menn að þeirri nið- urstöðu, að það geti eins verið svo, að Rússar eigi mesta káf- bátaflota í heimi. Á engu, sem gert hefir verið á síðari tímum, hefi eg furðað mig meira en breslc-rússneska flotasamkomu- laginu. Eg geri ráð fyrir, að flotamála - upplýsingastarfsemin breska viti alt, sem Bretar telja sig þurfa að vita um rússneska flotann, og rússneska flotamála- upplýsingastarfsemin alt, sem hún telur sig þurfa að vita um breska flotann. En eitt verður að taka fram, að það er meiri leyndarbragur yfir rússnesku flotastöðinni í Kronstadt en nokkurri annari flotastöð í lieiminum. Þeir, sem hafa séð kvikmyndina „Þessir sjóliðs- nienn1 frá Kronstadt“ muna eft- ir því, að þetta var fyrirtaks áróðursmynd, en nú er engum leyft að fara í lieimsóknir til Kronstadt og litast þar um. Kronstadt er aðeins í fárra mílna fjarlægð frá Leningrad, sem eitt sinn var höfuðborg Rú'sslands, bygð af Pétri mikla, og kölluð „glugginn sem veit að Evrópu“. Nú er þessi höfuðborg sem eitt sinn var, rúin förnri frægð og ekki mikilvægari en margar aðrar borgir Rússlands, en þeir, sem vilja ferðast frá Kronstadt til Leningrad verða að liafa gildar ástæður, til þess að fá fararleyfi, og yfirleitt er sírangt eftirlit með broltför þeirra og lieimför elcki síður. Og frá því rauðliðar komust til valda hefir engum útlendingi verið leyft að koma til Kron- stadt. , Eg liefi verið spurður um það, hvort Rússar hyggi á ófrið og búi sig undir hann. Aðrir spyrja um hvort Rússar hyggi til landvinninga, og ef til styrj- aldar kæmi, hvernig eg ætli, að Rússurn mundi vegna. En aðrir spyrja um mann- og fjárafla VOROSHILOV, yfirhershöfðingi Rauða hersins, næstæðsta „goð“ kommúnista. Rússa, hve mikið þeir eigi af fallbyssum, flugvélum og þar fram eftir götunum. Þegar til þess kemur að svara þessum spurningum og öðrum þvi um líku tel eg besta svarið, að lýsa liinum rauðu goðum Rússlands, IÍALININ, forseti rússnesku ráðstjórnar- ríkjanna. persónuleika þeirra, hverju þeir liafa til vegar komið, hvert þeir síefna. Við skulum byrja á mannin- um, sem er þar efstur á blaði. Manninum, sem heimurinn þekkir sem Josef Stalin. Hvem- ig náði þessi einræðisherra, sem hefir i höndum ’sér líf og örlög 170 milj. rússneskra þegna, er búa i löndum, sem eru mörg- um sinnum stærri en sameinaða breska konungsrikið, völdunum i sínar liendur? Stalin heitir réttu nafni Josef Vissarionovitch Stalin-Dzugas- livili. Ifann er um fimtíu og sex ára að aldri og er fæddur i skó- smiðskofa og óx upp meðal betlaralýðs í Tiflis i Georgia. Faðir lians vildi að hann yrði prestur og kom honum í skóla, cn honum var vikið úr lionum, er liann fór að láta í ljós bylt- ingarskoðanir (1898). Sex sinnum var liann handtekinn og sendur til Sibiríu. Finnn sinnum komst liann undan á flótta og var aklrei nema einn eða tvo mánuði 1 fangelsi í einu. Lögregla Rússakeisara tók hann ávalt faslan fyrir lítilfjörleg af- brot, aldrei fyrir pólitiska starf- semi, en í þá tíð — eins og enn þann dag i dag i sumum lönd- um — voru pólitískir áróðurs- menn oft handteknir og búnar til sakir á hendur þeim, þótt lögreglan vildi koma þeim í fangelsi einmitt vegna pólitiskr- ar starfsemi þeirrg. I útlegð sinni hafði Stalin stöðugt samband við byltingar- sinna. Hann var grunaður um þátttöku i stjórnarbyltingarund- irbúningi í Kaukasus 1907. Komst upp um fyrirætlanir stiórnbyltingarsinna og voru 50 menn drepnir. Sögusagnir hafa gengið um, að Stalin hafi eitt sinn tekið þátt í bankaráni — peningunum átti að hafa verið varið til þess að vinna að áform- um byltingarsinna — en neitt um þetta liefir aldrei sannast. Stalin kom til Pétursborgar daginn eftir að mars-uppreistin braust út. Varð liann athafna- samastur allra stuðningsmanna Lenins. Þegar Trotski ferðaðist um Rússland .til þess að halda ræður var Stalin við hlið Len- ins og gætti álirifa lians mikið.. í Rússlandi ganga sögur um, að. Stalin og Trotski hafi alt af lagt fæð livor á annan. Það er sagt af andstæðingum Stalins að Iiann liati Trotski af því að liann sé Gyðingur, en Stalin er óvinveittur Gyðingum. Önnur saga er til um það, að er Trotski var yfir rauða liernum og barð- ist við Kolschak og her hans, sem naut sluðnings frá Bretum og Frökkum, hafi Stalin verið neitað um inngönguleyfi í tjald Trotski, en hann hafi hrundið verðinum til hliðar og vaðið inn. Þessar sögur og aðrar eru sagðar innan luktra dvra af sama fólkinu, sem heldur því fram, að Stalin sé ekki Rússi, lieldur Georgiumaður, sem væri svipað og að segja um mann, að hann væri ekki Englending- ur heldur Wales-búi. Og þessir menn segja, að Stalin geti ekki talað , rússnesku. Sögurnar, livort sem þær eru sannar eða ekki, eru á þessa leið, en hitt verður ekki um deilt, að það varð ekki fyrr en i maí árið 1927, sem Stalin varð meðlimur lcommúnistaflokksins rúss- neska. Frh.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.