Vísir - 14.10.1937, Qupperneq 3
VlSIR
Matj essíldapíram leiösla landsmanna
. í hættu.
Það var almanna mál, þegar opinbert varð að
Síldarútvegsnefnd hafði gefið Fritz Kjartans-
syni einskonar einkasölu á allri matéssild sem
seld væri til Póllands, að dýpra væri varla hægt að
sökkva í verslunaróreiðu og hneykslanlegu ráðlagi. Nú
er það þó komið í 1 jós að nefndin heí'ir sett nýtt met í
taumlausri óstjórn.
Fritz Kjartansson fékk einka-
sölu fyrir Pólland gegn því aö
selja fyrir nefndina og kaupa
fyrir Pólverja 20 þús. tn. af 48
þús. tn., sem heimilt var aö
flytja til Póllands. En þessi
einkasala lians var bundin við
Pólland eitt. En nú er það kom-
ið á daginn, að aðrir gæðingar
nefndarinnar, Oxenber|g Brot-
hers í Seattle í Ameríku, hafa
fengið einkasölu á allri ís-
landsverkaðri matjessíld fyrir
alt meginland Ameríku gegn
því að kaupa 15 þús. tn. af
nefndinni. Þetta firma kaupir
þannig alveg hverfandi síldar-
magn en fær í upphót einka-
söluréttindi fyrir heila heims-
álfu. Ofan á það hætist, að
nefnt firma liefir elcki fengist
við síldarverslun áður, en nú
hregður svo við, að Síldar-
útvegsnefnd virðist ætlast til
þess að íslenskir síldarfram-
leiðendur bíði eftir því, að þetta
firma, sem búsett er vest-
ast í Bandaríkjunum Ieggi
undir sig sildarmarkaðinn í
Ameríku.
Kunnugustu menn telja, að í
sumar liefði auðveldlega mátt
selja yfir 60 þús. tn. af íslenskri
matjessild til Ameriku fyrir á-
gætt verð, ef sölubann Síldar-
útvegsnefndar hefði ekki verið
því til hindrunar.
TRÚN AÐ ARMENNIRNIR
KNÝJA FRAM AFSLÁTT.
Síldarútvegsnefnd hefir fært
það fram sem rök fyrir þessari
ráðstöfun sinni, að firmað Ox-
enberg Brothers hafi greitt svo
hátt verð fyrir liinar umsömdu
15 þús. tn., að það háfi réttlætt
að fá firmanu einu alla söluna
í hendur.
Það liggur í augum uppi
hversu fráleitt það er að loka
mörkuðum í heilli heimsáKu
fyrir sölu, sem ekki nemur
nema 15 þús. tn. þólt fyrir gott
verð væri. En nú bætist þar við,
að þetta áreiðanlega firma, sem
átti að leggja undir sig mark-
aðinn í heimsálfunni, liefir eklti
staðið við að horga hið liáa
upprunalega verð, heldur feng-
ið stóran afslátt frá því.
Það virðist svo sem þau
firmu og þeir menn, sem
nefndin hefir gert að, einka-
umboðsmönnum sínum,
gangi á það lagið, að setja
nefndinni þá kosti sem þeim
sýnist, viðvíkjandi sölu í
þeim löndum, sem þeir, hver
í sínu lagi, hafa fengið einka-
sölu fyrir. Þessir einkasal-
ar skáka í því skjólinu, að
nefndin geti ekki gengið
fram hjá þeim með sölu á
því svæði, sem nefndin hefir
úthlutað þeim og það jafnt
þo þeir standi ekki við gerða
samninga á þeirri síld, sem
þeir hafa keypt. Þessar kröf-
ur um afslátt frá einkasölu-
firmunum koma fram á
þeim tíma, sem síldarverð er
lækkandi vegna mikils fram-
boðs af hálfu erlendra keppi-
nauta.
SÍLDARÚTVEGSNEFND
í GILDRU.
Nefndin liefir annaðhvort
viljandi eða óviljandi gengið í
gildru, sem liún er hnept i
þannig, að liún er algerlega á
valdi þeirra manna, sem hún
hefir fengið einkasöluna í liend-
ur. Þessir einlcakaupendur
nefndarinnar sýnast geta geng-
ið á gerða samninga um verð
og afhendingartíma en haldið
eftir sem áður þeirri einlcasölu,
sem nefndin var búin að fela
þeim.
Það er algerlega óverjandi að
leggja matjessildarframleiðsl-
una i einokunarfjötra, sem er
beitt þannig, að vissum gæðing-
umSildarútvegsnefndar er feng-
in þessi framleiðsla í hendur, og
geta. þeir svo farið með hana
eins og þeim sýnist. 1 því sam-
handi skiftir ekki máli, hvort
þessir gæðingar heita Fritz
Kjartanssojn, Oxenberg Biroth-
ers eða Torrö, sem er tengda-
sonur Finns Jónssonar, en höf-
uðatriðið er það, að sölufyrir-
komulagið er þannig í höndum
nefndarinnar, að það eru hags-
munir innlendra og erlendra
spekúlanta, sem ráða, en ekki
hagsmunir íslenskra sildar-
framleiðenda.
Alt framferði Síldarútvegs-
nefndar frá fyrstu tíð hefir ver-
ið þannig, að traust nefndar-
innar hefir farið stöðugt mink-
andi og var þó ekki mikið í
fyrstu. Það tjón, sem hlotist
liefir af skammsýni og óstjórn
nefndarinnar verður vart með
tölum talið, og er það almenn
skoðun sildarútvegsmanna, að
nefndin muni eyðileggja mat-
jessildarframleiðslima fyrir
fult og alt, ef sama óstjórnin
helst framvegis.
Ben Hur,
hin heimsfræga kvikmynd,
sem hefir veriS sýnd oft á undan-
förnum árum, veröur sýnd íGamla
Bíó í dag kl. 6, aö tilhlutun Hvíta-
bandsins.
Slökkviliðið
var kvatt inn a‘5 Bjarnaborg í
gærkveldi kl. rúmlega 8. Bruna-
boðið reyndist gabb, og var
hvergi laus eldur.
Sjómannakveðja.
FB. 13. okt.
ByrjaSir að veiða. Vellí'ðan. —
Kærar kveöjur.
Skipverjar á Þórólfi.
Gengið í dag:
Sterlingspund kr. 22.15
Dollar - 448>4
10® ríkismörk — 179.82
— fran9kir frankar . — 14.98
— belgur — 75-43
— svissn. frankar ... — 103,14
— finsk mörk — 9-95
— gyllini — 247.70
— tékkósl. krónur .. — I5-98
— sasnskar krónur .. — H4-36
— norskar krónur .. — 111.44
— danskar krónur .. — 100.00
| Júlíus Kolbeins. |
Dáinn 3. október 1937.
Fáein minningarorð.
Dauðinn, sem oss mannanna
hörnum finst stundum svo
miskunnarlaus, spyr ekki um
aldur eða ástæður manna, ekld
um stétt eða stöðu. Allir, jafnt
ungir sem gamlir, mega jafnan
vera viðbúnir, að heygja sig
fyrir valdi lians, fyrirvaralaust,
ef svo ber undir. Og þó setur
oss jafnan liljóða er vér skyndi-
lega fregnum lát vina vorra, er
vér nýlega höfum umgengist í
fullu fjöri.
Þannig fór okkur, vinum Júl-
íusar Kolbeins, er við heyrðum
fregnina um lát hans. Okkur
fanst hún svo ótrúleg, og gát-
um ekki áttað okkur á þvi í
fljótu bragði, að liann, sem við
fyrir fáum dögum höfðum séð
og talað við glaðan og lieilan,
væri nú horfinn úr liópnum að
fullu.
Pétur Emil Július Kolbeins,
en svo hét hann fullu nafni, var
fæddur 11. desember 1898, og
voru foreldrar hans Eyjólfur
Kolbeins prestur að Staðar-
bakka og kona hans, Þórey
Bjarnadóttir frá Reykhólum. —
Er sr. Eyjólfur lést, árið 1912,
fluttist Július með móður sinni
og systkinum að Lambastöð-
um á Seltjarnarnesi, en hóf
skömmu síðar nám í Björns-
hakaríi hér í hænum og stund-
aði þá iðn um 20 ára skeið,
lengst sem yfirhakari í Björns-
Lakaríi, og er það mál sveina,
er með honum unnu, að hann
hafi verið hinn ágætasti yfir-
maður.
Júlíus var vinsæll maður,
enda vinum sínum tryggur og
raungóður í hvívetna, og leitun
mun vera á mönnum er tækju
honum fram um áreiðanleilc og
samviskusemi í starfi eða við-
skiftum.
Þegar hann nú í dag er til
moldar horinn, munu margir
vera þeir, er minnast Iians með
sárum söknuði, og þá fyrst og
fremst systkini hans, sem eiga
á hak að sjá ágætum hróður.
En það er huggun þeirra og
okkar allra, vina hans, er þekt-
um liann best, að
hann, sem oss er horfinn
sýnum,
liefir dýrðar öðlast vist.
Fluttur er hann lífs á landið,
Ijóssins fær nú heima gist,
þar sem alt er eilif gleði,
enginn harmur, eldcert höl,
engin sorg og enginn kvíði,
engin framar þekldst kvöl.
Minning hans lifir í hugum
okkar, hrein og björt.
S. J.
Skákmótið.
3. umferö er í kvöld. Tefla þá
í meistaraflokki: Eggert Gilfer —
Sturla Pétursson, Einar Þorvalds-
son — (Baldur Möller, Magnús G.
Jónsson — Áki Pétursson, Eyþór
Dahlberg — Benedikt Jóhannsson,
Jóhann Jóhannsson — Guömund
ur Ólafsson.
□ Edda 593710127 — 1. Atkv:.
I.O.O.F. 5 = 11910148V2 =
Veðrið í morgun:
í Reykjavík 7 st., mest í gær 9,
minst í nótt 6. Úrkoma 1.9 m.m.
Yfirlit: Alldjúp lægö yfir norö-
anverðu Grænlandshafi á hreyf-
ingu norðaustur eftir. Horfur:
Faxaflói: Allhvass suðvestan.
Rigning öðru hverju.
Skipafregnir.
Gullfoss fór frá Leith i gær-
kveldi áleiðis til Hamborgar.
Goðafoss kom til Önundarfjarðar
kl. 11 í rnorgun. Brúarfoss fór í
gærkveldi frá Reyðarfirði áleiðis
til London. Dettifoss er í Ham-
borg, Lagarfoss á Akureyri. Sel-
foss er á leið til Leith frá Ant-
werpen. Esja er í Reykjavík. Súð-
in var á Skagaströnd í gær. —
Hvalabáturinn Kurt kom í gær til
að taka kol; annar kom í morugn.
Otur býst á viðar.:Arinbjörn hers-
ir og Hávarður ísfirðingur fóru
út í gær.
Farþegar
með Goðafossi vestur og norður
í gærkveldi: Adda Kristjánsson,
Ingibjörg Loftsdóttir, Guðm. Karl
Pétursson læknir og frú, Ragn-
heiður Torfadóttir, Sæmundur
Þórðarson, Pétur Sigurðsson, Páll
Pálsson, Ingvar Guðjónsson, Þórð-
ur Oddsson, Stefán Ingvarsson,
Magnús Petersen, Halldór (Bene-
diktsson og margir fleiri.
Landsmálafél. Vörður
heldur fund annað kvöld kl.
8Guðm. Asbjörnsson bæjarfull-
trúi hefur urmræður um rafmagns-
málin.
LeikhúsiS.
Leikfélagið sýndi í gærkveldi
fyrir troðfullu húsi áhorfenda
hinn bráðskemtilega skopleik
„Þorlák þreytta". Næsta sýning
verður annað kveld.
S. G. T.
heldur dansleik í Góðtemplara-
húsinu laugadaginn næstk. Ein-
göngu eldri dansarnir. Sjá augl. í
blaðinu í dag.
Útvarpið í kveld:
19.10 Veðurfr. 19.20 Lesin dag-
skrá næstu viku. 19.30 Þingfréttir.
20.00 Fréttir. 20,30 Frá útlöndum.
20.55 Einleikur á fiðlu (Þórarinn
Guðmundsson). 21.20 Útvarps-
hljómsveitin leikur. 21.45 Hljóm-
plötur: Danslög (til kl. 22).
Jarðarför elsku sonar okkar,
Ólafs Sumarliöa,
i fer fram frá dómkirkjunni laugardag 16. þ. m. og liefst kl.
i 1 e. li. frá Óðinsgötu 20 A.
Kristín Ingimundardóttir. Gamaliel Ivristjánsson.
Til Hallgrímskirkju í Saurbæ. Gengið í dag.
Afh. af sr. Sigurjóni Guðjóns- Sterling'spuixl . Kr. 22.15
syni, áheit frá Sig. Ó. Sigurðssyni, Dollar • — 4-48
Rúfeyjum, Breiðafirði, 5 kr„ frá 100 ríkismörk • — 179-72
V. 10 kr. Úr safnbauk á Ferstiklu — franskir frankar • — I5-I3
7. sept. ’37 kr. 31,20. Móttekið í — belgur • — 75-50
bréfi frá S. K., Stykkishólmi, 20 — svissn. frankar . . — 103.09
kr. Frá J. Þ. Akranesi nýtt áheit — finsk mörk ,... • — 9-95
50 kr. og gamalt áheit frá sama 5 — gyllini . — 247.61
kr. Afh. af Gísla í Lambhaga á- — tékkósl. krónur . • — I5-98
heit frá S. G. 10 kr. Kærar þakkir. — sænskar krónur . . — 114.36
Ól. B. Björnsson. — norskar krónur . . — 111.44
— danskar, krónur . . — 100.00
Hafliði M. Sæmundsson:
Skólar fyrir aförotaliörn og noglfnga á Englandi.
Frli.
Skóli þessi var upprunalega
einkastofnun, sem tók fyrst til
starfa 1848 í gamalli byggingu.
Núverandi bygging var reist um
aldamótin, og tók til starfa 1903.
Með barnalöggjöfinni 1908 var
hann svo viðurkendur af hinu op-
inbera. Skólanum fylgir mikið
landrými og árlega stækkar hann
matjurtagarða sína. Leiksviðin eru
prýðileg. Með þeim viðbótarbygg-
ingum, sem gerðar hafa verið, er
skólinn nú reisuleg og fullkomin
bygging og í röð hinna fremstu af
þessu tagi.
Nemendurnir stunda bóklegt
nám til 14 ára aldurs. Eftir þann
tíma gegna þeir ýmsum störfum
við skólann, sem fela í sér verk-
legt nám. Venjulega er faglærður
maður í verki með þeim.
Kenslustofur skólans eru í engu
frábrugðnar venjulegum kenslu-
stofum, en í satnbandi við þær eru
smærri vinnustofur eða herbergi
fyrir vinnubrögð í sjálfum náms-
greinunum. Sem dæmi um það
skal eg reyna að lýsa „modeli“,
sem drengirnir höfðu búið til af
ensku héraði, í sambandi við
kenslu í landfræði, reikningi o. fl.
námsgreinum. Á miðju gólfi í
vinnustofunni stendur lágt borð úr
óunnum viði og tekur fyllilega
helming of gólfrými stofunnar. Er
manni verður litið yfir b.orðplöt-
una, sér maður heilt hérað á Eng-
landi í smækkaðri mynd, hús,
járnbrautir, vegi, námur, skóga,
akra og engi. Þegar stutt er á raf-
magnskveikjarann (slökkvarann),
fara járnbrautarvagnarnir af stað
og þjóta yfir brýr og gegn um
undirgöng, alveg eins og í veru-
Ieikanum. Á bak við þetta liggur
mikið meiri vinna en menn gerá
sér í hugarlund í fyrstu. Allir
nemendumir hafa unnið að þesstí
meira og minna. Reynt er að hafá
eftirlíkingu þessa í sem réttustum
hlutföllum. í sambandi við landa-
fræðikenslu er gerður uppdráttur
af héraðinu og merktir inn allir
helstu staðir eftir ákveðnum mæli-
lcvarða. Eftir þessum uppdrætti er
svo landið búið til úr krossviði og
Ieir. Síðan eru lagðir vegir og
járnbrautarteinar, smíðaðar brýr
og hús. Spegill er látinn tákná
vötn og ár. Til þess að fá þettá
rétt, þarf mikinn útreikning. Járn-
brautarvagnarnir og teinarnir eru
smíðaðir. af drengjunum sjálfum
og nákvæmlega reiknað út, hve
langt megi vera milli bindinganna
LtR 'A.''_________________________________________________
Hagkvæm innkaup á
Búsáhöldum
GlerTörnm
gera húsmæður bæjarins
eins ogað undanförnu
hjá
f;.