Vísir - 07.01.1938, Side 3
V í S IR
RauOliðar ganga sameinaðir
til kosninga hér í bænum
30. janúar.
Saieisiileiur llsii var samitur á lulltrúaráðÉudi uerkalýðstél. í isr.
w
Afundi í fulltrúaráði verklýðsfélaganna, sem
haldinn var í gær var samþykt að hafa sam-
eiginlega lista við bæjarstjórnarkosningarnar
með kommúnistum og eru þessir efstu menn listans,
eftir því, sem blaðið hefir frétt:
Stefán Jóh. Stefánsson,
Ársæll Sigurðsson,
Soffía Ingvarsdóttir,
Jón Axel Pétursson,
Bjöm Bjarnason,
Héðinn Valdimarsson,
Einar Olgeirsson,
i Haraldur Guðmundsson.
Annar, fimti og sjöundi mað-
urinn af þessum, sem hér liafa
verið taldir, eru kommúnistar,
en Haraldur Guðmundsson er
hafður i harátlusætinu.
Þjóðviiljinn, blað kommún-
ista, birtir í morgun fregnir
um samfylkinguna og hrósar
happi. Hitt er annað mál,
hvort ánægjan er jafn almenn
meðal sósíalista.
Fundurinn í gær var lang-
ur og liarður, en fyrirsjáan-
legt var, að Héðinn og lians
lið mundi vinna.
„Rólega deildin“ benti á,
að liér væri um hreint og
beint stefnuskrárbrot að
ræða, ef gengið væri til kosn-
inga undir einu merki með
kommúnistum. Héðinn og
hans lið liélt því fram á
móti, að nauðsyn hryti lög
og töldu von um, eða jafn-
vel vissu fyrir, að samfylk-
ingarlistinn yrði ofan á og
ekki væri liorfandi i það, þö
að meira og minna óákveðn-
um stefnuskráratriðum væri
stefnt i voða.
Héðinn bygði sitt mál ekki
síst á sigurvonunum, og er
hætt við, að hann eigi eftir
að finna til afleiðinganna af
þeirri blekkingu sinni, þeg-
ar kjördagurinn er liðinn.
Hvað gerir nú „rólega deild-
in“? munu margir spyrja.
Heyrst hefir, að það sé ofar-
lega í huga margra sósíalista,
sem telja sig til hægfara arms-
ins, að hjóða fram nýjan lista,
þar sem á verði eintómir Al-
þýðuflokksmenn. Þessir menn
segja sem svo, að það sé ólijá-
kvæmilegt, að gera verði reikn-
ingsskil innan Alþýðuflokks-
ins, en fyrst svo sé, sé jafngott
að gera þau nú þegar.
Aftur mun nokkur liluti
hinna hægfara vilja bíða og
sjá, og vita hvort ekki er hægt
að bjarga flokknum öllum frá
kommúnistum og Héðni, eftir
kosningarnar, sem þeir telja
að muni ljúka með fullum ó-
sigri þessa lista.
En það mun víst, að mikill
fjöldi manna úr Alþýðuflokkn-
um mun ekki kjósa sameining-
arlistinn, heldur sitja heima
eða skila auðum seðli.
BæjarstjðrnarkosnlBsir
ít ub! land.
Rauðliðar ganga sameinaðir til
kosninga á ísafirði.
Isafjörður, 6. jan. FÚ.
Alþýðuflokkurinn og Komm-
únistafloklcurinn á ísafirði hafa
gert með sér málefnasamning
og birt sameiginlegan lista til
næstu bæjarstjórnarkosningar á
staðnum. — Tíu efstu menn
listans eru:
Finnur Jónsson, Hannibal
Valdimarsson, Eyjólfur Árna-
son, Grimur Kristgeirsson, Guð-
mundur Hagalín, Helgi Hannes-
son, Halldór ólafsson, Guð-
mundur Bjarnason, ólafur
Magnússon og Sverrir Guð-
mundsson.
Kommúnistar skipa þriðja og
áttunda sæti á listanum.
Stjórnmálafundir í Eyjum.
Vestmannaeyjum, 6. jan. FÚ.
Tvö undanfarin kvöld hafa
staðið yfir stjórnmálafundir i
Vestmannaeyjum. — Fyrri
fundurinn, sem var haldinn á
þriðjudagskvöld boðuðu þeir
Jónas Jónsson alþingismaður
og Eysteinn Jónsson fjármála-
ráðherra. Var fundurinn hald-
inn i Nýja híó og sóttu Iiann um
500 manns. — Að loknum þeim
fundi konni saman um 50
manns og ákváðu að Framsókn-
arflokkurinn skyldi leggja fram
lista til næstu bæjarstjórnar-
kosninga í Vestmannaeyjum.
í gærkveldi efndu Alþýðu-
floklcurinn og Kommúnista-
flokkurinn til fundar i Alþýðu-
húsinu. Fulltrúar allra stjórn-
málaflokka í Eyjum sóttu fund-
inn. Ræðumenn voru:
Af liálfu Alþýðuflokksins Páll
Þorbjarnarson, af liálfu Fram-
sóknarflokksins Jónas Jónsson
og Eysteinn Jónsson, af hálfu
Kommúnistaflokksins Isleifur
Högnason og Jón Rafnsson, af
hálfu Sjálfstæðisflokksins Ást-
þór Matthíasson, Ólafur Auð-
unsson og Ársæll _Sveinsson og
af liálfu Þjóðernissinnaflokks-
ins Vigfús Jónsson, Sigurður
Scheving og Karl Kristmanns-
son.
Sjálfstæðisflokkurinn hefir
lagt fram lista sinn til hæjar-
stjórnarkosninga í Norðfirði.
Níu efstu menn eru:
Þórður Einarsson, Guðmund-
ur Sigfússon, Tómas Zoega,
Sveinn Sigfússon, Stefán Ei-
ríksson, Karl Karlsson, Gísli
Eilinjju Flskimíli'
lefidar.
T7 erið er að endurnýja Fiski-
* málanefnd þessa dagana,
og er að rnestu lokið tilnefn-
ingu í nefndina.
Útvegsbanki Islands, Lands-
bankinn, S.I.S., Fiskifélagið og
Alþýðusambandið hafa tilnefnt
þá sömu, sem áður voru full-
trúar þessara stofnana í nefnd-
inni, eða þá Helga Guðmunds-
son,Júlíus Guðmundsson, Páhna
Loftsson, Jón Axel og Kristján
Bergsson.
Togaraeigendur hafa aftur
á móti skift um mann, og til-
nefna nú Þorleif Jónsson fram-
kvæmdastjóra i Hafnarfirði.
Atvinnumálaráðherra á að
tilnefna formanninn, og hefir
Héðinn Valdimarsson gegnt
þeirri stöðu. Ekki er enn vit-
að, livort Héðinn verður áfram,
en hann mun langa til að
lilaupa frá öllu saman, nú, þeg-
a*r allar fjárreiður og fram-
kvæmdir nefndarinnar eru
komnar i botnlausa óreiðu
undir stjórn hans.
E« s. Snæfell
strandadi vid
Saltlielmen,
en náðist á flot
aftup.
Kaupmannahöfn, 1. jan. — FÚ.
Gufuskipið „Snæfell“ sem á
þriðjudagsnótt kendi gi-unns við
Saltholmen, niáðist á flot í dag
af björgunarskipi. Var farið
með skipið inn til Kaupmanna-
hafnar, þar sem ætlanin er að
láta kafara rannsaka hvað orðið
hefir að skemdum.
Fréttaritari útvarpsins hefir
fengið að vita að „Snæfell“ stóð
allhátt á grýttum botni, en þó
er ekki talið að um alvarleg'ar
skemdir á skipinu sé að ræða.
aðeins Loftur.
Bergsveinsson, Þorsteinn Ein-
arsson og Sævaldur Konráðs-
son. (FÚ).
I gærmorgun var 3500 kr.
stolið úr mannlausu herbergi á
Bergstaðastræti 8, og áttu pen-
ingana Jón Guðlaugsson, fisk-
sali og Kristvin Guðbrandsson,
verkamaður. Voru peningarnir
í umslögum og geymdir i fata-
skáp, en einföld læsing er á her-
herginu.
Peninganna var fyrst saknað
um hádegið í gær.
Lögregan rannsakar málið af
kappi, en hafði ekki haft uppi á
sökudólginum um liádegisbilið,
er Vísir átti tal við Svein Sæ-
mundsson.
ÚT V ARPSUMRÆÐUR
UM NORÐURLÖND
OG UMHEIMINN.
Kaupmannahöfn, 1. jan. — FÚ.
Þann 25. þessa mánaðar kl.
5.30 til 7.15 eftir íslenskum
tíma fer framídanska útvarpinu
viðræða um samband Norður-
landanna við umlieiminn og
sameiginleg málefni og inn-
hyrðis viðskifti Norðurland-
anna. I viðræðu þessari taka
þátt fulltrúar frá öllum Norð-
urlöndum og verður Jón Krahhe
fulltrúi þátttakandi fyrir Is-
lands liönd.
BÓKASAFN
DR. BEN. S. ÞÓRARINSSONAR
Kaupmannahöfn, 1. jan. — FÚ.
I sænska blaðinu „Dagens
Nylieter“ í Stokkhóhni hirlist
i gær grein eftir Sven Janson
sendikennara um bókasafn dr.
Benedikts Þórarinssonar. Lýsir
liöfundurinn bókasafni . Bene-
dikts og bókasöfnun rækilega
og skýrir frá þvi að þetta sé
stærsta bókasafn á íslandi i
einkaeign og mjög merlcilegt
fyrir margra liluta sakir. —
RAMASTI ANDSTÆÐINGUR
ROOSEVELTS,
I HÆSTARÉTTI U. S. A.
, FER FRÁ EMBÆTTI.
Einn af dómurunum í liæsta-
rétti Bandarikjanna, Suther-
land að nafni, hefir sagt af sér
embætti, en hann er orðinn 75
ára. Sutherland hefir ætíð verið
mjög afturhaldssamur, og var
meðal þeirra sem heittu sér
framan af gegn viðreisnarlög-
gjöf Roosevelts.
Eftiplit með vanfærnm kon-
um og böfnum á fyrsta ári.
Eftir I»upíöí
Framh.
hver í sínu umdæmi. Hverjum
skyldi vera hugleiknara að alt sé í
lagi, þegar fæðingu ber að, en ljós-
móðurinni ?
Fyrst og fremst er umhyggjan
fyrir móður og barni, svo og á-
byrgðin, sem á ljósmóðurinni hvíl-
ir viS hverja fæöingu, sem! hún er
kölluð til. Þá er almenningsálitið,
sem henni verður þó að. sjálfsögðu
að falla léttast. Þó að margvíslegri
hættu sé afstýrt, finst engum það
nema sjálfsagt, ef alt gengur vel,
en ef eitthvað ber út af, þótt eng-
inn geti að gert, þá er æfinlega
spurt, hvaða ljósmóðir hafi verið
hjá konunni, og þá í þeim tón, að
ekki er hægt að misskilja, hvað átt
er við.
Þar sem lögboðnar sjúkratrygg-
ingar eru, eins og nú hér í Reykja-
vík, og hvert mannsbarn svo að
segja hefir sinn fasta lækni, finst
mönnum ef til vill óþarfi, að ljós-
mæður séu að skifta sér af þess*
Bápdapdóttup.
ari grein heilbrigðismálanna fyr en
þær eru kallaðar til fæðinga. Það
skal fúslega játað, að.ein af. góðum
hliðum sjúkratrygginganna er, að
konur í þessum kringumstæðum
hafa sinn heimilislækni að flýja til,
en einnig hér er skoðun vor sú, að
með góðri samvinnu við læknana
verði þessu eftirliti mæðra best
borgið í höndum ljósmæðra. Munu
og flestir læknar, sem eftirsóknar-
verðir þykja, vera svo störíum
hlaðnir, að þeir hafa ekki tíma af-
gangs til að vitja margra óléttra
kvenna mörgum sinnum um með-
göngutímann.
Talið er, að hjá Ameríkumönn-
um sé þessu eftirliti komið í best
horf, enda hafa þeir og fyrstir
manna komið á hjá sér reglubund-
inni almennri heilsuvernd. Hafa þar
og ýms félög tekið þessi mál á
stefnuskrá sína. Einnig eru þ{ir og
víða lækningadeíldir og sjúkrahús
fyrir mæður.
Hefir þessi starfsemi boriö sro
góðan árangur fyrir mæður og
böm, að eftirtektarvert þylcir og
hefir norskur læknir, dr. med. Kjel-
land Mördre, sem er ritstjóri ljós-
mæðrablaðsins norska, látið svo um
mælt, að þessi starfsemi gæti í öll-
um aðalatriðum verið til fyrir-
myndar um eftirlit rnæðra eins og
Norðmenn hafi hugsað sér það. í
grein, sem þessi sami læknir skrif-
ar í Ljósmæðrablaðið norska, þar
sem hann gerir þetta mál að um-
talsefni, farast honum orð í niður-
lagi greinarinnar á þessa leið:
„Eg lít svo á, að vel rnentað-
ar ljósmæður ættu að taka hönd-
um saman við læknana og koma
á reglubundinni heilsuvernd. Að
svo miklu leyti, sem eg fæ séð,
er einmitt þessi samvinna sjálf-
sögð og eðlileg hvað snertir
heilsuvernd barna og vanfærra
kvenna. Álit mitt er, að það væri
bæði ljósmæðrunum og málefn-
inu fyrir bestu, að þær tækju
málið í sínar hendur og Ljós-
mæðrablaðið tekur fúslega grein-
ar frá ljósmæðrum um þetta
mál.“
Þá get eg ekki látið hjá líða að
geta þess, að þrátt fyrir þær miklu
framfarir, sem orðið hafa hjá Ame-
ríkumönnum á þessu sviði í seinni
tið, eru þeir ekki komnir svo langt,
að þeir séu ánægðir með árangur-
inn, hvað dánartölur fæðandi
kvenna snertir. — T. d. sagði mér
ungur íslenskur læknir, sem starf-
ar í Kaupmannahöfn, að fyrir
rúmu ári síðan var amerískur lækn-
ir í heimsókn á Fæðingardeild Rík-
isspítalans þar, og spurði hann einn
danskan prófessor eitthvað á þessa
leið: „Hvað getum við (Ameríku-
menn) gert til að draga meira úr
dánartölu fæðandi kvenna en okk-
ur hefir tekist hingað til?“ Svar
danska prófessorsins var: „Fáið
þið ykkur vel mentaðar ljósmæður
og látíð þær annast um fæðingarn-
ar meira en þið gerið nú og sjáið
svo hvernig fer.“*)
Þá vil eg víkja að siðara atrið-
inu, eftirliti með börnum á fyrsta
ári.
Það er sanni næst, að ekki eigi
nokkur þjóð slíka sögu um barna-
dauða á fyrsta ári og Islendingar.
*) 1 Ameríku er mjög lítið um
ljósmæður; þar annast læknar flest-
ar fæðingar, með aðstoð hjúkrun-
arkvenna eða hjálparkvenna.
Á nítjándu öld er dánartala barna
á fyrsta ári svo gífurleg, að efast
má um að dæmi séu til annarsstað-
ar, en hvernig þetta getur tekið svo
stórfeldum breytingum til hins betra
eins og hér verður um og eftir síð-
ustu aldamót og fram til síðustu
ára, er a‘S líkindum eins sjaldgæft
í sögu annara þjóða. Þótt kunnugt
sé, að um aldamótin siðustu verða
hér margvislegar breytingar á hög-
um almennings, sem verða þess
valdandi, að heilbrigðisástandið fer
batnandi að mörgu leyti; mætti ef-
ast um, að það sé eingöngu því að
þakka, að svo vel tókst til, sem
raun varð á, heldur því, að hér í
Reykjavík og víðar á landinu eru
læknar, sem hafa látið sig þessi mál
miklu skifta og vil eg þar sérstak-
lega tilnefna Guðm. Björnson
landlækni, sem þá er héraðslæknir
i Reykjavík og landlæknir skömmu
eftir aldamót, og tekur þá við Ijós-
mæðrakenslunni með sínum alþekta
dugnaði og brennandi áhuga fyrir
velferð barnanna, bæði alinna og ó-
borinna. Minnist eg meðal annars í
þessu sambandi eins viðtals við
hann. Það var í október 1905 að
eg færði það í tal við hann, hver
væri orsök þess, að svo mörg böm
BæjctF
fréftír
Veðrið í morgun.
í Reykjavík —3 stig, mestur
hiti í gær 2 st., mest frost í nótt
2 stig. tJrkoma 1.9 mm. Yfirlit:
LægS milli Skotlands og Færeyja
á hreyfingu í su'öaustur. önnur
lægð við S.-Grænland á austur-
leið. Horfur: Hæg austanátt í dag,
en sennilega allhvast á undan og
snjókoma í nótt.
Skipafregnir.
Gullfoss er í Leith. Goðafoss,
Brúarfoss og Lagarfoss í Kaup-
mannahöfn, Dettifoss í Hull, Sel-
foss í Reykjavík. Esja kom í gær-
kveldi en Súðin í nótt. Ingerto,
kolaskipið, fór í gærkveldi áleiðis
til New York. Great Hope fór í
morgun.
*
Ægir
kendi granns á innsiglingunni til
ísafjarðar í fyrrinótt. Fyrir nokk-
urum árum kendi skipið granns
á sama stað. Sandbotn er þarna
og hættulaust með öllu. Kom Æg-
ir að vestan í morgun.
Hjónaefni.
Opinberað hafa trúlofun síná
ungfrú Sigríður Guðmundsdóttir,
Austurgötu 4, Hafnarfirði og hr.
Óskar Sigurðsson frá Stokkseyri.
Ármenningar!
Æfingar falla niður hjá öllum
flokkum félagsins í kvöld, vegna
afmælishátíðarinnar.
Aflasölur.
í gær seldi í Hull Þórólfur 1686
vættir fyrir 760 stpd., Ólafur í
Grimsby 1000 vættir fyrir 697
stpd.
Heimilisiðnaðarfélag íslands
byrjar í dag tvö ný námskeið
í handavinnu kvenna. Bæði nám-
skeiðin eru þegar fullskipuð. Nem-
endur verða 51 samtals. — Áður í
vetur, eða á tímabilinu frá 8. okt.
til 20. des. hefir Heimilisiðnaðar-
félagið haldið alls fimm námskeið.
Hafa tekið þátt í þeim samtals
124 konnr og ungar stúlkur, þar
af 100 húsmæður og hafa þær eins
og að undanförnu gengið fyrir á
þeim námskeiðum, sem haldin eru
fram til jóla. Viðfangsefni náms-
meyja hefir, eins og að undan-
förnu, verið fatasaumur, prjón,
hekl, og leðurvinna. Hafa alls ver-
ið búnar til rúmlega 700 flikur og
auk þess unnir allmargir leður-
rnunir. Frú Guðrún Pétursdóttir
hefir veitt öllum þessum nám-
skeiðum forstöðu, en aðrar kenslu-
konur hafa verið: ungfrú Bryn-
hildur Ingvarsdóttir, ungfrú Þór-
ey Skaftadóttir, frú Guðrún Ás-
mundsdóttir og frú Soffía Björns-
dáttir. — ITúsnæði fyrir námskeið-
in hefir félagið á Hverfisgötu 4.
N æturlæknir:
Kristján Grímsson, Hverfisgötu
39, sími 2845. — Næturvörður í
Laugavegs og Ingólfs apótekum.
dæju hér í Reykjavík þessa dagana
og hvort hér væri nokkur farsótt á
ferðinni, sem væri því valdandi.
„Nei,“ .sagöi læknirinn. „Eg skal
segja y'Öur hvernig ástatt er. Það;,
er seti'Ö yfir konunum, en ekkert
eftirlit haft með þeim um með-
göngutímann, þeim er ekki hjúkr-
að nægilega í sængurlegunni, ekk-
ert eftirlit er með börnunum á
fyrsta ári, fyr en þau eru orðin
veik, þá fyrst er læknirinn sóttur
og allur almenningur kann ekkert
með börnin að fara.“
Ennfremur sagði læknirinn: —
„Það er æfinlega mestur barna-
dauði hér í Reykjavík haust og vor
og stafar það mikið af því, að þá
höfum við ekki næga nýmjólk
handa börnunum, kýrnar eru of fá-
ar hér í Reykjavík og nágrenni til
þess að hægt sé að fá alveg ný-
mjólkaða mjólk, helst kvelds og
morguns, í staðinn fyrir það verð-
um við að kaupa aðflutta mjólk,
sem auðvitað er ekki ný, þegar hún
kernur til neytandans. Það er margt,
sem þarf að gera fyrir börnin okk-
ar“, segir læknirinn, „en að mínu
áliti er fræðsla almennings í þessu
eins og svo mörgu öðru, mjög þýð-
Niöurl.