Vísir - 12.04.1938, Blaðsíða 3
V I S I R
Ábyrgðarleysi stjornarflokkanna
og réttaröryggi einstaklingsins.
AÐ mun ekki ofsagt þótt
fullyrt sé, að Alþingi það er
nu situr, muni ekki marka djúp
spor í þróunarsögu þjóðarinnar.
Þessi virðulega stofnun mun
því miður ekki auka neitt á
virðingu sína lijá þjóðinni að
þessu sinni, en hitt mun sanni
nær, að það virðingarleysi sem
einstaka menn liafa látið í ljósi
fyrir þinginu muni grípa um sig
enn frekar, en orðið er, og er
það illa farið.
Á Alþingi eiga sæti kjörnir
fulltrúar þjóðarinnar, sem eiga
að valca yfir veferð hennar og
hag, og þeim mun ríkari er sú
skylda og auðsærri, sem tím-
arnir eru erfiðari og liarðari
kreppa í þjóðlífinu.
Hinni íslensku þjóð hafa
verið hundnir þungir haggar á
undangengnum árum, en með-
an atvinnuvegirnir stóðu í
blóma gat það verið eðlilegt og
sjálfsagt, en þó þvi aðeins að
ekki væri krept að þeim um of.
En hafi sú orðið raunin á að of
nærri hafi verið gengið at-
vinnuvegunum, er það einnig
augljóst mál að enginn getur
ætlast til að þeir beri áfram
þær þungu álögur á erfiðu tim-
unum, sem urðu þeim ofviða i
góðærunum, og loki Alþingi
augunum fyrir þeim einföldu
sannindum og hafist ekki að í
þessu efni, hrýtur það í hág við
réttarmeðvitund þjóðarinnar og
aflar sér virðingarleysis í stað
virðingar. Þótt Alþingi eigi á
sér heilagan rétt á það einnig
ríkari skyldur gagnvart þjóð-
inni en aðrar stofnanir, og til
þess á þjóðin að gera stærstar
kröfur.
Sú var tiðin að þeir flokkar,
sem nú sitja að völdum og hafa
setið siðustu 10 árin, gerðu gys
að fulltrúum Sjálfstæðisflokks-
ins er þeir hentu á að óvarlega
væri farið i fjármálunum og at-
vinnumálunum, en í því efni
sem öðrum væri kapp hest með
forsjá. Þessir flokkar reyna enn
i dag að sýna fram á og sanna,
þvi komist að allir flokkar sam-
einuðust til að ráða fram úr
vandanum. Socialistar lýstu
hinsvegar yfir þvi að þeir
rnyndu ekki styðja slíka þjóð-
stjórn og sýndu þar sem fyr á-
byrgðarleysi sitt gagnvart þjóð-
iuni.
Ef það er rétt hjá forsætis-
ráðherranum að tímarnir séu
eins alvarlegir og hann vildi
vera láta, myndi það ekki vera
óeðlilegt að einliverrar stefnu-
breytingar yrði vart hjá núver-
andi stjórn, en því fer fjarri að
svo sé. Áfram er haldið á
eyðslubraulinni og ekkert skor-
ið við neglur. Núverandi stjórn
her enn fram eittlivert hæsta
fjárlagafrumvarp, sem þekst
hefir og einkis sparnaðar gætir
i ríkisrekstrinum að öðru leyti.
Svo virðist einnig sem meiri
hluti Framsóknarflokksins
gangi erinda Kommúnista í
ýmsum greinum, og láti sér svo
umhugað um það, að gengið er
þar beinlínis á svig við tillögur
allra þeirra einstaklinga og
stofnana, sem um málin hafa
fjallað. Er það núverandi at-
vinnumálaráðherra sem lengst
liefir gengið í þá átt að lierða
að einstaklingunum og atvinnu-
fyrirtækjum með liinu fárán-
Iega frumvarpi sínu um birt-
ingu efnahagsreikninga. Brýtur
hann þar beint í bág við þau
skráðu og óskráðu lögmál, sem til
þessa hafa gilt í menningarríkj -
um um að vernda einstakling-
inn og fjárhagsmálefni hans
svo sem unt er. — 1 frv. sínu
gengur atvinnumálaráðh. inn á
þá braut að gera einstaklingana
og atvinnurekendurna réttlausa
og ofurselda ofsóknum póli-
tískra sérgæðinga, enda mun
slík lagasetning engan eiga
sinn líka, nema ef til vill í hin-
um kommúnistisku þjóðskipu-
lögum.
Að þessu frv. mun verða vik-
ið sérstaklega síðar, en hitt er
rétt að leggja áherslu á, að það
þing, er nú situr, her á sér hlæ
kommúnistisks ofsóknaræðis,
en elcki heilbrigðrar skynsemi
áhyrgra manna á alvörutímum.
Verslunarmanna-
félag Reykjavíkur
hélt fund í gærkveldi, er var
mjög fjölsóttur. — Björn Krist-
jánsson, fyrverandi alþm. og
lieiðursmeðlimur félagsins hélt
langan fyrirlestur, er hann
nefndi: Atvinnuvegir og kosn-
ingaréttur.
Gerði liann grein fyrir þróun
löggjafarinnar frá þvi árið
1874 og til þessa dags, breytingu
á atvinnuvegum og atvinnu-
liáttum, þróun verklýðssamtak-
anna og misnotkun á þeim frá
hendi pólitsíkra forsprakka, og
þeirri barálu sem háð væri inn-
an þjóðfélagsins í þvi augna-
míði að koma kaupmönnum og
atvinnurekendum á kné. Þá vék
hann og að lýðræðisfyrirkomu-
laginu, flokkunum sem sigldu í
kjölfar þess og mynduðu með
harðvítugri innbýrðis baráttu
grundvöllinn fyrir einveldi, sem
isigrast liefði á lýðræðinu í sum-
um menningarlöndum. Taldi
hann þessarar einræðishneigð-
ar gæta nokkuð í voru landi,
en að eina lausnin á þeim vand-
kvæðum væri náin samvinna at-
vinnurekenda til sjávar og
sveita, enda væri ekkert auð-
veldara en að samræma þá
liagsmuni, sem til þessa hefðu
rekist á.
Vék liann því næst að þeim
leiðum, sem hann taldi sam-
kvæmt reynslu sinni lieppilegt
að farnar væru til viðreisnar
þjóðlifinu og til tryggingar
sjálfstæði landsins, sem enn
væri óheimt að nokkru.
Þökkuðu fundarmenn erindið
með djmjandi lófataki.
Þá tók Ólafur Thors til máls
og þakkaði erindið. Lýsti liann
þróun og viðgangi Sjálfstæðis-
flokksins og' afstöðu hans til
þeirra vandamála, sem efst
væru á baugi. Sýndi liann fram
á það með rökum, að þrált fyr-
ir einræðishneigð annara
flokka væri Sjálfstæðisflokkur-
inn öruggasta vígi lýðræðisins i
landinu og ykist að fylgi með
ári hverju vegna hinnar heil
hrigðu haráttu sinnar i þjóð-
málunum.
Frekari umræður munu hafa
orðið um erindið og, stóð fund-
urinn lengi.
Bílslys.
í gær um kl. 2)4 varð bílslys á
gatnamótum Bankastrætis og Lækj-
argötu með þeim hætti, að Valgerð-
ur Gísladóttir á Svanastöðum var
að ganga niður Bankastræti og ók
þá á hana bíll, er var á leið norð-
ur Lækjargötu og handleggsbrotu-
aði Valgerður. Bílstjórinn hélt leið-
ar sinnar án þess að skeyta um Val-
gerði, en vegfarendur hjálpuðu
henni inn á Iiótel Heklu og var þar
bundið um brotið.
Af veiðum
kom í morgun: Belgaum með 108
föt lifrar og Kári með 102 föt.
BæjcfF
fréffír
Veðrið í morgun.
í Reykjavík 9 stig; heitast í gær
11 stig, minstur hiti í nótt 8 stig.
Úrkoma í gær 0.3 mm. Sólskin í
1.1 stund. Heitast á landinu í morg-
un 14 stig, í Fagradal, minstur hiti
7 stig, í Vestmannaeyjum, Sandi,
Raufarhöfn og Papey. Yfirlit: All-
djúp lægð yfir Grænlandi á hægri
hreyfingu í norðaustur. Horfur:
Faxaflói.: Sunnan og suðvestan
kaldi. Rigning öðru hverju.
Þýski sendikennarinn,
dr. Betz, flytur næsta háskóla-
fyrirlestur sinn í kvöld kl. 8. Hann
fjallar um Hanns Johst, E. W. Möl-
ler og útisjónleiki.
Sigurður Fjeldsted,
bóndi í Ferjukoti, andaðist í gær,
en hann hafði átt hin síðari árin
við þunga vanheilsu að stríða.
Til fólksins,
sem húsið fauk ofan af: 5 kr.
frá K. Þ. L.
Áheit á Strandarkirkju,
afhent Vísi: Kr. 3.50 frá N. K.,
2 kr. frá ónefndum, 5 kr. frá
Björgu, 2 kr. frá J. S., 10 kr. frá
ónefndum, 10 kr. frá G. S., 2 kr.
frá konu.
Skipafregnir.
Gullfoss er á leið til Leith frá
Vestmannaeyjum. Goðafoss er í
Hamborg. Brúarfoss er væntanleg-
ur kl. 6 í kvöld frá útlöndum. Detti-
foss var í Vestmannaeyjum í morg-
un á útleið. Lagarfoss kom til Leith
í morgun. Selfoss er á leið til
Reykjavíkur frá Hull.
Tímaritið Þjóðin.
Afgreiðslu ritsins annast Þórður
Þorsteinsson hjá dagblaðinu Vísi,
sími 3400. Nýir kaupendur gcfi sig
fram við hann.
í gærmorgun II
komu af veiðum til Hafnar-
fjarðar: Garðar með 132 tunnur
lifrar, línubátarnir Hermóður og
Jökull með 50 skippund hvor, og
Sviði meÖ 62 föt lifrar. — Leitaði
skipið aðallega hafnar vegna bil-
unar á gálga. (FÚ.).
Fjöldi manns
er væntanlegur hvaðanæfa að á
skíðaviku Isfirðinga, sem hefst 14.
þ. m. Asahláka hefir veriS undan-
farna daga og alautt er orðið í bygð
við Djúpið, en mikill snjór er enn
á Seljalandsdal, sem liggur milli 1
og 2 hundruð metra yfir sjó og ör-
æfunum fram af dalnum. 1 gær var
farið á skiðum milli ísafjarðar og
Önundarfjarðar. í dag var sólskin,
en lítil leysing til fjalla. (FÚ.).
Mjólkurpóstar teknir.
í gær tók Björn Bl. Jónsson, lög-
gæslumaöur, 2 mjólkurpósta, setft
voru á leið til bæjarins með mjóllc.
Var mjólkin flutt i Mjólkurstöðina
við Hringbraut og helt saman við
aðra mjólk.
Gengið í dag.
Sterlingspund ........ kr. 22.15
Dollar ............... — 4.47
100 ríkismörk........... — 179.28
— fr. frankar....... — 13.99
— belgur............... — 75.25
— sv. frankar....... — 102.59
— finsk mörk........ — 9.95
— gyllini ...;......... — 247.70
— tékkósl. krónur .. — 15.88
— sænskar krónur .. — 114.31
— norskar krónur .. — 111.44
— danskar krónur .. — 100.00
Hjónaefni.
Nýlega hafa opinberað trúlofun
sína ungfrú Þórdís Eiðsdóttir frá
Brandagili í Hrútafirði og Stefán
Guðmundsson frá Nýp á Skarðs-
strönd.
Næturlæknir:
Kr. Grímsson, Hverfisgötu 39,
sími 2845. Næturvörður í Lauga-
vegsapóteki 0g Ingólfs apóteki.
Póstferðir á morgun:
Frá Rvík: Mosfellssveitar-, Kjal-
arness-, Kjósar-, Reykjaness-, Ölf-
adeins Loftup.
uss- og Flóapóstar. — Til Rvíkur r
Mosfellssveitar-, Kjalarness-, Kjós-
ar-, Reykjaness-, Ölfuss- og Flóa-
póstaís : l j.
Vísir
er sex sí'Sur í dag. NeSanmáls-
sagan og Hrói Höttur eru í auka-
blaðinu.
Útvarpið í kvöld.
Kl. 19.50 Fréttir. 20.15 Erindir
Berklaveiki og berklavarnir á heim-
ilutn, III. (Sigurður Magnússon
prfessor). 20.40 Hljómplötur: Létt
lög. 20.45 Húsmæðratími: Innlend-
ar fæðutegundir, III. (migfrú Sig-
urborg Kristjánsdóttir). 21.05 Sytn-
fóníutónleikar: a) Tónleikar Tón-
listaskólans. b) (21.45) Kvartett
Op. 131, eftir Beethoven (plötur)„
22.15 Dagskrárlok.
Orðsending til útvarpsráðs.
óperulög útvarpsins eru nú nær
alveg hætt að heyrast. Þeirra
sakna eg mest eins og margiir
fleiri, sem hafa yndi af þessuni
heimsins besta söng. Þessi listrænu
og hrífandi lög megum við síst af
öllu missa af dagskránni. Eg mæl-
ist því eindregið til, a‘S háttvirt
útvarpsráð lofi hlustendum aS
njóta óperulaganna bæSi vetur og
sumar. HIustandL
að þeim verði ekki um kennt
hvernig komið sé, en tala þó
hæst um yfirvofandi rikisgjald-
þrot og allsherjarhrun atvinnu-
veganna. Þrátt fyrir allar full-
yrðingar stjórnarflokkanna í
þessu efni segir það sig sjálft
að þeir einir geta ábyrgðina
borið, sem að völdunum hafa
setið, og minnihlutaflokkum
verður þar ekld um kent. Hver
getur t. d. neitað því nú, að það
eru socialistar og Framsókn,
sem ráða úrslitum allra mála
á þingi, og að sjáfsögðu bera
þessir flokkar þyngsta ábyrgð
gagnvart þjóðinni á stjórnar-
framkvæmdum öllum. En ef
þeir hera ábyrgðina í dag hafa
þeir líka horið liana undanfar-
in ár, og þeim er um það að
kenna, sem aflaga liefir farið.
I þessu efni dugar enginn Píla-
tusarþvottur, og þeim atliöfn-
um verður ekki klínt á stjórn-
arandstæðinga, sem stjórnar-
flokkarnir hera einir ábyrgð á.
Framsóknarflokkurinn hefir
stært sig af þvi að honum væri
alt það að þakka, sem betur
hefir farið, og að liann væri
liinn öruggi milliflokkur, sem
semdi lil hægri og viustri með
stefnu flokksins i haksýn.
F orsætisráðherrann s j álf ur
viðhafði svipuð ummæli í síð-
ustu útvarpsumræðum um leið
og hann lýsli yfir þvi að sá
tími gæti verið iiærri að nauð-
syn þjóðstjórnar yrði svo knýj-
andi og jafnvel yrði ekki hjá
Stórliátiðin fex* i hönd.
Hátlðavðrurnar fáið þér bestar í Yerslaninni Liveppool.
Það er kunnara en frá þurfi að segja9
að Reykvíkingar fara ávalt allir í Verslunina LIVERPOOL fyrir hverja stórhátíð, til að kaupa hinar eigin-
legu hátíðavörur. Hið sama gera þeir einnig þegar halda á gestaboð á heimilunum. — Reynslan hefir kent
þeim það öllum, að ef það á að vera örugt að vel takist um vörugæðin, þá þurfa vörurnar að vera úr Verslun-
inni LIVERPOOL. —
Verslunin LIVERPOOL vill aðeins minna húsmæður bæjarins á að páskahátíðin nálgast, og að í dag eða á
morgun þarf að panta þær vörur í LIVERPOOL, sem nota þarf til hátíðarinnar.
Sparið tíma og fyrirhöfn, og losið yður við alla áhættu. Biðjið um vörurnar til hátíðarinnar í Versluninni
LIVERPOOL, frekar í dag en á morgun. Þér vitið, að við sendum allar vörurnar heim, kaupendum að
kostnaðarlausu. —
Símap 4201 og 1135.
Útbú* Hverfisgötu 59
Laugavegi 7Q
Sólvallagöíu 9
Baldursgötu 11
sími 4205
sími 4202
sími 4203
sími 4204