Vísir - 27.09.1938, Side 2
V I S í R
I
DAGBLAB
Útgefandi:
BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H/F.
Ritstjóri: Kristján Guðlaugsson.
Skrifstofa: Hverfisgötu 12.
Afgreiðsla: Hverfisgötu 12.
(Gengið inn frá Ingólfsstræti).
S í m a r :
Afgreiðsla 3400
Ritstjórn 4578
Auglýsingastjóri 2834
Verð 2 krónur á mánuði. '
Lausasala 10 aurar.
Félagsprentsmiðjan h/f.
Hvernig erum vér
staddir?
E'lestar þjóðir í Evrópu her-
1 væðast og búa sig undir
styrjöld. Eftir viku getur hafist.
ógurlegasti hildarleikur, sem
heimurinn hefir nokkurntima
séð. Enginn getur spáð um það
hvaða straumhvörfum nýr ó-
friður muni valda í verslun og
viðskiftum milli þjóðanna.
Þótt svona horfi, stoðar ekki
að æðrast. Fyrir íslensku þjóð-
ina er ekki annað að gera en að
taka með stillingu og karl-
mensku því sem að höndum
ber. Þeim verður aldrei ráða-
fáft, sem ekki láta hugfallast.
Það er óþarfi fyrir almenning
að fara nú þegar að gera ráð
fyrir því að skortur verði hér
á ýmsum lífsnauðsynjum, ef
ófriður skellur á. Matvælafram-
leiðsla í landinu er mikil og
engin ástæða til að ætla, að ekki
náist í mjölvöru, kaffi, sykur
og aðrar nauðsynjar, sem
flytja þarf frá útlöndum. Menn
eiga því að sýna fulla stillingu.
en ekki hræðslu og staðfestu-
leysi, með því að viða að sér
matvælum í stórum stíl eins og
hungursneyð væri yfirvofandi.
Menn verða að gæta þess, að
þær matvælabirgðir sem til eru
í Iandinu eru ætlaðar öMum
landsmönnum og það getm’
valdið skorti í svipinn, ef marg-
ir taka upp þá aðferð, sem telj-
ast verður óliæfa eins og sakir
standa, að safna að sér matar-
birgðum, meira en góðu hófi
gegnir. Þjóðin er eins og skip-
verjar á sömu skútunni. Eitt
verður yfir hana alla að ganga.
Það sem þjóðinni er mest
nauðsyn, ef til styrjaldar kem-
ur, er að geta notið forystu og
reynslu sinna bestu manna.
Henni er nauðsyn að þjóðar-
hagsmunir séu settir ofar
flokkshagsmunum. Henni er
nauðsyn að samviskusemi og
víðsýni komi í slað þröngsýni
og eiginliagsmunastreitu, sem
nú á sér stað í mörgum grein-
um ríkisrekstursins. Einokun-
ar og rikisrekstrarhugmyndir
sósíalismans hafa sýrt allan
hugsunarhátt ráðandi manna í
stjórnarflokkunum, svo að nú
eru allar pólitískar fram-
kvæmdir miðaðar við sívaxandi
afskifti og yfirráð liins opinbera
í öllum greinum.
En liið liættulegasta er þó
það, að til að stjórna hinum
pólitísku stofnunum eru oft
settir menn sem ekki eru störf-
unum vaxnir, eða slikir þver-
brestir eru á dagfari þeirra og
háttum, að valda mundi al-
þjóðarhneyksli ef borið væri
fram i dagsljósið. Fyrir slílca
menn er eklci liolt að temja sér
óbilgirni og frekju í skjóli hins
pólitiska meirihlutavalds. Það
verður ekki þolað til lengdar.
Það leikur ekki á tveim tung-
um, að þjóðin er illa búin undir
Evrópu-styrjöld. En örðugast
er þó landsmönnum, ef þeir
eiga að taka á móti öllum erf-
iðleikum, sem slyrjöld flytur í
kjölfari sínu, undir handleiðslu
þeirra mánna, sem nú fara með
stjórn. Hinn reynslulausi fjiár-
málaráðherra landsins hefir
stýrt og stýrir enn fjármálum
og viðskiftum þjóðarinnar í
átlina til fullkomins öngþveit-
is. Ástandið í þessum málum
hefir farið versnandi undan-
farin ár og það fer enn versn-
andi ef haldið er áfram á sömu
braut. Stjórnin á fjármálunum
undanfarin þrjú ár hefir verið
þjóðinni dýr. En þjóðinni er
óhætt að hiðja forsjónina ásjár
ef liinn sami fjármálaráðherra
lá að leiða hana á styrjaldar-
tímum. Það yrði vonlítil bar-
átta.
Flýtti sép í
dönskutíma
- - ók á mann.
Rélt eftir liádegisbilið í gær
ók unglingspiltur á hjólliesti á
aldraðan mann á móts við húsið
Túngötu 3 og skrámaðist niað-
urinn á höfði og fékk heila-
hristing. Valtýr Albertsson,
læknir, hefir lækningastofu sína
í liúsinu nr. 3 og var maðurinn,
Guðm. Ólafsson, Bárugötu 33,
fluttur þangað fyrst.
Pilturinn, sem ók á manninn,
er 14 ára gamall og sagði hann
sjónarvottum að slysinu, hvað
hann liéti og hvar liann átti
heima, en þeir gleymdu því. Var
drengurinn á leið í dönskutíma,
var orðinn nokkuð seinn fyrir
og var að flýta sér. Leit hann
til hliðar rétt sem snöggvast á
leið niður brekkuna, en er hann
leit við aftur var maðurinn
kominn út á götuna svo nærri
honum, að ekki var hægt að
forðast árekstur.
íKKliskapDlÉar
Mrn.
Mikill fjöldi var samankom-
inn á íþróttavellinum á sunnud.
til þess að sjá afmæliskappleika
Víkings við K. R. (Old Boys) og
Val. —
Kl. 2 hófst leikurinn milli
„old boys-flokka“ Víkings og
K. R. og var kept í 15 mín. á
hvort mark. Lauk leiknum með
jafntefli, 2:2. — Voru margir
þessara „gömlu drengja‘“ hinir
knáustu ennþá, en aðrir voru
farnir að hlaupa í spik og
stirðna og var óspart ldegið að
þeim og hinum skringilegu til-
hurðum þeirra.
Síðara leiknum lauk með
sigri Vals, 2:1 og áttu þó Vík-
ingar mjög mikið í leiknum.
Vantaði þá þó ýmsa bestu menn
sína, svo sem Gunnar Hannes-
son, Hauk Óskarsson og Ólaf
Jónsson. Val vantaði Hermann,
Frímann og Guðm. Sigurðsson.
Fyrra hálfleik áttu Víkingar
undan vindi að sækja en tókst
ekki að setja mark í þeim hálf-
leik. Selti Ingólfur Isebarn
markið fyrir Vikinga, er hann
hafði sótt fram með knöttinn
upp að markinu.
Annan laugardag halda Vik-
ingar upp á afmæli félags síns
með hófi að Hótel Borg.
aðelbs LoftuPr
Chambeplain reynir eim að miðla
málum. — Ekki öll sund lokuð til
friósamlegpap lausnar þótt útlitið sé
ískyggilegt.
EINKASKEYTI TIL VÍSIS.
London í morgun.
Chamberlain hefir gert enn þá eina tilraun til
þess að bjarga friðinum í álfunni með því að
gefa út yfirlýsingu kl. 12 y2 í nótt í tilefni af
ræðu Hitlers.
í yfirlýsingu sinni leggur Chamberlain áherslu á
það, að England og Frakkland muni líta á það sem
siðferðilega skyldu sína að vernda og hrinda í fram-
kvæmd tillögum þeirra um lausn deilanna í Tékkósló-
vakíu, þannig að fullnægjandi en friðsamleg lausn ná-
ist á þeim. Til þess að svo megi verða, án þess að til
alvarlegra árekstra komi, verði Þýskaland að fallast á
tillögurnar og þau skilyrði að landamærunum verði
breytt samkvæmt friðsamlegum samningaleiðum, en
ekki með ofbeldi.
Chamberlain lýsti yfir því, að hann myndi ekki hætta við
tilraunir sínar til þess að finna friðsamlega lausn deilanna,
enda væri það ótrúlegt og óskiljanlegt, að Evrópuþjóðirnar,
sem allar þráðu frið innbyrðis, færu að ráðast í blóðuga styrj-
öld til þess eins að jafna deilumál, sem unt væri að leysa á
annan og betri hátt, og þegar hefði náðst samkomulag um í
öllum meginatriðum.
í ræðu sinni í gær lýsti Hitler yfir því að krafa um innlimun
Súdetahéraðanna í hið þýska ríki væri síðasta krafa til landa,
sem Þjóðverjar myndu gera innan Evrópu, en innlimun þess-
ara héraða skyldi ná fram að ganga, og Benes, forseti Tékkó-
slóvakíu, hefði nú aðeins um það tvent að velja, að slaka til
gagnvart kröfum Þjóðverja og treysta þannig friðinn í álfunni,
eða þá að styrjöld brytist út fyrir aðgerðir hans.
Morgunblöðin í Englandi taka
ræðu Hitlers til athugunar og
eru á einu máli um það, að
Hitler hafi ekki með ræðu sinni
lokað öllum sundum til frið-
samlegrar lausnar þessara
vandamála né áframhaldandi
samninga um þau, en hinsvegar
liafi ræðan ekki aukið á þær
vonir manna að friðsamleg
lausn myndi takast.
London Daily Herald kemst
svo að orði, að nú standi Ev-
rópa á glötunarbarmi og ömur-
legur harmleikur hlasi við aug-
um. Til þess að bjarga friðinum
í álfunni séu aðeins fjórir dagar
til umráða, en úr því fái styrj-
öldin tímann i sina þjónustu.
Upp úr samningaumleitunum,
sem bíða kynnu til friðarins sé
að nokkru leyti slitnað, en á
allri stjórnmálavisku þurfi nú
á að halda, til þess að koma í
veg fyrir að ófriður brjótist út,
ef unt sé ennþá að koma í veg
fyrir það með því að tryggja
réttlæti og heiður allra aðila.
Tímes leggur hinsvegar á-
lierslu á það, að ef svo skyldi til
takast að ófriður hrytist út inn-
an Evrópu, þá verði eklci unt að
skella sökinni á Benes heldur
sé þar Hitler einum um að
kenna.
Breska ráðuneytið situr stöð-
EINKASKEYTI TIL VÍSIS
London, kl. 11.30.
Samkvæmt opinberri til-
kynningu flytur Chamberlain
ræðu í kvöld kl. 8 (enskur
tími) í fundarsal ríkisstjórnT
arinnar og verður ræðunni
útvarpað.
Frá París er símað að for-
vextir hafi verið hækkaðir
( um 3% frá og með deginum
í dag að telja.
United Press.
ugt ó fundum, en æsingar all-
miklar eru rikjandi meðal al-
mennings út af þessum málum.
Hefir einkum borið á því í
grend við Downing Street, en
lögreglan hefir skakkað leikirm
og haldið uppi fullri reglu.
United Press.
Uppskera l SvfþjöP.
Samkvæmt nýbirtum skýrslum
sænsku Hagstofunnar er búist
við að hveitiuppskeran í Svi-
þjóð verði meiri í ár en nokk-
uru sinni, eða 690.000 smál., en
hún var 579.000 smál. í fyrra.
Uppskera af vetrarrúgi verður
að líkindum 10.000 smál. minni,
en heyafli um 5.950.000 smál.,
eða 100.000 smál. minni en í
Hertogafrúin af Atholl
situr á þingi, sem fulltrúi fyr-
ir íhaldsflolckinn breslca, og er
mjög áhrifamikil innan floklcs
síns og á þingi. Frúin er mjög
andstæð undanlátsstefnu
Chamberlains, og vítti m. a. þá
linlcend hans, aö þola þaö aö
þýskar fallbyssur ógnuöu frá
ströndum Algier hinu fræga
vígi Gíbraltar.
Mermirnir, sem heimurinn horfir á.
CHAMBERLAIN. HITLER.
Skotgrafir í skemti-
görðum í London.
EINKASKEYTI TIL YlSIS.
London í morgun.
Unnið er kappsamlega að því í Englandi að gera
ýmsar öryggisráðstafanir til verndar borgurunum
gegn yfirvofandi ófriði. Hefir gasgrímum verið út-
hlutað um alt landið og loftvarnarsveitum hefir verið
skipað að hverfa til stöðva sinna, en eins og getið hefir
verið um í skeytum hér í blaðinu haf a virki með strönd-
um landsins verið mjög treyst að undanförnu og nýjar
loftvarnarbyssur verið teknar í notkun, sem þykja taka
öllum slíkum byssum fram á margan hátt.
í London hefir verið unnið að því, af hinu mesta
kappi í alla nótt, að grafa skotgrafir í skemtigörðum
borgarinnar, hlaða upp sandpokagarða, byggingum til
verndar, en gasgrímum hefir verið úthlutað um alla
borgina og almenningi kend notkun þeirra.
United Press.
Prjónlessýningin í
Reykjavík.
í ráði er að stofna til al-
mennrar sýningar í Reykjavík
á íslensku prjónlesi og bandi
um mánaðamótin nóvember og
desember næstkomandi.
Hefir ríkisstjórn íslands og
Samhand heimilisiðnaðarfélag-
anna heitið nokkurum f járstyrk
til hennar.
Tilgangur sýningar þessarar
er að fá stofn til fyrirmynda
fyrir ákvæðisvöru í prjónlesi,
handunnu og vélunnu, af þeim
vörutegundum, sem hér segir:
Sokkum, vetlingum, peysum,
vestum, smásjölum, treflum,
nærfatnaði o. fl.
Er óskað, að sýningarmun-
irnir séu í algengum stærðum
og helst að hver tegund sé í
þrem stærðum. Gott væri, að
söjmu litbrigðí og prjón væri t.
d. á kvenbelgvetlingi og smá-
trefli eða þríhyrnu, karlmanns-
skíðapeysu, sokkum og belg-
vetlingum o. s. frv. Þó eru auð-
vitað einstakir hlutir af þessum
tegundum kærkomnir.
Ennfremur er óskað eftir
mismunandi smágerðu og
grófu þelbandi, og lireinu tog-
bandi, rokkspunnu og vél-
spunnu, í sauðalitum og jurta-
litum.
Hverjum prjónuðum sýning-
armun skal fylgja liönk af
bandinu í honum og lckið fram,
livort hann er hand- eða vél-
unninn, eða ef hvorttveggja, þá
að hve miklu leyti. Þá skal og
tekið fram lykkjufjöldi filjar,
stærð prjóna, söluverð hlutar-
ins, nafn vinnanda og heimilis-
fang.
Burðargjald þeirra muna,
sem ekki seljast, vcrður endur-
greitt.
Munirnir eru vátrygðir frá
þeim degi, sem þeir eru settir í
póstinn.
Sýningarmunirnir þurfa að
vera komnir til Reykjavíkur f
síðasta Iagi um 20. nóvember.
Utagáskrift Prjónlessýningin
í Reykjavík 1938.
Anna Ásmundsdóttir.