Vísir - 13.10.1938, Blaðsíða 2
VlSIR
¥»*"•** V
Heriög gengin í gildi i Rutheniu.
Ungverskir nppivððsiomeEn
koma í höpnm yflr landðmærm
myrðandi og rænand!.
EINKASKEYTI TIL VÍSIS.
London í morgun.
Herlög eru gengin í gildi í Rutheniu, í suðaustur-
hluta Tékkóslóvakíu, vegna uppivöðslu ung-
verskra æsingamanna.
Horfurnar hafa verið býsna alvarlegar undangengin dægur
á landamærum Ungverjalands og Tékkóslóvakíu. Hafa verið
miklar óeirðir á sumum stöðum og virðist orsökin sú, að ung-
verskir æsingamenn vaða þar uppi og stofna til óeirða. Það
eru kröfumar um, að Ungverjaland fái Rutheniu, sem valda
æsingunum, enda þótt ýmsir Ungverjar sé mótfallnir því, að
Ungverjar geri of víðtækar kröfur. Þeir segja, að Ungverjum
sé hentast, að fá að eins þau héruð þar sem Ungverjar eru í
meirihluta og vilja fara friðsamlega að öllu. En við borð hefir
legið, að slitnaði með öllu upp úr samkomulagsumleitunum í
Kamárno, en þar taka nokkurir Slóvakar þátt í samningaum-
leitunum fyrir hönd Tékkóslóvakíu og nú einnig fulltrúar frá
Rutheniu. Samkomulagsumleitanir héldu áfram í gær, þrátt
fyrir ýmsa erfiðleika, en horfur eru ekki taldar á, að Slóvakar
gangi að öllum kröfum Ungverja, enda væri með því gengið á
snið við sjálfsákvörðunarréttindi Ruthena.
laOfoFd Rússa um hernað-
aplegan sfuduiug einskis
víföí*
Stadliæíiiigap Wintertons lávarös.
EINKASKEYTI TIL VlSIS.
London í morgun.
Winterton lávarður flutti ræðu í Horesham í gærkveldi
og endurtók fyrri ummæli sín þess efnis, að Rússar
hefði engin ákveðin loforð gefið um hernaðarlegan
stuðning, ef ráðist hefði verið á Tékkóslóvakíu. Rússneskir
herforingjar hefði ekki rætt við herstjórnina í Tékkóslóvakíu,
af tveimur ástæðum:
1) Rússar hefði aðeins getað aðstoðað Tékka með því, að
ráðast á Pólland.
2) Handtökur og aftökur f jölda margra rússneskra herfor-
ingja hefði veikt Rússland stórkostlega mikið — og sé
ekki tekið djúpt í árinni, þótt þetta sé fullyrt.
United Press.
VÍSIR
DAGBLAÐ
Útgefandi:
BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H/F.
Ritstjóri: Kristján Guðlaugsson.
Skrifstofa: Hverfisgötu 12.
Afgreiðsla: Hverfisgötu 12.
(Gengið inn frá Ingólfsstræti).
S í m a r :
Afgreiðsla 3400
Ritstjórn 4578
Auglýsingastjóri 2834
Verð 2 krónur á mánuði. Lausasala 10 aurar.
Félagsprentsmiðjan h/f.
Unglingafræðslan
á Isafirði.
Síðastliðið vor sagði Lúðvíg
Guðmundsson upp störfum,
sem skólastjóri Gagnfræðaskól-
ans á ísafirði og fluttist hingað
til Reylcjavíkur. Hafði hann
haft stjórn skólans á hendi um
alllangt skeið og farist hún vel
úr höndum, og báru Isfirðingar
til hans fult traust sem skóla-
stjói-a.
Nokkru eftir að staðan losn-
aði komu upp raddir um það,
að Hannibal nokkur Valdimars-
son hefði fullan hug á að ná í
stöðuna, eh Hannibal liefir um
langt skeið verið einn af mestu
æsingamönnum á ísafirði, þann-
ig að lítil líkindi gátu talist til,
að almenningur gæti borið til
hans það traust, sem skólastjóri
gagnfræðaskólans ætti að hafa,
ef vel væri.
Annar umækjandi um stöð-
una var Haraldur Leósson
kennari, sem starfað hafði und-
ir stjórn Lúðvígs Guðmunds-
sonar, og getið sér hið besta
orð og miklar vinsældir, bæði
hjá bæjarbúum alment, en þó
einkum nemendum þeim, sem
skólann höfðu sótt.
Þegar skólanefnd lcom á fund
hinn 17. september sl. lágu um-
sóknir þessara tveggja manna
fyrir. Tveir skólanefndarmanna,
þeir sira Sigurgeir Sigurðsson
og Jón Auðunn Jónsson mæltu
eindregið með umsókn Harald-
ar Leóssonar, og lét Jón Auð-
unn bóka mótmæli sin gegn
þvi, að komið gæti til mála að
veita Hannibal stöðuna, með þvi
að ahnenningur treysti honum
ekki, enda væri það svo, að
margir drægju það á langinn, að
innrita börn sin i skólann, þar
til séð yrði hver umsækjanda
myndi verða settur skólastjóri.
Socialistarnir drógu það ekki
i efa, að Hannibal hefði ekki
traust almennings, vegna póli-
tískra afskifta hans og æsinga-
starfsemi, en gátu þess hinsveg-
ar, að hann myndi liætta póli-
tískum afskiftum, ef hann fengi
stöðuna. Hannibal hefir verið
um nokkurt skeið ritstjóri Skut-
uls, og ált sæti i bæjarstjórn á
vegum socialista og töldu full-
trúar þeirra í skólanefndinni, að
hann myndi láta af ritstjórninni
strax er staðan væri fengin, en
ekkert létu þeir uppi um það,
hvort hann myndi láta af störf-
um í bæjarstjórninni.
Þegar málið kom fræðslu-
málastjórninni í hendur leit liún
í náð til Hannibals og setti
hann skólastjóra, án þess að
taka tillit til kunnáttu hans eða
fyrri starfa, og mat að engu
unnin störf Haraldar Leósson-
ar í þágu skólans.
Hannibal hefir nú látið af rit-
stjórn Skutuls og hefir hún ver-
ið fengin Guðmundi pófessor
Hagalin i hendur, og nú á
Hannibal að hafa fengið frið-
þægingu fyrri synda, vegna póli-
tískra afskifta hans, með ráð-
stöfun þessari. Ekkert hefir þó
um það frétst að Hannibal hafi
dregið sig i lilé að öðru leyti
og mun hann skipa sæti sitt í
bæjarstjórn sem fyr óátalið af
flokksmönnum sínum.
Annars er það af Hannibal að
segja, að svo virðist sem innræt-
ið hafi að engu breyst, þrátt
íyrir hina óverðskulduðu upp-
hefð lians frá hendi fræðslu-
málastjórnarinnar. Mætti hann
nýlega á fundi, sem Sigfús Sig-
urlijartarson boðaði til í ísa-
fjarðarkaupstað og gekk þar
berserksgang, og var af ýmsum
talið að hann hefði orðið sér
þar til lítils sóma.
Um það skal engu spáð, hver
framtið skólans verður undir
handleiðslu Hannibals, en ósk-
andi er, að hún verði góð, þann-
ig að syndir fræðlumálastjórn-
arinnar bitni ekki á börnum
þeim og unglingum, sem skól-
anum kann að verða trúað fyr-
ir. Þessi ráðstöfun fræðslumála-
stjórnarinnar réttlætir þó þá
slcoðun, sem lialdið hefir verið
fram, að nauðsyn beri til, að
liún lierði allverulega á þeim
kröfum, sem gera beri til þeirra
manna, sem hún felur forsjá
slikra fræðslustofnana, bæði
hvað þekkingu og mannlcosti
snertir, þannig að unglingarnir
standi ekki gersamlega varnar-
lausir gegn óverjandi ráðstöfun.
um frá hendi þessara ráða-
manna.
Barnafræðslan í landinu hef-
ir nú verið skipulögð þannig, að
lágmarkskröfur eru gerðar til
kennara um kunnáttu til starfs-
ins, en um unglingafræðsluna
er alt öðru máli að gegna. Þar
geta þeir menn, sem engin skil-
yrði hafa til að vera barnakenn-
arar orðið jafnvel skólastjórar,
og shkum vankunnandi mönn-
um mun það oft og einatt engan
veginn kært að fá sér liæfari
menn sér við hlið. Leiðir það
aftur til þess, að engin trygging
er fyrir þvi, að skólarnir hafi
yfir sæmilegu kennaraliði að
ráða, einkum þegar fræðslu-
málastjórnin hefir sýnt það að
hún lætur sig þetta litlu skifta,
en hyggur þeim mun meir að
þvi áð draga fram hlut social-
ista og kommúnista.
Droknun.
Það slys vildi til i Sandgerði
síðastliðið sunnudagskvöld kl.
19, að 8 ára gamall drengur
lijólaði fram af bryggju og
drukknaði.
Enginn var viðstaddur er
slysið vildi til, en menn, sem
voru á báti skamt þaðan, komu
að og fundu drenginn örendan
á floti við bryggjuna. — Lifg-
unartilraunir voru þegar gerðar
og læknir sóttur, en allar til-
raunir reyndust árangurslausar.
—- Drengurinn hét Eggert Sig-
urðsson, sonur Sigurðar Odds-
sonar að Aðalhóli i Sandgerði.
Boðhlaupsdagur Vísis og Í.R.R.
Lesíð íþróttasíðuna á morgun.
Kappdrætti Haustmarkaðsins.
1 happdrætti Haustmarkaðs K. F.
U. M. og K. komu upp þessi númer:
Hægindastóll 1685, málverk 4770,
1 tonn kol 4693, kaffistell 3995, 10
daga dvöl í Vatnaskógi 2617, 25
kr. í peningum 3466, 20 kr. í pen-
ingum 65, 10 kr. i peningum 4252,
10 kr. í peningum 585, 10 kr. í
peningum 356.
Boðhlaupsdagur Vísis og f.R.R.
Lesið fþróttasíðuna á morgun.
Varðarfélagið.
Munið fund Yarðarfélagsins í
kvöld.
Ungverjar og Pólverjar hafa
með undirróðri og æsingum
reynt að hafa áhrif á Ruthena.
Styðja Pólverjar kröfur Ung-
verja í von um, að þeir fái
Rutheniu, en þá mundu landa-
mæri Ungverjalands og Pól-
lands ná saman. Æsingarnar út
af þessum málum hafa leitt til
mestu óaldar í landamærahér-
uðunum í Rutheniu.
Ungverskir æsingamenn
koma í hópum yfir landamærin
frá Ungverjalandi. Árásir eru
gerðar á friðsama borgara,
morð framin og rán, og víða
fara flokkar uppivöðslumanna
um hús og aðrar eignir manna
og láta greipar sópa. Öryggi al-
mennings er ekkert. Verst er á-
statt í Makacevo-héraði og hefir
héraðstjórnin í Rutheniu fyrir-
skipað, að herlög skuíi ganga í
gtldi þar þegar í stað.
Samskonar ráðstafanir verða
gerðar í öðrum héruðunt Rut-
heniu, ef framhald verður á
morðum, ránum og gripdeild-
um.
ÓEIRÐir í PÓLLANDI.
Fregn frá Varsjá hermir, að
í gærkveldi hafi slegið í óeirð-
ir í Suður-Póllandi, milli Ukran-
íumanna og Pólverja. Voru
livorutveggja í kröfugöngu,
aðrir til þess að mótmæla inn-
limun Rutheníu í Ungverjaland,
hinir til þess að krefjast henn-
ar. í óeirðum þessurn var einn
maður drepinn, en margir særð-
ust.
I fregn frá Prag segir að
stjórnin þar vinni nú fyrst og
frernst að þvi, að fá landamær-
in ákveðin og því næst að ýms-
um fjárhagsmálum. Enda sé
ríldnu mikil þörf á að ná við-
skiftasamningi við Þýskaland.
Svalkovsky utanríkismálaráð-
lierra, fjármálaráðherrann,
landbúnaðarmálaráðherrann og
verslunarmálaráðherrann fara
allir til Berlínar í dag í þessum
erindum. Ef viðræður þeirra við
þýska stjónmálamenn ganga að
óskurn, eru sumir sem gera sér
i hugarlund, að Þýskaland
mundi láta sér nægja þau hér-
uð, sem það hefir þegar fengið,
og að þjóðaratkvæðagreisla
verði látin niður falla. Alþjóða-
nefndin í Berlín hefir frestað
fundum sínum, þangað til þess-
urn viðræðum er lokið.
Kort yfir hin nýju landamæri
Tékkóslóvakíu koniu til London
í gær. Landamærunum er þar
liagað að mestu leyti í samræmi
við Godesberg-kröfur Hitlers og
Þýskalandi afhent land langt
umfram það, sem fólst í hinum
ensk-frönsku tillögum. Ein al-
varlegasta breytingin, sem gerð
hefir verið frá því, sem frönsku
og bresku stjórninni hafði kom-
ið saman um, er það, að landa-
mærahna Þýskalands er sveigð
í áttina til Pragar norður af
borginni, svo að landamærin
eru aðeins 20 enskar milur frá
borginni. Á korti þessu eru
einnig mörkuð þau svæði, sem
þjóðaratkvæðagreiðsla er ráð-
gerð á, og verður því enn að
breyta kortinu, ef að hún fer
fram. (FÚ.)
Æsingar gegn Gyðingum
í Slóvakíu.
Nýja stjórnin i Slóvaldu hef-
ir svift fjölda tékkneskra manna
embættum, einkum við skóla
landsins. I sambandi við bann
kommúnistaflokksins hefir
fjöldi kommúnista verið hand-
teknir.
Æsingar gegn Gyðingum fær-
astí í vöxt í Slóvakíu.
María Markao:
Söngskemíim
í Gamla Bíó.
Það er orðið langt síðan að
við Reykvíkingar höfum átt
kost á að heyra ungfrú Maríu
Markan syngja, nema af liljóm-
plötum, en söngur hennar á
hljómplötur hefir verið með
þeim ágætum, að hún getur
þakkað því að húsfyllir var hjá
henni i fyrradag.
Við vitum að María Markan
hefir sungið við göðan orðstir
í óperum í Þýskalandi, og er
ráðin til að syngja við Kgl.
óperuna í Kaupmannahöfn í
vetur. Hún hefir mikla og
glæsilega sópranrödd, tindrandi
bjarta, og vel skólaða. Á þessari
söngskemtun hennar gafst
okkur tækifæri til að kynnast
söng hennar frá tveim hliðum,
þ. e. a. s. sem ljóðsöngkonu eða
lconsertsöngvara og sem óp-
erusöngkonu. Þetta fer ekki á-
valt saman hjá söngvurum.
Síður en svo. Mikill meiri hluti
söngskrárinnar var helgaður
ljóðsöngvum, og enda þótt ung-
frúin sýndi það, að hún er vel
heirna á þessu sviði, þá leyndi
það sér ekki, að bún er meiri
sem óperusöngkona. Hin mikla
rödd liennar fær fyrst notið sín
í óperuaríum. Sá Ijóður var á
flutningi ljóðsöngvanna, einlc-
um þeim íslensku, að samvinn-
an milli hennar og undirleikar-
ans var ekki eins góð og við
hefðum kosið, enda er hann út-
lendingur, Carl F. Weiszliappel,
og fanst mér undirleikur hans
í þessum lögum nokkuð utan-
garna, en annars er liann lið-
tækur píanóleikari. Samvinnan
milli söngvarans og undirleik-
arans þarf að vera þannig, að
flutningur lagsins verði listræn
lieild.
Söngkonan fékk ágætar við-
tökur og rigndi blómunum yfir
Iiana.
B. A.
Dollar — 4-67^4
100 ríkismörk — 187.14
— fr. frankar — 12.56
— belgur — 79.06
— sv. frankar — 106.10
— finsk mörk ...... — 9-93
— gyllini — 25379
— télckósl. krónur ,. — 16.43
/ sænskar krónur .. — 114-31
— norskar krónur . , — 111.44
— danskar krónur .. — IOO.Oö
Boðhlaupsdagur Vísis og í.R.R.
Lesið íþróttasíðuna á morgun.
United Press.
1
Á LANDAMÆRUM TÉKKÖSLÓVAKÍU
voru gerðar 'ýnisar varúðarráðstafanir, er ófriðarliættan var mest, og enn eru viða varnar-
garðar, þar sem vegir mætast við landamærin og víðar. Myndin hér að ofan er frá landa-
mærastöð við ungversku landamærin, þar sem alt logar í óeirðum, eins og hermt er i skeyt-
um í blaðinu í dag.