Vísir - 05.01.1939, Side 2
VISIR
VÍSIR
DAGBLA9
Útgefandi:
BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H/F.
Ritstjóri: Kristján Guðlaugsson.
Skrifstofa: Hverfisgötu 12.
Afgreiðsla: Hverfisgötu 12.
(Gengið inn frá Ingólfsstræti).
S í m a r :
Afgreiðsla 3400
Ritstjórn 4578
Auglýsingastjóri 2834
Verð 2 krónur á mánuði.
Lausasala 10 aurar.
FélagsprentsmiSjan h/f.
Gengis-
lækkun.
U ÉR í bænum er nú ekki um
^ annaö meira rætt en það,
hvort gengi krónunnar verði
lækkað. Slíkt hefir að vísu oft
verið rætt áður en aldrei hefir
það Iegið svo ákveðið í loftinu
og nú, að svo kunni að fara.
Óvissan vekur óróa lijá mörg-
um, þvi að gengisfall mimdi
veita mörgum þungar búsifjar.
Krafan um lækkun krónunn-
ar stafar fyrst og fremst frá út_
vegsmönnum. Þeir munu allir
líta svo á, að slík ráðstöfun sé
nauðsynleg til þess að koma
sjávarútveginum á réttan kjöl
og fá reksturinn íil að bera sig.
Þessar kröfur verða nú ákveðn-
ari með degi hverjum, enda
virðist nú ekki nema tvent
liggja fyrir útveginum: að
leggja árar i hát og setja ekki
skipin á flot, eða finna ráð sem
dugir til þess að útgerðin beri
sig. Hér er ekki um annað að
gera en að hrökkva eða stökkva.
Fundur fisksölusamlagsins,
sem frestað var í vetur, á að
hefjast aftur 10. þessa mánaðar
eða í miðri næstu viku. Fyrir
þann tíma er gert ráð fyrir að
milliþinganefnd í sjávarútvegs-
málum birti tillögur þær er hún
mun bera fram til viðreisnar
útveginum. Verður því bráðlega
úr því skorið hver leið verður
farin í þessum málum,
Þótt getgátur gangi nú fjöll-
unum hærra um það, að útveg-
inum eigi að bjarga með lækk-
un krónunnar, þá getur Vísir
fullyrt það, að ennþá hafa eng-
ar ákvarðanir verið teknar um
slika ráðstöfun. Ennþá eru all-
ar fullyrðingar um þetta aðeins
ágiskun, sem ekki styðst við
neitt annað en þá trú, að engin
önnur leið reynist fær til bjarg-
ar. —
Hins vegar geta atvikin kom-
ist á hraða rás þegar jarðveg-
urinn hefir verið vel undirbú-
inn og ákvarðanir ef til vill
teknar í skyndi um mikilvæg
mál, sem þetta, er varðar af-
komu hvers einasta manns í
landinu. Allir eru á einu máli
um það, að þjóðin verði að færa
fórnir, ef með þarf, til að bjarga
stærsta atvinnuvegi sínum frá
hruni. En ef sú fórn verður
færð, sem hér er gerð að um-
talsefni, þá á þjóðin heimtingu
á þvi að fá vissu fyrir, að fórn-
in verði ekki færð fyrir gíg og
útvegurinn standi eftir jafn ó-
sjálfbjarga og áður.
Allur almenningur i landinu
mundi verða að taka afleiðing-
um gengislækkunar að meira
eða minna leyti með hækkuðu
verði á erlendum vörum. Samt
Ræöa hans fær góðar midip-
tek:tip í breskum og fpdnsk-
um blöðuxn.
EINKASKEYTI TIL VlSIS.
London, í morgun.
Bresku blöðin Ijúka miklu lofsorði á ræðu þá,
sem Roosevelt Bandaríkjaforseti flutti í gær
síðdegis á þjóðþingi Bandaríkjanna hinu sjö-
tugasta og sjötta. Eins og að vanda er þjóðþingið kem-
ur saman flutti ríkisforsetinn því svo kallaðan ársboð-
skap, þar sem hann gerir grein fyrir stefnu stjórnarinn-
ar varðandi ýms þau mál, sem á döfinni eru, utan lands
og innan. En af því, sem Roosevelt forseti gerði að um-
talsefni að þessu sinni vöktu mesta athygli þau um-
mæli hans, að víða hefði lýðræðið verið fótum traðkað,
margskonar misrétti framið og samningshelgin óvirt,
en Bandaríkjamenn myndi halda fast við hugsjónir
sínar um lýðræði, einstaklingsfrelsi og trúbragðafrelsi,
og yrði þjóðin að vera við því búin að verja hugsjónir
sínar og heimili. Bresku blöðin líta á ummæli Roose-
velts hér að lútandi sem stranga aðvörun til einræðis-
ríkjanna.
Daily Telegraph segir, ummæli Roosevelts bendi til,
að Bandaríkin hafi tekið enn ákveðnari afstöðu til al-
þjóðamálanna en áður.
Blaðið Daily Herald segir, að ræða Roosevelts muni
verka sem uppörvun og hvatning á hverja þá þjóð, sem
þurfi uppörvunar og hvatningar með, en jafnframt sem
aðvörun til þeirra, sem aðvörunar þurfi.
,rr- íí, . :
Frakkneska blaðið Le Popu-
Iairp fer þeim orðum um ræðu
Roosevelts, að hann hafi flutt
heiminum mikinn boðskap.
Auk ummæla þeirra, sem að
framan var að vikið, vöktu
einna mesta athygli ummæli
hans um hlutleysislögin svo
kölluðu, en þau voru upphaf-
lega sett til öryggis hlutleysi
Bandaríkjanna — til þess að
koma í veg fyrir að þau flækt-
ust inn í styrjaldir, sem þau
vildi engin afskifti af hafa, en
í reyndinni hafa þau haft þau á_
hrif, að ágengnisþjóðunum hef-
ir orðið gagn að, en þeim, sem
fyrir ágengni hafa orðið, ógagn.
Kvaðst Roosevelt myndi stinga
upp á, réttlæti og friði til vernd-
ar, að nokkurar brejdingar
verði gerðar á þessum lögum.
United Press.
verður að ætla, að frjáls inn-
flutningur, sem ólijákvæmilega
hlyti að fylgja í kjölfar krónu-
lækkunar, mundi liafa mikil á-
hrif í þá átt að halda niðri verð-
inu. Það væri barnaskapur að
setja á gengislækkun án þess að
upplausn haftanna fylgi á eftir.
Þótt gengislækkun hlyti að
valda mörgum mikilla örðug-
leika, mundi engin stétt þjóðfé-
lagsins eins hart leikin og versl-
unarstéttin eða sá hluti hennar
sem fæst við innflutninginn.
Samkvæmt valdboði gjaldeyris.
nefndar, vegna hins erfiða
gjaldeyris-ástands, verða inn-
flytjendur að kaupa flestar vör_
ur með 3—6 mánaða gjaldfresti.
Aulc þess skulda þeir stórfé í er-
lendri mynt fyrir kröfur sem
ekki hafa fengist yfirfærðar. Á
þennan hátt skulda innflytjend.
ur fyrir allskonar nauðsynjar,
sem þegar eru fluttar til lands-
ins, að líkindum 15—20 miljón-
ir króna í erlendum gjaldeyri,
þegar öll kurl eru komin til
grafar. Það er ekki nokkur
sanngirni í því, að þessir aðilar
taki á sig alt það stórkostlega
tap, sem krónulækkun mundi
valda, eingöngu vegna þess, að
þeir hafa orðið að flytja nauð-
synjar til landsins gegn ó-
venjulega löngum gjaldfresti,
vegna hins erfiða gjaldeyrisá-
stands. Þeir munu ekki skorast
undan að taka á sig byrðar að
sínu leyti, sem aðrir landsmenn.
En það má ekki í þessu efni
leggja versluninni þann hurðar_
ás um öxl, sem hún fær eklci
undir risið. Þáð, yrði að finna
leið úr þeim vanda...
Bankarnir og ríkissjóður
hlytu og Tnikið afliroð að gjalda
vegna gengislækkunár. ’Ekki er
enn vitað hver afstaða bank-
anna er til þessa máls, en af-
drif þess hljóta að miklu leyti
að fara eftir því, hvað þeir
segja. Vel getur farið svo, að
gengislækkunin verði aldrei
annað en illur draumur, en best
mun þó að vera viðbúinn
hverju sem að höndum ber.
Mæðiveikin í Borg-
arfirði er f rénun.
Veðurfar hefir verið ágætt í
Borgarfirði í haust og það sem
af er vetrfnum. jÞó gerði all-
snarpan byl þann 30. s. 1. í efri
hluta héraðsins Snjór er samt
lítill sem enginn, þegar dregur
nær sjó. Á nokkrum efstu bæj-
um héraðsins hefir féð gengið
úti fram undir jól.
Hin illkynjaða fjárpest —
mæðiveikin — sem til þessa hef-
ir verið mesta áhyggjuefni borg_
firskra bænda, virðist vera í
verulegri rénun, í þeim hrepp-
unum, sem hún byrjaði fyrst að
gera vart við sig í. Eru menn
orðnir vongóðir um, að sá fjár_
stofn, sem nú er eftir, muni
standast veikina — og ef svo er
— benda allar Iikur til þess, að
bændum takist á örfáum árum
að rétta fjárstofn sinn við, því
að á síðastliðnu hausti létu þeir
öll gimbrarlömb lifa á því
svæðinu sem veikin er í rénun.
Skólahúsin í Reykholti og á
Hvanneyri hafa verið endur-
bætt í sumar, svo að nú rúma
þau fleiri nemendur en áður, í
Reykholti eru um 100 nemend-
ur en á Hvanneyri um 60.
Ljósatími
bifreiða og annara ökutækja, er
nú frá kl. 3.20 að kveldi til kl.
9.50 að morgni.
to fraicos sækir
eno In.
EINKASKEYTI TIL VÍSIS.
London í morgun.
Samkvæmt opinberri til-
kynningu, sem gefin var út
i Burgos eru hersveitir
þjóðernissinna komnar inn
í útjaðra Borjas Blanca.
Hefir þjóðernissinnum mið-
að best áfram á þessum
hluta vígstöðvanna undan-
gengin dægur, en annar-
staðar er sókn þeirra hæg-
fara.
United Press.
' Lelnsur UncolRS
[llsirtbs.
Oslo 4. jan.
Frá Washington er símað, að
leiðangur Lincolns Ellsworths
sé kominn að meginísnum á
suðurskautssvæðinu. — Flugvél
var send frá leiðangursskipinu í
gær til þess að leita að hentug-
um stað fyrir aðalbækistöð og
lendingarstað. Þaðan verða svo
farnar rannsóknaflugferðir suð-
ur yfir suðurheimskautslöndin.
NRP. — FB.
Uppreistarmenn á Spáni
hafa tekið 45 smábaei.
Oslo 4. jan.
Uppreistarmenn á Spáni
halda áfram sókn sinni, en mið-
ar hægt víðast hvar. Á svæði
því, sem þeir hafa náð á sitt
vald eru 45 smábæir og þorp.
NRP—FB.
Sigurför Dalaáier og
afstaða Þjóöverja til
ítala og Frakka.
Það vekur atliygli, að í þýsk-
um blöðum er skrifað á þá
leið, í tilefni af för Daladiers,
að þótt Þjóðverjar vilji vernda
ágæta sambúð ítala og Þjóð-
verja, megi Þjóðverjar ekki
gleyma yfirlýsingu þeirri, sem
Frakkar og Þjóðverjar hafi
undirskrifað um að varðveita
friðinn sín á milli.
Daladier hefir sent Lebrun
Frakklandsforseta skeyti, bæði
frá Korsíku og Tunis um hin-
ar ágætu viðtökur, sem hann
hafi fengið, og borið honum
og Frakklandi kveðjur Korsíku
og Tunis og soldánsins, og hef-
ir forsetinn svarað með löngum
skeytum, þar sem hann segir,
að öll franska þjóðin sé hjart-
anlega glöð yfir sigurför hans.
Daladier ráðgerir að vera
kominn til lieimilis síns í Or-
ange þann 7. janúar, en þann
10. þ. m. verður þingið sett.
ROOSEVELT I SKRIFSTOFU SINNI.
Daladier á leið til Algier.
Herlormgjalundur í Algier-borg á morgun.
EINKASKEYTl TIL VÍSIS.
London, í morgun.
Daladier forsætisráðherra Frakka er nú kominn til Algier
og bendir alt til, að honum muni verða fagnað þar af engu
minni innileik en í Tunis. Þegar Daladier hafði lokið við að;
skoða víggirðingar Frakka’í Gabes og við Iandamæri Tunis og
Libyu var tilkynt, að hann mundi leggja af stað í dag í ferð sína
til Algierborgar. Samkvæmt símfregn þaðan er verið að undir-
búa komu Daladier til Algier af miklu kappi. Nogues, aðalher-
foringi Frakka í Marokko, kom til Algier-borgar í morgun,
loftleiðis frá Rabat.
Þar verður haldin ráðstefna á föstudpg og taka þátt í hennr,
auk Daladiers og Nogues herforingja, hélstu herforingja Frákka
í Marokko, Tunis og Algier.
United Press.
DALADIER í HÓPI BLAÐAMANNA.
(Algier er eilt af Norður-Af- j
ríkulöndum þeim, sem lúta j
stjórn Frakka. Það liggur að .
Miðjarðarhafi og eru strand- :
héruðin frjósöm, en er kemur
lengra inn í landið eru sand-
auðnir miklar. Algier er að
flatarmáli 847.500 ferhyrnings-
mílur enskar. Algier-borg er
liöfuðborgin. íbúarnir lifa á á-
vaxta-, hveili- og byggræktun
o. s. frv. Ennfremur fiskveið-
um. Námur eru nokkurar í Al-
gier (járn aðallega). — Járn-
brautir eru víða um landið og
ágætir vegir. Frakkar liafa
landstjóra í Algier og liafa þeir
þar mikinn lier, meðal annara
herdeilda hina frægu útlend-
inga-herdeild. íbúatala Algier
er 6.553.000 (1934). Innfæddu
þjóðflokkarnir, sem byggja Al-
gier eru aðallega Arabar og
Berbar. — Með vaxandi fram-
takssemi og auknum herafla
ítala í Libyu, samfara því sem
ítölsk blöð liafa haft í hótun-
um við Frakka, þykir Frökk-
um nauðsyn að liafa landvarn-
irnar i sem bestu lagi í lönd-
um sínum í Norður-Afríku, og
þess vegna var eftirlitsferð Da-
ladiers farin þangað, aulc þess
sem hún á að sýna ítölum, að
Frakkar sé ákveðnir í að varð-
veila hin traustu tengsli milli
Frakldands og annara landa,
sem franski fáninn blaktir yfir.
Hafa liinar innilégu undirtekt-
ir, sem Daladier hefir fengið í
yfirstandandi ferð sinni, eins.
og hermt liefir verið í skeytum
til Vísis, haft mikil álirif í ít-
alí.u, og líklegt er, að þau áhrif
komi einnig til greina, er þeir
Cliamberlain og Halifax lá-
varður ræða við Mussolini og
Ciano greifa eftir fáa daga).
Höfnin.
Timburskip, Ophir, kom í gær til
Völundar. Enskur togari, Fairway,
kom í gærkveldi og tók fiskilóðs.
Hilmir kom frá Englandi í nótt_
Kári kom af veiðum i morgun.
Kolaskipið Stesse fór i morgun.