Vísir - 14.02.1939, Side 3
V I s I H
H
rádherra" sstrandadi
i aiött sem leid vid Músarnes
sl Sja.lavx&esi.
Dimmviðri var og brim
Skipshöfninni bjargað
Togarinn Hannes ráðherra — á heimleið frá Bret-
landi — strandaði laust eftir miðnætti síðastliðið á
Músarnesi á Kjalarnesi. Var þoka og dimmviðri, en
lygnt. Brim var talsvert. Er skerjótt þarna og brýtur
tíðast á skerjum og er staðurinn hinn hættulegasti.
Skipverjar náðu þegar talsambandi viðloftskeytastöðina
í Reykjavík, sem þegar gerði Slysavarnafélaginu að-
vart. Var talið að skipið heði strandað við Gróttu, en
það var brátt leiðrétt, er skipsmenn höf ðu áttað sig á,
að skipið var strandað á Músarnesi. Var þegar brugðið
við um alla aðstoð, sem tiltækilegt var að veita. Ákveðið
var að senda skip á vettvang, pg einnig fór björgunar-
sveit landleiðis.
Sæbjörg og Magni fara
á strandstaðinn.
Þannig atvikaðist, að í það
mund er fregnin barst um það,
að Hannes páðherra væri strand-
aður, var björgunarskútan Sæ-
björg nýkomin inn. Hafði hún
farið til aðstoðar vélbátnum
Gunnari Hámundarsyni úr
Garðinum, en hann var með
brotið stýri. Dró Sæbjörg hann
liingað. Yar Sæbjörg þegar
send upp eftir. Ennfremur
Magni þegar hann var búinn að
hita upp. Loks fóru þeir Jón E.
Bergsveinsson, Ólafur Jónsson
framkvæmdastjóri Alliance og
Guðm. Markússon skipstjóri
upp eftir í bil með línubyssu og
önnur björgunartæki. (Guðm.
Markússon var ekki með skipið
í þessari ferð lieldur stýrimað-
urinn).
Stöðugt talsamband var milli
togarans og loftskeytastöðvar-
innar fyrst í stað, en eftir hálfa
klukkustund eða svo var kom-
inn sjór í vélárrúm skipsins og
slokknaði undir vélinni og tók
fyrir loftskeytasambandð. Síðar
tókst að koriia á sambandi með
því að nota rafhlöður.
Veður var gott, er björgunar-
skipin komu á strandstaðinn,
átt suðvestan og nærri logn en
talsvert brim.
Sæbjörg
notar ljóskastarann.
Þegar Sæbjörg kom upp eftir
fór hún eins nálægt og forsvar-
anlegt var, en eins og áður var
getið er staðurinn stórhættuleg-
ur, og þegar skip strandar á
þessum slóðum, er vissulega
mikil liætta á ferðum, uns
björgun er lokið. Það mun hafa
verið um klukkan tvö, sem Sæ-
björg kom upp eftir. Um kl. 3
fóru þeir á Hannes ráðherra að
búa sig til þess að setja út bát-
inn. Kom Ijóskastarinn þá að
góðum notum.
Skipsmenn fóru í tveimur
ferðum út í Sæbjörgu. Braut þá
á öllum skerjum. En flutning-
urinn gekk vel og komust skips-
menn slysalaust út í Sæbjörgu.
Varðskipið Ægir fer á
vettvang.
Varðskipið Ægir fór liéðan i
nótt kl. ujn 4 en mun ekki hafa
farið á strandstaðinn fyrr en
með birtingu.
1
!
Viðtal við
Ólaf Jónsson framkvæmarstj.
Vísir átti stutt viðtal við Ólaf
Jónsson framkvæmdarstjóra h.
f. Alliance í dag og sagðist hann
hafa nokkura von um, að takast
mætti að ná skipinu út, ef veður
yrði hagstætt. En þarna uppfná
er ekki hægt að aðhafast neítt
við björgun, nema í góðu veðri.
„Það er mikill sjór i vélarúm-
inu“, sagði Ólafur, „og kyndun-
arplássinu. Lestar voru ekki
opnaðar, en skipsmenn telja, að
sjór muni hafa komist í þær.
Hmsvegar var skipið þurt að
framan siðast er eg frétti og lít-
ill sjór í þvi að aftan.“
Um það bil og þetta viðtal fór
fram var Ægir að koma ofan
að. Hafði þá hvest heldur og
varð ekkert aðhafst í björgunar-
skyni.
Sá ekki til lands fyrr en í
birtingu af þilfari Hannesar
ráðherra.
Að þvi er Ólafur Jónsson
sagði Visi, sáu skipsmenn ekki
HANNES RÁÐHERBA.
til lands sökum dimmviðris
meðan þeir voru i togaranum —
en hann strandaði úti fyrir
Músarnesi alllangt, en þar eru
sker og grynningar sem fyrr
segir.
Átján menn voru á skipinu
og var Ingvar Loftsson með
skipið í þessari ferð.
Hannes ráðherra var gott og
vandað skip og aflasælt og væri
það mikið tjón, ef skipið næst
ekki út. Hannes ráðherra var
smíðaður i Beverley, Englandi,
árið 1926 og er 445 smál. á
stærð.
JDigurn vér að senda úr-
valsflokk íþröttamanna
til New York?
Sýningar Ármanns í gærkvöidi sýna,
aö viö höíum kost gódan.
uru kappi. Mun mörgum við-
stöddum liafa flogið í hug, að
ánægjulegt væri að sjá flokk ís-
lenskra glimumanna, og helst
fjölmennari en þennan, koma
fram á Islandssýningunni i New
York í vor á íslandsdeginum.
Að sýningunni lokinni kvaddi
flokkurinn með fánanum og
var glímumönnum vel þökkuð
frammistaðan.
Þá hófst þriðji og að margra
dómi besti þáttur sýningarinn-
ar. Urvalsflokkur karla kom nú
inn undir fána sínum óg sýndi
leikfimi undir stjóni Jóns Þor-
steinssonar. Voru sýndar hóp-
æfingar, æfingar á slá, margs-
konar stökk og fleira, og er hér
skemst af að segja, að æfing-
arnar vöktu svo mikla hrifni,
að segjg mátti, að lófatakið
lcvæði við frá þvi fimleika-
menn komu inn í salinn. Má
segja, að i flokki þessum séu
fimleikamennirnir hver öðrum
betri og æfðari, og sumir þeirra
eru afburða snjallir leikfimis-
menn. Þegar flokkurinn hafði
Glímufélagið Ármann efndi í gærkveldi til leikfimi- og ! sýnt list sína gekk kvennaflokk-
glímusýningar í íþróttahúsi Jóns Þorsteinssonar við Lindar- j urinn inn undir fána sínum og
röðuðu háðir flokkarnir sér
upp, hver undir sínum fána og
kvöddu gesti með fánunum, en
Sigurjón Pétursson íþrótta-
frömuður þakkaði gestunum
fyrir komuna með stuttri en
snjallri ræðu. Mintist hann á
bið mikla og góða starf Ár-
manns fyrir líkamsmeuninguna-
í landinu og kvaðst þess full-
viss, að allir þeir, sem viðstadd-
ir væri, mvndi stuðla eftir
megni að aukinni likamsmenn-
ingu.
götu í viðurvist margra góðra gesta. Meðal þeirra voru sendi-
herrar og aðalræðismenn erlendra ríkja, meðlimir sýningarráðs
í'slandsdeildar New York sýningarinnar o. m. fl. Tilgangurinn
með sýningunni var að gefa hinum ágætu gestum tækfæri til
þess að sjá hvers fimleikamenn og stúlkur og glímumenn Ár-
manns eru megnugir — eftir tiltölulega skamman æfingatíma
— en Ármann er nú sem kunnugt er, að æfa flokka undir utan-
för — á fimleikamótið í Svíþjóð á sumri komanda.
Sýningarnar hófust með því,
að úrvals kvennaflokkur Ár-
manns gekk inn í salinn undir
fána sínum. Gengu hinar
smekklegu búnu leikfimismeyj-
ar léttilega og prúðmannlega og
mátti þegar sjá, af göngu þeirra
og hreyfingum, að þær höfðu
þegar fengið góða þjálfun, og
að méð enn frelcari æfingum
mundu þær ná þeirri fullkonm-
un sem nauðsynleg er, til þess
að geta komið fram á erlendum
vetlvangi þar sem helstu þjóðir
álfunnar senda fram sína bestu
flokka.
Er Jens Guðbjörnsson, for-
rnaður Ármanns, hafði boðið
gesti velkomna, hófust æfing-
arnar undir stjórn Jóns Þor-
steinssonar íþróttakennara. —
Vöklu æfingarnar óskifta að-
dáun allra viðstaddra. Hópæf-
ingarnar tókust prýðilega og
samæfingin furðulega góð eftir
ekki lengri tima, hreyfingarnar
mjúkar og léttar. Æfingar á slá
tókust yfirleitt afburða vel, fá-
um urðu mistök á, en flestum
var launað með lófataki áhorf-
enda, og áttu það skilið. Áður
en flokkuririn gekk út kvaddi
bann með fánanum og var
þökkuð frammistaðan með
dynjandi lófataki.
Að svo búnu gengu glímu-
menn inn undir fána sínum og
heilsuðu gestum. Glímurnar
fóru vel og rösklega fram og
var liðlega glímt og þó af nokk-
flokkanna væri tiltölulega
skammur -— þrír mánuðir. Eft-
ir stöðugar æfingar um jafn-
langan tínia má búast við mjög
miklum framförum, og það er
engum efa bundið, að þessir
flokkar mundu sóma sér hið
besta hvar sem væri, þar sem
iþróttaflokkar annara þjóða
koma saman, hver undir fána
sinnar þjóðar. Má fagnaðarefni
vera, að svo góðir flokkar, sem
hér eru, fara á leikfimismótið
í Svíþjóð, undir stjórn jafn
. reynds kennara og þjálfara sem
Jóns Þorsteinssonar.
Það hefir miklu meiri þýð-
ingu en menn alment gera sér
Ijóst, að iþróttamenn vorir fari
utan og komi fram með fána
þjóðarinnar.
En enn meiri þýðingu mundi
það liafa ef oss mætti auðnast
að senda flokk vaskra drengja
til þess að sýna íslenska glímu
— þjóðaríþrótt íslendinga — á
Islendingadeginum á íslands-
sýningunni.
Og í rauninni er ékki ann-
að sæmandi, en að flokk-
ur íslenskra glímumanna
komi fram á íslandsdegi
sýningarinnar. Það er skylt
að þjóðaríþrótt íslendinga
verði sýnd þar, og vafalaust
mætti koma því svo fyrir,
að í flokki þeirra íþrótta-
manna, sem valdir væri,
væri bæði leikfimismenn
góðir og glímumenn.
Það var vikið að þvi eitt sinn
í grein í Vísi, sem fyrstur ís-
lenskra blaða vakti máls á því,
hversu nauðsynlegt það væri
þjóð vorri, að hefja þátttöku í
alþjóðasýningum og birti marg-
ar greinir um það efni, löngu
áður en þátttakan í Heimssýn-
ingunni komst á dagskrá — að
í rauninni hefðum vér ekkert
betra að sýna en þjóðina sjálfa,
en hverjir væri betur til þess
fallnir að koma fram fyrir gesti
heimssýningarinnar en æsku-
lýður landsins, framtið þjóðar-
innar, með fána hins unga ís-
lands? Vissulega væri æskilegast
að bæði íslenskir iiiltar og stúlk-
ur gæti komið þannig fram fyr-
ir landsins hönd, en sennilega
verður að þessu sinni ekki hægt
að setja markið hærra en það,
að sendur verði úrvalsflokkur
glímu- og leikfimismanna. En
það verður að gera. Sæmd þjóð-
arinnar krefst þess. Og það væri
lítill manndómsbragur á þvi, ef
ekki væri hægt að ná saman því
fé, sem til þess þarf.
Vísir vill fastlega skora á alla
góða menn, að stuðla að þvi,
hver eftir sinni getu, að unnið
verði að þvi af kappi, að úr-
Valsflokkur glímumánna og
leikfimismanna, verði sendur til
New York i vor til þéss að sýria
þar íslenska glímu og leikfimi
17. júni og oftar.
Þjóðin á að setja stolt sitt í,
að jietta verði gert.
Það var tekið fram af for-
manni Ármanns, er hann bauð
gesti velkomna, að æfingatími
roir OikKtr
isii mmm
og @kaftfelling—
um fyrir aöstod>
vi ð breska 8trand>
menn.
Gísli Sveinsson
sýslumaður i Vík í Mýrdal
hefir nýlega móttekið hréf raetS
eiginliandar undirskrift Ilalifax
lávarðar, utanríkismálaráðlierra
Ifans Hátignar Bretakonnngs,
með þakldæti bresku stjómar-
innar fyrir meðferð strandmála
og skipbrotsmanna undanfar-
andi 20 ár, sem hann hefir verið
sýslumaður Skaftafellssýslui. Þá
er og einnig Skaftfellingum
þakkað fvrir aðstoð þá og um-
hyggju, sem þeir jafnan hafa
sýnt breskum strandmönnum,
en eins og kunnugt er Iiafa
mörg bresk skip strandað þar
við land á þessu tímabili. (FB.)
KVENNAFLOKJvUR ÁRMANNS.
Of margfar heit-
ar maltidir?
Oslo, 13. febr.
Evang landlæknir hefir í við-
tali við Vestfold ai’beiderblad
gert að umtalsefni núverandi
mataræði á skipum. Telur hann
undir mörgum kringumstæðum
ólieppilegt, að framreiddar séu
2—3 heitar máltiðir á dag, og
beri að breyta til í samræmi við
nútíma mataræðiskenningar. —-
Það sé algjörlega skökk kenn-
ing, að heilbrigði og Jircysti sé
undir heitum mat kornin, og
gildi þetta jafnt á hvalveiðun-
um og yfirleitt þegar vinna sé
stunduð í köldu loftslagi. NRP
—FB.
,Bridgfe-klúhlmrc
Rey kj avikur.
Skemtun Stúdentafélagsins
í gærkveldi. —
Stúdentafélag Reykjavíknr
hélt skemtun í gærkveldi og var
þar úthlutað verðlaunumi þeim,
sem veitt voru í bridge-kepjm-
inni.
1. verðlaun var sfór og fagUT
silfurbikar, farandbikar, sem
lcept verður um framvegis, en
auk þess fengu allir keppend-
urnir i þeim flokki er bar sigra*
úr býtum litla silfurbikara til
eignar og voru þeir áletraðir.
2. verðlaun voru áletraðír papp-
írshnífar úr silfri, en þriðjis
verðlaun bókmerki.
Formaður stiidentafélagsins,
Ilörður Bjamason arkitekt,
stjórnaði skemtuninni. Gat
hann þess, að Stúdentafélág
Reykjavikur myndi ckki efná
til fleiri bridgekepna, enda væri
eðlilegast að sérstakur félags-
skapur hefði shkt með höndum
framvegis. Stakk hann upp á
finnn mönnum í nefnd til þess
að undirbúa stofnun „Bridge-
félags Reykjavikur“ og vora
það þessir: Lárus Fjeldsted
hrm., Tómas Jónsson borgar-
ritari, Óskar Norðmann sfor-
kaupmaður, Árni Snævar verk-
fræðingur og Einar B. Guð-
mundsson hrm.
Þótt félagar úr Stúdentafélkgíi
Reykjavikur beiti sér fýrir
stofnun klúbbs þessa er bann
að engu öðru leyti fengdur
Stúdentafélaginu, og geta allir,
sém þess óska, orðið meðlimir-
hans. Ætlunin er að útvega
klúbbnum stofnfé á þann Mft»
að hæstu flokkarnir úr hridge-
kepninni keppi innbyrðís og;
selji aðgang að þeirri kepní. Máu
búast þar við góðri aðsókn með
því að margir eru bridge-unn,-
endur í þessum bæ..
Að lokum gat formaður þess,
að á næstunni biðu Stúdentafé-
lags Reykjavikur mikil og
merkileg viðfangsefni, sem fé-
lagar þyrftu að fylkja sér um,
og að skemtistarfsemi félagsins,
eins og t. d. Bridgekeppni værl
að eins liðir i þeirri viðleitní
að tengja menn nánar starfsemi
félagsins Vfirleitt, enda yrðia
þeir, sem þannig væri sérstak-
lega liaft fyrir, að styrkja einníg
aðra starfsemi liess og fundar-
höld.
Skemtun Stúdentafélagsins í
gærkveldi var mjög vel sótt og
stóð hún til kl. 1% eftir miðnL