Vísir - 02.03.1939, Blaðsíða 3
VISIR
Carl D Tulinius:
Nauðsyn á umræðum um sam-
bandslögin og uppsögn þeirra.
Nokkrar athugasemdir við grein
Ragnars E. Kvaran.
í ágústmánuði síðastliðnum skrifaði eg grein í Vísi um „Sam-
bandslögin og uppsögn þeirra“, í þeirri von, að sú grein mætti
verða til þess að útrýma því mikla tómlæti, sem ríkir um þetta
mál á opinberum vettvangi, og skoraði eg á þá menn, sem
kunnastir eru þessum málum, að inna af hendi þá borgaralegu
skyldu sína, að kynna málið fyrir kjósendum landsins í tíma,
áður en þeir ættu að greiða atkvæði um það, jafnframt því sem
þaði yrði þá einnig alment rætt opinberlega.
—----------------
Eg hafði gert mér vonir um,
að þessari áskorun yrði vel tek-
ið, enda þótt liún kæmi úr hópi
hinna óhreyttu kjósenda, en eg
varð vonsvikinn.
Það gladdi mig þvi, er Ragnar
landkynnir Kvaran, nú hálfu ári
síðar sker sig einnig úr hópn-
um og gerir sömu kröfur.
(„Samhandssáttmálinn og árið
1940“, Alþhl. Í4. og 15. þ. m.).
Við Kvaran erum einnig sam-
mála um það, að aulc þessara
sérþekliingarmanna er nauð-
synlegt, að við, hinir óbreyttu
kjósendur, einnig ræðum þessi
mál, hver eftir sinni getu og
lcunnugleika, og ætla eg nú
gagnkvæmt að verða við áskor-
un Kvarans og ræða málið nokk-
uð við hann, sem einn kjósandi
við annan.
Franskur inaður sagði eitt
siim, er þjóð hans var í miklum
vanda stödd, að til þess að frelsa
hana þyrfti mann með kalt höf-
uð og lieitt hjarta. Og þetta á
ekld frekar við um Frakka en
aðrar þjóðir, þ. á m. oss íslend-
inga. Og mér er það fullkom-
lega ljóst, að þetta mál verður
að leysa með köldu höfði, en
mér er það einnig Ijóst, að eng-
in mál, er snerta heiður og vel-
ferð ættjarðar manna, verða
leyst af mönnum, sem ekki bera
heitt hjarta í hrjósti. Sjálfstæð-
ismál þjóðanna byggjast ekki á
stærðfræðilegum grundvelli ein-
um, fremur en þau hyggjast á
tilfinningunum einum, enda
þótt þau eigi að vera, og séu,
öllum öðrum stjórnmálum
fremur tilfinningamál. Það er
ekki hægt að reikna dæmið rétt,
nema báðir þessir liðir séu tekn-
ir til greina. Eg er að visu sann-
færður um það, að þetta dæmi,
sem vér eigum nú að fara að
reikna, myndi fá jákvæða lausn
einnig án allra tilfinninga, svo
einfalt er það, en það er kraftur
tilfinnmganna, sem á að veita
því þann sigur, sem slíkur mál-
staður á skilið, og hann fæst
ekki, nema borgaramir fylgi
málunum fram af allri sálu
sinni.
Hr. Ragnar Kvaran telur i
grein sinni fram 3 aðalatriði, er
liann byggir á: í fyrsta lagi vík-
ur haim að því, að á fullVekls-
daginn síðastliðiim hafi eigi
komið fram hjá neinum flokks-
foringjanna skýlaus afstaða til
sjálfstæðismálsins, öðrum en
formanni Sjálfstæðisflokksins,
Ólafi Thors, í öðru lagi, að for-
sætisráðherra, Hermann Jónas-
son, hafi á þessum vettvangi
varað við „yfirboði“ í sambandi
við málið, og í þriðja lagi minn-
ir hann á ummæli Gunnars
Thoroddsen um það, hvað
syni, Ólafsfirði, og 4 þús. frá
Guðm. Br. Guðmundssyni, ísa-
(irði. Auk þess fékk félagið
margar smærri gjafir og áheit.
Benedikt Sveinsson fyrv. al-
þm. stjómaði fundinum af sinni
alkunnu röggsemi. Fm.
muni taka við eftir væntanlega
uppsögn samhandssamningsins.
Ræðir Kvaran um hinar ský-
lausu yfirlýsingar allra flokks-
foringja á Alþingi og síðar hina
skýlausu, einróma samþykt Al-
þingis um utanrikismálin, og
kernst um þær svo að orði:
„Ekki er grunlaust um, að til
þessa liafi verið gripið frekar
til þess að fá frið fyrir umræð-
um um sambandsmálið, en af
þvi að þingflokkarnir teldu
þetta mál hugsað til nokkurrar
hlítar.“ Með öðrum orðum, að
þeir hafi gefið falska yfirlýs-
ingu. Þá dregur Kvaran mjög í
efa, að Sjálfstæðisflolckurinn
fylgi þingflokki sinumaðmálum
í þessum efnum, og getur sér-
staklega um hann í þessu sam-
bandi, vegna áréttingar Ólafs
Thors á fullveldisdaginn. Það
hefir nú jafnan komið fram i
sögu þessarar þjóðar, að það er
ekki almenningurinn í landinu,
sem dregur úr hinum þjóðernis-
legu réttlætiskröfmn, þegar úr
þeim er dregið, heldur þvert á
móti einstaklingar úr hópi
þeirra manna, sem átt liafa við
mótaðilann að etja fyrir hönd
ahnennings, enda væri næst að
ætla, að jafnaðarmaðurinn
Ragnar Kveran léti sér meira
ant um að verja einhverja aðra
foringja fyrir flokki þeirra
sjálfra, en Ólaf Thors fyrir
flokki hans. En það liggur næst
að álykta, að hr. Ivvaran hafi
ekki verið að verja flokksfor-
ingja sinn og bandamanna-
flokksins fyrir yfirlýsingar
þeirra, lieldur sé ætlunin sú, að
halda sem best opinni leið fyrir
flokksforingjana til undanhalds,
ef aðrir háttsettir menn innan
flokkanna teldu yfirlýsingarnar
fara í bága við skuldbindingar
eða fyrirheit flokkanna út á við.
Enda þótt þessi mál séu gjör-
samlega áhrifalaus gagnvart
öðrum flokkum en flolcki grein-
arhöfundarins, þá gefa þau fult
tilefni til slíkra ályktana sem
að framan gi’einir, gagnvart
lians eigin flokki. Hvað snertir
Sjálfstæðjsflokkinn, þá tel eg
ummæli þessi úr lausu lofti
gripin. Það bendir vitanlega á
festu og þjóðernislega hugsun,
er formaður flokksins notar
þennan vettvang til að undir-
strika vilja flokks síns. Á hinn
hóginn tel eg næsta litla ástæðu
til þess að væna aðra flokka um
fölsun í málflutningi, þótt þeir
eigi staðfesti með stuttum milli-
bilum, að þeir hafi talað sann-
leika.
Ummæli Hermanns Jónas-
sonar forsætisráðherra, þar sem
liann varar við yfirboði, eru
ekki í samræmi við nýjársboð-
skap hans, hvorki þar sem hann
varar við tortryggni í garð and-
stæðinga, né þar sem liann hvet-
ur til samheldni um málið; ann-
ars er þessi setning lians ngesta
áhrifalaus.
Þá kemur að þriðja atriðinu,
livað taka skuli við eftir 1943.
Það er nú alt önnur saga, því að
sáttmáli vor við Dani, sem hér
um ræðir, er milliríkjamál, en
það, Iivort konungur vor hætti
að ríkja hér er mál milli hans
og vor, Dönum óviðkomandi, og
má eigi blanda þessu tvennu
saman.
Þá kemur loks að utanríkis-
málunum. Þar vill Kvaran láta
einhvern sérstakan mann rann-
saka livert gagn vér höfum haft
af þvi, að Danir hafa farið með
utanrikismál vor. Þetta starf
ætti nú að vera auðunnið, án
þess að setja til þess sérstakan
,,utanrikismálakynni“, þar sem
vér höfum raunverulegt utan-
ríkismálaráðuneyti, enda þótt
af óskiljanlegum, eða að minsta
kosti ófyrirgefanlegum ástæð-
um, sé leynt hinu sanna í mál-
inu. Einn ráðherrann er utan-
ríkisráðherra. — Stefán Þor-
varðarson er skrifstofustjóri í
því ráðuneyti, og hefir ágæta
reynslu að haki sér, og hinn
þrautreyndi sendiherra vor
Sveinn Björnsson hefir aðsetur
i höfuðhorg dönsku utanrikis-
málanna. Auk þess hefir, eins
og hjá öðrum fullvalda þjóðum,
í mörg ár setið sérstök þingkjör-
in utanríkismálanefnd, sem
sömu menn eru, að svo miklu
leyti sem því verður við komið,
látnir sitja í þing eftir þing og
kjörtímabil eftir kjörtímabil.
Það er óhugsandi, að það sé eigi
í fullu samræmi við reynslu
þessa kerfis, er alhr þingflokkar
sameinuðust einróma um utan-
ríkissámþyktina. En það ætti
ekki einu sinn að vera nauðsyn
á rannsókn á því út af fyrir sig,
hvort utanríkismálum vorum sé
hetur fyrir komið í vorum eigin
höndum, en í höndum annars
ríkis. Má þessu til staðfestingar
nefna, að eldcert ríki jarðar, sem
sjálft getur farið með utanríkis-
mál sín, lætur annað ríki fara
með þau. Það er svo margt, sem
liér kemur til, fleira en það, sem
í fljótu bragði liggur í augum
uppi, svo sem það, að það eru
fáar eða engar þjóðir, sem Is-
lendingar og Danir hafa sömu
afstöðu til viðskiftalega, og
fjöldi þjóða, sem hvort landið
um sig, en ekki löndin sameig-
inlega, eiga í deilum við eða
liafa vinsamlega sérstöðu til, og
sjá allir, hverjar afleiðingar það
getur liaft í þessu tilfelli.
Sú skoðun Ragnars Kvaran
má vel vera rétt, að það sé ým-
islegt í samþandssáttmálanum,
sem frá fagurfræðilegu sjónar-
miði sé öðrum þjóðum til fyr-
irmyndar, en það er tvennskon-
ar aðstaða, hvort ein þjóð felur
annari sjálfsforræði sitt, eða
hvort fimm þjóðir mynda með
sér gagnkvæmt bandalag um
meðferð einhverra mála. Ef svo
aðrar Norðurlandaþjóðir lita
oss óliýru auga — eins og lxr.
Kvaran óttast — vegna þess, að
vér viljum ekki vera annari
Norðurlandaþjóð háðir, fremur
en t. d. Norðmenn vildu vera
liáðir Svíum, þá verð eg nú að
segja það, að eg tel minna um
slíkt vert en hitt, að þjóðin
njóti óskoraðs sjálfstæðis út á
við, jafnt gagnvartNorðurianda-
þjóðum sem öðrum. Enda hefi
eg ekki trú á þessu óhýra augna-
tilliti, — það yrði talið heimsku-
legt og tilefnislílð.
Það er annars orðið ærið
þreytandi, þetta Norðurlandatal
alt; hún hefir stígið oss til liöf-
uðs, þessi nýja tíska Norður-
landanna, að muna stöku sinn-
um eftir oss íslendingum, svona
inn á við. Öll Norðurlöndin eru
orðin full af einhverjum Norð-
urlandafræðingum, sem eltast
við að sitja öll hugsanleg mót,
sjálfum sér til ánægju, en eng-
um öðrum. Hitt er það, að sjálf-
sagt er að efla samvinnu við
þessa frændur vora þegar um
eittlivað raunverulegt og gagn-
kvæmt er að ræða.
Hr. Kvaran telur dönskum ut-
anríkismálum það til liróss, og
því til uppörfunar, að vér fel-
um Dönum utanrikismál vor á-
fram, live rótgróin og vel með
farin þau séu, og hve mikla þýð-
ingu það hafi fyrir Dani gagn-
vart umheiminum.
En ætli Danir væru þá ekki
^ ver á vegi staddir, ef þeir hefðu
t. d. falið Englendingum eða
Þjóðverjum þessi mál, og aldrei
annast þau sjálfir? Og eiga ís-
lendingar þá elcki, eftir því, að
hyrja sem fyrst að skapa sér
líka utanríkisaðstöðu og Danir
hafa, eftir getu sinni?
Hvílíkur hnekkir íslenskri
verslun er að því, að Kaup-
mannahöfn er út um heim talin
sameiginleg- höfuðborg Dan.
merkur og íslands, og þá jafn-
framt í verslunarmálum, verður
eigi með fáum orðum lýst, enda
get eg eigi frekar um það atriði
að sinni.
Eg tek á ný undir þá ósk, að
menn taki nú þegar upp opin-
berar umræður um þessi mál.
Þá mun eigi standa á því, að
menn á öllum aldri, allra stétta
og flokka, sameinist um að bera
málið fram til glæsilegs sigurs,
allir þeir, sem þrá hjarta fram-
tíð þjóð sinni til handa, og þora
að horfa beint fram, allir þeir,
sem einu nafni geta nefnst vor-
sálir á vegi þjóðarinnar mót vori
og liækkandi sólu.
25.-—2.—1939.
Knattspyrnan á
Englandi.
Á laugardag fóru svo leikar,
sem hér segir: Birmingliam—
Grimshy 1:1; Bolton—Iludd-
ersfield 3:2; Charlton—Ports-
mouth 3:3; Chelsea—Brent-
ford 1:0; Leeds—Everton 1:2;
Leicester—Aston Y. 1:1; Liver-
pool—Wo lverli ain p to n 0:2;
Manch. U.—Derhy Co. 1:1;
Middlesbro’—Sunderland 3:0;
Preston—Arsenal 2:1 og Stoke
-—Blackpool 1:1.
Auk þess fóru fram fjórir
biðleikir í vikunni: Brentford—-
Portsmouth (frestað frá 26.
des.) 2:0 og þessir þrír frá 11.
jan.: Bolton—Birmingham 2:0;
Grimsby—Arsenal 2:1 og Wol-
verhampton—Everton 7:0. —
Þ. 15. febr. fór fram leikurinn
Aston V.—Huddersfield 4:0.
Næsta laugardag keppa Wol-
verliampton (heima) og Ever-
ton aftur, í bikarkepninni. Yerð-
ur þá gaman að sjá hvernig fer.
Nú er röðin þessi:
Leikir Mörk Stig
Everton 30 59- -37 42
Wolverh. W. 30 61- -22 40
Derby Co. 31 54- 38 39
Mjddlesbro’ 31 65—48 35.
Bolton W. 30 55 -43 33
Charlton A. 29 50- -54 33
Stoke C. 30 52—51 32
Arsenal 30 35- -28 31
Aston V. 49 -40 30
Liverpool 30 46—48 30
Grimsby 31 42—49 30
Manch. U. 30 45 -47 29
Preston N. E. 28 40 -41 28
Súnderland 29 36 -43 28
Brentford 29 42—54 28
Leeds U. 29 45—53 27
Blackpool 29 37- -52 24
Huddersfield 30 43- -39 23
Leicester 29 34- 52 23
Portsmouth 29 27—49 23
Chelsea 28 37- -59 21
Birmingham 30 46—62 21
Mentaskölaleikurinn
verður endurtekinn í kÝöld.
Mentaskólanemendur endurtaka „Einkaritarann“ i kvöld í
Iðnó. Leikurinn þykir með afbrigðum skemtilegur og þarf ekki
að efa, að liúsfyllir verði. Á myndinni, sem þessum Iínum fylgir,
eru allir leikendur á sviðinu. Fara nöfn leikendanna hér á eftir,
talið frá hægri: Vilberg Skarpliéðinsson, Sigurður Jónsson,
Sigurður Hannesson, Geirþrúður Sivertsen, Björgvin Sigurðs-
son, Gunnlaug Hannesdóttir, Sigfús H. Guðnnmdsson, Sigrnn
Helgadóttir, Guðlaugur Einarsson, Sigriður Theódórsdóttir,
Benedikt Antonsson, Jón G. Bergmann.
Höfnin.
Lv. Sigrí'Öur kom inn í gærkveldi
1 morgun kom hingað þýskur tog-
ari til a'ð leita sér viðgerðar„
Næturlæknir.
Björgvin Flnnsson-, Garðastræfci
4, sími 2415, Næturvörður í Ing-
ólfs apóteki og Laugavegs. apóteld,
Ljósatími
bifreiða og annara ökutækja er
nú (til 7. mars) frá kl. 6.05 að
kveldi til kl. 7 35 að morgnL
Guðl. Einarsson
í hlutvk. „EinkaritaransT
Bæjar
iréWtr
LO.O.F. 5 = 120328V- = 9 1 * * 4 * * * * 9
Veðrið í morgun.
í Reykjavík 4 st., heitast í gær
4, kaldast í nótt -—1 st. Sólskin
i gær 3.8 st. Heitast á landinu í
gær 4 st., hér, í Eyjum og á Fagur-
hólsmýri; kaldast —5 st., á Blöndu-
ósi. — Yfirlit: Víðáttumikil lægð
fyrir sunnan land, á hægri hreyf-
ingu i norðaustur. — Horfur: Suð-
vesturland: Hvass austan og norð-
austan í dag, stormur undan Eyja-
fjöllum, en lægir heldur í nótt.
Sumstaðar dálítil rigning. Faxaflói,
Breiðaf jörður: Allhvass norðaust-
an. Úrkomulaust.
Farfuglaþingið
heldur áfram í kvöld í hátíðasal
Mentaskólans. Vegna þess, hve mik-
ið liggur fyrir þinginu, eru fulltrú-
arnir mintir á, að mæta stundvis-
lega klukkan 8.
Hátíðasundmót K. R.
Næsti liður í hátíðahöldum K.R.
í tilefni 40 ára afmælisins, er há-
tíðasundmótið, sem fer fram kl.
8/2 í Sundhöllinni. Keppendur eru
46. 13 frá Suudfél. Ægir, 13 frá
Ármanni, 19 frá K.R. og einn frá
U.M.F. Reykdæla. Kept verður í
7 sundgreinum, og auk þess verður
nú í fyrstá sinn kept í dýfingum
í Sundhöllinni. Margir fræknustu
sundmenn bæjarins keppa á mótinu.
Margt riianna verður áreiðanlega í
sundhöllinni í kvöld.
Súðin
var á Súgandafirði í gærkveldi.
Ivemur sennilega á laugardag.
Knattspvrnufélagið Víkingur.
Aðalfundur féjagsins verður hald-
inn í Oddfellowhöllinni í kvöld kL
9. —- Er þess vænst, að' félagar
f jölmenni.
Revyan.
AlfreÖ Andj'ésson er veikur uira
þessar mundir ög hefir Brynjólfur
Jóhannesson hlaupið í skarðið hjá
revyunni og tekið að sér Iilutverk
Bjargráðs Ráðþrots.
Frithiof Hansen,
forstjóri veiðarfæraverksmiðj-
unnar Johan Hansen & Sönner,
Bergen, er staddur hér í bænum og
býr að Hótel Borg..
Theodór Mathiesen.
læknir, kom frá Þýskalandi með
Goðafossi síðast. Hefir hanií þar
og í Danmörku, stundað framlialds-
nám í eyrna-, nef- og hálssjúkdóm-
um í 4j/2 ár. Theódór aum gegna
læknisstörfum í Hafnarfírðí fyrir
Bjarna Snæbjörnsson alþm., á með-
an þingtíminn stendur yfir...
Minningasjóður Landspftalans.
Það hefir löngum verið til mik-
illa óþæginda, að Landssíminn hefir
ekki tekið á móti samúðarsfceytmn
M.. L. gegnum síma, en nú verðnr
breyting á þessu, eins og sést á
eftirfarandí bréfi póst- og síma-
málastjóra til sjóðsins : Til þaeg-
inda fyrir sendendur samúðarsfaeyta
Minningarsjóðs Landspítalans,
verður í Rvik, írá 1. mars næstk.,
tekið á móti skeytunum í síma 1020
frá þeim, er þess óska, gegn venju-
legu aukagjaldi, sem jafnframlt
rennur til sjóðsins.“
Aðalfundur
var haldinn í Bílasmiðafélagi
Reykjavíkur 28. f. trr. f sjtóm
voru kosnir: Tryggvi Árnason
(form.), Þórir Kristinss; og Helgi
Sigurðsson.
Áheit á Hallgrirnskirkju
í Saurbæ, afhent Vísi: 2 kr. frá
ónefndum.
Skip Eimskipafélagsins.
Gullfoss var á Patreksfirði í
morgun. Goðafoss var á Akranesi.
Selfoss er á leiði til Antwerpen frá
Siglufirði. Lagarfoss er væntanleg-
ur til Djúpavogs í kvöld. Brúarfoss
er á'leið til London. Dettifoss er í
Kaupmannahöfn.
Olympíunefndin
efnir til sundmots í Sundhöllinni
30. þ. m. (sjá augl. í blaðinu í dag).
Er þetta einnliður í undirbúningi
væntanlegrar þátttöku íslenskra
íþróttamanna í Olympíuleikunum í
Helsingfors á næsta ári.
Útvarpið í kvöld.
’Kl. 19.50 Fréttir. 20.15 Erindi:
Siðfræðileg vandamál III. (Ágúsi
H. Bjarnason, próf.). 20.40 EinT
leikur á cello (Þórh. Árnason),
21.00 Frá útlöndum. 21.15 Útvarps-
hljómsveitin Ieikur. 21.40 Hljóm-
plötur: Andleg tónlist og síðar létj
lög.