Vísir - 14.03.1939, Síða 2

Vísir - 14.03.1939, Síða 2
VlSIR VfSIR DAGBLAÐ Útgefandi: BLAÐAÚTGÁPAN VÍSIR H/F. Ritstjóri: Kristján Guðlaugsson. Skrifstofa: Hverfisgötu 12. Afgreiðsla: Hverfisgötu 12. (Gengið inn frá Ingólfsstræti). S f m a r : Afgreiðsla 3400 Ritstjórn 4578 Auglýsingastjóri 2834 Verð 2 krónur á mánuði. Lausasala 10 aurar. FélagsprentsmiSjan h/f. _________» Vakað á verðinum. fjÆR þjóðir, sem her hafa, * ala hermenn sína upp í strangasta aga, og allar yfir- sjónir sæta refsingum, eftir því sem við á hverju sinni. Einhver alvarlegasta yfirsjón í hernaði getur verið sú að sofna á verð- inum, með því að ekki er vitað hvar óvinir sitja á fletum fyrir, og andvaraleysið getur orðið örlagaríkara, en unt er að gruna. Það er sagt, að þráfald- lega komi það fyrir að her- mennirnir frjósi í hel frekar en að víkja af verðinum, en þar verða utanaðkomandi öfl skyldurækninni yfirsterkari, og öllu hefir verið fórnað á altari þeirrar þjóðar, sem á verði skyldi vera fyrir. Við íslendingar höfum í raun- inni alt aðra sögu að segja en þá að varðmenn þjóðarinnar deyi af skyldurækni, en meira ber á hinu, að þeir sofni á verðinum. og af þeirri ástæðu koma allir atburðir á óvænt, en ekkert hefir verið gert af því, sem gera skyldi fil þess að hamla upp i móti því illa, sem verða vildi. Þegar ósköpin dynja yfir er kallað á hjálp, en öruggasta hjálpin hefði verið sú, að vaka á verðinum. Það er sagt, að rússneskur herforingi hafi sent stjórn sinni svohljóðandi skýrslu um gang styrjaldarinnar: „Alt með kyrrum kjörum“, og það var satt, að alt var með kyrrurn kjörum að öðru Ieyti en þvi að herinn hrundi niður í frost- hörkunum vegna vanbúnaðar sins frá hendi stjórnarvald- anna. Eins liefir okkur íslending- um farist á þessum síðustu og verstu dögum. Sjálfstæðis- menn liafa viljað vaka á verð- inum og vakið athygli þjóðar- innar á þeim ömurlegu atburð- um, sem sífelt voru að ske og eygja mátti með sæmilegri for- sjá. Hinir ráðandi flokkar liafa tekið alt aðra afstöðu. Þeir Iiafa að hætti rússneska herforingj- ans gefið þjóðinni stutta og gagnorða skýrslu um ástandið: „Alt með kyrrum kjörum“. og ekkert hefir verið gert af því sem gera þurfti. Einstaklingarn- ir hafa unnvörpum fallið í val- inn vegna ills aðbúnaðar, og jafnvel heilar atvinnugreinir hafa hrunið til grunna, en hald- ið hefir verið áfram í algleymi andvaraleysisins, þar til allar bjargir virtust bannaðar. Þá er hrópað á hjálp, — lijálp þeirra manna sem vöruðu við því sem verða vildi, en fengu enga á- heyrn hjá þeim, sem að völdun- um sátu. Þetta er raunasaga okkar íslendinga, — sjálfskap- arvítið, sem var auðvelt að var- ast, en varð þó ekki um flúið vegna þess að ábyrgðarleysið sat við stjórnvölinn. Þelta mætti liinsvegar verða þjóðinni víti til varnaðar. Hún verður að forðast að bæla grasið eins og valdhafarnir, sem á verðinum sváfu. Hún verður að hefjast handa, ekki til þess að heinita alt af komándi kynslóð- um til þess eins að geta lifað um stund í áhyggjulitlu hílífi, heklur til hins að hera eigin byrðar og taka upp nýja siði með nýjum herrum. Mennirnir, sem sváfu á verðinum og sögðu við þjóðina: „Alt með kyrrum kjörum“, þegar alt var að hrynja, eru ekki þeir fulltrúar, sem trúandi er til þess að stjórna málefnum þjóðarinnar og byggja það um, sem brotið var til grunna. Þjóðin krefst nýrra aðgerða, sem til þess geta orðið að rétta vlð liennar liag, og þær aðgerð- ir á hún undir sjálfri sér, en ekki vökumönnunum, sem á verðinum sváfu. Þeir menn, sem á undanförn- um árum hafa bent á það, sem aflaga hefir farið, standa enn vakandi á verðinum og munu sýna það og sanna hér eftir sem hingað til, að þeir eru þess trausts verðugir, sem þeir hafa notið meðal þjóðarinnar til þessa. Það skal enginn ætla, að á þessum vandræðatímum verði rasað fyrir ráð fram, heldur sá kosturinn valinn, sem þjóðinni er fyrir bestu. Atvlmmleysíð í hænam 9. mars. Þ. 9. þ. m- voru skráðir at- vinnulausir hjá Vinnumiðlunar- skrifstofunni 552 að tölu, en i atvinnubótavinnu voru þá 250 manns. Á sama tíma í fyrra nam tala atvinnuleysingja 786, en þá voru 375 menn í atvinnubóta- vinnu. Knattspyrnan á Englandi J á Englandi. Á laugardag tókst Birming- Iiam-félaginu að stöðva sigur- för Wolverhamptons 3:2; Bolton — Brentford 1:1; Charl- ton — Blackpool 3:1; Chelsea — Grimsby 5:1; Leeds — Arse- nal 4:2, Leicester — Hudders- fiekl 0:1; Liverpool — Ports- mouth 4:4; Manch. U. —-Aston V. 1:1; Middlesbro — Everton 4:4; Preston — Derby 4:1 og Stoke — Sunderland 3:1. Miðvikudag og fimtudag fóru fram þessir biðleikir: Black- pool — Preston 2:1; Derby — Chelsea 0:1; Everton — Lei- cester 4:0; Grimsby — Stoke 3:1; Portsmouth — Leeds 2:0 og Wolverhampton — Middles- bro 6:1. Nú er röðin þessi: Leikir. Mörk. Stig. Everton 32 67—41 45 Wolverh.-W. 32 69- -26 42 Derby C. 33 55—43 39 Middelsbro . 33 70—58 36 Charllon A. 31 53—56 35 Bolton W. 32 57—47 34 Stoke C. 33 56—55 34 Aston V. 31 55 -42 33 Arsenal 32 40- -33 33 Liverpool 32 51- -53 32 Ofriðarhætta í Mið-Evrðpu Yerði Slðvakía sjálistæð, einangrast Rnthenia og voflr þá sfi hætta yfir að Pölverjar og Ungverjar sameina landa- mæri sín, en það gæti leitt tll meginlandsstyrjaldar. EINKASKEYTI TIL VÍSIS. , London, í morgun. Pragfregnir herma, að hinn nýi forsætisráðherra Slóvakíu, Sidor, hafi látið útvarpa tilkynn- ingu um það í gærkveldi, að þing Slóvakíu komi saman í dag árdegis, til þess að taka ákvörðun, sem er mikilvæg ekki að eins fyrir framtíð Slóvakíu, heldur allan miðhluta álfunnar, þ. e. hvort Slóvakía skuli lýsa yfir sjálfstæði sínu eða taka ákvörðun um að vera áfram ríkishluti með heimastjórn innan vé- banda Tékkóslóvakíu. Menn óttast, að Slóvakar velji hinn fyrri kostinn, en það geti hæglega orðið til þess að hleypa öllu í bál í þessum hluta álfunnar. Þýsk blöð styðja kröfur Slóvaka um algert sjálfstæði og vekur afstaða Þjóðverja nokkura furðu, því að til skamms tíma var álitið, að Þjóðverjar vildu ekki skerða Tékkóslóvakíu meira en orðið væri, meðfram vegna Rutheniu /Karpato- Ukraine) austasta hluta landsins. Rutheniu vilja Pólverjar fá og þar með landamæri að Ungverjalandi og eru Ungverjar þessu hlyntir. En fái Slóvakía sjálfstæði sitt hefh’ Ruthenia verið ein- angruð og aðstaða Pólverja og Ungverja batnað til þess að framkvæma hugmyndina um sameiginleg landamæri, en hún hefir verið þyrnir i augum Þjóðverja. Frá Vínarborg er símað, að lier- og lögregluvörður á landamærum Tékkóslóvakíu hefði verið aukinn að mikl- um mun. , Fregnum um hervæðingu í Þýskalandi er algerlega neit- að. JÁRNBRAUTARSLYS I FRAKKLANDI. 12 MENN FARAST, 30 særast. London í ‘morgun. EINKASKEYTI. Frá París er símað, að tólf menn hafi beðið bana, en 30 særst, er hraðlestin, sem fer milli París og Toulouse rakst á flutningalest við Chateu Roux. Þrír vagnar hraðlest- arinnar hentust af teinunum og mjölbrotnuðu. ATVINNULEYSINGJAR í LONDON liafa að undanförnu liaft sig mjög í frammi og komið hefir til átaka milli þeirra og lögreglunnar. Myndin hér að ofan var tekin, er lögregluþjónar liandtóku einn kröfugöngumanninn við Victoria járnbrautarstöðina í London. Þjóíverjar reka GyS- inga úr varahernnm. London, í morgun. Samkvæmt tilskipun, sem út hefir verið gefin í Berlín, verða engir Gyðingar liafðir framveg- is í varaherliði Þýskalands — þar sem þeir séu þess ekki verðugir að hafa slík störf með höndum. beitilönd fyrir 20—30 þús. fjár, en fjárræktin borgi sig ekki og kenna m. a. um, að leyfður sé innfl. á íslensku kjöti. — (FB.). Forsetaheimsókn sjónvarpað. AFSTAÐA PÓLVERJA. United Press. EINKASKEYTI TIL VlSIS. Fregnir frá Varsjá herma, að pólskir stjórnmálamenn líti svo á, að liér sé í\ rauninni um inn- anríkismál Tékkóslóvakíu að ræða. Pólverjar muni ekki gi’ípa til neinna ráðstafana nema þvi að eins, að Slóvakía lýsi yfir sjálfstæði sinu, en þá yrði Rut- henia einangruð frá Prag og Ruthenia slitin úf sambandi við höfuðborg Tékkóslóvakíu, en þá væri „sameiginleg landa- mæri Ungverjalands og Pól- lands' eðlileg lausn á þvi vanda- máli, sem liér hefir skapast. Pólskir stjórnmálamenn eru þeirrar skoðunar, að þýsku blöðin, sem halda uppi heiftar- legum áróðri í garð Tékka geri það til þess að kúga Tékka til algerrar undirokunar við Þjóðverja. United Press. Grimsby T. 33 46—55 32 Brentford 31 44— -55 31 Preston N.-E. 30 45- -44 30 Manch. U. 32 43—53 30 Sunderland 31 42 48 30 Leeds U. 31 49- -57 29 Blackpool 31 40- -56 26 Portsmouth 31 33—53 26 Huddersfield 31 44—39 25 Chelsea 30 43—60 25 Leicester C. 32 35- -58 24 Birmingham 32 50—69 23 a neimiei EINKASKEYTI TIL VlSIS. London, í morgun. Fregn frá Burgos hermir, að Franco-stjórnin hafi gefið út tilskipun þess efnis, að opna skuli Iandamæri Spánar fyrir spænskum flóttamönnum frá Frakklandi. Veitt verður við- taka 6000 manns á dag. United Press. Norska blaðið Nationen birti 6. jan. mótmæli, sem stjórn Setesdalens, deildar Nor- ges Bondelag í Setesdalen sam- þykti gegn innflutningi ís- lensks kindakjöts. Voru mót- mælin send Stórþinginu. Mót- mælin eru hirt undir fyrirsögn- inni „Setesdölene protesterer mot Islandskjöttet‘‘ og segjast þeir Seljadalsbúar liafa næg London, í morgun. Náin samvinna verður milli breska og franska útvarpsins dagana sem forselaheimsóknin stendur yfir (Lebrun ríldsfor- seta lil London) 19.—23. mars. Bestu listamenn og mentamenn beggja þjóðanna skemta og fræða í útvarpi þessa dagana. Allri athöfninni verður útvarp- að og nokkurum liluta hennar sjónvarpað. United Press, HJUKRUNáRKVENNADEILD úr HER tékka að æfing um. Hjúkrunarkonurnar eru allar með gasgrímur. — Myndin er tekin við Olomouc í Tékkosló- vakíu. — Tékkar hafa reynt að halda við vígbúnaði sínum eftir megni eftir skiftinguna. —

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.