Vísir - 01.04.1939, Blaðsíða 2

Vísir - 01.04.1939, Blaðsíða 2
VISIR VÍSIR DAGBLAÐ Útgefandi: BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H/F. Ritstjóri: Kristján Guðlaugsson. Skrifstofa: Hverfisgötu 12. Afgreiðsla: Hverfisgötu 12. JGengiS inn frá Ingólfsstræti). Binar: Afgreiðsla 3400 Ritstjórn 4578 Auglýsingastjóri 2834 Verð 2 krónur á mánuði. Lausasala 10 aurar. Félagsprentsmiðjan h/f. Alvarlegt ástand. || JARTSÝNI og dugnaður eru eiginleikar sem best koma að liði í lifsbaráttu þjóða ekki síður en einstaklinga. . Þess vegna eiga menn ekki að láta hugfallast Jiegar á móti blæs né leggja árar i bát þótt róðurinn þyngist. Menn verða að hafa það hugfast, að þess er ekki að vænta, að jafnan sé logn og sól- skin. „Á misjöfnu þrífast börn- in best“. komulag geti náðst um það málið, sem þjóðin á alla sína hagsæld undir. Hvað sem öll- um öð'rum málum liður, sem flokkamir vegna aðstöðu sinnar og kjörfylgis bera fyrir brjósti, þá verða allir liugsandi menn að gera sér það ljóst, að sjávar- útvegurinn og afkoma lians er undirstaðan undir því, að þetta þjóðfélag geti lifað því menn- ingarlífi, sem það liefir gert sið- asta aldarfjóðung. Hér hættir mönnum við í op- inberum málum að tala mikið en framkvæma lítið. I marga mánuði hefir verið um það rætt leynt og ljóst, að útvegurinn muni verða styrktur með geng- islækkun. Slíkar umræður mán- uðum saman hafa hin skaðleg- ustu áhrif á viðskifti og fram- kvæmdir. Þó veit enginn hvort úr þessu verður. Allir eru i ó- vissu. Árangurinn hefir orðið sá, að gjaldeyririnn kemur ekki í hankana. Menn bíða. Þetta hefir svo gert gjaldeyrisástand- ið örðugra en það hefir nokkru sinni fyrr verið. Og erfiðleik- arnir vaxa með degi liverjum- Þetta verður nú að taka endi þegar í stað. Hvað sem gert verður, þá verður það að ger- ast strax. Alt er betra en óviss- an, hikið og ráðleysið. Það er þjóðinni hættulegást. Hins vegar er hættulegt að gera sér ekki fulla grein fyrir, hvernig ástandið er og i hverju erfiðleikarnir eru fólgnir, þvi á þann eina hátt verða fundin þau ráð, sem nauðsynleg eru til bjargar. Um hina miklu erfiðleika út- vegsins hefir nú svo lengi ver- ið rætt, án þess að nokkuð hafi verið gert, að sumir menn virð- ast hættir að' Ieggja mikinn trúnað á, að hér sé raunveru- lega um öngþveiti að ræða. Verður varla sagt, að mönnum sé láandi þótt þeim finnist al- vöruleysið um framkvæmd þessara mála beri vott um litla nauðsyn. Hins er þó ekki að dyljast, að útlitið er þannig, að full ástæða er til að horfast í augu við erfiðleikana. Aflaleysi togaranna hefir sjaldan verið jafn áberandi og nú. Eftir er nú aðeins mánuður venjulegrar vertíðar og þó verð- ur ekki séð að afh sé nokkuð að glæðast. Hinsvegar er afli svo mikill í Noregi að sjaldan hefir verið þar slíkur landburður af fiski og hefir árangur þessarar miklu fisksældar þegar komið í ljós með lækkandi verði á öll- um fiskafurðum. Saltfiskur, lýsi og hrogn hefir fallið i verði frá því sem var í fyrra. Auk þess er erfitt með sölu nú á þessum afurðum, eins og ætíð er þegar verð er fallandi. Alt bendir til að afkoma út- vegsins verði enn erfiðari á þessu ári en hún hefir verið undanfarið, ef ekki breytist skyndilega til hatnaðar með aflabrögð og verð afurðanna hækkar. Útvegurinn hefir þess vegna aldrei í raun og veru haft jafnmikla þörf og nú fyrir að einhverjar ráðstafanir séu gerð- ar honum til aðstoðar. Menn gera sér ekki alment grein fyrir hvaða ástand skap- ast hér ef sú máttarstoð bregst, sem útvegurinn hefir verið þessu þjóðfélagi- Ef það ólán á eftir að henda þjóðina, þá er hætt við, að hljótt mundi verða um mörg hin pólitísku tog- streitumál flokkanna, sem nú sitja í vegi fyrir þvi, að sam- Sjémanna- söngur. Stjóm Sjómannadagsins hef- ir ákveðið að stofna til sam- kepni meðal Ijóðskálda og tón- skálda um sérstök sjómanna- ljóð fyrir daginn, með viðeig- andi sönglagi (march). Verða ljóðslcáldin látin ríða á vaðið og þeim veitt verðlaun fyrir tvö hestu kvæðin, sem þykja nothæf að mati dóm- nefndar, en liana skipa: Guðm. Finnbogason, Iandsbókavörður, Sigurður Nordal, pfóf., og Geir Sigurðsson, skipstjóri. Fyrstu verðlaun verða 150 kr. og önnur 50 kr. Hefði Sjó- mannadagsráðið kosið að hafa verðlaunin hærri, en væntir þess hinsvegar að vinátta skáld- anna við sjómannastéttma hvetji þau heldur til að sinna þessari málaleitan. Kvæðin eiga að vera tilbúin 20. apríl og send Sjómannadags- ráðinu. Skal hvert kvæði ekki vera minna en þrjú erindi, en hvert þeirra a. m. k. sex Ijóð- linur. SkíðafeFðii* um fielgina. Snjórinn er að vísu með minsta móti um þessar mundir, en þessi félög stofna þó til skíðaferða í kveld og fyrramál- ið, sem hér segir: í. R. fer í skíðaferð að Kol- viðarhóli í kveld kl. 8 og í fj'rra- málið kl. 8 og 9. Farseðlar i Stálliúsgögn, Laugav. 11, til kl. 6 í kvöld. Glímufélagið Ármann fer í skíðaferð í kvöld kl. 8 og í fyrramálið kl. 9. Farmiðar eru seldir í Brynju til kl. 6 í kvöld og á skrifstofu félagsins eftir kl. 7. . .K. R.-ingar fara í kveld kl. 8 og í fyrramálið kl. 9. Sunnu- dagsferðin verður að eins farin ef veður og færi leyfa. Lagt upp frá K. R.-húsinu. íþróttafél. kvenna fer í skíða- ferð kl. 8Y2 í fyrramáhð frá Gamla Bíó. Farmiðar í hattav. Hadda til kl. 6 í dag. Farið að KolviðarhóH. Rúmeníu trygfl sama aflstoð og Póllandi ef til styrjaldar kemur. Víglína Breta er ekki aðeins við Rín, heldup einnig í V istulaliéradi* EINKASKEYTI TIL VlSIS. London, í morgun. Fregnir þær, sem United Press símaði í gærmorg- un (sbr. einkaskeyti Vísis í gær) um það, að ákvörðun hefði verið tekin um það af bresku stjórninni, að heita Pólverjum fullri aðstoð ef á þá væri ráðist, en Frakkar hétu hinu sama — hafa hvar- vetna orðið höfuðumræðuefni blaða um heim allan. Til viðbótar fregnum þeim um hernaðarbandalag Pól- verja, Breta og Frakka, sem United Press símaði í gær, má nú því við bæta, sem mun vekja fult svo mikla at- hygli, að ábyrgir stjórnmálamenn í Brettandi telja, að þess muni mjög skamt að bíða, að Bretar og Frakkar heiti Rúmenum samskonar aðstoð og þeir nú hafa heitið Pólverjum Bretar hafa nú horfið að því ráði, að taka á sig hern- aðarlegar skuldbindingar á meginlandi álfunnar, en það hefir þeim alt af verið illa.við, en óttinn við* að Þjóðverjar leiki sama leik gagnvart Póllandi og þeir gerðu gagnvart Tékkóslóvakíu, hefir breytt afstöðu þeirra. $1 Öll Lundúnablöðin, að undanteknu Daily Express Iofa Chamberlain fyrir yfirlýsinguna. Telja blöðin, að hér sé um hina merkustu og sögulegustu yfirlýsingu að ræða, varðandi alþjóðastjórnmál, sem nokkur stjórnmálamaður hafi gefið eftir heimsstyrjöldina. Svo mikil- væg er yfirlýsing þessi talin. Svo örlagarík kann hún að reyn- ast. Spá menn því óhikað, að af henni muni leiða stórkostlegar breytingar. Daily Telegraph segir, að Chamberlain hafi raunverulega lýst yfir því skýrt og greinilega, að Landamæri Breta eru ekki að eins við Rín, heldur einnig við Vistulafljót í Póllandi. News Chronicle segir, að með því að taka þetta skref hafi lýðræðis- ríkin svift einræðisherrana aðstöðu þeirra til skyndi- framkvæmda og stórræða í álfunni. Það er búist við*, að gengið verði frá hernaðarbandalagi Breta, Frakka og Pólverja þeg- ar Joseph Beck kemur til Lund- úna. Talið er, að Þjóðverjar hafi ætlað að kúga Pólverja til hlýðni Við sig, áður en Beck kæmist til London, — fregnir bárust um, að Hitler hefði farið fram á að hann kæmi þar vilð, en nú mun hann fara beina leið leið til London. Þegar búið er að ganga frá hernaðarbandalaginu verður — að því er breskir stjórnmála- menn hafa tjáð United Press — að líkindum undinn bráður bug- ur að því, að ganga frá hemað- arbandalagi við Rúmena. United Press. Skíðafélag Reykjavíkur. Lagt af stað kl. 9 árdegis. Farseðlar hjá L. H. Miiller til kl. 6 í kveld. Skipafregnir. Gullfoss fór frá Vestmannaeyj- um í nótt kl. 4. Goðafoss kom til Siglufjarðar kl. 8 í morgun. Brú- arfoss fór frá Kaupmannahöfn í gærkvöldi. Dettifoss er á leið til Kaupmannahafnar frá Rotterdam. Selfoss fer frá Antwerpen í dag. Næturlæknir í nótt: Kristján Grímsson, Hverfisgötu 39, sími2845- Næturvörður í Ing- ólfs apóteki og Laugavegs apóteki. Helgidagslæknir: Gísli Pálsson, Laugaveg 15, sími 2474. Barnaguðsþjónustur: Kl. 10 í Laugarness- og Skerja- fjarðarskólum; kl. 2 í Elliheimil- Revyan inu, kl. 3 í Betaniu. verður leikin á morgun kl. 2. ÍRSKI LÝÐVELDIS- HERINN ENN AÐ VERKI. EINKASKEYTI TIL VÍSIS- London í morgun. Þrátt fyrir fjölda- handtökurnar á dögun- um, þegar sprengjutil- ræðin voru sem mest um alt Bretland, og mikla ár- verkni lögreglunnar um alt landið, hefir írski lýð- veldisherinn nú aftur látið á sér bæra, eftir nokkura „hvíld“. í nótt voru framin sex sprengjutilræði víðsveg- ar um London og hafa aldrei sprungið jafn- margar sprengjur í Lon- don á einni nóttu, síðan á heimsstyjaldarárunum er loftskip Þjóðverja gerðu árásir á borgina. Sprengjurnar sprungu ekki allar í sama hverfi, heldur hingað og þangað um borgina. Eitt tilræðið var framið í Fleet Street, — blaðagötu Londonar — fyrir framan húseign f r jálslynda blaðsins News Chronicle og braut allar rúður í gluggum auglýs- ingaskrifstofu blaðsins. Þrír menn hafa þegar verið handteknir, en lög- reglan er að leita að afar hraðskreiðum bíl, sem er eins og leiguvagn — taxi- cab — í útliti, en hefir miklu sterkari vél, en þeir. Telur Scotland Yard, að tilræðismenn- irnir hafi ekið í honum um bæinn í þessum leið- angri. United Press. AÐ ÞESSU SINNI AFÞAKKAÐI HANN HEIMBOÐIÐ. Mynd þessi var tekin i seinustn heimsókn Josefs Beck til Hitlers. Nú hefir Beek afþakkað nýtt beimboð (sbr. skeyti). — Breskir jafDaðarmenn neita að taka þátt i þjððstjorn sem Chamberlam veitir forstflða. EINKASKEYTI TIL VlSIS. London, í morgun. Chamberlain hefir átt viðtal við ýmsa stjórnmála- leiðtoga — einnig úr flokki andstæðinga sinna. Er tal- ið, að Chamberlain sé að þreifa fyrir sér um myndun þjóðstjórnar. Hafa margir áhrifamenn í Ihaldsflokkn- um hinn mesta áhuga fyrir því, að mynduð verði þjóð- stjórn á þeim alvörutímum, sem nú eru, er hafi alla þjóðina að baki sér. Meðal þessara þingmanna eru Anthony Eden og Winston Churchill. I gær ræddi Chamherlain við helstu leiðtoga jafnað- armanna og bauð þeim, að því er Daily Mail hennir þrjú sæti í þjóðstjórn, en leiðtogar jafnaðarmanna höfnuðu þessu fyrir hönd flokks síns. United Press. Fopsetakosning í Frakk- landi 6. appíl n. k. Eftir M. S. Handler, fréttaritara U. P. í París. Albert Lebrun, forseti, fer frá völdum 6. apríl n.k. Það er að vísu ekki venja í Frakklandi að, tilnefna forsetaefni fyrri en sama dag- og kosning á að fara fram, en aðalflokkar þingsins verða búnir að koma sér saman um forsetaefni, áður en það kemur saman í Versölum 6. apríl. Það er talið líklegast, að Jules Jeanneney, forseti öldungadeildarinnar verði fyrir valinu. Fimtándi forseti þriðja franska lýðveldisins og sá 13. skv. stjórnarskránni frá 1879 verður þess vegna fám lcunnur, áður en hinir 931 meðlimir öld- ungadeildarinnar og fulltrúa- deildarinnar lialda sameiginlega fund til að velja eftirmann Al- berts Lebruns, fyrir hið venju- lega 7 ára tímabil. Meirihluti er nauðsynlegur við kjörið. Allir fyrri forsetai' hafa verið kosnir við fyrstu eða aðra atlcvæðagreiðslu og það er ekki búist við að það verði neitt tafsamara að kjósa hinn nýja forseta. Lebrun ætlar að draga sig í hlé. Lebrun hefir þegar sýnt að hann vill ekki verða í kjöri, með þvi að leigja stóra íbúð í París, þar sem hann ætlar að búa á eftir. Það hefir að eins komið fyrir einu sinni, að Frakklandsforseti liafi verið endurkosinn. Það var Jules Greýý, sem var endurkosinn 1879. Hér fara á eftir nöfn nokk- urra þeirra manna, sem til greina kona: Leon Berard, öld- ungadeildarþingmaður, fyrrum

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.