Vísir - 26.04.1939, Blaðsíða 2
2
V I S I R
Miðvikudaginn 26. apríl 1939.
r
OAGBLAB
Útgefandi:
BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H/F.
Ritstjórí: Kristján Guðlaugsson.
Skrifstofa: Hverfisgötu 12.
Afgreiðsla: Hverfisgötu 12.
(Gengið inn frá Ingólfsstræti).
S í m a r :
Afgreiðsla 3400
Ritstjórn 4578
Auglýsingastjóri 2834
(kl. 9—12 5377)
Verð kr. 2.50 á mánuði.
Lausasala 10 aurar.
Félagsprentsmiðjan h/f.
Trausí og
vantraust.
ÓÐSTJÓRNIN lifði það af.
Það mátti ekki tæpara
standa — að liún fengi öll at-
kvæðin!
Þvílíkt vantraust og þvílík
opposition!
Fyrir utan þingliúsið stóðu
nokkrir strákar. Þeir höfðu of-
urlítið vikið við gömlum hús-
gang, sem allir kunna. Nú lögðu
þeir kommúnistum orðin í
munn og sungu:
Allir kratar, allir kratar
eru í skrípaleik.
Má eg ekki mamma
með í leikinn þramma?
Mig langar svo, mig langar svo,
að lyfta mér á kreik.
Þingmennirnir, sem hlustað
höfðu andagtugir á ræðu Einars
Olgeirssonar og Héðins, höfðu
ekki botnað lifandi vitund í öllu
þessu fargani. Það var fyrst
þegar þeir heyrðu til strákpatt-
anna á götunni, að ljós rann
upp fyrir þeim. Þama var skýr-
ingin. Kommúnistarnir voru
sárir við fyrri félaga sína. Þá
langaðí til að vera með í
„skrípaleiknum“, sem þeir köll-
uðu svo. Það er gamla sagan
um refinn, sem sagði að berin
væru súr, þegar liann gat ó-
mögulega náð í þau.
Svona er það.
Það var auðheyrt á kommún-
istum, að þeir töldu þingmeun
Framsóknar- og Alþýðuflokks-
ins hold af sínu holdi. Höfðu
þeir ekki samkvæmt allrahæst-
um fyrirmælum frá „föður Sta-
Iin“ stutt þessa menn, allstaðar
þar, sem á þurfti að halda? Og
hverjar voru svo þakkirnar?
Hermann sagði bara eins og
fyrri daginn: — Ykkar augna-
blik er liðið!
Laun heimsins er vánþakk-
læti. Það fengu kommúnistarn-
ir að reyna í gær. Þeir gátu ekki
einu sinni hleypt upp í neinum.
Foi-sætisráðlierrann svaraði
þeim í ósköp syfjulegum róm,
eins og hann væri milli svefns
og vöku. Og Stefán Jóhann
Ijómaði af sínu sælasta og há-
borgaralegasta ánægjuhrosi,eins
og hann væri að svara slcála-
ræðu einhvers orðulilaðins dús-
bróður í Svíaríki. Það tók yfir-
leitt enginn maður mark á
kommúnistunum. Það var al-
veg eins og þeir væru „þurkað-
ir út“.
Þeir voru eitthvað að stagla
með gömul blaðaummæli, hvað
Tíminn hefði sagt fyrir 10 ár-
um og hvað Aþlýðuhlaðið hefði
sagt fyrir 5 árum. Þeir hlupu
alveg yfir, hvað jieir höfðu
sjálfir sagt um Héðinn fyrir
rúmu ári. Það var býsna klókt
af þeim. En þar með eru klók-
indin hka upp tahn.
Þessi vantrausts tillaga vár
eintómt flan. Héðinn rumdi,
eins og gamall klár, sem teymd-
ur er úr hlaði undir þungum
klyfjum. Einar Olgeirsson
glamraði eins og hans er vandi.
Hann er eklci sérlega þjóðlegur
í sér, en þó hefir gamall sveita-
maður sagt, að liann fari altaf
ósjálfrátt að liugsa um réttiru-
ar, þegar hann heyri Einar
lialda ræðu. Það sé einhver sér-
kennilegur „réttarkliður“ í Ein-
ari, þegar hlustað sé álengdar.
Og það er vist eitthvað til í
þessu.
Eins og sagt hefir verið stóðst
þjóðstjómin þessa eldraun af
mikilli prýði. Kom það í Ijós,
sem raunar vita mátti „að allar
vildu meyjar með Ingólfi
ganga“. Því þótt kommúnistar
hörkuðu það af sér að greiða
atkvæði með vantrausti sínu,
var öllum ljóst, að óánægja
þeirra var fyrst og fremst
sprottin af þvi, að fráfarandi
stjórnarflokkar höfðu ekkert
„nefnt það við þá“ að vera með
í stjórnarmyndun. En þetta cr
ekki annað en það sem oft skeð-
ur eftir dálítið kátínubrall í
ljósaskiftunum, að „ungmeyjan
grætur“.
Atkvæðagreiðslan í gær leiddi
það í ljós, að engin ríkisstjóm
hér á landi hefir átt jafn öflug-
an þingmeirihluta að baki sér.
Hitt er þó engu minna um vert,
að engin stjórn hefir átt jafn á-
kjósanlegi'i andstöðu að fagna!
a
Hið nfkosna útvarpsráð
teknr vlð störfnm í dag.
Forsætisráðherra Hermann
Jónasson, sem einnig er menta-
málaráðherra, hefir nýlega skip-
að Jón Eyþórsson sem formann
hins nýkjörna útvarpsráðs, en
lítill vafi leikur á því, að slík
ráðstöfun mun mælast illa fyrir
rneðal alls almennings.
Hið nýja útvarpsráð er þann-
ig skipað: Árni Jónsson frá
Múla, Yaltýr Stefánsson, Pálmi
Hannesson, Finnbogi Rútur
Valdemarsson og Jón Eyþórs-
son.
í fráfarandi útvarpsráði áttu
sæti þeir: Sigfús Sigurþjartar-
son, sem var formaður ráðsins,
Árni Friðriksson, Valtýr Stef-
ánsson, Sigurður Raldvinsson,
Pálmi Hannesson, Pétur G. Guð-
mundsson og Jón Eyþórsson.
Hið nýkjörna útvarpsráð mun
taka til starfa í dag. Er óskandi
að það verði öllu afkastameira
og áhrifaríkara en hið fráfar-
andi, sem tiltölulega fátt hefir
unnið sér til ágætis, að því er
menn best vita.
M0HICAH-STR4ND1B.
Vegna brims hefir enn ekki
verið gerð úrslitatilraun til
þess að ná b.v. Mohican út.
Eins og áður hefir verið getið
liér í blaðinu, fór Geir Zoega,
útgerðarmaður í Hafnarfirði,
aftur austur í Hallgeirsey s. 1.
mánudagsmorgun, til þess að
vera viðstaddur tilraunir þær,
sem varðskipið Ægir er að gera
til þess að ná út enska botnvörp-
ungnum Mohican frá Hull, sem
strandaði á Rangársandi fyrir
skemstu.
Tilraunirnar hafa ekki borið
árangur enn sem komið er, og
mun það aðallega vera brim,
sem veldur, að erfitt er um
björgunartilraunir. Strax og
brim lægir mun verða gerð úr-
slitatilraun til þess að ná út
skipinu.
Geir Zoéga er enn fyrir aust-
an.
Kokkinaki, frægasti flngmafiur Róssa nú,
ætlaði að leggja npp f flngið f ndtt, en
varð að fresta pvf vegna veðurs. Hann
Ieggor af stað pá og þegar.
EINKASKEYTI TIL VÍSIS.
London í morgun.
Heimssýningin mikla í New York verður opnuð
á sunnudaginn kemur, og hafa miljónir manna streymt
til New York og annara nærliggjandi borga, seinustu
daga. Er búist við, að fjöldi sýningargesta verði svo
mikill, að langtum færri komist að í fyrstu en vilja.
Hefr þó verið gripið tl hverskonar nútímatækni, sem
til mála getur komið, til þess að greiða fyrir sýningar-
gestum, og að koma gestunum til sýningarsvæðisins
og frá því á sem hagkvæmastan hátt. Æðstu embættis-
menn ríkisins verða viðstaddir setningu sýningarinn-
ar, og margt erlent stórmenni.
Eitt af því í sambandi við setningu Heimssýning-
arinnar, sem vekur langsamlega mesta athygli, er á-
form Rússa um viðstöðuíaust flug milli New York
og Moskva.
Var svo ráð fyrir gert, að einn af frægustu
flugmönnum Rússa — Kokkinaki —, sem sett
hefir fjölda mörg flugmet, Iegði af stað frá
Moskva í tæka tíð til þess að geta verið kominn
til New York, áður en sýningin verður opn-
uð. Hann ætlaði að leggja af stað kl. 3.30 í nótt
sem leið, en varð að fresta ferð sinni, vegna
þess, að stormur var yfir Finnlandi og norðan-
verðu Atlantshafi. Kokkinaki mun leggja af stað
undir eins og veðurhorfur batna.
Mikill áhugi er fyrir flugi þessu, bæði í
Rússlandi — þar sem litið er á flugið sem „good-
will-flight“, þ. e. að Rússar vilja með flugi sínu
heiðra Bandaríkjamenn og sýna þeim góðvild
sína og aðdáun — og ekki síður í Bandaríkjun-
um, þar sem mikil aðdáun er stöðugt ríkjandi
í garð rússneskra f lugmanna, síðan er þeir settu
hin frækilegu langflugsmet sín í flugferðum til
Bandaríkjanna yfir norðurheimsskautið.
United Press.
Bretar kveflja 750.000
miga menn til heræfinga.
Grnndvöllnr lagðnr að því að firetland hafi
miljönaher á takteinnm, ef styrjöld hrýst út,
EINKASKEYTI TIL VÍSIS.
London í morgun.
Sámkvæmt áreiðanlegum heimildum var samþykt á ráðu-
neytisfundi í gærkvöldi, að koma á herskyldu í Bretlandi. Eins
og sjá mátti af skeyti því, sem United Press sendi í gærmorg-
un, var þegai' búið að ákveða herskyldu karla á aldrinum 18
—22 ára, en það sem raunverulega hefir gerst á fundinum á
mánudags- og þriðjudagskvöld, er það
að Bretar hafa loks horfið frá því hefðbundna fyrir-
komulagi, að hafa ekki herskyldu á friðartímum. Her-
skyldan verður nú lögleidd, og þegar í stað kvaddir
til vopna ungir menn á aldrinum 18, 19 og 20 ára, sem
eiga að gegna herskyldustörfum f jóra til sex mánuði,
í sérstökum herbúðum, og verða þeir æfðir af þjálf-
urum heimahersins. Giskað er á, að þeir, sem á þess-
um aldri eru, og kvaddir eru til æfinga, séu um 750.000
talsins.
Verður svo haldið áfram að
kalla menn til æfinga upp að 25
ára aldri. Fer það svo eftir út-
liti og horfum hversu langt
verður farið í þessum efnum,
en ef til styrjaldar kemur verða
allir karlar alt að 45 ára aldri
kvaddir til vopna. Fjolda margir
karlar innan við fertugt og
jafnvel eldri, sem fengu hern-
aðaralega æfingu í heimsstyrj-
öldinni, þyrftu tilltöluleg minni
æfingu en hinir yngri menn.
Verður þess mjog skamt að
bíða, að Bretar geti teflt fram
miljónaher, éins og í -Heims-
GLERKASTALINN Á HEIMSSÁNINGUNNI,
sem liér birtist mynd af, var reistur fyrir 1 miljón dollara.
Glerið í kastalaturninum er allavega litt, og kvað, það vera
furðulega fögur sjón, að sjá kastalann, er sól skín á hann, og
þó enn frekara á kvöldin, er hann er allur ljósum prýddur.
í kastalanum er sýning á allskonar mununi o. fl. úr gleri, —
og yfirleitt sýnt, til hversu margvíslegra nota gler hefir verið
mannkyninu, — og þó einkanlega á voinm timum, er marg-
víslegar tegundir glers eru notaðar á æ fleiri vegu.
Sandarikin vilja alls-
herjar (riðarsáttmála.
Cordell Hull býður aðstoð
Bandaríkjanna við slíka
samningagerð.
EINKASKEYTI TIL VÍSIS.
London í morgun.
Cordell Hull, utanrikismála-
ráðherra Bandaríkjanna hefir
haldið ræðu, og lýst yfir því, að
ef Evrópuþjóðirnar vildi setjast
að samningaborði og gera til-
raun lil þess að jafna deilumál
sín friðsamlega, væri Bandarík-
ín fús til þess að leggja öllum
slikum tilraunum lið, í þeirri
von, að friðarvonir þjóðanua
verði ekki fyrir borð bornar, í
þvi róti sem nú er í alheims-
málunum.
United Press.
De Monzie fagn-
að í Póllandi.
EINKASKEYTI TIL VÍSIS.
London i morgun.
De Monzie, franska ráðherr-
anum, hefir verið tekið ákaflega
vel í Póllandi. Flytja pólsk blöð
margar greinir um komu hans
og fransk-pólska vinátíu. De
Monzie fór til PóIIands til þess
að vera viðstaddur opnun nýrr-
ar járnbrantar.
United Press.
styrjöldinni. En sá er munurinn,
að þá þurfti að reisa herinn svo
að segja frá grunni, eftir að
styrjöldin skall á, því að fasta-
herinn var mjög fámennur.
Ákvarðanirnar um þetta hafa
verið gerðar að óskum Frakka
og af því, að Bretar hafa sann-
færst um, að það er knýjandi
nauðsyn. Með þessu ætla Bretar
að sýna Þjóðverjum, að þeim
er fylsta alvara að spyrna við
frekari ágangi af þeirra hálfu.
United Press.
Times um Berlinar-
fðr Henderson.
EINKASKEYTI TIL VÍSIS.
London í morgun.
Times hefir gert að umtals-
efni, að Sir Neville Henderson
var sendug aftur til Berlinar.
Segir blaðið að breska stjórnin
hafi óskað eftir að lialda sem
nánustu sambandi við þýsku
stjórnina, en það sé ekki hægt
nema með því að hafa þar
sendiherra. Þess er vænst, að
Sir Neville geri þýsku stjórn-
inni sem nánasta grein fyrir af-
stöðu bresku stjórnarinnar og
stuðningi hennar við boðskap
Roosevelts. — Henderson hafði
ekki talað við von Ribbentrop í
gærkveldi, en hann hafði rætt
við ítalska sendiherrann i Ber-
lín.
United Press.
Pólitisfet vcpna-
hlé i Kanada.
EINKASKEYTI TIL VÍSIS.
London í morgun.
í tilefni af komu bresku kon-
ungslijónanna, segir í símfregn
frá Ottawa, liafa allir þingflokk-
ar samþykt að láta allar deilur
niður falla meðan ferð konungs-
hjónanna stendur yfir.
United Press.
Gafencu í
París.
EINKASIŒYTI TIL VlSIS.
London í morgun.
Gafencu utanríkisráðherra
Rúmena er nú kominn til Par-
isar og á hann þar mikilvægar
viðræður við Bonnet utanríkis-
málaráðherra. Um viðræður
Gafencu við Halifax og Chamb-
erlain hefir ekkert verið tilkynt
opinberlega. Frá Pax-ís fer Gaf-
encu til Rómaborgar og verður
hann kominn þangað á laugar-
dag. United Press.