Vísir - 27.04.1939, Síða 2
V I S I R
Horfurnar í álfunni alvarlegri en í
september.
Menn kalladir til
skyldustarfa í loft-
varnarbyssustödv-
um hvarvetna í
Bretlandi.
Breska herskipiö Repnlse verðnr ekki
sent til Kanada með konnngsiijdnin í
næsta mánnði.
EINKASKEYTI TIL YÍSIS.
London í morgun.
Chamberlain forsætisráðherra vék að því í ræðu
sinni í neðri málstofunni í gær, að á þeim
tímum, sem nú væri, yrði að taka ákvarðanir
mjög snögglega, og' það væri of seint að leggja her-
skyldumálið fyrir þingið, þegar ófriður væri skollinn á.
Tímarnir væri ekki venjulegir friðartímar, því að
horfurnar væri áframhaldandi mjög ískyggilegar.
Til marks um hvers alvarlega stjórnin telur horfa er
það, að í gær og alla síðastliðna nótt hefir verið unnið
af kappi að margskonar undirbúningi í öllum loft-
varnastöðvum landsins, alveg eins ,og í september, er
menn óttuðust, að heimsstyrjöld kynni að brjótast út
þá og þegar. Allir þeir, sem vinna við loftvarnastöðvar,
hafa fengið fyrirskipun um að hverfa til stöðva sinna.
Blöðin sem gera þessar ráðstafanir að umtalsefni ræða þær
í sambandi við það, sem Chamberlain sagði, að nauðsynlegt
væri, að hafa ávalt nægum mannafla á að skipa í loftvarna-
stöðvunum. Og þegar ískyggilega horfði yrði að hafa nægt lið
til taks.
Hermenn úr fastahernum eiga að vera stöðugt á verði í loft-
varnastöðvunum, uns búið er að þjálfa nýliða sem geta tekið
við af þeim.
7000 manna japansknr
her hrakinn á flitta
við Nanchang.
EINKASKEYTI TIL VÍSIS.
London í morgun.
Samkvæmt tilkynningum kínversku stjórnarinnar halda
Kínverjar áfram sigursælli gagnsókn á hendur Japönum og
hafa víða unnið mikið á.
VÍSIR
DAOBLAÐ
Útgefandi:
BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H/F.
Ritstjóri: Kristján Guðlaugsson.
Skrifstofa: Hverfisgötu 12.
Afgreiðsla: Hverfisgötu 12.
(Gengið inn frá Ingólfsstræti).
S í m a r :
Afgreiðsla 3400
Ritstjórn 4578
Auglýsingastjóri 2834
(kl. 9—12 5377)
Verð kr. 2.50 á mánuði.
Lausasala 10 aurar.
Félagsprentsmiðjan h/f.
Lánstraust
landsins.
INGI hefir nú verið frestað
til haustsins. Hin nýja rík-
isstjórn fær þannig tækifæri til
þess að ráða ráðum sínum í ró
og næði. Enginn vafi er á því,
að það er fullkominn ásetning-
ur ráðherranna að taka nú til
óspiltra málanna. Enda er það
svo, að oft er þörf en nú er
nauðsyn. Það eru ekki líkindi
til þess að þeir sem með völdin
hafa farið að undanförnu hafi
liaft neina tilhneigingu til þess
að sverta ástandið úr hófi
fram. Miklu fremur er áslæða
til að ætla, að þeir reyni að
berja í brestina í lengslu lög. En
af ræðum þeim, sem fluttar
voru við stjórnarmyndunina
varð það ^alþjóð ljóst, að hag
lands og þjóðar er svo komið,
að þörf er viturlegra úrræða og
karlmannlegra átaka til þess að
koma nauðsvnlegri lagfæringu
til leiðar.
Ráðherrar Sj álfstæðisflokks-
ins ganga þass ekki duldir,
fremur en flokksmenn þeirra,
að þeir hafa tekið að sér vanda-
söm störf og vanþakklát. At-
vinnuvegirnir eru í kaldakoli,
einkum við sjóinn. Fjárhagur
ríkisins hinn erfiðasti. Viðskifti
lÖmuð vegna gjaldeyrisskorts.
Lánstraust landsins þrotið. Og
loks yfirvofandi styrjaldar-
hætta.
Þannig er ástandið þegar
Sjálfstæðismenn taka sæti í
rikisstjórninni. Þeir koma
þangað ekki til þess að njóta
góðra daga, svo mikið er vist.
Þeirra fulltingis var ekki óskað
meðan alt lék í Iyndi. Þeim
hefir ekki verið boðin þátttaka
í „góðærisstjórn“. Það er ekki
leitað til þeirra fyr en á elleftu
stundu. Um þetta skal ekki sak-
ast. Til Sjálfstæðisflokksins er
leitað þegar mest á liggur. í
því felst sú fylsta viðurkenning,
sem á verður kosið frá fornum
andstæðingum.
Það er dálítið ólík aðkoma
fyrir Sjálfstæðismenn nú, eða
fýrir þá, sem settust að völdum
eftir kosningarnar 1927. Þá
höfðu Sjálfstæðism. farið með
völd í 4 ,ár. Þau ár voru mesta
viðreisnartímabilið í síðari sögu
okkar. Atvinnuvegirnir til lands
og sjávar stóðu með miklum
blóma. Útgjöld ríkisins voru
helmingi lægri en nú. Skattar
höfðu farið lækkandi. Samtimis
hafði verið unnið meira að op-
inberum framkvæmdum, en áð-
ur hafði þekst. Lánstraust ríkis
og einstaklinga erlendis betra
en verið hefir, fyrr eða síðar.
Þannig var ástandið, þegar hér
tóku völdin, þeir flokkar, sem
stjórnað hafa Iandinu, síðustu
12 árin.
Verkefni hinnar nýju stjórn-
ar eru mikil og margvísleg. At-
vinnurekendurnir í landinu
þurfa að finna, að fullur skiln-
ingur sé á hag þeirra og af-
stöðu. Öll þjóðin verður að sjá,
að ekki verði stjórnað með
hagsmuni einstakra stétta,
flokka né fyrirtækja fyrir aug-
um. Það verður að örfa fram-
takið í stað þess að draga úr
því. Og síðast en ekki síst: Það
verður að endurreisa hið glat-
aða lánstraust erlendis.
Undanfarin misseri höfum
við gengið bónleiðir til búðar,
livar sem leitast hefir verið
fyrir um lánstökur erlendis.
Fyrir einu ári lýsti formaður
Framsóknarflokksins þvi yfir
mjög skorinort, að engin von
væri til þess að erlendir fjár-
málamenn vildu hætta hingað
fé sínu, að „óbreyttum kring-
umstæðum“. Ekki er við því að
búast að hinar „breyttu kring-
umstæður“ hafi mildu umþokað
í þessum efnum, á þeim viku-
tíma, sem liðinn er síðan Sjálf-
stæðismenn gengu til stjórnar-
myndunar. En það er álit
þeirra, sem kunnugir eru i fjár-
málaheiminum, að vitneskjan
um þátttöku sjálfstæðismanna í
stjórn landsins, muni hafa
heillavænleg áhrif út á við.
Reynslan ein getur úr þessu
skorið. En takist að endurreisa
lánstraust landsins, munu Sjálf-
stæðismenn ekki telja eftir
stuðninginn við hina nýju
stjórn.
a
MQHICAN-STRANBIfl.
Horfflr batnandi að togarinn
náist út.
Vísir átli tal við Geir Zoege
útgerðarmann í Hafnarfirði í
morgun. Var Geir þá i Ifallgeirs-
ey, en á förum heim.
Kvað G. Z. góðar horfur á,
að togarinn næðist út. Hann
hefði verið dreginn út 2—-3
lengdir sínar og þyrfti ekki að
draga hann út nema 1—2 lengd-
ir til, og væri liann þá kominn
á flot, en nú væri smástreymt,
og ekki hægt að gera úrslilatil-
raunina fyr en eftir 1—2 daga
eða svo, með ’vaxandi straum.
Veður er gott og alveg
ládautt við sandinn.
ÍOOO námu-
menn farast.
EINKASKEYTI TIL VÍSIS.
London í morgun.
Ógurleg gassprenging
varð í morgun í kolanámu í
Qubari í Hokkaido-eyju í
Japan.
Niðri í námunni voru
1279 verkamenn, er spreng-
ingin varð, og komust að
eins 163 upp úr námunni.
Hinir króuðust inni í nám-
unni og er talið að þeir
muni flestir eða allir hafa
farist.
Samkvæmt seinustu
fregnum óttast menn, að
yfir 1000 námumenn hafi
farist í námunni.
United Press.
Fulltrúaráð
sjálfstæðisfélaganna í Reykjavik
heldur fund í kvöld kl. 8J/>, í Varð-
arhúsinu. — Áríðandi að allir mæti!
HVERS VEGNA HERSKIPIÐ
REPULSE VERÐUR EKKI
SENT TIL CANADA.
Það er búist við því, að
Chamberlain muni tilkynna í
neðri málstofunni í dag, að |
bresku konungshjónin muni
ekki fara á herskipinu Repulse
í heimsókn sína til Canada og
Bandaríkjanna, eins og ráðgert
var, heldur í línuskipinu Em-
press of Australia. Að minsta
kosti býst Daily Express við
yfirlýsingu um þetta frá Cham-
berlain, og í London er altalað,
að þau fari ekki vestur um haf
á Repulse.
Orsökin er talin sú, að svo
ískyggilega horfi, að flota-'
málastjórnin vilji ekki senda
Repulse frá Bretlandi þar
sem Repulse er eina herskipið
í flota Breta, sem hraðskreið-
ara er en litlu orustuskip-
in þýsku fþ. e. hin svo köll-
uðu „pocket“ (vasa ) orustu-
skip), sem eru afar hrað-
skreið og útbúin eins full-
komnum tækjum og stór
orustuskip. Eiga Þjóðverjar
3 slík orustuskip fullgerð. —
Af stóru bresku herskipunum
er Repulse eitt nægilega
hraðskreitt til þess að elta
uppi slík herskip.
HERSKYLDUÁFORMUNUM
VEL TEKIÐ Á BRETLANDI.
Akvörðununum um her-
skylduáformin liefir verið vel
íekið í Brellandi yfirleitt, að því
er best verður séð, þótt senni-
lega sé mótspyrnu að vænta frá
jafnaðarmönnum. Blöðunum
verður tíðrætt um þessa stefnu-
breytingu stjórnarinnar og telja
nauðsynlegt, að herskyldunni sé
komið á. Evening Standanrd
telur að hér sé ekki verið að
rifta neinni erfðavenju, því að
hér liggi fyrir svo mikil og knýj-
andi nauðsyn, að ekki verði
saman jafnað við aðra tíma en
þá, er ófriður virðist yfirvof-
andi. Þegar horfurnar eru eins
Segjast Kínverjar hafa náð
miklu svæði af Japönum á sitt
vald. Hefir verið stöðug sókn
af Iiálfu Kínverja að undan-
förnu. — Fregnir frá Kína í gær
vekja óvanalega eftirtekt, því
að samkvæmt þeim hafa Kín-
verjar sent mikið lið til Nan-
chang-vígstöðvanna þar sem
Japanir voru taldir hafa komið
sér vel fyrir eftir sigur sinn þar.
Er svo að sjá, sem þeir hafi
ekki búist við mikilli árás á
þeim slóðum, en þó höfðu þeir
þarna mikið lið.
Kínverjar segjast hafa gert
gagnárás við Nanchang og
borið sigur úr býtum. Hafa
þeir tekið mikið herfang m.
a. mikið af brynvörðum bif-
reiðum. — Kínverjar ætla að
ömurjegar og nú, er knýjandi
nauðsyn, að alt sé gert sem unl
er til þess að þjóðin geti varið
frelsi sitt, sem henni og mörg-
urn þjóðum öðrum sé dýrmæt-
ast af öllu.
ÁLIT FRANSKRA
OG ENSKRA BLAÐA.
Frönsk blöð eru mjög ánægð
yfir þeirri ákvörðun, sem breska
stjórnin hefir tekið. Þýsk blöð
— t. d. Börzen Zeitung — telur,
að þessi ákvörðunbreskustjórn-
arinnar sýni betur en nokkuð
annað að liverju breska stjórnin
stefni í raun og veru og mun
þar vera átt við það, að Bretar
leggi nú höfuðáherslu iá að
treysta samtökin gegn Þýska-
landi.
þarna hafi Japanir liaft 7000'
manna lið til varnar og segj-
ast þeir liafa tvístrað þessum
her, sem nú sé á óreglulegu
undanhaldi.
United Press.
Islenskir starfs-
menn viö heims-
sýiingunð.
Átta manns af íslenskum ætt-
um verða starfandi við íslensku
sýninguna í New York og verða
þar af nokkurir Vestur-íslend-
ingar. Gefa þeir sýningargest-
um leiðbeiningar og upplýsing-
ar um ísland, svo sem þess verð.
ur óskað.
Farnar eru vestur tvær kon-
ur, frú Ivlara Árnason og frk.
Jóhannsson, en Thor R. Thors
er ófarinn vestur og verður
hann þar í 3 mánuði. Har.
Árnason verður vestra fram
eftir maímánuði, en í júní fer
Thor Tliors vestur í erindum S.
í. F. og verður á sýningunni ís-
landsdaginn 17. júní.
Vilhjáhnur Þór dvelur vestra
meðan sýningin stendur yfir.
Send hefir verið vestur aukin
og endurbætt útgáfa hinnar
ágætu bókar — ísland: Ljós-
myndir af landi og þjóð.
Höfnin.
í morgun komu þessir togarar af
veiðum : Gulltoppur, Snorri goði,
Baldur og Karlsefni, allir með 6o
—70 föt lifrar.
FRAKKAR OG BRETAR IIAFA KEYPT FLUGVÉLAR AF ÞESSARI GERÐ í BANDARÍKJUNUM.
Þetta er mynd af flugvélum, sem tóku þátt í mesta hópflugi, sem ameríski herskipaflotinn nokk-
uru sinni hefir stofnað til. Eru þetla alt stórarárásarflugvélar og tóku 48 þeirra þátt í hópfluginu
— frá San Diego í Kaliforniu til Panama, en ef til til ófriðar kemur eiga slíkar flugvélar að verja
skurðinn. Vegalengdin frá San Diego til Panama er 3000 enskar mílur. 45 af flugvélunum flugu
alla leið til Panaina án viðkomu, en þrjár nauðlentu. — Bretar og Frakkar hafa keypt talsvert af
flugvélum af þessari gerð í Bandaríkjunum. —