Vísir


Vísir - 09.05.1939, Qupperneq 2

Vísir - 09.05.1939, Qupperneq 2
VISIR VÍSIB DAGBLAÐ Útgefandi: BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H/F. Ritstjóri: Kristján Guðlaugsson. Skrifstofa: Hverfisgötu 12. Afgreiðsla: Hverfisgötu 12. (Gengið inn frá Ingólfsstræti). Símar: Afgreiðsla 3400 Ritstjórn 4578 Auglýsingastjóri 2834 (kl. 9—12 5377) Verð kr. 2.50 á mánuði. Lausasala 10 aurar. Félagsprentsmiðjan h/f. Hitaveitan. y ÍSIR skýrði frá því í gær, að " hitaveitumálinu mundi verða ráðið til lykta einlivern næstu daga. Þau tíðindi ættu að vekja óblandna ánægju um alt Island. Því hitaveitan er merki- legasta framkvæmdin, sem nokkurn tíma hefir verið ráðist í hér á landi. Það er alveg sama hvort litið er á hagsmunahlið málsins eða menningarlilið. Hvorttveggja er óvenju glæsi- legt. Með hitaveitunni sparast árlega erlendur gjaldeyrir, sem nemur miljón króna, miðað við það verðlag, sem verið hefir á kolum að undanförnu. • En menningaráhrifin, sem fram- kvæmdinni fylgja, verða ekki metin til fjár. Eða hvers virði er það fyrir heilbrigði bæjarbúa að losna við reykskýið, sem grúfir yfir bænum? Hvað mundu Lundúnabúar vilja greiða fyrir slíka „ryksugu“. Hitaveitan liefir vakið meiri athygli erlendis, en nokkuð annað mál, sem uppi hefir verið hér. Aumur er öfundlaus mað- ur, segir máltækið. Við höfum sjaldan orðið fyrir því, að út- lendingar hafi litið okkur öf- undaraugum. En að þessu sinni gegnir alt öðru máli. Allir sem á hitaveituna hafa minst, telja hana einhverja merkilegustu framkvæmd, sem nú sé á döf- inni. Og það er einmitt ein- kemii á þessu mál, hversu fjöl- breyttir kostir j)ess eru. Ef blaðað er í gömlum ferða- bókum útlendinga, sem ferðast hafa á íslandi, mæta auganu oftast sömu ömurlegu lýsing- arnar á óþrifnaði þjóðarinnar. Alt fram á síðuslu áratugi hefir þetta sama kveðið við. Og það er vafasamt hvort nokkuð ann- að hefir rýrt okkur jafn mikið í augum umheimsins. Við liöf- um þegar mikið til rekið af okkur óorðið í þessum efnum. En þegar hitaveitan er komin höfum \dð Reykvíkingar ekki einungis tök á að standa jafn- fætis þeim, sem best eru settir hvað þrifnað allan snertir, held- ur skara fram úr þeim öllum. Með hitaveitunni verður „bað- stofa“ á hverju heimili i upp- haflegri merkingu orðsins. Reynsla er fyrir því hverju notkun jarðliitans veldur um ræktun alla. Þess vegna má vænta þess, að hitaveitan verði til þess að fegra bæinn mjög. Það er yfirleitt sama hvert lit- ið er, allsstaðar má gera ráð fyrir áhrifum hitaveitunnar í aukinni menningu, auknum þægindum, aukinni fegurð, auknum þrifnaði, aukinni heil- brigði, aukinni hagsæld þessa bæjarfélags. Tvent er það, sem lamar okk- ur íslendinga um þessar mund- ir öðru fremur: gjaldeyrisskort- ur og atvinnuleysi. Hitaveitan er ævarandi gjaldeyrisráðstöf- un. Og að þvi er atvinnuleysið snertir, þá bætir framkvæmd verksins mjög úr þvi, meðan á Iienni stendur. Vafalaust hefðu menn óskað þess að verkið gæti liafist nú þegar. En vegna ýmis- legs undix-búnings, sem enn er ekki lokið getur vinna ekki byi-jað fyr en eftir nokki-a mán- uði. Hitaveitumálið hefir vexið lengur á döfimii en inenn liöfðu vænst. Bæjarbúar ui'ðu fyrir hinum mestu vonbrigðum á síðastlinu ári, jjegar það kom í ljós, að Jiau fyrirheit, sem gef- in voru erlendis um lánsfé til framkvæmdarinnar, brugðust. Vonbi'igðin urðu til þess, að ýmsir voru farnir að öi'vænta um, að hitaveitan kæmist til fx-amkvæmda á nálægum tíma. Þess meiri vei'ður fögnuður manna nú, þegar liafist vei'ður handa. Um þessar mundir er verið að vinna að þvi að þjóðin geti búið sem mest að sinu, ef til ófriðar dregur i nági'enninu. Framkvæmd liitaveitunnar verður mikilvægasti þátturinn í þeirri viðleitni. Aflafréttir af Akranesi* Þriðjudag 9. maí. Síldaraflinn hefir verið ágæt- ur undanfarna daga á bátana fimm,sem reknetaveiðar stunda héðan. Öfluðu þeir á tveim dög- um fullfermi í línuveiðarann „Ólaf Bjarnason“, eða 523 tunn- ur, sem hann lagði af stað xneð í gærkveldi áleiðis til Þýska- lands. Ennfremur voru í gær tekn- ar um 140 tunnur til hraðfryst- ingar í frystiliús Haraldar Böðv- ai-ssonar & Co., en saltaðar voru um 80 tunnur og úrgangur lát- inn í bræðslu, sem nam nokkr- um tugum tunna. Mestan afla höfðu í gær m.b. „Ægir“, um 150 tunnur og , Höfi-ungur“ um 130 tunnur. Enn mun eiga að afla í þriðja slcipið og hefir heyrst, að það muni verða einn af togurum h.f. Alliance. Frjr. Drengjahlanp Hafnarfjarðar. S.l. sunnudag fór fram liið árlega Drengjahlaup Hafnar- fjarðar. Vegalengdin var sú sama og undanfarin ár, 2.5 km. Þátttakendur voru sjö, en sex komu að marki. Fyrstur varð Haraldur Sig- urjónsson, 7 mín. 41.5 sék., -— annar Ingibjartur Björnsson, 8: 14.9 mín. og þriðji Jón Guð- jónsson, 8:18.5 mín. Besti tími, sem náðst hafði áður, var 8:04.3 mín. og er tími Haralds því met. Norðmeoo óttast álorm ÞjóBverja 1 útgeróar- málutn. Norskir sjómenn og útgerð- armenn hafa áhyggjur af fyrir- ætlunum Þjóðvei'ja að birgja sig sjálfir upp að öllum þeim fiski, sem þeir þurfa, því að Norðmenn lxafa lxaft mikilvæg- an markað fyrir sjávarafurðir í Þýskalandi. Samkvæmt hag- skýrslum keyptu Þjóðverjar fisk og fiskafurðir frá Noregi 1937 fyrir 20 miljónir kr. Versl- unarráðherrann hefir látið í ljós von um, að vegna aukinn- ar neyslu á fiski í Þýskalandi muni verða framhald á því, að Norðmenn hafi þar góðan markað fyrir sjávarafurðir, einkanlega sild. — NRP. Tillögup hans þar ad lixtaudi lagöap fyrir Hitlex* og Halifax lávarö* EINKASKEYTI TIL VÍSIS. London í morgun. Enda þótt menn alment telji horfumar í álfunni ískyggilegar virðist mönnum þó sem heldur hafi rofað til, vegna fregnarinnar um tilraun- ir Píusar XII. til þess að varðveita friðinn. Sumir eru svo bjartsýnir, að gera sér vonir um, að tillögur hans muni leiða til þess, að upp birti og samkomulag náist og þjóðirnar sættist á deilumál sín. Stjórnmálafréttaritari News Chronicle heldur því fram, sam- kvæmt áreiðanlegum heimildum, að Pius XII. eigi frumkvæði að hugmynd um ráðstefnu í framannefndu augnamiði, og hafi erindreki hans rætt þessa hugmynd við Hitler, er hann gekk á fund hans nýverið. Von páfa er, að á ráðstefnu þessari náist samkomulag milli stórveldanna, sem leiði til þess, að ný öld friðar, samvinnu og velgengni renni upp í heiminum. Páfi mun hafa lagt til, að eftirtöld veldi taki þátt í hinni fyrirhuguðu ráðstefnu: Bretland, Frakkland, Þýskaland, Ítalía og Pólland. Það er talið alveg1 vafalaust, að breska stjórnin muni fúslega leggja fram alla krafta sína til stuðnings hugmynd páfa, ef þess er óskað. Fulltrúi páfa, Monsignor Godfrey. hefir afhent Halifax lá- varði greinargerð fyrir áformi Piusar páfa. UMRÆÐUR I NEÐRI MÁLSTOFUNNI ALLA SÍÐAST- LIÐNA NÓTT UM HERSKYLDITFRUMVARPIÐ. Herskyldufrumvarpið var til umræðu í neðri málstofunni í gær og síðastliðna nótt. Voru umræður allharðar á köflum og gerðu andstæðingar herskyldunnar tvær tilraunir til þess að fá málinu frestað, en hvorug bar árangur. Annars var það að- allega ágreiningur um fjárhagshlið málsins, sem olli því, að umræðurnar drógust á langinn, eða þar til kl. að ganga sex í morgun, en frumvarpið var samþykt með 159 gegn 65 atkv. HORE BELISHA SVARAR LLOYD GEORGE. Af hálfu stjórnarandstæð- inga talaði Attlee majór og var ein höfuðröksemd hans, að sjálfboðaliðar reyndist betri hermenn en þeir, sem skyld- aðir væri lil hermensku. Lloyd George talaði með frv. stjórn- arinnai’, en hafði ýmislegt út á það að setja og þótti það ekki ganga nógu langt. Hore- Belislia hermálaráðherra svar- aði f. h. stjórnarinnar. Hann sagði m. a. að Lloyd George hefði fengið orð í eyra hjá ýmsum fyrir það á styrjaldar- árunum, er liann var ráðherra, að hann hefði ekki gert nógu viðtækar ráðstafanir, og slíku halda fram. Hér væri aðalatr- j iði, að leggja réttan grundvöll, ' væri auðvitað alt af liægt að | og byggja á honum eftir því, sem þörf krefði. SEEDS OG MOLOTOV RÆÐAST VIÐ. Sendilxerra Breta í Moskva, Seeds, átti langt viðtal við Molotov í gær. Álit manna er, að xneiri hluti Sovétstjórnar- innar sé fylgjandi samningum við Iýðræðisríkin. SENDIHERRA BRETA í TOKIO hefir átt 40 mínútna viðræðu við Arita utanríkismálaráð- herra. Hvað þeim fór á milli er ekki kunnugt. POTEMKIN IBUKAREST OG VARSJÁ. Potemkin, aðstoðar-utanrík- ismálafulltrúi, sem fyrir nokk- uru var í Tyrklandi, hefir nú verið í Búkarest og rætt við Gafencu. Þaðan fer liann til Varsjá og' ræðir við Beck. — Potemkin hefir sagt það sem „sína skoðun“, að Litvinoff hafi farið fi’á heilsu sinnar vegna. BANDARlKIN EFLA ENN HERSKIPAFLOTANN. Þjóðþing Bandarikjanna hefir samþykt nýja fjxxrveit- ingu til herskipaflotans — þ. e. 773 miljónir dollara. Fjárveit- ingin var samþykt með 237 at- kvæðum gegn 56. EINKASKEYTI TIL VÍSIS. London í morgun. Von Ribbentrop er nú lagður af stað frá Como- vatni áleiðis til Berlín. Áður en von Ribbentrop lagði af stað átti tíðindamaður frá Popola d’Italia viðtal við hann, og í þessu viðtali, að- varaði Ribbentrop lýðræð- isríkin. „ítalir og Þjóðverjar, með Mussolini og Hitler í broddi fylkingar eru ó- sigrandi“, sagði hann, „en því fer fjarri, að ítal- ir og Þjóðverjar vilji styrjöld. Þeir vilja frið“. FRÁ RÓMABORG. CIANO OG MUSSOLINI. PÁLL PRINS OG MARKO- WITZ. Ciano greifi ræddi lengi við Mussolini eftir lieimkomuna frá Comovatni. Talsvert er nú um að vera í Rómaborg. 20.000 ungmennasveitir hersins hafa gengið fylktu liði fyrir Musso- lini og von Brauchitsch, yfir- hershöfðingja Þýskalands. — Páll prins, rikisstjórnandi i Júgóslavíu og Markowitz utan- ríkisrnálaráðherra, eru nú væntanlegir til Rómaborgar. United Press. ítalir vilja miSla mál- nm í deilu Pólverja og Þjóðverja. Osló, í dag. — FB. Samkvæm ttilkynningum frá Italíu og Þýskalandi er tilgang- urinn með hinu pólitíska og hernaðarlega bandalagi Þjóð- vei’ja og ítala náin samvinna til þess að tryggja fx’ið í álfunni. Italir hafa boðist til þess að miðla málum í deilu Pólverja og Þjóðverja — FB. inn ár London í morgun. EINKASKEYTI TIL VlSIS. Frá Burgos er símað, atS Jor- dana utanrríkismálaráðherra, hafi símað Avenol ritara Þjóða- bandalagsins úrsögn Spánar úr Þjóðabandalaginu. United Presa. Uppfinning, sem mun valda gerbreytingu á lofthernaði. Osló, í dag. — FB. Sænsku blöðin skýra frá því, að Borfors falbyssuverk- smiðjurnar hafi fullkomnað nýja uppfinningu. Er það „20 millimetra vélbyssa“ til notkunar í flugvélum og er byssunni stjórnað með véla- útbúnaði. Menn ætla, að þessi uppfinning muni valda hinni stórkostlegustu breytingu flughex-naðarlega, þvi að framvegis vei’ði slikum byss- um komið fyrir í öllum hem- aðarflugvélum. — 1 verk- smiðjunni er unnið nótt og dag og liggja fyrir pantanir, sem nema 262 milj. kr. NRP. Barátta gegn kyn- sjúkdðmnm i Noregi Félagið til vemdar heilbrigði þjóðarinnar er í þann veginn að stofna til skipulagðrar starf- semi í stórum stíl til þess að hindra útbreiðslu kynferðis- sjúkdóma. Noregur er eina menningarlandið, þar sem ekki er búið að skipuleggja slíka baráttu, og gengur fyrrnefnt fé- lag í alþjóðafélagið, sem liefir slika baráttu á stefnuskrá sinni. Verður haldinn opinber fundur um þessi mál næstkomandi föstudag og hefst baráttan með honum. Ráðgert er að koma þvi til leiðar, að fræðsla verði veitt um þessi mál í öllum skólum nemendum, sem eru 17 ára og eldri. En talið er, að á þeim aldri sé unglingum hættast. — NRP. FRÖNSKU HERSKIPIN VIÐ GIBRALTAR. Þegar þýski flotinn var við æfingar við strendur Spánar og Porlugal og heimsótti flotahafnir i spænska Marokko og á Spáni, safnaðist meginhluti Miðjarðarhafsflota Breta við eyjuna Malla og var þar á verði, til þess að gefa gætur að ítölum -— en Fi-akkar sendu mikinn hluta síns Miðjarðar- hafsflota til Gibraltar. Allur er varinn góður“.Skiftu Bi-etar og Frakka þannig með sér verk- urn. — Myndin er af einu herskipi Frakka við Gibi'altar. Nokkur hluti Gibraltarkletts í baksýn. —

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.