Vísir - 11.05.1939, Blaðsíða 2
VISI H
VÍSIR
DAGBLAÐ
Útgefandi:
BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H/F.
Ritstjóri: Kristján Guðlaugsson.
Skrifstofa: Hverfisgötu 12.
Afgreiðsla: Hverfisgötu 12.
(Gengið inn frá Ingólfsstræti).
S í m a r :
Afgreiðsla 3400
Ritstjórn 4578
Auglýsingastjóri 2834
(kl. 9—12 5377)
Verð kr. 2.50 á mánuði.
Lausasala 10 aurar.
Félagsprentsniiðjan h/f.
Síld-
veiðarnar.
ÓIT bræðsíiiSÍlclárVeröiö sé
ekki endanlega ákveðið ma
telja vist að það hækki um nal.
50%. í fyrra var verðið kr. 4.50
fyrir mál. En nú hefir meiri-
hluti stjórnar sildarbræðslu-
stöðva ríkisins samþykt að
greiða 6.70 fyrir málið. Fram-
leiðendur fá þvi sama verð í ár
fyrir 2 mál síldar sem þeir
fengu í fyrra fyrir 3. Að eins
eitt ár, 1937, hefir bræðslusild-
arverðið verið liærra en nú. Þá
var það 8 krónur á málið. En
það sýndi sig, þegar upp var
gert, að verksmiðjurnar þoldu
ekki það verð.
En auk fyrirsjáanlegrar stór-
hækkunar á bræðslusíldinni er
gert ráð fyrir að saltsildin
liækki einnig allmikið í verði.
Þetta eru liin mestu gleði-
tiðindi. Þorskvertiðinni er nú
lokið. Þótt heildarafli sé yokkru
meiri en i fyrra, þá er vertíðin í
lieild sinni innan við meðallag,
og að þvi er togarana snertir er
þetta al-rýrasta verlíð, sem sög-
ur fara af. Ofan á þetta hætist
svo það, að ekki virðist neitt
útlit á, að fiskverðið hækki á
erlendum markaði, heldur jafn-
vel þvert á móíh
Það er þess vegna sýnilegt, að
síldin verður að hjarga, ef
bjargað verður. Síldarfram-
leiðslan er nú orðin stærsti lið-
ui’inn í framleiðslustarfsemi
þjóðarinnar og sá, sem mest
veltur á. Hækkunin á síldarverð-
inu hlýtur þvi að glæða mjög
vonir manna um bætta afkomu
á þessu ári. Ef sildaraflinn
verður í meðallagi eða þar yfir,
ætti að mega takast áð fleyta
sér þrátt fyrir erfiðleika á flést-
um sviðuni.
Það ér sýnilegt að þátttak-
an í síldveiðunum í sumar
verður meiri en nokkru sinni
fyr. Þetta eru hin mestu gleði-
tíðindi. Hagur þjóðarinnar er á
þá lund, að öll hjól þurfa að
vera í gangi, ef ekki á að bera
upp á sker. Elckert getur bjarg-
að nema framleiðslan komist
aftur úr kútnum. Nú mun livert
skip verða á floti.um sildveiði-
tímann, allar verksmiðjur rekn-
ar af fylsta krafti og síldarsölt-
un sennilega meiri en nokkru
sinni fyr. Ef ekki verður afla-
brestur, ætti þvi að mega vænta
þess, að síldarvertiðin i sumar
færi þá björg í búið, að duga
megi um sinn.
Það var orðtak Otto heitins
Wathne, sem var einhver mesti
framkvæmdamaður hér á landi
síðasta fjórðung 19. aldarinnar
„det kommer an pá silla“ —
það er undir síldinni komið.
F.ins og högum þjóðarinnar er
nú komið, gæti hún vel gert
þetta orðtak að sínu. Alt veltur
á sildinni. Þorskurinn er ekki
lengur aðalútflutningsvaran. Og
þótt fiskaflinn ykist mikið frá
því sem verið hefir að undan-
förnu, er vandinn ekki þar með
leystur. Við eigum í samkepni
við þjóðir, sem standa miklu
betur að vígi í markaðslöndun-
um og geta auk þess greitt út-
flutningsverðlaun svo tugum
króna nemur á hvert skippund.
Hvað síldarafurðirnar snert-
ir, eru markaðarnh’ miklu
frjálsari og hagstæðari. Við er-
um ekki í neinum vandræðum
með markað fyrir síldarlýsi og
síldarmjöl. Þess vegna er senni-
lega óhætt að auka bræðslu-
stöðvar allmikið frá því, sem er.
Reynslan hefir sýnt, að altaf
hafa orðið tafir, þegar mest
hefir borist að af síldinni, vegna
þess að verksmiðjurnar hafa þá
ekki haft undan. Úr þessu þarf
að bæta.
a
Prófessor
Sigfiis Einarssoi.
Prófessor Sigfús Einarsson,
tónskáld, andaðist í gær rnjög
sviplega, en hann hafði verið
veikur fyrir hjarta undanfarið,
og mun hafa verið á förum til
útlanda til þess að leita sér
Jækninga, þótt dauðinn yrði
fyrri til.
Á fimmta tímanum í gær var
prófessor Sigfús Einarsson
staddur inni i Tóbaksverslun-
inni Havana i Austurstræti, en
hné þá skyndilega niður. Menn,
sem í búðinni voru staddir
brugðu þá við, náðu í lækni og
sjúkrabifreið, og flutti hún
prófessorinn á Landspítalann,
en er þangað kom var liann lát-
inn.
Próf. Sigfús Einarsson var
fædclur að Eyrarbakka hinn 30.
janúar 1877. Hóf hann nám í
Latínuskólanum árið 1892 og
útskrifaðist sem stúdent árið
1898. Fór hann þá til háskólans
í Ivaupmannahöfn, og hugðístað
stunda lögfræði, en tónlistin
hafði ávalt átt i lionum rík ítök,
og fór svo er til Kaupmanna-
hafnar kom að hann lagði lög-
fræðinámið alveg á hilluna, en
snéri sér að liljómlistarnámi af
fullu kappi.
Árið 1906 fluttist Sigfús Ein-
arsson heim til Islands og
kvæntist um likt leyti danskri
koiilt, Vaíborg Helleman, Hér í
bænum gegndi prófessor Sigfús
mörgum störfum, var söng-
kennari við ýmsa skóla, organ-
leikari við dómkirkjuna, stofn-
aði og æfði kóra og átti frum-
kvæði að stofnun Hljómsveitar
Reykjavíkur, og veitti henni
förstöðu um skeið.
Prófessor Sigfús Einarsson
samdi ýms tónverk, og mörg
hin vinsælustu lög meðal þjóð-
arinnar. Um æfiferil hans og
störf verður ritað siðar hér i
blaðinu.
Krían
er nú komin hingað í sumar-ver-
ið og er óvenju snemma á ferðinni
að þessu sinni. — Hún er hverjum
fugli nákvæmari um ferðir sínar
hingað, að því er til tímans tekur,
og hefir verið talið að ekki skeik-
aði, að hún kæmi rétt um kross-
messuna, stundum sjálfan kross-
messudaginn. 1 f.yrradag (9. maí)
var allmikið af krium á, flökti við
Þingvallavatn og sagði Símon bóndi
í Vatnskoti, að þær væri komnar
fyrir nokkurum dögum. Taldi hann
það óvenjulega snemt.
Súðin
er væntanleg hingað síðdegis í
dag. —
Rússar hafna tillögum Breta, -
segip JDaily Herald. — Times elur enn voniv um samkomulag
Rósssr Tiija trygpja sjálftlæDi Eystra-
saltsrfkjannp, ekki síöur en Pðilands
og Rúmsnío.
EINKASKEYTI TIL VÍSIS.
London í morgun.
Lundúnablöðin í morgun gera sér vonir um, að
skýringar þær, sem Chamberlain gaf í neðri
málstofunni í gær, verði til þess að draga úr
grunsemdum Rússa, og verði þá greiðari leið að sam-
komulagi við þá. Nokkurs skoðanamunar gætir í blöð-
unum í greinujn og fréttum um þetta mál og virðist
,svo, sem sum þeírra hafi ekki mikla trú á því, að sam-
komulag náist.
Blaðið Times er þó þeirrar skoðunar, að sam-
komulagsumleitununum sé þó svo langt komið,
að vænta megi árangurs. Úr því þeim sé eins langt
komið og orðið er verði að vænta einhvers ár-
angurs.
Verkamannablaðið Daily Herald býst þó við, að
Rússar hafni tillögum Breta, vegna þess áð ráðstjórn-
in sé staðráðin í að halda til streitu þeirri kröfu, að
samkomulagið nái einnig til Eystrasaltsríkjanna, —
Lithauen, Eistlandi og Lettlandi — verði heitið vernd
ekki síður en Rúmeniu og Póllandi.
News Chronicle er þeirrar skoðunar, að efasemdir
Rússa um heilhug Breta og Frakka hafi aukist að und-
anförnu, vegna afstöðu þeirra gagnvart ítalíu, Spáni
og Japan, en Rússar líta svo á, að skort hafi festu og
einurð í framkomunni gagnvart þessum ríkjum.
Skýringar Chamberlains.
í ræðu þeirri, sem Chamber-
lain flutti í neðri málstofunni í
gær, gerði hann allítarlega
grein fyrir samkomulagsum-
leitunum við Rússa. Kvað liann
Breta liafa farið fram á, að
Rússar gæfi yfirlýsingu um, að
þeir kæmi Bretum og Frökkum
til lijálpar ef á þá væri ráðist
vegna skuldbindinga þeirra
gagnvart Póllandi og Rúmeníu
(sbr. skeyti í Yísi í gær), en um
savna leyti hefði Rússar lagt
fram viðtækari tillögur (hern-
aðarbandalag Breta, Frakka,
Rússa). Hefði Bretar bent á
ýmislegt varliugavert í því sam-
handi og sent gagntillögur, sem
nú væri verið að athuga. Nokk-
urs misskilnings kvað Chamb-
erlain hafa orðið vart af Rússa
hálfu út af þvi, að gert var ráð
fyrir aðstoð Rússa, er til styrj-
aldar væri komið út af skuld-
bindingum Breta og Frakka. —
Nokkurar umræður urðu um
þetta og er nú beðið svars frá
Moskva.
45 SPRENGIEFNIS-„PAT-
RÓNUR“ í PÓSTKASSA Á
STÓRHÝSI í LIVERPOOL.
Einkaskeyti til Yísis.
London í morgun.
í morgun, þegar póstmað-
ur nokkur í Liverpool var að
tæma póstkassa á stórhýsi
nokkuru í aðalhluta borgar-
innar, fann hann 45 „patrón-
ur“ sprengiefnis í kassanum.
Ef sprenging hefði orðið í
kassanum hefði vafalaust
orðið stórslys af, því að um-
ferð er þarna mjög mikil.
Talið er víst, að írskir
hermdarverkamenn hafi sett
sprengiefnið í póstkassann.
United Press.
Flotasýning til heiðurs
Páli prins, í Neapel
Vietor Emanuel og Mussolini viðstaddir.
EINKASKEYTI TIL VÍSIS.
London, í morgnn.
Frá Neapel er símað í morgun, að Páll prins, ríkis-
stjórnandi í Júgóslaviu, sem nú er í opinberri Iieim-
sókn á Ítalíu, komi til Neapel ásamt VictoF Emmanuel
konungi og Mussolini, og verði haldin stórkostleg flota-
sýning til heiðurs Páli prinsi Eitt hundrað itölsk her-
skip taka þátt í flotaæfingunum.
Eins og sjá má af því, að efnt er til stórkostlegrar flota-
sýningar í tilefni af komu Páls prins, leggja ítalir nú hina
mestu áherslu á, að afla sér vinfengis Júgóslava, með það fyr-
ir augum, að þeir verði hlyntir þýsk-ítalskri samvinnu. Minna
sum blöðin á það, er Horthy ríkisstjórnandi Ungverjalands,
kom til Þýskalands, og Hitler efndi til flotaæfinga honum til
heiðurs, en það var talið hafa sin áhrif. — Ungverjar hafi þá
ákveðið að snúast algerlega á sveif með Þjóðverjum, enda
fengið loforð um friðindi og stuðning um það leyti.
Það er kunnugt, að Ciano greifi og Páll prins munu halda
áfram þeim stjómmálaviðræðum, sem Markowitz utanrikis-
málaráðherra Júgóslaviu og Ciano óttu í Feneyjum á dög-
unum.
United Press,
Breskí skip bjaroar 350
ISKIOI
Oslo 12. mai. FB.
Eldur kom upp í danska mó-
torskipinu Alsia undan strönd
Ceylon. Skipið var 5812 smá-
lestir og gereyðilagðist það af
eldinum. Breska farþegaskipið
Canton og hreska beitiskipið
Trashooper hjörguðu áhöfn, 50
mönnum, og 300 farþegum. —
Skipið var smíðað 1927. NRP.
Úlafnr krósprlns helð-
nrsdokfor.
Oslo 12. mai. FB.
Ólafur konungsefni Norð-
manna og Martha krónprins-
essa liafa heimsótt St. Olaf Coll-
ege i Northfield Minnesota og
var konungsefni kjörinn heið-
ursdoktor háskólans við mikil
hátíðahöld. NRP.
Þjóðrerjar hafa keypt
allar hvaliysisbirgðir
Japana.
Oslo 12. maí. FB.
Þjóðverjar liafa keypt nærri
allar hvallýsisbirgðir Japana
eða 500.000 föt. Fyrst voru seld-
ar þangað 15.000 smálestir fyr-
ir 13 stpd. og 10 shillings smá-
lestin, en seinna enn meira fyr-
ir 14. slpd. smálestin. NRP.
MEMEL,
Þessi mynd er af „brú Lovisu drottningar“, sem kom við sögu, er Þjóðverjar tóku Memel á dög-
unum. Nú hafa Þjóðverjar, að sögn, horið fram nýjar kröfur í garð Lithaua. Yilja þeir, að Lit-
hauar noti Memel nærri eingöngu sem milliflutningastöð inn- og útflutningsverslunar sinnar. —
Shr. skeyti um framtíð Eystrasaltsrikjanna í blaðinu i dag. —•
Brnni á Akureyri.
í fyrakvöld kom eldur upp í
skúr, sem stendur bak við hús-
ið Brekkugötu 32 á Akureyri,
og brann skúrinn að mestu, en
hangir þó uppi. Húsið Brekku-
götu 32 á Eyþór Tómasson, og
hafði hann notað skúrinn fyrir
börn sín til að leika sér í, og
var þar nokkuð af barnaleik-
föngum og ýmsu skrani, sem
geymt var þar og lagt liafði ver-
ið til hliðar. Einnig var þar
nokkuð af liálmi.
Talið er sennilegt, að börnin
hafi farið óvarlega með eld og
hafi hann komist í liálminn,
með því að eldurinn greip mjög
fljótt um sig og varð af mikið
hál, svo að liúsinu stóð hætta
af. Heimiljsfólkið brá við og
kallaði á hrunaliðið, en meðan
eftir því var beðið tókst fólk-
inu að vernda íbúðarhúsið fyrir
eldinum með því að sprauta á
það vatni með garðslöngu.
Slökkviliðinu tókst fljótlega
að vinna bug á eldinum, en eng-
um munum varð bjargað úr
skúrnum.
Skipafregnir.
Gullfoss kemur til Kaupmanna-
hafnar kl. 8 í kvöld. Goðafoss fer
til útlanda kl. 6 annað kvöld. Brú-
arfoss kom til Siglufjarðar ú há-
degi. Dettifoss kom til Hull í morg-
un. Lagarfoss er á leið til Kaup-
mannahafnar. Selfoss er í Vest-
mannaeyjum.