Vísir - 15.05.1939, Side 3
VISIR
Togararnir leggja
ÍIP' híÍfll Agætur afll á
1|| IlUlii. Hornbanka.
Undanfama þrjá sólarhringa hefir verið mjög sæmilegur
afli hjá þeim togurum, sem verið hafa á Hornbanka, en þeir
eru: Belgaum, Skutull, Gylfi, Surprise, Karlsefni og ef til vill
fleiri. Hafa allir þessir togarar aflað vel og sumir ágætlega.
Fengu sumir togaranna 7—12 poka í kasti og 30 poka yfir dag-
inn, en það er talinn ágætisafli. Samkvæmt fregnum, sem bár-
ust að norðan í morgun fengu togararnir 12 poka í nótt frá
kl. 12—9 og er það talið sæmilegt.
Flestir eða allir togararnir, sem hér liggja munu leggja úr
höfn í dag, og leita norður á Hornbanka til veiða, og gera út-
gerðarmenn ráð fyrir að þegar um svona mikla veiði er að
ræða séu líkur til að fiskurinn sé að ganga upp að landinu,
og kunni því vertíðin að enda betur en á horfðist til þessa.
Um þetta leyti hefir venjulega aflast vel á þessum slóðum, og
sá afli haldist í 10—12 daga,
Kveldúlfur sendir fimm togara sína til veiða nú í dag og frá
Alliance fara Tryggvi gamli og Baldur en Jón Ólafsson á morg-
un. M hefir Vísir heyrt að Bæjarútgerð Hafnarfjarðar muni
einnig láta skip sín halda norður í dag eða á morgun.
•h
Þórður Sveinsson
aðalbókari
andaðist í gærmorgun, eftir að
hafa verið rúmfastur eina viku,
en sjúkleika þess, sem leiddi
hann til dauða kendi hann fyrst
í septemhermánuði s.l.
Þórður Sveinsson var fæddur
að Húsavík hinn 19. júli 1885
og var hann bróðir þeirra Bene-
dikts hókavarðar Sveinssonar
og Baldurs Sveinssonar blaða-
manns, og var hann yngstur
þeirra bræðra. Til Reykjavikur
fluttist Þórður árið 1906 og
vann hér á pósthúsinu um
nokkurra ára skeið. Er liann lét
af þvi starfi tólc hann að gefa
sig að verslun, stofnaði Við-
skiftafélagið og síðar firmað
Þórð Sveinsson & Co., en seldi
eignarhlut sinn í þvi siðar, og
gerðist þá starfsmaður við
Ræktunarsjóð. Er Búnaðar-
bankinn var stofnaður réðist
Þórður þangað sem aðalbókari
°g gegndi því starfi til dauða-
dags.
Nokkru eftir að Þórður
Sveinsson kendi krankleika síns
var hann skorinn upp, en alt
kom fyrir ekki og var auðsætt
til hvers sjúkdómurinn myndi
leiða. Það mun Þórði sjálfum
einnig hafa verið vel ljóst, en
þrátt fyrir það gekk hann að
störfum sínum, eins og ekkert
hefði í skorist. Þórður Sveins-
son var einhver vinsælasti og
vandaðasti maður, sem völ er á.
Hans verður nánar getið síðar
hér i blaðinu.
Austur-
Fyrir helgina voru flutt að
Austurvelli nokkur bilhlöss af
hraunhellum. Á að nota þær
sem einskonar „girðingu“ með-
fram gangbrautum.
Það hefir nefnilega altaf vilj-
að brenna við, að fólk gengi út
í grasið og þá hefir ysta rönd-
in, næst götunni orðið fjótlega
að flagi. Nú verða liraunhell-
runar grafnar niður að nokk-
uru meðfram götunum og
mynda þar með varnargarð.
Er þetta vel til fundið og
gefst vonandi vel. Hefir iðulega
verið vikið að þvi i Visi að þetta
væri heppilegt og mundi fara
vel á því og fyrst skömmu eftir
að girðingin var tekin á hrott.
TF-Örn ráðin til
síldarleitar,
Margir fróðir menn telja að
líkindi séu til að mikill síldar-
afli verði hér við land á þessu
sumri, og draga þá ályktun sína
aðallega af því að sjór við land-
ið sé mjög hlýr, og auki það lík-
urnar fyrir því að mikið verði
af síld. Þá er einnig talið að áta
sé óvenju mikil um þetta leyti
árs og því gert ráð fyrir af sjó-
mönnum að síldin gangi
snemma.
Rílrisstjórnin, síldarútvegs-
nefnd og stjórn Síldarverk-
smiðja ríkisins hafa fyrir sitt
leyti gert ýmsar ráðstafanir til
þess að undirbúa veiðina, og
hefir verið ákveðið að varðbát-
urinn Óðinn fari norður fyrir
land um miðjan þennan mánuð
til síldarleitar og áturannsókn-
ar, og hefir hann innbyrðis ýms
tæki til hægðarauka við rann-
sóknirnar t. d. dýptarmæli o. fl.
fl.
Þá hefir ríkisstjórnin ákveðið
að leigja TF. Örn til síldarleitar
í tvo mánuði eða rösklega það,
og er ætlunin að kostnaðurinn
við flugferðirnar greiðist að
jöfnu af ríkissjóði, síldarút-
vegsnefnd, síldarverksmiðjum
ríkisins og síldarverksmiðjum
einstakra manna.
Undanfarin ár hafa menn
strax í maí og júni reynt fyrir
sér með reknet og hefir sildar-
útvegsnefnd átt frumkvæðið að
þri, að minsta kosti tvö siðustu
árin. Að þessu sinni hefir Magn_
ús Gamalíelsson í Ólafsfirði
tekist á hendur að inna þetla
rannsóknarstarf af hendi fyrir
nefndina og mun hann leggja
út mjög bráðlega.
Málverki af Skjald-
breið stolið.
Nú fyrir skemstu var mál-
verki af Skjaldbreið eftir Jón
Þorleifsson stolið úr anddyri á
liúsi i Suðurgötu.
Málverkið var í ramma, en
gallað í einu horninu. Sá, sem
verður þess var, ætti að gera
rannsóknarlögreglunni aðvart.
Mött, þvottheld
linnanhúss m áln ingr
LRKK-OG MRLNINGRR-lj á D|) A H
VERKSMIÐJRN
frétttr
Veðrið í morírun.
í Reykjavik 8 st., heitast í gær
12, kaldast í nótt 6 st. Sólskin í
gær o.8 st. Heitast á landinu í rnorg-
un n st., á Akureyri, Blönduósi,
Hólum í Hornaf. í Fagurhólsmýri;
kaldast 6 st., i Kjörvogi og Gríms-
ey. — Yfirlit: HáþrýstisvæÖi yfir
Islandi og hafinu fyrir sunnan og
su'Öaustan land. -— Horfur: SuÖ-
vesturland til Vestfjarða: Hæg
vestanátt. Úrkomulaust og viÖa létt-
skýjað.
Silfurbrúðkaup
eiga á morgun Kristín Guðmunds-
dóttir og Jón Normann Jónsson,
Hverfisgötu 62.
Skipafregnir.
Gullfoss og Selfoss eru i Reykja-
vík. GoÖafoss er á leið til Hull frá
Vestmannaeyjum. Brúarfoss kom
að vestan og norðan i morgun.
Dettifoss er á leið til landsins. Lag-
arfoss er í Kaupmannahöfn.
Af veiðum
kom í morgun Venus með fersk-
an fisk, mestmegnis þyrskling, til
herslu. Kemur Venus inn annan-
hvern dag.
Næturlæknir:
Axel Blöndal, Eiríksgötu 31, simi
3931. Næturvörður i Lyfjabúðinni
Iðunni og Reykjavíkur apóteki.
3. flokks mótið.
I gærmorgun keptu Fram og Vik-
ingur og Valur og K. R. Leikar
fóru svo: Fram : Vikingur 3:0 og
K.R.: Valur 0:0. — Næst verður
kept annað kvöld kl. 7*4, Valur:
Víkingur, dómari Björgvin Schram,
Fram : K.R., dómari Sighv. Jóns-
son. j,
TF. örn
fór tvær ferðir til Akureyrar á
laugardag, og er það um 1700 kni.
flug. Klemminn TF. Sux fór með
póst til Hornaf jarðar og kom aftur.
Tennis- og badmintonfélag- Rvíkur
Athygli skal vakin á auglýsingu
frá félaginu í blaðinu í dag, um
tennis og badminton. Þeim, sem
styttra eru komnir, verður veitt
kensla. Allar nánari uppl. fást hjá
Friðrik Sigurbjörnssyni (tennis),
simi 2872, ld. 6—7 og Jörii Jó-
hannessyni, sími 4941, kl. '6—7.
75 ára
verður í dag ekkjan Gnðbjörg
Guðmundsdóttir, Njálsgötu 25.
11
tekj
halda stöðugt áfram.
Þegar útborgað 50 þús.
Éftir 30 þús.
Æskilegt að félags-
menn sæki tekjuafgang
sinn sem fyrst.
Okaupíélaqiá
Nokkra
sekki af
(spíraðar)
seljum við fyrir
9,50 pokann.
þuíl
tJtvarpið í kvöld.
Kl. 19.15 Hljómplötur: Göngu-
lög. 19.45 Fréttir. 20.20 Um dag-
inn og veginn (Pálmi Hannesson).
20.40 Einsöngur (frú Annie Chalo-
pek-Þórðarson). 21.00 Útvarps-
hljómsveitir. leikur alþýðulög. 21.35
Hljömplötur: Kvartett í e-moll, „Úr
æfi minni“, eftir Smetana.
Flutningarnir.
Laust eftir hádegi í dag höfðu
rúml. 700 beiðnir borist Rafmagns-
veitunni um mælaálestur vegna
flutnings. Ýmsir munu eiga eftir að
tilkynna flutning. Sennilega eru
fliitningariiir öllu meiri en í fyrra.
Síldarsöltun.
Vil, fyrir hönd sildarstöðvar á Norðurlandi, gera
saminga um kaup á helmingi matéssildarafla nokkun'a
skipa. Ennfremur tekur stöðin að sér verkun á hinum
helmingnum og annari síld og útvegar tunnur og salt.
Víglundup Méller
Hverfisgöu 47. Sími: 1724.
Steindórs
bifreiðar
bestar
Q lnnilegar þakkir fgrir auðsijndar vinsemdir á fiml-
o ugsafmæli mínu, 7. mai s.l.
o
í?
g Haraldur Böðvarssan.
éoooooooooooooooooooooooooooooooooocooooooooooooKKSoci;.
«
Ú Hjartanlegustu þakkir til allra þeirra, er glorfdn
mig á sextíu og fimm ára afmæli mínu.
jj Einar Jónsson_
POOPOOOOOOOOOOOOOOOPOOOOOOOOOPOOOOOOOOOOOOOOOOOOOaaSBC
Skrifstofa mín
er flutt i Hafnar-
húsið, austurend-
ann, gengið inn
frá Tryggvagötu.
Bernharfl Petersen.
Tilkynning
frá Fiskimálanefnd.
Fiskimálanefnd hefir ákveðid aðleyfa
ekki fyrst um sinn til n.k. áramóta
útflutning á ísvörðum fiiski með er-
lendum fiskiskipum til Bretlands-.
FISKIMÁLANEFN9;
Sími 1580
V eggfóður
nýkomið í stóru úrvali. Verð frá kr. 0.65 pr. rúlla.
^JÉGCfOSRIUUKK^
Kolasundi 1.
Sími: 4484.
Matarstell
nýkomin.
Hðfnm í
boðstólum
allar okkar fjölbi-eyttu vörur - NotiS tækifærið.
Engin verðhækkun ennþá.
RAFLAMPAGERÐIN
Suðurgötu 3.-— Simi 1926.