Vísir - 16.05.1939, Blaðsíða 3

Vísir - 16.05.1939, Blaðsíða 3
VISIR Stöðvast vinna við nýbyggingar vegna skorts á byggingarefni? YfirvofandLi stópfeld aukn- ing atvinnuleysisins, ef vixma stöðvast við hút- byggingap. Vísir hefir snúið sér til Sambands meistara í byggingaiðnaði í Reykjavík og óskað eftir upplýsingum viðvíkjandi húsabygg- ingamálum hér í bænum, vegna hins mikla skorts, sem að und- anförnu hefir verið á byggingarefni í Reykjavík, en hans vegna hefir smíði margra húsa tafist, og það bakað mörgum óþægindi, auk þess sem skortur er á efni til nýbygginga, og horfir því alvarlega um atvinnu og afkomu byggingamanna yfirleitt. Átti tíðindamaður blaðsins viðtal við hr. Ólaf Pálsson, skrifstofu- stjóra sambands meistara, og fer það hér á eftir. Olíufélðgin atnema magnS' afslátt at viðskiftum, til þess að vega á móti lækknn olfnverðs á SiglufirSi. Hversu hárri upphæð námu i innflutningsleyfin til bygginga- iðnaðarins árið sem leið? í fyrra kr. 1.600.000, að við- bættum 160.000 kr., sem veittar voru í lok ársins, samkvæmt beiðni byggingamanna, og varð þessi viðbót til þess, að bygg- ingavinna gat haldið áfram, eft- ir því sem tíð leyfði. i > Hvað getíð þér sagt mér um álit iðnaðarmanna, að því er snertir þörf á auknum húsabyggingum í bænum? Samkvæmt manntalsskýrsl- um hefir íbúum Reykjavíkur á síðastliðnum 6 árum f jölgað um 1200 manns á ári til jafnaðar. Geri maður ráð fyrir að fimm j manns búi að jafnaði í liverri í- búð, þá hefði á sama tíma þurft að byggja 240 íbúðir árlega vegna fjölgunarinnar. Auk þess er óhjákvæmilegt að end- urbyggja gömlu húsin hér i bænum og teljum við bygging- armenn, að til þess að unt sé að telja bænum sæmilega við- lialdið, þurfi að endurbyggja sem svarar 110 íbúðir árlega. Hvað þarf mikið efni til þess- ara 350 íbúða? Það mun láta nærri, að með því verðlagi sem verið hefir til þessa, muni þurfa byggingar- efni fyrir 2.5 milj. kr. Hvað hefir verið bygt mikið undanfarin ár? Samkvæmt fyrirliggjandi skýrslum byggingarfulltrúans í Reykjavík yfir síðastliðin 6 ár, liefir árleg fjölgun löglegra í- búða verið um 230 til jafnaðar. Hér við bætast svo hinar ólög- legu kjallaraibúðir, sem eru í mörgum nýjum húsum. Þó mun ibúðafjöldinn vera nokkuð und- ir 300 og vantar þá raunveru- lega 60 íbúðir árlega upp á að fullnægt hafi verið bygginga- þörfinni þessi ár. v Hvað hefir mikill innflutningur byggingaefnis verið leyfður á yfirstandandi ári? Fyrir þetta ár á að veita kr. 1.350.000. Samkvæmt upplýs- ingum, sem okkur liafa borist frá gjaldeyrisnefnd og innflytj- endum, þá var snemma á árinu veitt innflutningsleyfi fyrir 550 þús. kr. af þessari uppliæð. Síð- ar á árinu, sennilega í júlíbyrj- un, mun gjaldeyrisnefnd hafa hugsað sér að veita aðrar 550 þús. kr., en 250.000 kr. mun lialdið eftir vegna verkamanna- bústaða, sein fyrirhugað mun vera að bvrja á siðar á árinu. I ( Hvenær fór að bera á skorti á byggingarefni 1 ár? I aprílmánuði fóru oklcur að berast kvartanir frá bygginga- iðnaðarmönnum og öðrum, sem höfðu ætlað sér að byggja hús á þessu vori, að ókleift væri að fá efni eða loforð fyrir efni hjá byggingarefniskaupmönnum. - Við snérum okkur þá til bygg- ingarefnisinnflytjenda og báð- um þá að gefa okkur yfirlit yf- ir hversu miklar vörubirgðir væru fyrir hendi. Skýrsla, sem okkur barst frá innflytjendum byggingarefnis, ber það með sér að óráðstafað byggingarefni er ekkert til lijá þeim. í tilefni af þessu gerðum við rannsókn á því hverjir hefði fullráðið að byggja hús á þessu ári, ef þeim væri það auðið. Athugunin leiddi í ljós, að fyrirhuguð var bygging á rúmlega 60 nýjum húsum og efnisþörf lil þeirra mun nema nálægt 800.000 til 900.000 króna, miðað við cif.- verð. Síðan þessi athugun fór fram hefir verið sótt um bygg- ingaleyfi á mörgum íbúðarhús- um, svo að telja má hina raun- verulegu efnisþörf allmiklu meiri en þegar athugun okkar fór fram. Þar sem atliugun byggingamannanna leiddi í ljós yfirvofandi vinnustöðvun við byggingar sökum efnisskorts, snéru þeir sér til gjaldeyris- og innflutningsnefndar með bréfi dagsettu 5. maí og gerðu nefnd- inni grein fyrir hvernig ástand- ið væri og fóru jafnframt þess á leit, að veittar yrðu 30.000 kr. fyrir linoleumdúka, gúmmí og breinlætistæki, svo að unt yrði að taka til íbúðar þau liús, sem átti að ljúka við fyrir 14. maí, Frílistinn. Þessar vörutegundir eru á frílistanum (innfl. í krónum 1937 í svigum á eftir): Rúgur (54.317), rúgmjöl (973.390), hveiti (17.629), hveitimjöl (1.846.203), hafra- grjón (505.508), hrísgrjón og ennfremur, að veitt yrði 200.000 kr. leyfi fyrir timbri, cementi, steypustyrktarjárni og miðstöðvarvörum, svo að unt yrði að halda áfram nýbygging- um, þar til síðari helmingur innflutningsleyfanna yrði veitt- ur, sem við væntum, eins og áð- ur var getið, að verði i byrjun júlímánaðar. Gjaldeyris- og innflutnings- nefndin mun liafa tekið þetta bréf til meðferðar og að mestu leyti telcið til greina beiðni byggingamanna, að því er snert- ir efni til þeirra liúsa, sem til- j búin áttu að vera 14. maí. En j við beiðni byggingamanna um ; 200.000 kr. leyfi vegna nýbygg- inga, sem á mestu veltur þó fyr- ir atvinnu iðnaðarmanna, hefir okkur ekkert svar borist enn. Fáist ekki þetta umbeðna bráðabirgðaleyfi má fullvíst telja, að vinna við nýbyggingar leggist að mestu niður hér í bænum næstu daga og okkur er kunnugt um nokkur hús, sem í smíðum eru, sem þegar er stöðvuð vinna við vegna skorts á byggingarefni. yið væntum þess vegna, að gjaldeyris- og innflutningsnefnd sé ljóst, hver vandræði skapast hér í bænum, ef svo kynni að fara sem að framan greinir, ofan á það at- vinnuleysi, sem hér er nú, með því líka, að nú er farinn í hönd hinn venjulegi há-bjargræðis- tími allra byggingamanna. Frá Hafnarfirði. í gær fóru á veiðar, eftir að hafa legið lengi í höfn, Bæjartogararnir „Maí“ og „Júní“, og „Garðar“ fór einnig á veiðar. Um miðjan dag í gær komu togararnir „Venus“ og „Júpiter“. Skipað var upp úr þeim. Venus hafði 41 tonn, en Júpiter 31 tonn. tJr Júpíter var ekki öllum aflanum skipað á land. Bæði skipin hlutu fljóta afgreiðslu og fóru þeg- ar á veiðar aftur. -—■ Eins og kunn- ugt er, hafa þessi tvö skip fiskað í Faxaflóa undanfarið. Aflann hafa þau farið með til Reykjavíkur og i herslu til Skúla Thorarensen. Áheit á Hallgrímskirkju, afhent k’ísi: Kr. 10, frá G. B. G. (176.088), bankabygg (21.036), kol (7.014.219), salt (1.530.444) brensluoliur (1.432.402), smurn- ingsolíur (439.736), bensín (745.350), hessian (310.927), lómir pokar (332.279) og bæk- ur og tímarit (133.864). Undanfarið hafa olíufélögin gefið viðskiftavinum sínum af- slátt af viðskiftamagni þeirra, þannig að ef bátar hafa skift við óau og tekið út 15 tonn af olíu eða þar yfir, hafa þeir fengið fjögra króna afslátt af hverju tonni, og hefir sá afsláttur reiknast af allri olíuúttekt bát- anna, án tillits til þess, hvar á landinu viðskiftin hafa farið fram. Samkvæmt samningum við ríkisstjórnina álcváðu olíufélög- in að selja olíu frá geymi á þessu sumri fyrir kr. 0.15 Jó kg. á Siglufirði, en á öðrum stöðum á landinu helst verðið óbreytt, þannig að það verður kr. 0.17 pr. kg. í gær tilkyntu olíufélögin, að framvegis myndi afsláttur af magni, sá er að ofan greinir, ekki verða veittur. I samningum milli ríkis stjórnarinnar og olíufélaganna mun þessi kjarabreyting hafa Iiorið á góma, og munu olíufé- lögin Iiafa tilkynt, að ef þau neyddust til að lækka verðið á Siglufirði, yrðu þau að afnema magnsafsláttinn á öllum stöðum á landinu, til þess að vinna að nolckuru leyti upp afslátt veitt- an á Siglufirði. ÞÁTTTAKA ÁRMANNS I MÓTINU. Það liefir verið ákveðið, sagði Jens Guðbjörnsson, að Ármann sendi tvo 16 manna úrvalsflokka, karla og kvenna. Sækja þeir mótið fyrir íslands hönd, og erum við fullvissir um, að frammistaða þeirra verði Iandinu til sóma. Ármann liefir iðulega sent flokka til þess að sýna glímu og leikfimi erlendis við ágætan orðstír, eða alls sex sinnum. -— Úrvals- flokkur karla fór seinast utan 1932 og sýndi á átta stöðum i Svíþjóð við ágæta dóma, en stúlkurnar sýndu á Noregs- mótinu í fyrra og hluta ágæta dóma. Jafnvægisæfingar þeirra á slá þóttu afburða góðar. Það hefir komið í ljós í utanferð- um fimleikamanna íslenskra, karla og kvenna, að íslending- ar standast samanburð í þess- ari grein við bestu flokka er- lenda -— á þessu sviði erum við orðnir færir um að keppa við liinn besta orðstír. Það má vafalaust þakka það því, að við eigum nú orðið hina ágæt- ustu íþróttakennara og full- komin iþróttahús, svo að skil- yrðin til æfinga eru orðin ágæt, en það verður ekki sagt um æfingaskilyrðin að því er snert- Nýlega höfðu olíufélögin ákveðið selja hráolíuna fyrir sama verð á öllum stöðum á landinu, án tillits til kostnaðar á hverjum stað, en hann var vitanlega mjög mismunandi eft- ir staðháttum og skilyrðum. Hafði álagningin þannig raun- verulega miðast við heildar- sölu og lieildarkostnað við olíu- dreifinguna í landinu, en lækk- unin á Siglufirði, þar sem salan er mest yfir sumarið, breytti grundvellinum fyrir þessu fyr- irkomulagi venilega. Munu því olíufélögin hafa gripið til þess ráðs, sem að ofan greinir, til þess að ráða bót á því. Afnám þessa magnsafsláttar gildir frá 15. þ. m., þannig að bátar fá magnsafslátt til þess dags, en ekki á þau viðskifti, sem fram fara síðar á árinu. Fá þannig bátar, sem stundað liafa róðra á vetrarvertíðinni, og taka hráolíu yfir árið 15 tonn eða meira, afslátt af öllum vetrar- viðskiftum við olíufélögin. Allir þeir bátar, sem sildveið. ar stunda verða hinsvegar að- njótandi hins lága olíuverðs á Siglufirði, og nemur sá afslátt- ur, sem þar er veittur, miklu hærri uppliæð, en magnsafslátt. urinn. ir aðrar íþróttagreinir, sem Is- lendingar hafa kept í erlendis. MIKILVÆGI LINGMÓTSINS. Jens Guðbjörnsson bendir á það, að ýmsar þjóðir sendi kunna menn með flokkum sin- um til þess, ásamt þeim, að koma fram á mótinu; þannig senda Danir, Norðmenn og Finnar menn úr flokki ráð- Iierra sinna, en Þjóðverjar og Bretar og fleiri þjóðir senda kunna menn og íþróttafröm- uði. HAPPDRÆTTI. Ármann hefir fengið leyfi ríkisstjórnarinnar til þess að efna til liappdrættis til þess að standa straum af útgjöldunum við að senda flokkana á mótið. Væntir Ármann þess, að undir- tektir almennings verði góðar og miðarnir seljist upp. Einn- ig sækir Ármann um styrk til fararinnar lijá bæ og ríki, og er þess að vænta, að þeirri málaleitun verði vel tekið. VMISLEGT UM MÓTIÐ. íslensku flókkarnir eiga að sýna í Alvikshalle. sem er stærsta samkomuliús í Stokk- hólmi. Hvor úrvalsflokkurinn I samningunum milli núverandi stjórmnálaflokka, voru það verslunarmálin, sem mest greindi á um, og fengu Sjálfstæðis- menn ekki framgengt að fullu kröfum sínum í þeim efnum, þótt nokkuð ynnist á. Framsóknarflokkurinn gaf þá yfirlýsngu fyrir silt leyti, að liann teldi sjálfsagt, að stefnt yrði að því, eftir sem efni og ástæður leyfðu, að verslunin væri gefin frjáls, og gat fyrir sitt leyti gengið inn á að ýmsar nauðsynjavörur yrðu strax teknar upp á frilista. Tilkynti viðskiftamálaráðuneytið í gær, að þær vörutegundir, sem liér fara á eftir hefðu verið settar á frilista, og þyrfti því ekki sérstök innflutningsleyfi til þess að flytja þær inn í landið. Þessi vísir að frílista er fyrsti sigur sjálfstæðismanna í því efni, að skapa heilbrigt verslunarástand í landinu, en þess verð- ur að kref jast að haldið verði áfram á þessari braut, þannig, að keppt verði að því að verslunin verði smám saman að fullu og öllu gefin frjáls. Gjaldeyriserfiðleikarnir eru miklir, en þess má þó vænta að það sannist liér eins og annarstaðar, að frjáls verslun sé undirstaðan að velmegun þjóðarinnar. I- á mesta fimleikamót sem haldií hefir verlð. Þeir Jens Guðbjörnsson, form. Glimufélagsins Ármanns, og Sigurjón Pétursson íþróttafrömuður, gáfu blaðamönnum nýl. ýmsar upplýsingar um liið fyrirhugaða fimleikamót í Stokk- hólmi i næsta mánuði, sem Ármann tekur þátt í með því að senda þangað úrvalsflokka karla og kvenna, en mót þetta er haldið í minningu þess, að 100 ár eru liðin fpá dánardægri Per Henriks Ling, föður nútímaleikfiminnar. Mót þetta stendur dagana 20.—23. júlí og sækja það 7100 fimleikamenn og konur frá 31 þjóð. Hefir feikna undirbúningur farið fram undir mótið, sem er hið fjölmennasta fimleikamót sem lialdið hefir verið í heiminum. um sig sýnir tvisvar. IIöpsýiR ingar fara fram á aðalíþrölta- svæði Stokkhólmsborgar (Staá- ion). Alvikshallen, þar sezn ís.- lendingar sýna, rúmar 3003 Sr- horfendur. BæjoP fréttír i.o.o.f. 06 = Hr. sí. == Kp. st Veðrið í morpu. I Reykjavík 7 st., heitast í gær 10, kaldast í nótt 6 st. Sólsfcm ís gær 0.1 st. Heitast á landinn I morgun 11 st., á Akureyrí; kaldasfe 7 st„ í Vestm.eyjum, Grímsey o. v. — Yfirlit: Háþrýstisvæði og góð- vi’Öri hér á landi og í grendirmí. —- Horfur: Suðvesturland til Vest- fjarða: Hæg vestanátt. Úrkomu- laust. Hjónaefni. 1 gær opinberuðu trúlofun síns ungfrú Laufey Ingjaldsdóttir, hár- greiðslumær hjá Píróla, og Gtmnar A. Jónsson, verslunarmaðttr, Mar- argötu 6. Flugmálafélag ísíands. Aðalfundur íélagsins verður haldinn i kvöld kl. 8ýá, í Oddfeí- lowhúsinu. A fundinum verða sýnd- ar kvikmyndir, m. a. frá Flugdeg- inum á Sandskeiði í fyrra. — Þeir, sem hafa ætlað sér a‘ð ganga i fé~ lagið, ætti ekld að draga þaS íeng- ur, heldur ganga inn á íundmntr: í kvöld. Næturlæknir: Bergsveinn Ólafsson, Hávalla- götu 47, sími 4985. Næturvörðtur í Lyf jabúðinni Iðunni og Reykja- víkur apóteki. K.F.U.M. og K. í Hafnarfirðí. Samkoma í kvöld kl. 8.30, tll tekna fyrir byggingarsjóö félag- anna. Kórsöngúr, tvísöngur, ein- söngur, einléikur á píanó, upplest- ur o. fl. Skipafregnir. Gullfoss fer írá Kaupmannahöfœ í kvöld. GoSafoss er á leið til Hnll. Brúarfoss og Selfoss eru, í Reykja- vík. Dettifoss kom frá útlöndma í morgun. Lagarfoss er i Kaup- mannahöfn. Fræðslukvikmyndir. 1 dag kl. 6 verða sýndar í Nýja Bíó fræðslukvikmyndir af kartöflu- rækt, kálrækt og kornrækt. Garð- yrkjunemendur, félagar i Jarðrækt- arfélagi Reykjavikur og aðrtr á- hugamenn um ræktun, hafa ókeyjns aðgang, meðan húsrúm leyfir. Árni Eylands skýrir myndirnar. Met í 400 mtr. baksundi. Jónas Halldórsson setti nýtt mefr á 400 m. baksundi, 6 mm. 21.2 sefca, en gamla metið, sem Jón D. Jons- son átti, var 6:42.7. — Þetta esr 46 sundmet Jónasar. Hjónaefni. Nýlega opinberuðu trúlofun síiia ungffú Margrét Þorsteinsdóttir,. Garðaveg 7, Hafnarfirði og Jón ML Nordgulen, sjómaður, Brávallag. 8, Knattspyrnufél. Víkingur. Meistarafl. og I. fk. æfmg i kvöidh kl. 9. — Póstarnir á morgun. Frá Rvik: Ölfuss og Flóapóstar,. Fagranes til Akraness, Garðsaúka, Vikur í Mýrdal. — Til Rvikur: Ölfuss og Flóapóstar, Fagranes frá Akranesi, Húnavatnssýslupóstur., Hjúskapur. Síðastl. laugardag- voru gefinr sanian í hjónaband af síra Bjams Jónssyni, Margrét Ólafsdóttir, starfsstúlka á Elhheimilinu, og Arn- ór Jónsson. Heimili þeirra. er s. yíðimel 49. Útvarpið í kvöld. Kl. 19.15 Hljómplötur : Vínarlög-. 20.20 Erindi: Auðæfi jarðar, II.: Gullið (Guðjón Guðjónsson skóla- stj.). 20.45 Tónleikar Tónlistar- skólans (tríó). 21.25 Symfóníutón- leikar (plötur) : Pianó-konsert í Es- dúr, eftir Mozart, o. fl. Pren tmy n d a s t o t .1 n LEIFTUR býr t>! I. ftokks prent | 1 myndír fyrir lægsta rcHjf; 1 | Hafn. 17. Simi 5379. !

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.