Vísir - 22.06.1939, Side 2

Vísir - 22.06.1939, Side 2
VtSlR VÍSIR DAGBLAÐ Útgefandi: BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H/F. Ritstjóri: Kristján Guðlaugsson Skrifstofa: HverHsgötu 12 Afgreiðsla: Hverfisgötu 12 (Gengið inn frá Ingólfsstræti) S í m a r: Afgreiðsla 3400 Ritstjórn 4578 Auglýsingastjóri 2834 — (kl. 9—12) 5377 Verð kr. 2.50 á mánuði. Lausasala 10, 15 og 20 aurar. Félagsprentsiniðjan h/f. Stjórnin og framleiðslan pLOKKAR þeir, sem farið liafa með völdin undanfar- inn áratug voru komnir í van- skil við íslensku þjóðina. Við hverjar kosningar voru gefin loforð, sem ekki voru efnd. Kjósendum var lofað skatta- lækkun, skuldalækkun og at- vinnuauka. Efndirnar voru auknir skattar, auknar skuld- ir, aukið atvinnuleysi. Kjósend- urnir voru umburðarlyndir. Þegar að skuldadögum kom „gengu þeir ekki að“. „Skuldu- nautamir“ voru ísmeygilegir, töldu að alt mundi lagast, ef þeir fengju frest, endumýjuðu öll gömlu loforðin — og bættu Dýjum við. Þeir komust að sömu kjörum hjá þjóðinni og vanskilamaður, sem fær banka- stjóra til að kaupa nýjan fram- lengingarvíxil, án þess að borga eyri af honum og meira að segja hækka hann. En jafnvel „langþoli íslenskrar lundar“ eru takmörk sett. Ekkert verður fullyrt, hvernig kosningar hefðu farið i vor. En það er ákaflega líklegt að loforðahrell- an hefði ekki lánast eins vel og áður. Hver og einn getur velt þvi fyrir sér, live mikinn þátt neyð- arástand fyrverandi stjórnar- flokka átti í þeim samstarfs- vilja, sem í ljós kom af þeirra liálfu. Þetta pólitíska neyðar- ástand fornra andstæðinga gaf að sjálfsögðu ekkert tilefni til þess að Sjálfstæðisflokkurinn rétti hjálparhönd. En samfara því var neyðarástand þjóðar- innar, yfirvofandi hrun at- vinnuveganna, fjárhagsöng- þveiti og fyrirsjáanlegar óeirð- ir. Ef gengið hefði verið til kosninga eftir krónulækkunina, hefði orðið hér sú ókyrð, sem mjög sennilega liefði leitt til nýs gengisliruns. Hefði svo far- ið, var komið á svo hála braut, að framundan var glundroði og upplausn. Sjálfstæðisflokkurinn gekk til stjórnarsamvinnu, ekld vegna neyðarástands þeirra flqkka, sem' með völdin höfðu farið, heldur vegna neyðar- ástands þjóðarinnar. Þetta verða menn að muna. Sjálf- stæðisflokkurinn geklc ekki til samstarfsins til þess að rétta lilut Framsóknar og Alþýðu- flokksins, heldur til þess að rétta hlut atvinnuveganna, örva framleiðsluna og bæta þannig úr gjaldeyrisvandræðum og Fjárhagsöngþveitinu, stöðva gengisfallið og rétta við liið glataða lánstraust þjóðarinnar írlendis. Hvort, eða að hve miklu leyti, Sjálfstæðisflokkn- iiin tekst þetta, verður ekki full- yrt. Það er mikið undir árferði komið. En það er ekki síður mdir þvi komið, að samstarfs- flokkarnir viðurkenni í verki að allar framkvæmdir og ráðstaf- anir ríkisstjórnarinnar verða að miðast við alþjóðarhag og ann- að ekki. Sú reynsla, sem fengin er til þessa, af samstarfi flokkanna, dregur á engan liátt úr von manna um vænlegan árangur. Þau mál, sem mestum ágrein- ing, hafa valdið að undanförnu, fjármálin og viðskiftamálin, Iiafa að vísu ekki verið rædd til úrslita, enda verður þess ekki krafist með neinni sanngirni, að slilc mál verði leidd til endan- legra lykta i skjótri svipan. En það sem aðhafst.liefir verið, er flest í þá átt að Sjálfstæðismenn mega við una. Eitt fyrsta verk stjórnarinnar var að birgja landið upp af ýmsum nauð- synjavörum, vegna yfirvofandi styrjaldarhættu. Reynt liefir verið að draga úr dýrtíðaraukn- ingu vegna gengisfallsins, með því að slaka til á innflutnings- liöftunum. Skip liafa verið send í fiskileit og flugvél fengin til sildarleitar. Undirbúningur er hafinn um að leggja niður þær ríkisstofnanir, sem óþarfastar liafa reynst. Mikil áhersla hefir verið lögð á aukna garðrækt. Ráðstafanir hafa verið gerðar til þess að allar sildarverk- smiðjur á landinu verði starf- ræktar. Framleiðendurnir í Iandinu telja að brugðið hafi til hag- stæðrar áttar við stjórnarskift- in. Þeir þykjast kenna meiri hlýju en þeir hafa vanist um sinn, meiri skilnings, meiri á- liuga. Þeir leggja öruggari og ótrauðari hönd að verki en áð- ur var. Ríkisstjórnin ræður ekki yfir aflasæld og veðurfari. En hún getur gert, hvort held- ur er, að hvetja eða letja fram- taldð og sjálfsbjargarviðleitn- ina. Þær ráðstafanir, sem nú- verandi rikisstjórn hefir þegar gert viðvikjandi atvinnuvegun- um hafa allar verið i hvatning- arátt. Fram tapaði, en stóð sig vel. Stefán A. Pálsson fékk seint i gærkveldi skeyti um það, að Fram hefði tapað fyrsta leik sínum í Danmörku með 3:4. — Leikurinn var við úrvalslið V.- Sjálands. Næsti leikur Framara er í kveld, í Rönne á Bornholm. Þeim leik útvarpar danska rik- isútvarpið, en ekki verður hægt að koma við endurvarpi hér, að því er Vísir hefir fregnað. Þarf ávalt nolckurra daga fyrirvara til þess að slíkt geti farið fram, vegna talstöðvarinnar. Ferðafélag íslands ráðgerir að fara tvær skemti- ferðir um næstu helgi. Hekluför. Síðdegis á laugar- dag verður ekið í- bíluin að Galtalæk á Landi og gist þar. Sunnudagsmorgun snemma far- ið á liestum upp fjallið að rétt- inni yfir Löngufönn, en þaðan gengið upp á hæstu tinda. I Fljótshlíð og undir Eyja- fjöll: Síðdegis á laugardag verður farið í bílum að Múla- koti i Fljótshlíð og gist þar. Ná- grennið skoðað. Sunnudags- morgun verður ekið austur með Eyjafjöllum að Skógafossi, en í bakaleið lcomið við hjá Selja- landsfossi og Gljúfrafossi. og viðar og heim um kvöldið. Áskriftarlistar liggja frammi á skrifstofu Kr. Ó. Skagfjörðs, Túngötu 5, fyrir Hekluförina til kl. 6 á fimtudag, en fyrir hina ferðina til ld. 6 á föstudag. V erðnr þríveldabandalapð undiriikrifað á Ean^arda^ ? Ilalifax segir að Bret- ar hafi geng:ið eins langl ogr þeim sé unt. EINKASIŒYTI TIL VfSIS. London í morgun. Iutanríkismálaráðuneytinu breska í Whitehall eru menn alment ekki á einu máli um það, hvernig líta beri á ástandið í samningaum- leitunum Breta, Frakka og Rússa, en eins og United Press símaði í gær var fastlega búist við því, að þeir Strang, fulltrúi Bretastjórnar, og Molotov, utanríkis- málaráðherra Rússa myndi ræðast við í gærdag. Var þess vænst að línurnar myndi skýrast. Viðræðurnar hófust kl. 5 í gærdag og höfðu Frakkar fulltrúa víð viðræðurnar. Samkvæmt því sem U. P. hefir fregnað, eru margir menn, sem standa nærri stjórninni og vita jafnan hvað er að gerast, von- góðir um að takast megi að undirrita samkomulagið á laugardaginn. f París var kl. l1/^ í gærkveldi gefin út opinber til- kynning, eftir að utanríkismálanefnd fulltrúadeildar- innar, hafði haldið fund. í tilkynningunni segir, að náðst hafi samkomulag um allmörg atriði, en þó sé enn ef tir að vinna bug á allmörgum erfiðleikum. Komi þess- ir erfiðleikar af því, að allmörg ríki, sem veita á vernd og stuðning, samkvæmt kröfum Rússa, liafa alls ekki farið fram á að slík vemd verði sér veitt. Eru þetta þau af Eystrasaltrík junum, sem búin eru að undirrita hlut- leysissáttmála með Þjóðverjum. Burt með erlend skip frá Swatow, —• segja Japanir. Bretar og Bandaríkjamenn hreyfa sig ekki. EINKASKEYTI TIL YÍSIS. London, í morgun. Frá Hongkong er símað, að Japanir láti sér nú ekki nægja, að hafa Swatow og umhverfi hennar á valdi sínu, heldur hafi yfirherstjómin á staðnum gefið öllum erlendum skipum skiþ- un um að hafa sig á brott úr höfninni fyrir kl. 1 í dag (kín- verskur tími). Að öðrum kosti verði skipin og farmar þeirra gerð upptæk. Allmörg skip létu hið skjótasta úr höfn, þegar þeim barst þessi skipun, en bresk og amerísk skip munu ekki fara eftir henni og hreyfa sig ekki, hvað sem Japanir segja. Halifax lávarður, utanríkis- málaráðherra Breta, hélt ræðu í London í gær og Var henni út- varpað. Gerði hann þar mjög góða grein fyrir því, hvernig málin stæ'ði. Halifax sagði meðal annars, að þótt þessar samkomulags- umleitanir hefðu enn ekki bor- ið þann árangur, sem menn hefðu vonað, þá væri samt alls ekki hægt að kenna Bretum um það, að ekki gengi betur en raun bæri vitni. Bretar hefði teygt sig eins langt og þeim væri auðið, og þegar Rússar hefði aukið kröfur sín- ar, hefði Bretar enn slakað til við þá. Mátti skilja á ræðunni, að Halifax findist Rússar ekki t vera heilir í málinu, og reyndu jafnvel að heimta svo mikið, að ( Bretum væri alveg ómögulegt að ganga að þVí. Síðan ætluðu svo Rússar að skella allri skuld- inni á Breta og Frakka, fyrir að þeir hefði ekki viljað samvinnu. ? Kl. 1 eftir miðnætti í nótt gaf hin opinbera rússneska frétta- ; stofa Tass út tilkynningu um j samkomulagsumleitanirnar. — , Aðalefni tilkynningarinnar er það, að móttillögur Breta hafi ekki gengið neitt lengra en hin- ar fyrri og sæti því alt við hið sama. United Press. Einn af nieðlimimi dansk-íslenskn ráí- gjafarnefndarinnar láttnn. Hans Nielsen, þingmaður og , bankastjóri við Hypotek-bank- ; ann, er látinn, sjötugur að i aldri. Nielsen var meðlimur j dansk-íslensku ráðgjafarnefnd- 1 arinnar. Hann hafði mörg ár þjáðst af j hjartasjúkdómi og hafði legið í sjúkrahúsi nokkrar vikur, er liann lést. ! Allur akstur aust- ur Austurstræti bannaður. Eins og Vísir hefir skýrt frá fyrir nokkuru, samþykti bæjar- stjórn samkvæmt tillögu lög- reglustjóra, að banna akstur allra ökutækja eftir Austur- stræti frá vestri til austurs. Vísir átti tal við lögreglu- stjóra í morgun og spurði hann hvað þessu máli liði. Sagði hann að bærinn væri að láta smíða merkin og yrði þeim komið fyrir jafnskjótt og þau væru fullbúin. Verða þá hjólreiðar bannaðar frá vestri til austurs, þvi að þetta bann nær til allra öku- tækja (nema barnavagna). Er þetta reiðhjólabann sett til reynslu, sagði lögreglustjóri, Vegna Tientsin-deilunnar er nú unnið í Honkong og Singa- pore eins og styrjöld sé alveg yfirvofandi innan skamms og hafa franskir og breskir hers- höfðingjar oft fundi með sér. Auk þess hafa breskir menn fengið tilkynningu um að þeirra geti orðið þörf í hernum þá og þegar. Annars hefir ástandið meðal útlendinganna í Tientsin batn- að, að því leyti, að bresku skip- in, sem rufu hafnbannið, fluttu þangað mjölvöru og lirísgrjón. Hefir verið stofnuð þar sjálf- boðaliðalögregla Breta, og er hún ekld vopnum búin. United Press. og reynist það vel, verður það síðar látið ná til annara gatna, þar sem einstefnuakstur er nú fyrirskipaður, m. a. Hverfisgötu og Laugavegar. Sumargistihús að Svignaskarði. í sumar verður eins og að undanförnu rekið gislihús að Svignaskarði, sem Guðbjörg Sæmundsdótlir mun veita for- stöðu. Legst alt á eitt með að gera Svignaskarð hinn ákjósanleg- asta stað til sumardvalar, um lengri eða skemri tíma. Nátt- úrufegurðin mun kunnari en frá þurfi að segja og útsýnið er hið fegursta. Skógurinn i kringum staðinn er hinn girni- legasti til sólbaða. Fyrir þá, sem liafa gaman af veiðum, mun vera hægt að fá veiðileyfi í Gljúfurá, sem er allgóð veiðiá, og er þangað skamt að fara frá Svignaskarði. Einnig mun vera liægt að fá leigða hesta til ferðalaga um nærsveitirnar. Það myndi verða of langt mál, að fara að telja upp alla þá kosti, sem Svignaskarð hefir til að bera sem sumardvalar- staður, en þar gildir, eins og annarstaðar, reglan: „Reynslan er ólýgnust“. Og þeir, sem reyna, munu ekki verða von- sviknir. Mynd þessi er af Avila Gama- cho, fyrrum hermálaráðherra Mexico, sem búist er við að verði næsti forseti þar í landi. Hann er 43 ára gamall og nýtur stuðnings verkamanna. IIENLEIN Á FERÐALAGI. Síðan Henlein varð landstjóri i Súdetahéruðunum, liefir liann Iiaft ærið nóg að starfa, og þurft að fara í eftirlitsferð um landið. Hér sést hann koma í heimsókn lil Ascli og Sudeta-Þjöðverjar hylla hann óspart.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.