Vísir - 08.07.1939, Qupperneq 3
V I S I R
Þing* Ranða Kros§in§
í Ntokkliólmi.
Vidtal viö Jakob Hafstein forstjóra
Rauöa Kross íslands.
Með Brúarfossi í gær var méðal farþega Jakob Hafstein for-
stjóri, Rauða Ifross Islands, en hann fór til Stokkhólms, og sat
junior-þing Rauða Kross-félaganna í Skandinaviu og Baltisku-
löndunum.
„Já, og sömuleiðis var aðeins
einn fulltrúi frá Finnlandi, og
stafai' það af því að unglinga-
deildir eru ekki starfandi í báð-
um þessum löndum, en eg vona
að mér takist að skapa slíka
starfsemi hér heima, og yrði
hún þá skipulögð á sama hátt
og starfsemi erlendra ungliða-
sveita, sem eg kyntist á þingi
þe'ssu“.
^ '1
V-/ ... . w' ' •
rrv JAKOB HAFSTEIN.
Vísir hitti Jakoh að máli og
spurði hann tíðinda af þinginu,
„Að boði rauða krossins
sænska sótti eg þing þetla, sem
átti að hefjast í Stokkhólmi
hinn 19, júni s.L, og var það
sett i Södermalms lái’ovárk i
Timmermannsgatan á hinum
tilsetta tíma. Þarna voru mætt-
ir 400 fulltrúar frá ofangreind-
um þjóðum, ungir og gamlir,
ásamt aðalritara sambands
rauða kross félaganna í París,
M. B. de Rougé, og G.Milsolm,
sem er aðalritari sambands
unglingadeildanna í París.
Þingið var sett af ungfrú Ing-
rid Sundström, sem er forseti
sænslcu unglingadeildanna.
Hver voru aðalumræðuefni
þingsins?
„Þau voru mörg og margvís-
leg. Mætti t. d. nefna störf
rauða kross félaganna í þágu
friðarins, samvinnu rauða-
kross-félaganna, skátanna og
íþróttafélaganna, stofnun les-
hringa og ferðafélaga unghnga-
deildanna, en um það efni flutti
erindi frú Maja Sandler, kona
utanrikismálaráðherra Svía —
• Ricliards Sandler. Var þetta
snjalt erindi og fróðlegt um
marga liluli.
Auk þess héldu fulltrúar
Norðurlanda með sér sérstakan
fund, og ræddU þar norræna
samvinnu í hjúkrunar- og
heilsuvemdarmálum. Umræðu-
fundir stóðu yfir í þrjá daga
og var unnið að staðaldri og
sleitulaust, en aðaltilgangur
fundarins var að sjálfsögðu sá
að auka samvinnu meðal ung-
lingadeildanna og samræma
starfsaðferðir þeirra í liinum
ýmsu löndum.“
Hvernig var kynnmg þín af
Stokkhólmi?
„Hún var með afbrigðum
góð. Stokkhólmur er hin feg-
ursta horg og Svíar hinir ágæt-
ustu menn, alúðlegir í viðmóti
og skemtilegir i viðræðum.
Okkúr aðkomumönnunum var
sýnd borgin öll og belstu stofn-
anir og söfn, en auk þess fórum
við nokkuð um nágrenni borg-
arinnar.
I lok þingsins var vegleg
veisla i Stadshuset í Stokkhólmi,
og bar eg þar fram kveðjur
Rauða Iíross félaganna á ís-
landi, og svo gerðu fulltrúar
annara landa fj'rir sitt leyti.
Um árangur mótsins verður
ekki sagt að sinni, en vænta má
hins besta, því að á þinginu
ríkti einlægur vilji til samstarfs
í þágu friðar og allrar hjúkrun-
ar- og líknarstarfsemi“,
Varst þú einn fulltrúi Is-
lands?
iðviKur
r sérst
Hvað um þeklcingu manna á
Islandi ?
„Þarna voru saman komnir
fulltrúar frá ýmsum þjóðum
og var þekking þeirra á tslandi
mjög misjöfn. Það vakti þó at-
hygli mína hve margt af þessu
fólki þekti sögu okkar, einkum
fyr á öldum, en það var e’itt
sem allir þektu og létu í ljósi
undrun sína og aðdáun yfir og
það var hitaveitan í Reykjavík.
Sem dæmi þess hvilíká at-
liygli hitaveitumálið hefir vak-
ið erlendis, er rétt að geta þess,
að þegar fulltrúar allra Norð-
urlanda voru boðaðir á fund
Carls prins, bróður Gustavs V.
Svíakonungs, en prinsinn er
verndari Rauða Kross Svía,
ræddi bann lengi sérstaklega
við mig um liitaveituna. Lét
hann í Ijósi mikía aðdáun á
þessu fyrirtæki.
Hvar sem eg kom var um
þetta rætt og allir virtust fylgj-
ast með málinu af miklum á-
huga. Tel eg af þessari við-
kynningu minni að hitaveitan
hljóti að vera einhver besta
auglýsing fyrir Island og ís-
lenska menningu, sem á verð-
ur kosið.
Færeyingaheimsóknin:
Færeyskir þjóð-
dansar, leikfimi
og kappleikur.
Eftir leikinn í fjnrrakveld var
Færeyingum boðið í Oddfellow-
húsið og dönsuðu þeir þar m.a.
þjóðdansa sína við mikla hrifn-
ingu allra viðstddra. Hefir því
orðið að ráði að þeir sýndi þjóð-
! dansa, áður en leikurinn hefst
! annað kveld. , -
| Þarf ekki að efast um, að
; Reykvíkinga muni fýsa að sjá
Færeyingana dansa í þjóðbún-
ingum sínum. En áður en leik-
urinn hefst munu K.R.-stúlk-
urnar frægu einnig sýna listir
sínar, þær hinar sömu, sem þær
fengu mest hrós fyrir í Dan-
merkurförinni.
Er þetta í fvrsla sinn, sem
þær sýna opinherlega eftir
heimkomuna.
Loks verður svo kappleikur
og keppir þá 1. floldcur K.R. við
Færcyingana.
I stuttu máli: Áhorfendum er
skemt á þrennan hátt, fyrir
sama verð og aðgangur kostar
að venjulegum kappleik. Hver
ætlar að sitja heima við þetta
tækifæri?
Ntrand ferða§kipiim
nýja rerðnr Sileypt af
§tokkiiniun í dag.
1 dag verður hinu nýja skipi
Skipaútgerðar ríkisins hleypt af
stokkunum í Álaborg, og er bú-
ist við að það verði um liádeg-
ið, en alt fer það eftir því,
hve'rnig á flóði stendur í Lima-
firði, en þar eru sjávarföll ó-
regluleg.
Ingiríður krnóprinsessa skírir
skipið og er ákveðið að það
skuli heita „Esja“, eins og
s trandfórðaskipið, sem selt var
úr landi, og verða stafir þess
skips notaðir á hið nýja.
Mikill mannfjöldi verður við-
staddur, er skipinu verður
lileypt af stokkunum. Ber þar
fyrsl að telja krónprinshjónin
og forunéjdi þeírra, Svein
Björnsson sendiherra, Jón
Ivrahbe sendisveitarráð og Jón
Sveinbjörnsson konungsritara,
bæarstjóra Álaborgar og fjölda
íslendinga, sem búsettir éru i
Danmörku, en allir þessir gestir
munu liafa komið til Álaborgar
í inorgun.
Samkvæmt dönskum blöð-
um, sem liingað hafa borist,
verður skipinu lileypt af stokk-
unum um hádégisbilið, en hins-
vegar verður athöfninni útvarp-
að kl. 18.15 sd.
Um fyrirkomulag þesarar at-
hafnar er þetta í stuttu máli að
segja:
Fyrir framan skipið hefir ver-
ið séltur upphækkaður pallur
og hefir hann og skipið verið
skreytt með islenskum og
dönskum fánum. Milli pallsins
og skipsstefnisins hangir
kampavínsflaska í silkisnúru.
Sveinn Bjönrsson sendihén-a
flytur fyrst ávarp, en þvi næst
leiðir forstjóri skipasmíða-
stöðvarinnar krónprinsessuna
upp á pall þann, sem að ofan
getur. Flytur krónprinsessan
þar stutt ávarp, óskar skipinu
gæfu og géngis og góðrar ferðar
um höfin og klippir þvi næst
silkisnúrunni í sundur. Fellur
þá kampavinsflaskan á bóg
skipsins og brotnar þannig, að
kampavinið freyðir um stefnið.
Samtímis þrýstir krónprinsess-
an á hnapp og rennur þá skipið
af stað, en um leið falla flögg-
in af stefni skipsins og nafn
þéss kemur í ljós. Síðan verður
skipið dregið að bryggju og
lialdið áfram smíði þess.
Hið nýja skip er 1200 smál.
að stærð. I því verða tvær Polar-
Diesel aðal-vélar, 1100 hestöfl
livor. Verður það með tveimur
skrúfum og er það fyrsta far-
þegaskip, sem þannig er bygt
fyrir oklcur. Le'ngd skipsins er
226 fet milli stafna, breidd 35.6
fet og dýpt 20.6 fet.
Að framfarinni skírnarat-
höfninni verður gestunum boð-
ið til miðdegisverðar að hótel
Phönix í Álaborg.
Framarar voru allstaðar
leystir út með gjöfum
Verndargripurinn frá Vestmannaeyjum og
þegar Borgundarhólmsbúar skömmuðust sín.
Fjöldi manns tók á móti Fram-mönnum í gær, þegar Brúar-
foss kom og urn kvöldið var þeim haldið móttöku samsæti í
Oddfellowhúsinu. Voru þar fulltrúar allra knattspvmufélag-
anna, K. R., Vals og Víkings, og færðu þeim árnaðaróskir, en
auk þess fluttu þar ræður Erlingur Pálsson, varaform. í. S. í„
Guðm. Ólafsson, form. K. R. R„ Ól. K, Þorvarðarson, Jón
Magnússon form. Fram og Árreboe Clausen.
Að lokum sagði svo Brynj-
ólfur Jóhannesson, fararstjóri,
ferðasöguna í stuttu máli. Verð-
ur hún ekki rakin hér, þvi að
hún er lésendum Vísis kunn að
mestu, en þar sem Frammenn
voru allstaðar leystir út með
góðum gjöfum þykir rétt að
skýra frá því hverjar þær voru.
1 Vestmannaeyjum héldu í-
þróttamenn þeim kveðjusam-
sæti og gáfu þeim verndargrip
(mascot) og er það litil tau-
brúða. í hvert sinn sem Fram-
arar keptu var brúðan hengd
upp í markið, en svo óheppilega
vildi til, að við fyi-sta leikinn (í
SÖrey) var markmaðurinn dá-
litið „nervös“ og hengdi brúð-
una öfugt. Afleiðing: Ósigur.
Næsti leikur var í Bornholm.
Þar hafði foringi knattspyrnu-
manna sagt við B. J„ að þeir
Borgundarhólmsmenn myndi
skammast sín, af Fram ynni.
Fram vann og Borgundarliólm-
arar gáfu Frammönnum mynd,
er sýndi hversu mjög. þeir
skömmuðust sín. Er myndin af
nakinni stúlku, sem liéldur
höndiun fju-ir andlitið af blygð-
un. —
I Tönder var Frammönnum
færð standmynd af knatt-
spyrnumanni úr eir á marm-
arastöpli.
I aðalveislu D. B. U. 18. júní
voru hverjum þátttakanda far-
arinnar færður silfurpappírs-
hnífur, manchettuhnappar og
slifsisnæla til minningar um
komuna og 50 ára afmæli D.
B. U.
Fimtíu ára afmæli danska
knattspymusambandsins.
Milliríkjakepni. Kappleikirnir, sem.
Fram kepti í. Þörfin fyrir grasvellL
Viðtal viö Benedikt G. Wáge, foreeta í. S. L
Tíðindamaður Vísis fór í morgun á fund Ben. G. Wáge^ fop*
seta íþróttasambands íslands^ en hann var meðal farþega á
Brúarfossi í gær, og bað hann segja lesendum blaðsins frá n£am-
för sinni í höfuðatriðum. Varð B. G. W. góðfúslega vi8 þvi,
enda þótt hann sé ekki heill heilsu um þessar mundir. Líggur
hann í fótarmeini, sem orsakast af því, að hann síðari hlnta
ferðar sinnar reif sig á nagla, og hljóp eitrun í. — B. G. W. eop
nú á batavegi, en mun verða rúmfastur nokkra daga. — Frá-
sögn hans fer hér á eftir:
Eg fór utan í boði Dansk
Boldspil Union (danska knatt-
spyrnusambandsins), segir B.
G. W„ en það átti 50 ára afmæli
18. maí s.l. og liélt það liátíðlegt
tæpum mánuði síðar, með því
að stofna til milliríkjakepni i
knattspyrnu milli Norðurlanda-
þjóðanna annara en Islending-
anna. Þar keptu Svíar og Norð-
menn og unnu Norðmenn. Þá
keptu Danir og Finnar og unnu
Danir. Loks keptu sigurvegar-
arnir í þessum tveimur kapp-
leikjum, Danir og Norðmenn,
og unnu Danir. Fengu þeir að
launum verðlaunabikar mikinn
úr silfri, liinn inesta og fegursta
sem eg hefi séð. Hafði sam-
bandið gefið liann í þvi skyni.
\
Mótið sett 14. júní af
Leo Frederikssen.
Mótið var sett af Leo Frede-
rikssen, varaformanni D. B. U.
Viðstödd voru Kristján lconung-
ur og Alexandrine drotning og
margt annað stórmenni, forset-
ar allra íþróttasambandanna á
Norðurlöndum, fulltrúar í-
þróttafélaga og margir aðrir.
Leo Fréderikssen er mörgum
íslendingum að góðu kunnur,
því að hann var fararstjóri A.
B. 1919. — Um 30—40.000
manns horfðu á kappleikina.
Leikirnir voru lærdómsríkir og
skemtilegir. Þegar mótið var
sett gengu knattspyrnumenn
allra Norðurlandanna inn á
völlinn undir fánum og var
leikinn þjóðsöngur hvérs lands
og var þetta alt mjög liátíðlegt.
Knattspyrnumenn Fram koinu
þar fram fyrir Islands liönd.
Leo Frederikssen ávarpaði
hverja þjóð fyrir sig og fyrst
íslendinga.
Útvarpsávörp.
Forsetar og fulltrúar iþrótta-
sambanda og félaga Norður-
landa ávörpuðu D. B. U. í
danska útvarpinu, í tiléfni af
afmælinu. Var svo ráð fyrir
gert, að forsetar Norðurlanda-
sambandanna ávörpuðu D. B.
U. hver á sínu máli, en almenn-
ingi gekk illa að sldlja sænsk-
Una og finslcuna og leiddi það
til þess, að eg var beðinn að
flytja mitt ávarp á dönskn,
vegna Iilusténdanna.
\
Hóf og gjafir.
Veislur voru margar og aðal-
veislan var lialdin á Skydeban-
en. Flutti eg þar ávarp frá I. S.
í. og íslandi og færði D. B. U.
gjafir. Var þetta í fyrsta sinn,
sem fulltrúi frá I. S. I. var heið-
ursgestur á slíkri Norðurlanda-
ráðstefnu. Forsetar liinna Norð-
urlandasambandanna fluttu
einnig ávörp og gjafir. Farar-
stjóri Fram afhenti D. B. U.
gjöf frá félagi sínu (mynd af
Geysi).
Kappleikirnir.
Siðar bauð D. B. U. mér með
Fram til Sóreyjar, Borgundar-
hólms, Óðinsvéa og Tönder,' og
BEN. G. WÁGE.
var eg viðstaddur kappleíkans^
mér til mikillar ánægju. ÚrsKt-
in eru öllum kunn. D. B. U. var
svo liugulsamt að lofa Framað
æfa sig á grasvellí fyrir leikina
og mun það hafa komið F'ram
að miklu gagni. Frammenn
sýndu áhuga og dugnað I hví-
vetna og var framkoma þefrra
drengileg og íslandi til sóma.Án
efa hafa þeir lært mikið af að
vera áliorfendur að Mnum
mörgu milliríkjakepnum vífc*
una áður i Kliöfn.
Við þurfum að eignast
grasvelli.
Ef við íslendingar eigum að
gela haldið áfram að keppa ec-
lendis og sigra, verðum viS aS
eignast grasvelli. Það er mödl
og knýjandi nanðsyn að koma
upp grasvöllum og þar eiga all-
ir aðilar að taka saman og
hjálpa I.S.I. í þessu efm.
er nauðsyn ekkl aðeins til
að standa betur að vígi að sigra
i kepni á erlendum vetlvangU
lieldur af því að á grasveöl
vérður knattspyrnan fegmri
leikur..
Gestrisni Dana.
Danir sýndu oss íslendingom
i hvivetna frábæra gestrisasi^
Þeir Danir, sem hér hafa veriSt.
vildu alt fyrh' oss íslendingac
gera. Þetta ættum vér að muna.
Kveðjur.
I lok viðtalsins biður .B, G.
W. Vísi að flvtja öllum íþrótta-
mönnum og vinum kærar
kveðjur og þakklæti fyrir að
minnast sin á ýmsan hátt á.
fimtugsafmæli Iians fyrnr
skemstu. Gcirir Vísir það hér
með. : 1 "•
Evangeline Booth
kveður.
Oslo 7. júlí. FB:
Evangeline Booth yfirhers-
höfðingi Hjálpræðish., sem er
komin í kveðjuheimsókn í Oslo,
gekk á konungsfund í dag. —
Þegar Evangeline Booth IæfuK
af störfum innan skamms ætl-
ar hún að setjast að i Banda-
ríkjunum. —- NRP.