Vísir - 05.09.1939, Síða 2

Vísir - 05.09.1939, Síða 2
VISIR VtSIB DA6BLAÐ Útgefandi: BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H/F. Ritstjóri: Kristján Guðlaugsson Skrifstofa: Hverfisgötu 12 Afgreiðsla: Hverfisgötu 12 (Gengið inn frá Ingólfsstræti) Sfmar: Afgreiðsla 3400 Ritstjórn 4578 Auglýsingastjóri 2834 — (kl. 9—12) 5377 Verð kr. 2.50 á mánuði. Lansasala 10, 15 og 20 aurar. Félagsprentsmiðjan h/f. SAMTAKA! JJNGINN efi er á þvi, að við íslendingar hefðum getað verið betur viðbúnir þeim vand- ræðum, sem að okkur steðja en raun er á. Við hefðum ekki þurft að vera í svona miklum gjaldeyrisvandræðtlm. Við hefð- um getað verið birgari af ólijá- kvæmilegum nauðsynjavörum. Það væri létt verk að sakast um orðinn hlut. En það er óþarft verk eins og á stendur. Við skul- um leggja ágreiningsmálin til hliðar, fresta reikningsskilun- um, láta ásakanir niður falla um það sem gera þurfti — ein- heita huganum að því sem gera þarf. Við skulum gera ráð fyrir því, að vitsmunir og sanngirni sameini valdhafana til að gera skyldu sína við þjóðina. Við skulum ennfremur gera ráð fyr- ir þvi, að þjóðin sýni þann þroska og þegnskap, sem kraf- ist verður til þess að þær ráð- stafanir, sem gerðar eru og gerðar verða, komi að fullum notum. Það er jafnan svo, þegar stór- tíðindi gerast, að menn átta sig tæplega í byrjun. Síðustu vik- umar hefir rás viðburðanna verið svo ör og svo örlagaþrung- in, að menn eru sem lamaðir. Allar fyrirætlanir ganga úr skorðum, öllu öryggi er burtu svift. Það sem var ósaknæmt í gær er orðið varhugavert í dag. Á morgun getur það verið ná- lega glæpsamlegt. Á slíkum tim- um reynir á þjóðrækni manna. Enginn er svo innrættur, að hann vilji þjóðina feiga. En menn verða að skilja, að því að edns er von um sigurvænleg- an árangur, að liver maður geri sér ljósa skyldu sína við þjóð- félagið. Við íslendingar höfum lifað af meira harðrétti og hörmung- ar á umliðnum öldum en flest- amðrar þjóðir. Ef til vill er þar að leita ástæðanna til þess, að við höfum undanfarið sýnt meiri léttúð í gæslu þess, sem við höfum aflað, en æskilegt hefði verið. Maður, sem lengi hefir búið við þröngan kost, en fær síðan skyndilega fé handa á milli, ætlar sér oft ekki af. En léttúð er ekki sama og þrek- Ieysi. Þjóðin hefir létt sér upp eftir fábreytt og döpur kjör undanfarinna kynslóða. Hún hefir gert sér glaðan dag. Sá dagur er nú á enda. Nú reynir á þrekið. Það væri óréttmætt vantraust á hinni dugmildu, athafnasömu nútímakynslóð íslendinga, ef henni að óreyndu væri ætlað að bregðast undan þeim kvöðum, sem vandræði líðandi stundar leggja henni á herðar. Slíkur metnaðarskortur er ekki ætl- andi þeim, sem unnið hafa af- rek undanfarinna áratuga. Við skulum ekki gera lítið úr þeim erfiðleikum, sem framundan eru, en við skulum ekki heldur Bresk loftárás á Wilhelmshaven og Brunnsbiittel, í ^pres^ing: I Fi'iedrichiliaveii. iAiMrás á Estojerg: í Daiunörku. EINKASKEYTI frá United Press. — London í morgun. Igærkveidi tilkynti breska flugmálaráðuneytið, að breskar sprengjuflugvélar hefði gert loftárás á þýsku flotastöðina Wilhelmshaven við Kielar-skurðinn, og flotastöðina Brunnsbuttel, við mynni Elbufljóts. í tilkynningunni segir, að loftárásin hafi borið tilætlaðan árangur, því að á báðum stöðunum hafi bresku flugmennirnir hæft herskip með sprengikúlum sínum. Mörgum, þungum sprengikúl- um hafi verið varpað á eitt af orustuskipum Þjóðverja og hefði það stórskemst, en annað orustuskip varð fyrir skemdum í BrunnsbUttel. Orustuskipið, sem bresku flugmennirnir hæfðu margsinnis lá við Schilling Roads við Wilhelmshaven, en hitt við hafnargarð í Brunnsbiittel. Veðurskilyrði voru mjög óhagstæð. Þjóðverjar skutu af miklu kappi af loftvarnabyssum sínum á bresku flugvélarnar og árásarfluvélar þeirra fóru í loft og gerðu atlögu að þeim. Breska árásarsveitin varð fyrireinhverjutjóni,enbreskatilkynningin getur ekki um hvað mikið það hafi verið. Fregn frá Svisslandi hermir, að mikil sprenging hafi orðið í Friedrichshaven, og fregnir frá Danmörku, að flugvél, sem menn vita ekki deili á, hafi gert loftárás á Esbjerg, á vesturströnd Jótlands. Tveir menn biðu bana, en 8—10 manns særðust, og skemdir urðu á götum og húsum. Rannsókn fer fram til þess að komast að raun um hverrar þjóðar flugvélin hefir verið. Er líklegt, að unt verði að ráða það af sprengi- kúlubrotunum. Blöð Breta og Frakka tilkynna í gær, að héðan í frá myndi flugherir þeirra, land- og sjóherir hafa sig í frammi, og er loftárásin á Wilhelmshaven og BrunnsbUttel fyrsta viðureignin í lofti milli Breta og Þjóðverja í þessari styrjöld. Þýskar útvarpsfregnir herma, að fimm breskar sprengjuflugvélar hafi verið skotnar niður í loftárásum á Wilhelmshaven og BrunnsbUttel. Sudur-Afríka stendur með Bretum. Nýja Sjáland og Ástralía hafa þegar, sem kunnugt er af fyrri fregnum, fylkt sér meö Bretum, og eiga nú í styrjöld við Þýska- land. Loforð um stuðning og hollustu streyma til London frá öllum nýlendunum og indversku prinsarnir lofa mannafla og gulli, en af hvorutveggja hafa þeir firn mikil. En eins og í byrjun heimsstyrjaldarinnar hefir vafi þótt leika á, að Suður-Afríka færi í stríð með Bretum, þrátt fyrir það, að gróin eru sár Búarstríðsins. En eins og þá hafa Bretavinirnir sigrað. HERZOG YILDI HLUTLEYSI. Herzog forsætisráðherra vildi hlutleysi, meðan samband Suð- ur-Afríku við Bretland og ný- lendurnar væri ekki í hættu. — Hann er ekki sammála Cham- berlain um, að Hitler ætli að leggja undir sig heiminn. En gamli Búastríðsherforinginn, Smuts, núverandi dómsmála- ráðherra Suður-Afríkustjórnar- innar, var á öðru máli. — Yér eigum ekki að vera hlutlausir, sagði hann, vér eigum að slíta stjórnmálasambandinu við Þýskaland, en þar fyrir þurfum vér ekki að senda herlið til Ev- rópu, heldur hugsa um það að verja Suður-Afríku, og um það, að land vort verðum vér að geta larið, er enginn ágreiningur innan stjórnarinnar. Við verð- um að gera oss ljóst, að sjálf- stæði Suður-Afríku er í hættu. Ef Vér stöndum ekki með Bret- um, eigum vér það á hættu, ein- hverntíma seinna, að standa uppi verndarlausir, ef Þýska- land fengi aðstöðu til þess að heimta sínar gömlu nýlendur. Breytingartillögur, er Smuts bar fram, náðu fram að ganga með nokkurum atkvæðamun. vanmeta okkar eigið þrek til þess að sigrast á þeim. Styrjöldin er aðeins hafin. Það geta liðið mánuðir, það geta liðið ár, þar til henni lýkur. Við skulum þegar í byrjun einsetja okkur, hver og einn, að gera það sem í okkar valdi stendur til þess að alþjóð fái varist þeim áföllum, sem á kunna að skella. Við skulum muna það, að þótt annars sé af okkur krafist í dag en í gær, þá eru það alt saman smámunir ednir i samanburði við það, sem nálega allar aðrar þjóðir verða á sig að leggja. Við skulum ekki láta okkur henda þá lineisu, að sýta það, þó við fáum dálítið minna af hveiti- brauði, en við höfum vanist, dá- lítið minna af kaffi og sykri, þó við förum færri bíltúra en áður og hættum að kynda miðstöðv- ar í vellandi sumarhita. Það væri háðung, ef nokkur leyfði sér að mögla yfir þessu. Og þó við séum svo sett, að við getum fylt búrið okkar af því, sem nú er tekið að skamta, þá skulum við ekki gera það. Það mun sannast, að hverjum þeim, sem reynir að sniðganga þau fyrir- mæli, sem gefin eru út til þess, að eitt gangi yfir alla, mun svelgjast á af hverjum rang- fengnum bita eða sopa, sem liann ber sér til munns. Ráðstafanir þær, sem ríkis- stjórnin gerir um þessar mund- ir, til þess að dreifa erlendum vörum réttlátlega, mælast all- staðar vel fyrir. Almenningsálit- ið, sem hér skapast, mun verða öruggasta vörnin gegn því, að fyrirmælin verði brotin. Við skulum vera samtaka um að mæta með karlmensku og drengskap hverju sem að hönd- uin ber, samtaka um að greiða fyrir framkvæmd réttmætra ráðstafana, svo að haldi komi. a Wilhelmshaven er hafnarborg við Norðursjó, 41 entka mílu frá Bremen. Fyrir styrjöldina var Wilhelmshaven aðalflotastöð Þýskalands, með miklum skipasmíðastöðvum og þurrkví til þess að draga á land stór herskip til viðgerðar. Eftir styrjöldina voru varnarvirkin eyðilögð og höfnin var lítt notuð um skeiö, enda urðu Þjóðverjar að láta flota sinn af hendi. En með vaxandi valdi nasista færðist aftur fjör í alt í Wilhelmshaven og hún varð aftur mikilvæg flotastöð. Hafnarborg þessi var stofnuð 1853 og heitin eftir Vilhjálmi I. Prússlandskonungi. i mm Franco hefir tekið hina mik- ilvægustu ákvörðun. Spánn verður hlutlaus. Var tilskipun þar að lútandi gefin út í gær. Nokkur vafi liefir þótt leika á því, livaða afstöðu Franco mundi taka. Eitt vissu menn þó, að Franco mundi taka mik- ið tillit til þess, hvaða afstöðu Mussolini tæki. Það veit að vísu enginn, hvað Mussolini muni gera, ef t. d. færi að kreppa að Þjóðverjum, og Hit- ler krefðist þess, að Iiann veitti sér aðstoð. En Mussolini vill ekki stríð. Það er komið í Ijós svo skýrt sem verða má. Hann hefir reynt að afstýra ófriði. Og allar líkur benda til, að It- alía verði hlutlaus, enda þótt yfirlýsing liggi ekki fyrir um það. ítalir eru að húa sig und- ir að láta hafskip sín, Atlants- liafsförin stóru, Rex og Conte di Savoia, hefja siglingar til Aineríku á ný, en það mundu þeir ekki gera, ef þeir hyggj- ust við að lenda i striði. Júgóslavía hefir einnig lýst yfir hlutleysi sinu. — Japanir munu einnig verða hlutlausir. Orusturnar í Póllandi. Þjóðverjar tilkynna fram- sókn til Krakau. Virðast þeir leggja talsvert kapp iá að ná Moscicki, forseti Póllands. iðnhéruðunum þar. Stefna Þjóðverjar til Krakau, mikillar iðnaðarborgar. Þeir segjast hafa tekið 15.000 fanga. Hitíer var í gær í borginni Kulm og horfði á hersveitir Þjóðverja fara yfir ( Vistulafljót. — Heilt herfylki pólsks riddaraliðs liefir gert innrás í Austur-Prússland. Pólverjar skutu niður fyrir Þjóðverjum 15—20 flugvélar í gær, en mistu 8—10. Sendiherrar og ræðis- menn halda heim. Sendiherrar Frakldands og Bretlands í Berlín héldu heim- leiðis í gær, og cliarge d’affaires Þjóðverja i London, og hvar- velna halda nú ræðismenn þeirra þjóða, sem í ófriði eiga, lieim á Ieið. Vaxandi hernaðaraðgerðir. Þar sem sendiherrar og ræð- ismenn eru komnir hver til síns heima, hrottflutningi fólks úr borgum lokið (Bretar senni- lega farið sér liægara meðan verið var að ljúka honum, en í gær var húið að flytja hörn, mæður þeirra og sjúklinga frá London, en í gærkveldi gerðu Bretar fjæstu loftárás sína á Þýskaland), mun vafalitið, að orustur í lofti og á landi verða æ tíðari. Aðrir helstu viðburðir í gær. Bandaríkin lýsa yfir hlut- leysi og hlutleysislögin koma til framkvæmda — líklega í dag. Breskir flugmenn vörp- uðu flugritum yfir Þýskaland i gær. Sex miljónum eintaka. Engin árás var gerð á flug- mennina. Þjóðverjar liafa lagt tundurdufl á svæði i Norður- sjó. Egiftar slita stjórnmála- sambandi við Þýskaland. 25 þúsund Tékkar hafa gengið í nýjan tékkneskan her i Pól- landi og eru komnir til víg- vallanna. Dr. Benes lýsir yfir í hréfi til Chamberlain, að Tékkar séu i striði við Þýska- land. Tvö ný ráðherraembætti hafa verið skipuð i Bretlandi, útbreiðslumála- og stríðsfjár- hagsráðherraembætti. Þýskt og austurrískt fólk i Bretlandi verður framvegis að hlíta ströngu eftirliti. í Tanganyika, fyrv. nýlendu Þjóðverja, hafa allir þýskir karlmenn verið settir í sérstakar hækistöðvar. —- Miklar varúðarráðstafanir hafa verið gerðar i öllum ný- lendunum. Þjóðverjar neita, að kafbátur hafi skotið á At- henia. Winston Churchill segir, að það sé áreiðanlegt, að kaf- bátur hafi sökkt skipinu. Tvö skip liafa farist á tundurdufl- um, annað grískt, hitt danskur fiskikúlter. Ferðafélag fslands biður þá, sem tóku þátt í Mý- vatnsförinni, að koma saman í Oddfellowhúsinu, uppi, kl. 9 á mi'S- vikudagskvöld, til að skoSa og skift- ast á myndum og rábba saman nokkra stund. í> * v ^ s * j . ' PÓLSKT RIDDARALIÐ.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.