Vísir - 19.09.1939, Síða 2
VISIR
VtSIR
DAGBLAÐ
Útgefandi:
BLAÐAtjTGÁFAN VÍSIR H/F.
Sitstjóri: Kristján Guðlaugsson
Skrifstofa; Hverfisgötu 12
Afgreiðsla: Hverfisgötu 12
^Gengið inn frá Ingólfsstræti)
8 i m a r:
Afgreiðsla 3400
Ritstjórn 4578
Auglýsingastjóri 2834
— (kl. 9—12) 5377
Verð kr. 2.50 á mánuði.
Lausasala 10, 15 og 20 aurar.
Félagsprentsmiðjan h/f.
Gengis-
breytingin.
j^KISSTJÓRNIN á í mörg
horn að líta um þessar
mundir. Daglega koma fyrir ný
og ný vandamál, sem krefjast
skjótrar úrlausnar. Eitt af þeim
vandamálum, sem erfiðast hefir
verið viðfangs, er afstaða ís-
lensku krónunnar til sterlings-
pundsins. Á síðastliðnu vori var
það tekið í lög að eitt sterlings-
pund skyldi framvegis jafngilda
27 islenskum krónum. Þeir sem
að þeirri löggjöf stóðu litu á
sterlingspundið eins og þann
„klett í liafinu“, sem ekki mundi
hreyfast, hvað sem yfir skylli.
Áðrir bentu á, að vissara væri
að hafa frekari tryggingar að
baki, þegar verðgildi krónunnar
væri ákveðið með lögurn. Nú
hefir það komið í ljós,að „klett-
urinn í hafinu“ er ekki lengur
fastur. Okkur hefir því farið
líkt og manni, sem bindur hát
sinn að kveldi við það, sem liann
heldur vera bryggju, en kemst
að því morguninn eftir, að
bryggjan er ekki annað en fleki,
sem kominn er á rek fyrir
straumi og vindi.
Síðan striðið skall á liefir
sterlingspundið fallið um ca.
20%. Nágrannaþjóðir okkar á
Norðurlöndum bjuggu sig þeg-
ar undir, að hrinda bátnum frá,
þegar sýnt var að pundið var
að reka. Norðmenn ákváðu að
láta sína krónu fylgja pundinu
niður um 4%, en Danir sína
krónu um 8%. Við íslendingar
fylgdum lengst. Pundið var fall-
ið um 20%, þegar sú ákvörðun
loks var tekin, að skilja við
pundið og taka á okkur um
helming gengisfallsins. Hið nýja
gengisfall er um 11%. Hið fyrra
var um 22%. Svo að alls hefir
islenska krónan á þessu ári fall-
ið um hér um bil nákvæmlega
þriðjung.
Hið nýja gengisfall kemur
þunglega niður á öllum almenn-
ingi. Vörur rjúka nú upp á er-
lendum mörkuðum. Flestir eru
illa við því búnir, að taka á sig
hækkun á lífsnauðsynjum. Eft-
ir gildandi lögum eru settar
skorður við kauphækkun. Þau
ákvæði hafa verið rýmkuð, að
eins að þvi er tekur til sjó-
manna, sem sigla á hættusvæði.
Að því er verslunarstéttina
snertir, var það ástand, sem
skapast hafði við það að pundið
var látið óskráð, alveg óþolandi.
Eina leiðin var að kaupa vörur
fyrir peninga út í hönd. En sú
leið var sem lokuð, vegna gjald-
eyrisástandsins. Kaupmenn hafa
neyðst til þess að taka langan
gjaldfrest á innfluttum vörum.
Á þennan hátt hafa safnast milj-
ónir króna, sem sumpart liggja
hér í vanskilum, sumpart sem
fljótandi verslunarskuldir. Þess-
ar skuldir eru ekki neíma að
nokkru leyti í pundum. Sá hlut-
inn hækkar um ca. 9%. En
mikill meiri hluti þessara versl-
unarskulda er i öðrum gjald-
eyri en pundum og hækkar
þannig um 11%. Þetta er því
tilfinnanlegra, sem sömu aðiljar
hafa áður á árinu orðið að taka
á sig miljónatöp, vegna liins
fyrra gengisfalls. Það var þvi
mjög eðlilegt að innflytjendur
legðu til fyrir sitt leyti, að þeg-
ar yrði skilið við sterlingspund-
ið og krónan fest í því gullverði,
sem hún hafði í vor eftir stýf-
inguna, eða ca. 38—39 gullaur-
um. <
Ilinsvegar var á það að líta,
að útflytjendur höfðu hags-
muna að gæta við það, að krón-
an liækkaði ekki í lilutfalli við
slerlingspundið. Mikið af fram-
leiðslu þeirra var þegar selt í
ógreiddum sterlingspundum.
Framleiðendur máttu ekki við
því, að verða fyrir nýjum áföll-
um á fiskinum, eftir alt það sem
á undan var gengið. Þeir hefðu
vafalaust kosið að pundinu
hefði verið fylgt ofan í þessa
20% lækkun, sem orðin er, eða
kannske lengra.
Stjómin hefir þannig þurft
að taka tillit til mismunandi
sjónarmiða. Hún hefir hallast
að því ráði, að framleiðendur
fengju nokkra úrlausn sinna
mála, þótt það leiddi af sér
aukna dýrtíð í landinu og end-
urtekið tap fyrir verslunarstétt-
ina.
a
Gjaldskrá
Hitaveitunnar.
Bæjarráð samþykti á síðasta
fundi sínum, að leggja til við
hæjarstjórn, að 3. gr. í gjald-
skrá Hitaveitu Ileykjavikui' frá
6. apríl 1933 yrði breytt og
greinin orðuð þannig:
Fyrir hitann skal greiða:
Frá 1. október til miðs maí-
mánaðar kr. 0,80 á mánuði
fyrir livern fermetra hitaflat-
ar. — Frá miðjum maí til 30.
sept, kr. 0,30 á mánuði fyrir
livern fermetra hitaflatar,
livorttveggja miðað við 38 kr.
kolaverð í verslunum í
Reykjavík. Hækki verð á kol-
um eða lækki um 10% eða
meira frá þessu verði, breyt-
ist hitaveitugjaldið hlutfalls-
lega frá næstu mánaðamót-
um.
Jafnframt því, sem hæjarráð
samþykti þetta, var bæjarverk-
fræðingi falið að gera tillögur
að nýrri gjaldskrá fyrir Hita-
veitu Reykjavíkur.
V.b. Krístinn dreginn
til hafnar.
Síðastliðinn sunnudag kl. 10
að morgni lagði vélbáturinn
Kristinn frá Húsavík til róðurs,
og var vitað að hann réri 20
mílur í norðaustur af Grímsey.
Sást til bátsins er hann hafði
dregið reknet sín og var hann
þá að leggja af stað til lands.
Báturinn kom ekki að landi,
og sneru menn sér til Slysa-
vamafélagsins, með þeim til-
mælum, að það hlutaðist til um
að leit yrði hafin að bátnum. —
Sendi Slysavamafélagið út þau
tilmæli sín í gærkveldi.
Vísir átti tal við fréttaritara
sinn á Húsavík í morgun og
skýrði hann blaðinu svo frá, að
í gærkveldi hefði færeyskt skip
komið með m.b. Kristin í eft-
írdragi. Hafði vél bátsins bilað,
og lá hann úti í flóanum þar til
er færeyska skipið bar að og
greiddi leið hans til lands.
Veður hefir verið gott á Norð-
urlandi undanfarið, sunnanátt
og blíðviðri, þannig að ekki var
talin bein ástæða til að óttast
um afdrif bátsins veðurs vegna.
Rússar hafa allan austur-
hluta Póllands á sínu valdi
Smigly-Rydz marskálkui* flúinn
til Rúmeníu.
Fregnir frá Budapest herma, að Smigly-Rydz marskálkur sé kominn til Rúm-
eníu. Fór hann yfir landamærin í nótt. Hann mun setjast að í Craiova.
í útvarpsfregnum frá Rómaborg er frá því sagt, að margar rússneskar her-
sveitir í brynvörðum bifreiðum og skriðdrekasveitir séu komnar alt suður til landa-
mæra Ungverjalands, og hafa Rússar því nú alt Austur-Pólland á valdi sínu, og þar
með öll landamærahéruðin, sem liggja að Rúmeníu.
Bretar ^eg ja Bú§§uin
ekki §tríð ;í hendur,
en §eg:jíist standa við allar §knld-
Mndingar §ínar við i*ólBan«l.
Breska stjórnin hefir gefið út tilkynningu, þar
sem hún lýsir yfir því, að hún standi við allar
skuldbindingar sínar gagnvart Póllandi og
innrás Rússa muni í engu hafa þau áhrif, að
hiin hviki frá ákvörðunum sínum í þessu efni. Cham-
berlain forsætisráðherra og Halifax lávarður ræddust
við í gær, og biðu frekari skýrslna, en er þær bærust.
var ráðgert að haldinn yrði fundur í stríðsstjóininni.
Breska stjórnin mun bera fram mótmæli gegn innrás Russa
í Pólland, en ekki segja Rússum stríð á hendur. Það er jafnvel
ekki búist við, að þeir slíti stjórnmálasambandi við. Rússa.
Chamberlain mun gera grein fyrir afstöðu Breta í neðri mál-
stofunni, að líkindum í dag.
Stríðinu í Póllandi er talið raunverulega lokið, enda þótt
Varsjá verjist enn.
Rússneskar framvarðasveitir komu í gær til Lemberg og
Vilna. •* , \ s
SMIGLY RYDS.
jr
Islendingar
hafa unnið
forsetabik-
arinn.
Samkvæmt nýkomnum
fregnum af skákþinginu í
Buenos Aires, hafa íslend-
ingar unnið forsetabikarinn.
Pdlverjai' ólani“
aðii* siðferðilega.
Oslo 18. sept. FB.
Innrás rússneska hersins í
Póllandi hefir verið mjög hröð
og mótspyma óvíða og mjög
veik. Rússar eru sumstaðar
komnir 90 km. inn i landið.
Þýskar og rússneskar hersveitir
hafa hist í Brest-Litovsk í dag.
Vörn pólska hersins virðist
alveg að bresta.
Fréttaritari Times segir, að
Pólverjar sé ólamaðir siðferði-
lega, og viti þeir vel, að ekki
verði útgert urn örlög Póllands
í Póllandi sjálfu, og því sé ekld
um algeran ósigur að ræða eða
neitt friðarsamkomulag, heldur
muni Pólverjar áfram, eftir því
sem þeir geta, vinna að þvi, að
Hitlersstefnan verði kveðin nið-
ur og Pólverjar fái yfirráð yfir-
landi sínu aftur. — NRP.
Er alt fyrirfram ákveðið
af Rússum og Þjóðverjum
varðandi Pólland ?
a nBiinm Iié nerið
Cnuraseous,»tailir
Enn óvíst hversu margir liafa farist.
Breska flotamálaráðuneytið hefir birt fyrsta listann
yfir nöfn þeirra, sem bjargað var af flugvéla-stöðvar-
skipinu Courageous. Alls eru 438 nöfn á þessum lista.
Því er við bætt, að frekari listar verði birtir innan
skamms.
Blöðin í Rússlandi birta uppdrætti, sem gefa
til kynna hvernig landinu verður skift,
Það er þegar ýmislegt farið að koma í Ijós, sem þykir benda
til, að skifting Póllands sé ákveðin þannig af Rússum og Þjóð-
verjum, að hinir síðarnefndu fái alt landið fyrir austan línu,
sem dregin er frá landamærum Austur-Prússlands til Karpato-
Ukraine. Eftir þessu ætla Rússar sér sneið þá af Hvíta-Rúss-
landi, sem Pólverjar fengu, er pólska lýðveldið var stofnað, og
pólsku Ukrainiu. Sennilegt er, að Þýskaland taki í sinn hlut
mikinn hluta af því landi sem eftir er eða öll vestur-héruðin,
en miðhéruðin yrði verndarríki, með svipuðu fyrirkomulagi og
er í Bæheimi og Mæri, síðan er Tékkóslóvakía liðaðist sundur.
Bæði rússnesk og þýsk blöð hafa birt fregnir, sem benda í þá
átt, að svona verði að farið, a. m. k. verði Pólverjum „boðið upp
á þetta“, en látið skína í það í þýskum blöðum, ef þeir sætti sig
ekki við þessa lausn og haldi áfram vörninni, kunni svo að fara,
að þeir fái ekki neitt. En ekkert liggur fyrir um það, hvort vernd
hins pólska leppríkis yrði sameiginleg — eða Rússar og Þjóð-
verjar hafi þar einhverja verkaskiftingu.
Erlend blöþ fordæma
framferði Rússa,
Erlend blöð eru harðorð út af
framkomu Rússa og telja hana
óverjandi. Bresk blöð segja, að
Bretland muni í engu bregðast
skuldbindingum sinum við Pól-
land og halda áfram stríðinu.
Varsjá verst enn.
Það hafa ekki enn borist nein-
ar fregnir um, að setuliðið í
Varsjá hafi sint boðum Þjóð-
verja um að senda erindreka til
þeirra til að semja um uppgjöf
borgarinnar, og eru loftárásim-
ar á borgina byrjaðar í fullum
krafti. 1 nótt voru gerðar fjórt-
án loftárásir á borgina og varð
liið mesta tjón af.
Ávarp Moscicki.
Moscicki Póllandsforseti hef-
ir ávarpað pólsku þjóðina og
sagt henni, að stjórnin starfaði
áfram að því, að Pólland mætti
njóta frelsis og friðar og ó-
skertu sjálfstæði í framtíðinni,
þakkaði liernum drengilega og
hetjulega framgöngu, og skor-
aði á menn að halda áfram bar-
áttunni gegn innrásarhemum.
Sendiherrar Pólverja í ýms-
um löndum hafa dregið athygli
ríkisstjóma að því, að Rússar
hafi gerst brotlegir við alþjóða-
lög og gildandi samninga þeirra
í milli og Pólverja, auk þess sem
þeir hafi brugðist skyldum sín-
um sem meðlimur Þjóðabanda-
lagsins.
Breska flotamálastjórnin til-
kynti í gær, að kafbátur hefði
sökt breska flugvéla-stöðvar-
skipinu Courageous. Eigi er get-
ið um hvar skipið hafi jverið
skotið í kaf, en það hefir verið
notað í baráttunni gegn kafbát-
unum á siglingaleiðum í nánd
við Bretland, frá því í stríðs-
byrjun. Á skipinu voru um 1200
menn að jafnaði, en að þessu
sinni munu þeir hafa Verið
nokkru færri. Skipið gat og flutt
500 flugvélar. Ekki hefir heldur
verið tilkynt hversu margar
flugvélar voru á skipinu að
þessu sinni. Þegar er kafbátur-
inn hafði skotið tundurskeyti
sínu á skipið fór það að sökkva
og skipsmenn fengu fyrirskipun
um að bjarga sér á hvern þann
hátt, sem þeir best gæti.Nokkrir
komust á brott í flugvélum sín-
um, aðrir í bátum, og margir
hentu sér í sjóinn. önnur bresk
herskip voru lálægt og komu
þegar tundurspillar á vettvang
og gerðu árás á kafbátinn og
mun honum hafa verið grand-
að. Þegar er búið að bjarga 500
manns af þeim, sem á skipinu
voru, og eru tundurspillar og
herskip á leið til hafnar með
fleiri, sem bjargað hefir verið.
Courageous var upphaflega
beitiskip (battle-cruiser) og var
bygt 1917, en eftir heimsstyrj-
öldina var því breytt í flugvéla-
stöðvarskip.
Þegar Ronda fórst
Skipið rakst á mörg
tundurdufl.
Oslo 18. sept. FB.
Mótorskipið Ronda, eign Joh.
Ludw. Mowinckels útgerðarfé-
lagsins rakst á tundurdufl við
strendur Hollands og sökk.
Skipið var 8000 smálestir og
var á því 30 manna áhöfn og 7
farþegar, þar af hafa 14 manns
farist og meðal þeirra skipstjór-
inn, Solberg að nafni, kona hans
og 2 farþegar. Hinir komust í
hát og réru í áttina til lands, en
sótti seint vegna veðurs og
slrauma. Eftir 58 klst. volk við
illan aðbúnað, matarleysi og
vosbúð, bjargaði ítalska skipið
Providenzia skipbrotsmönnum
og flutli til Vlissingen. Skipið
söklc á 2 mínúlum og er talið,
að það hafi rekist á fleiri en eitt
tundurdufl. — NRP.