Vísir - 23.10.1939, Blaðsíða 1
Ritstjóri:
KRISTJÁN GUÐLAUGSSON.
Sími: 4578.
Riststjórnarskrifstof ur:
f'élagsprentsmiðjan (3. hæð).
29. ár.
Reykjavík, mánudag’inn 23. október 1939.
Afgreiðsla:
HVERFISGÖTU 12.
Sími: 3400.
AUGLÝSINGASTJÓRI:
Sími: 2834.
244. tbl.
BANDARÍKIN OG STYRJÖLDIN
Afnám útflufningsbanns á
:ía y* ■> ■*.. *
hergögnum fyrsta skrefið
til þátttöku í sfyrjöldinni,
segir senator Borah, sem ræðst hvasslega á sendi-
herra Breta í Washington fyrir ummæli hans.
EINKASKEYTI frá United Press. — London í morgun.
Deilan um breytingamar á hlutleysislögununt fer stöðugt harðnandi í Bandaríkjunum. Hef-
ir að undanförnu þótt horfa svo, sem stefna stjórnarinnar myndi verða algerlega ofan á,
og afnámið á banni við útflutning hergagna ná fram að ganga. En andstæðingar stjórnar-
innar hafa sig æ meira í frammi. Hoover fyrrverandi ríkisforseti hamraði á því í ræðu sinni í viku-
lokin, að ef Bandaríkin lenti í styrjöldinni myndi afleiðingin verða sú, að komið yrði á einræði,
sem mundi standa lengi, ef til vill að eilífu. Það “ír eitthvert hættulegasta vopnið, sem beitt er í
þaráttunni gegn Roosevelt, að gefa í skyn að stjórnin — og einkanlega hann persónulega — hafi
einræðistilhneigingar. Nú hefir William W. Borah öldungadeildarþingmáður, sem er mælskasti
og áhrifamesti einangrunarstefnumaðurinn, haldið útvarpsræðu, sem vakið hefir enn meiri athygli
en ræða Hoovers fyrrverandi forseta.
Borah sagði í ræðu sinni, sem var útvarpað um öll Banda-
ríkin og endurvarpað til annara landa, að ef hlutleysislögun-
um væri breytt þannig, eins og stjórnin hefir lagt til, að leyfður
yrði újtflutningur hergagna til þjóða, sem eiga í ófriði, væri
þar með tekið fyrsta skrefið, til þess að Bandaríkin færi í styrj-
öldina.
’ Jafnframt gagnrýndi Borah með hvössum orðum Lothian
lávarð, hinn nýja sendiherra Bretlands í Washington fyrir um-
mæli hans um hlutleysislögin, en hann viðhafði gagnrýnandi
orð um hlutleysislögin í þeirri mynd, sem þau eru nú, og taldi
Borah fráleitt, að erlendur sendiherra gagnrýndi ameríska
löggjöf.
Þjóðþingið í Bandaríkjunum
var kallað saman til þess að
koma fram þeim breytingum á
hlutleysislögunum sem nú eru
til umræðu. Ein höfuðbreyting-
in er sú, að leyfður verði út-
flutningur hergagna til ófriðar-
þjóðanna, og gekk í þófi, að fá
fylgismenn stjórnarinnar til j
þess að aðhyllast þessa breyt- |
ingu, en það tókst að lokum
með því, að svo yrði frá lögun-
um gengið, að kaupendurnir
tæki við vörunum í amerískri
höfn og greiddi fyrir þær í reiðu
fé og flytti þær í eigin skipum.
Með þessu á að girða fyrir þá
hættu, sem af því stafaði, ef
| amerísk skip flytti hergögn til
| ófriðarþjóðanna.
Oánægja I
yflr §tefnn
Indlandsj
Indlandi
Breta í
n;il iim.
Mótþróabaráúa vcrðnr sennilegra
ekki liafiii vegna istyrjaldarimiar.
Stefna sú, sem Indlandsstjóm hefir tekið varðandi
framtíðarstjórnskipulag í Indlandi, hefir vakið óhemju
óánægju meðal indverskra sjálfstæðismanna, en það
hefir verið ákveðið af stjórninni að fresta fyrirhuguð-
um áformum i þessu efni, vegna striðsins.
Það er ekki taiið líklegt, að stofnað verði til mótþróa-
baráttu gegn stjórninni, vegna stefnu hennar, þar sem
styrjaldartímar eru, en andstæðingar stjórnarinnar í
þessu máli áforma, að taka ekki þátt í þingstörfum og
ráðherrar ur þeirra flokki í 8 fylkjum landsins segja
af sér. i
Var hann
myrtur ?
Fyi-ir nokkuru bárust fregn-
ir um, að Buscli herforingi, ein-
ræðisherra í Boliviu, í Suður-
Ameríku, hefði látist af afleið- !
ingum skotsárs. — Orðrómur
komst á kreik um, að pólitískir
andstæðingar liefði ráðið niður-
lögum hans. Aðrar fregnir
hermdu, að liann hefði framið
sjálfsmorð. — Athurðurinn
gerðist i La Paz, að afstaðínni
veislu sem Busch liélt mági sín-
! uni, Kovichi Seiton, sem er jap-
EINKASKEYTI frá UnitedPress
London, í morgun.
Útvarpsstöðin í Moskva til-
kynnir, að rússnesk herforingja-
nefnd hafi komið til Kovno
(Kaunas), höfuðborgar Lithau-
en, í gær, og hafi fulltrúar rík-
isstjórnarinnar tekið á móti
henni.
Hlutverk þessarar nefndar er
að ákveða hvar hið rússneska
setulið, sem Rússar fá að hafa í
Lithauen, samkvæmt hinum ný-
gerða sáttmála, fær bækistöðvar
sínar.
Ennfremur verður ákveðið af
herforingjanefndinni og herfor-
ingjaráðinu í Lithauen hversu
mannmargt setulið Rússar skuli
hafa í hverri setuliðsstöð um
sig.
BUSCH HERFOBINGI.
anskur. — Busch var af þýsk-
um ættum og var yngsti einræð-
isherra heims. — í tilkynningu
stjórnarinnar um fráfall hans
stóð, að liann hefði bugast af
ofþreytu og framið sjálfsmorð.
STYRJALDARUNDIRBÚNINGUR í BANDARÍKJUNUM.
Styrjaldarundirhúningur hefir að undanförnu verið aukinn mjög mikið i Bandaríkjunum og ráð-
stafanir gerðar til jæss, að taka verksmiðjur landsins í þágu hergagnaframleiðslunnar jægar í stað,
ef Bandaríkin lenti í styrjöldinni. — Myndin, sem hér hirtist, var tekin á heræfingum í Manassas í
Virginia í sumar. Var hermálasérfræðingum ýmsra þjóða hoðið að horfa á heræfingarnar og ])ótti
þeim mikið til korna liversu fullkominn er úthúnaður hersins. — Á myndinni sést, er korpórall að
nafni Sobeleski útskýrir úthúnað nýrrar fallbyssu með 75 mm. hlaupvídd fyrir Sanches lierdeildar-
foringja frá Venezuela, Yamuta, japönskum herforingja og Maehado major frá Braziliu.
300 nemendur í
Mentaskóla
Akureyrar.
Einkaskeyti frá Akureyri.
Mentaskólinn hér var settur í
gær. Sigurður skólameistari
Guðmundsson flutti langa og
snjalla ræðu við það tækifæri,
fyrir húsfylli, i samkomusal
skólans.
Nemendur í skólanum í vetur
verða væntanlega 300 að tölu og
eru sumir þeirra ókomnir enn-
þá.
Dr. Sveinn Þórðarson, Sveins-
sonar prófessors að Kleppi, hef-
ir verið skipaður fastur kennari
við skólann. Árni Þorvaldsson
kcnnari fær lausn þenna vetur
sakir veikinda, en í hans stað
kennir stud. mag. Kristjárn
Eldjárn.
Snjóföl gerði hér i nótt, en í
dag er hjartviðrí.
Job.
Reglugerð
um breyting á reglugerð 9.
sept. 1939 um sölu og úthlutun
á nokkrum matvörutegundum.
1. gr.
Tvær fyrstu málsgr. 12. gr.
reglugerðarinnar hljóði svo:
Eigi má selja út á seðil eftir
að mánuður sá, er seðillinn ©r
fyrir, er á enda.
Hinn 1. dag hvers mánaðar
skulu smásöluverslanir (og
brauðgerðarhús) afhenda
hreppsnefndum og bæjarstjórn-
um þá skömtunarseðla, er þeir
hafa fengið fyrir seldar skömt-
unarvörur í næsta mánuði á
undan, og fá í staðinn vottorð
um það hve miklu þær hafa
skilað.
2. gr.
Reglugerð þessi öðlast þegar
gildi.
Reglugerð þessi er sett sam-
Hrakför
kommúnista
í H. L P.
Málaleitan þeirra
hafnað með 33:6 atkv.
í gær kl. 2 var fundur hald-
inn í Hinu íslenska prentarafé-
lagi, og meðal annara mála, er
á dagskrá voru, var málaleitun
Héðins Valdemarssonar og
þeirra félaga, þess efnis, að
prentarafélagið yrði þátttakandi
í stofnun óháðs fagsambands.
Fyrir liönd Héðins og þeirra
félaga talaði Stefán Ögmunds-
son vélsetjari og var þessu mjög
meðmæltur, en Hallbjöm Hall-
dórsson mælti eindregið gegn
þessu og flutti langt og itarlegt
erindi um málið.
Stjóm prenlarafélagsins lagði
fram tillögu þess efnis, að máli
þessu skyldi vísað frá sem frek-
legri móðgun, þar sem farið
væri fram á það, að félagið
hrydi sín eigin lög. Stefán Ög-
mundsson har fram breytingar-
tillögu, sem gekk í þá átt, að
frestað skyldi afgreiðslu máls-
ins að svo komnu.
Tillaga stjórnarinnar var
samþykt með 33:6 atkv.
kvæmt heimild í lögum nr. 37
12. júní 1939, og birtist hérmeð
þeim, er hlut eiga að máli.
í ríkisstjóm íslands 23. okt. ’39
Eysteinn Jónsson.
Ólafur Thors.
Stefán Jóh. Stefánsson.
Jakob Möller.
Hermann Jónasson.
Póstferðir á morgun.
Frá Rvík.: Borgarness-, Akra-
ness-, Norðanpóstar, Dalasýslupóst-
ur, Barðastrandarpóstur, Me'Sal-
lands- og Kirkjubæjarklausturspóst-
ar. — Til Rvíkur: Austanpóstur,
Borgarness-, Akraness-, Norðan-
póstar, Stykkishólmspóstur.
Einn skemdist
mikiö.
Aftakaveður var í Vestmanná-
eyjum í gær og haugabrim. Er
talið að vindur hafi komist upp
í 9 vindstig á bersvæði, en í
sveipunum, sem tíðir eru í Eyj-
um er talið að vindhraðinn hafi
verið miklu meiri. Vindáttin
var að vestan eða suðvestan, og
hafði verið allhvast undanfarna
daga, en þó öllu Verst í gær.
I allan gærdag var hrimið
svo mikið að það gekk stöðugt
yfir Eiðið og liafnargarðana.
Myndaðist við það súgur mikill
i höfninni en þar lá allur floti
Vestmannaeyinga við legufæri
sín.
Fimm bátar slitnuðu upp og
hefir Vísi tekist að ná í nöfn
fjögra þeirra, en það voru Her-
jólfur, Örninn, Sæbjörgin og
Glaður. Eru það alt bátar um
eða yfir tuttugu tonn.
Þrjá hátana rak upp í sand-
inn innanvert við liafnargarð-
inn, en tveir bátarnir lömdust
við hafnargai'ðinn, og skemdist
annar þeirra, Örninn, allmikið
og brotnaði, en þó mun hafa
tekist að hjarga hátnum frá al-
gerri eyðileggingu.
Menn unnu að þvi i gær að
reyna að koma í veg fyrir frek-
ari skemdir á bátum þeim, sem
á höfninni lágu og tókst það,
og bátum þeim, sem shtnuðu
upp, tókst að bjarga að bryggju
en ekki er enn að fullu vitað
um skemdir á þeim.
Á föstudagskvöld kom upp
eldur í húsi Isfélags Vestmanna-
eyja, en slökkViliðið kom strax
á vettvang og tókst að ráða nið-
urlögum hans. Litlar skemdir
urðu.
70 ára
er í dag frú GuÖrún Torfadóttir,
kona Helga Jónssonar fyrv. kaup-
félagsstjóra á Stokkseyri, nú til
heimilis á Bergstaðastig io C.