Vísir - 19.12.1939, Blaðsíða 2
v rsi&
VtSIH
DAG3LAÐ
Útgefandi:
BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H/F.
Ritstjóri: Kristján Guðlar.gsson
Skrifst.: Félagsprentsmiðjunni.
Afgreiðsla: Hve:fisgötu 12
(Gengið inn frá Ingóifsstrœti)
Símar: 2834, 3400, 4578 og 5377
Verð kr, 2,50 á mánuði.
Lausasala 10 og 20 aurar.
Félagsprentsniiðjan h/'f.
Hvað hefír Jón á
Akri unnið til
saka?
JTj NGINN maður liefir í seinni
tíð orðið fyrir svæsnari og
þrálátari árásum af hendi Al-
þýðuflbkksins og Framsóknar,
en Jón Pálmason, alþingismað-
ur frá Akri. Vilmundur land-
læknir, sem talinn er einhver
ritfærasti maður flokks síns,
hefir skrifað liverja greinina
af annari fulla af óhróðri um
Jón. Timinn hefir ráðist á hann
í ritstjórnargreinum. Eysteinn
Jónsson, viðskiftamálaráðherra,
hefir reynt að gera lítið úr hon-
um á þingfundum. Loks hafa
þrír þingmenn, tveir úr Fram-
sóknarfloklcnum og einn úr Al-
þýðuflokknum ráðist á Jón I
nefndaráliti á Alþingi með rót-
arlegum getsökum, framsettum
á svo ruddalegan liátt, að eins
dæmi má heita í þingskjali.
Hvað hefir Jón á Akri unnið
til saka, að vera þannig eltur
á röndum af þessum tveimur
flokkum? Jón á Akri hefir af
þingflokki sjálfstæðismanna
verið kosinn endurskoðandi
landsreikninganna. Hann liefir
hent sú dauðasynd, að ganga
samviskusamlega að því verki.
Hann hefir ekki talið það hlut-
verk sitt að þegja yfir misfell-
um, sem hann hefir rekist á og
ekkert skift sér af því, hvort
þeim, sem hlut liafa átt að máli,
hefir líkað betur eða ver. Hann
hefir stungið á kýlunum og
ekki hirt um það, þótt undan
hafi sviðið. Jón hefir ekki að-
eins sýnt fylstu samviskusemi
í starfi sinu, heldur líka þá ein-
urð og þann kjark, sem nauð-
synlégt er hverjum þeim, sem
lætur sér ekki Iynda að berast
uiidail- ! straumi, lieldur tekur
mannlega í taumana, þótt bokk-
ar séu annarsvegar. Ef nokkur
maður hefir af heílindum bar-
ist gegn „linkunni“ í þjóðfélag-
inu, þá ér það Jón á Alcri.
Nú er það skiljanlegt að Al-
þýðuflokkurinn þættist eiga sin
í að liefna við Jón, því athuga-
semdir lians komu býsna ó-
þægilega við helsta átrúnaðar-
goð þess íiokks: Hitt er miður
skiljanlégt, hvað því getur vald-
ið, að framsóknarmenn sjá
rautt,' hvenær sem minst er á
Jón á Akri. Þetta er því óskilj-
anlegra, þegar þess er gætt að
formaðúr Framsóknarflokksins
hefir nú sagt „linkunni“ stríð
á hendur og telur sig sjálflcjör-
inn til forustu í þeirri baráttu.
Jón á Alcri á sæti í fjárveit-
inganefnd og mun formaður
Framsóknar geta borið um það,
að Jón liefir ekki af sér dregið
í starfi, hvorki við endurslcoðun
landsreikninganna, hin algengu
fjárveitinganefndarstörf né við
þau sérstöku störf, sem fjár-
veitinganefnd hefir tekið að sér
að þessu sinni og birst liafa í
hinu svonefnda liöggormsfrum-
varpi, sem mjög hefir verið
umrætt og raunar úmdeilt
hina síðustu daga.
Hvað sem líður skoðunum
manna um þær tillögur, sem
fjárveitinganefnd hefir borið
Jólahljómleikar Tónlistafélagsins
Á þriðja búsund manns sóttu hljómleika Tónlistar-
félagsins, sem haldnir voru í gærkveldi í bifreiðaskála
Steindórs. Voru þar ríkisstjórn, þingmenn og bæjar-
stjórn biskupar og prestar og flestir skólastjórar bæj-
arins, sem voru gestir Tónlistarfélagsins.
Hér fara á eftir ummæli söngdómara blaðsins um
hljómleikana.
Þessir hljómleikar voru líkari tónlistahátíð en venjulegum
hljómleikum, svo hátíðlegir voru þeir, og vafalaust þeir merki-
legustu og glæsilegustu, sem félagið hefir haldið En þetta er
ekkert sérstakt fyrir starfsemi Tónlistafélagsins Það hefir altaf
kept að því að hafa næstu hljómleika sína enn fullkomnari en
þá síðustu og færa okkur þann veg fet fyrir fet nær heimsmenn-
ingu tónlistarinnar.
Það hefir verið sagt um
„Sköpunina“ eftir Haydn og
vafalaust með réttu, að þótt
hann hefði aðeins skilið þetta
eina verk eftir sig, þá liefði það
nægt til að skipa honum á bekk
með hinmn ódauðlegu meistur-
um tónlistarinnar. Verkið er að
mestu skrifað í björtum og
glaðlegum „dúr“. Það e'r eins
og tónskáldið hafi við samningu
verksins fylst þeirri guðlegu
gleði yfir tilverunni, sem ætla
má að gagntekið liafi skapar-
ann, er liann leit yfir verk sitt,
„og sá að það var harla gott“.
Söngur kórsins var nú allur
samfeldari og hljómblærinn
fegurri en áður og áttu „Kátir
félagar“ sinn mikla þátt í því.
En raddstyrk einstakra radda,
sérstaklega bassanna, má enn
auka nolckuð og verður það ef-
Iaust gjört. Einsöngvararnir
leystu lilutverk sín vel af hendi,
og var gott samræmi á milli
radda þeirra. Sungu þeir hver
öðrum betur og allir vel. Sér-
staklega góður var þó söngur
frú Guðrúnar Ágústsdóttur,sem
með hinni björtu og opnu sóp- (
ranrödd sinni fylti hin milclu
salarkynni Steindórs, svo og
söngur þeirra Sigurðar Markan
og Arnórs Halldórssonar.
Eg efast um að Hljómsveit
Reykjavíkur liafi í annað sinn
spilað betur og hefir þar eflaust !
valdið miklu um, hve ágætlega
hljómaði í liúsinu, en jafnframt
virðist sveitin enn búa að komu
hr. Telmanyi og þeirri ágætu
æfingu, sem hún fékk undir J
hans stjórn. En einnig má
þakka árangurinn hinni öruggu
og þróttmiklu forustu Björns
Ólafssonar. Ánægjulegt var að !
heyra hve blásturshljóðfærin
voru yfirleitt góð, enda ágæt á
köflum.
Páll ísólfsson hefir með
, hljómleikum þessum unnið
þrekvirki mikið og markað
tímamót í sögu islenskrar tón-
listar. Gelur vafalaust enginn ó-
kunnugur gert sér í hugarlund,
hvert starf liggur hér i raun og
veru á bak við. Fórst lionum,
sem vænta mátti, stjórnin með
fullum skörungsskap og góðri
nákvæmni.
Áliorfendur á liljómleikum
þessum munu hafa verið rösk- j
lega tvö þúsund og er það meira !
en þrisvar sinnum fleiri en áð-
ur hefir verið hér á innihljóm-
leikum, þegar best hefir látið.
Mun þetta einhver liinn fjöl- j
mennasti og jafnframt prúðasti ,
hópur Islendinga, sem komið
hefir saman til innanhússskemt-
unar hér á landi og virtist svo
sem hver og einn vildi leggja
sinn skerf til, að skemtunin færi
sem best fram og aðbúnaður
allur nægði. En jafnframt var
hljómleikunum útvarpað og
mun því Tónlistarfélagið hljóta
alþjóðar þakkir fyrir.
Ó. Þ.
Eftir hljómleikana bauð Tón-
listarfélagið öllum þátttakend-
um til kaffidrylckju að Hótel
Borg, og sátu hófið á 3. liundr-
að manns. Voru þar ræður
fluttar og því næst stíginn dans
til kl. 3 um nóttina.
„Eg minnist l>ín“,
nýja danslagiÖ eftir Eirík Bjarna-
son frá Bóli, sem sagt var frá í
Vísi s.l. sunnudag, verður leikitS á
Hótel ísland í kvöld. — Kjartan
Sigurjónsson syngur.
Fimleikaæfingar f.R.
Síðustu æfingar í Í.R.-húsinu
fyrir jól, ver'Sa mi'Övikudaginn 20.
des. Hefjast aftur mánud. 8. jan.
1940.
fram, efast enginn um einlægni
Jóns í þeim efnum. Það kemur
þess vegna hálf ónotaléga við
mann, að þegar formaður
Framsóknarflokksins og Jón
frá Akri snúa bökum saman
um baráttuna gegn „linkunni“,
skuh einstakir þingmenn Fram-
sóknar, annar ráðherra flokks-
ins og aðalblað gera á hann
harðari árásir en nokkurn
annan. Menn spyrja, hvernig
það megi vera, að Jónas Jóns-
son skuli Iáta flokki sínum
lialdast uppi, að ráðast sýknt og
heilagt á þann mann, sem sýnt
hefir, að honum er öðrum
fremur alvara að útrýma „link-
unni“ úr opinberu lífi.
Hér virðist ekki geta verið
nema um tvent að gera. Annað
hvort er Jónasi Jónssyni ekki
eins mikil alvara með barátt-
una gegn „linkunni" eins og
hann vill vera láta. Ellegar hann
hefir ekki lengur svo mikil tök
í sínum eigin flokki, að hann
geti varið árásum þá menn, sem
traustastir standa í þeirri bar-
áttu, sem hann telur mest um
vert að haldið sé uppi um þess-
ar mundir.
Jón á Alcri hefir ráðist svo
að „linkunni“, að það er meira
en lítil „linka“ af sjálfum
„linkubananum“, að hreyfa
hvorki legg né lið honum til
varnar. Og Jónasi Jónssyni er
óhætt að trúa þvi, að Jón á Alcri
er sá drengskaparmaður, að
hann lætur ekki óátalið ráðast
á samherja sina í „linku“-stríð-
inu, þótt um forna andstæðinga
sé að ræða.
a
SUMARLANDSLAG.
hefir sýningu á verkum sínum,
aðallega frá í sumar, að heim-
ili sínu Blátúni. Meðal þeirra
mýnda á sýningunni, senl
mesta atliygli vekja, er mynd
sú er hér birtist og nefnist
„Sumarlandslag“. Nokkrar af
þeim myndum, sem hann sýnir
þarna hafa þegar selst og að-
sókn hefir verið góð að sýning-
unni.
Jón getur sér góðan orðstir
víðar en hér á landi, og má í
því sambandi nefna að fjórar
af myndum hans eru nú á um-
ferðasýningunni amerísku og
hafa vakið mikla athygli.
fþróttablaðið
er nýkomið út, 24 bls. að stærð.
Flytur það margar og skemtilegar
greinar, svo sem um síðustu utan-
farir ísl. íþróttaflokka, íþróttamót-
in í sumar (sund, frjálsar íþróttir
og knattspyrnu) ásamt ítarlegri
gagnrýni á keppendunum, heim-
sóknir erlendra íþróttaflokka,
Drangeyjarsundið og aðra viðburði
sumarsins á íþróttasviðinu. Einnig
eru fróðlegar og skemtilegar grein-
ar um það helsta, sem gerst hefir
erlendis í sumar, bæði í sundi,
frjálsum íþróttum, knattspyrnu og
hnefaleik. Þá eru greinar þessar
prýddar skýrum og góðum myndum
af íþróttamönnum. Eins og endra-
nær er blaðið skemtilegt aflestrar,
jafnframt því sem það er íþrótta-
mönnum og íþróttavinum kærkom-
in heimild þess, er gerist í íþrótta-
lífi landsins. Blað þetta, sem er síð-
asta tölublaðið á áriuu, flytur sömu-
leiðis þær góðu fréttir, að frá
næstu áramótum muni það koma út
hálfsmánaðarlega. Er ekki að efa,
að frétt þessi er öllum íþróttamönn-
um hið mesta gleðiefni. B.
Finnlandi-
iöinunin.
Finnlandssöfnunin gengur
mjög að óskum og mun nú vera
búið að safna um land alt 40—
50 þús. kr.
Komnar eru til Rauða Kross
ins skilagreinar fyrir 33 þús.
kr„ en ókomnar eru skilagrein-
ar fyrir margar þúsundir, svo
sem frá söfnuninni á sunnudag
á Alcureyri og ísafirði.
En það er elcki aðeins í kaup-
stöðum, sem söfnunin hefir
gengið svo vel. í sveitum hafa
bændur og búalið einnig safn-
að og i gær fékk Rauði Kross-
inn t. d. tilkynningu um það úr
Mývatnssveit, að þar hefði safn-
ast 980 kr.
Frá Dalvík hafa borist fréttir
um að þar hafi safnast 2000 kr„
og svo mætti lengi telja.
Fyrsta árbdk
knatt§pjrriinmaima
Hún flytur margskonar fróðleik um reykvíska knattspyrnu
frá byrjun. Ómissandi öllum knattspyrnumönnum.
Fæst í Bókaverslun Sigurðar Kristjánssonar og Bókaverslun
ísafoldarprentsmiðju.
Kiiattspp’imráð ICeyk|avíkin*.
Hvers vegna að bíða ?
Notfærið yður strax kosti hinna
miklu framfara og þvoið með
FLIK-KLAK, — sjálfvirku
þvottadufti. FLIK-FLAK hlífir
Röndunum og skilar þvottinum
mjallahvítum eftir stutta stund.
FLIK-FLAK leysir og fjarlægir
öll óhreinindi, svo að þér þurfið
að eins að skola þvottinn og þá
er hann fullkomlega hreinn. —
SJÁLFVIRKT ÞVOTTADUFT.
BEST AÐ AUGLÝSA í VÍSI.