Vísir - 12.10.1940, Blaðsíða 1
Ritstjóri:
Kristján Guðlaugsson
Skrifstofur:
Félagsprentsmiðjan (3. hæð).
Ritstjóri
Blaðamenn Simi:
Auglýsingar 1660
Gjaldkeri S línur
Afgreiðsla
30. ár.
Reykjavík, laugardaginn 12. október 1940.
236. tbl.
Horf iiraar ú Balkan-
le^ri en áður.
Rússar gera rádstafan-
ir olíulindum sínum til
verndar.
EINKASKEYTI frá United Press... Londo'n í morgun.
Horf urnar á Balkanskaga eru enn ískyggilegri en
áður. Það er nú búist við, að stjórnmálasam-
bandinu verði slitið milli Bretlands og Rúm-
eníu. Þjóðverjar herða stöðugt hin hernaðarlegu tök
sín á Rúmeníu, og í Tyrklandi og Grikklandi eru menn
við hverju búnir, sem að höndum ber, og munu Tyrkir
og Grikkir verða trúir Bretum. Afstaða Rússa er ó-
vissari, en þar sem þeir eiga mikilla hagsmuna að gæta
á Balkan og í Asíu, er talið, að þeir muni síður en svo
fagna neinni þýskri „útþenslu" í þær áttir. Olíuþörf
f lugf lotans þýska er mikið rædd í sambandi við áf orm
Þjóðverja og það er talið mjög athyglisvert, að rúss-
neska útvarpið í gær skýrði ítarlega frá loftvarnaráð-
stöfunum þeim, sem gerðar hafa verið olíulindunum í
Baku til verndar.
Margt fleira hefir gerst, sem varðar þessi mál. Breski sendi-
herrann í Bukarest, sem ræddi í gær við Antonescu f orsætisráð-
herra Rúmeníu, lýsti yfir því að viðtalinu loknu, að stórhætta
væri á ferðum að því er sambúð Breta og Rúmena snertir. Um-
mælin eru^kilin á þá leið, að svo horfi, að stjórnmálasamband-
inu verði slitið, einkanlega þar sem sendiherrann ráðlagði öll-
um breskum þegnum í Rúmeníu að hverfa þegar úr landi.
Breska stjórnin hefir kyrrsett allar f járeignir Rúmena í Bret-
landi. —
150 þýskar sprengjuflugvélar
voru á sveimi yfir Bukarest i
gær og olíulindasvæðinu við
Dóná.
Þá voru bjrtar'fregnir um
það í gær, í ameríska hlaðinu
New York Times, að fjórir
þýskir kafbátar væri nú á
Svartahafi, og liefði bækistöð í
Rúmeníu. Fregnin var frá
fréttaritara blaðsins i Belgrad.
Herflutningunum til Rúmeníu
er haldið áfram, og þýskur
stormsveitar-herforingi er kom-
ínn til Galatz við Svartahaf, og
heilt herforingjaráð með hon-
um.
Margskonar skoðanir koma
fram um markmið Þjóðverja.
Sum blöð halda þvi fram, að
höfuðmarkmiðið sé að tryggja
yfirráðin yfir oliulindunum i
Rúmeniu, vegna þarfa flughers-
ins þýska, og hindra að Ung-
verjar og Rúmenar fari í stríð,
en samkomulagið milli þessara
tveggja þjóða er nú svo slæmt,
að þær hafa báðar sent kærur til
Berlin. Má þar um segja,*að
klögumálin gangi á víxl, þvi
hvorþjóðin um sig ber hina ótal
sökum, flestar varðandi ofsókn-
ir á hendur þjóðernisminnihlut-
uiíi, skemdar og hryðjuverk o.
s. frv. í öðrum blöðum er búist
við árás á Grikkland og Tyrk-
land, og eigi ítalir að kljást >íiÖ
Grikki, en Þjóðverjar við Tyrki,
og er markmiðið að ná olíulind-
unum i Irak og Iran (Persiu).
En bandamenn hafa mikið lið
til varnar og Þjóðverjar eiga
þarna langa leið að fara og yrði
slík sókn þeim erfið að margra
áliti.
Áformaðri ferð grískra her-
foringja til Berlín hefir verið
frestað.
í tyrknesku útvárpi í gær var,
sagt, að Þjóðverjar hugsuðu sér
til hreyfings á Balkan og myndu
ef til vill freista að vinna sigra,
þar sem mótspyrna yrði minni
en hjá Bretum, en brölt Þjóð-
verja á Balkan stafaði af þvi,
að Bretar hefði þegar unn-
ið varnarstríðið og væri nú
að herða sóknar-vopnin, og
ætluðu Þjóðverjar nú að
gera „úrslitatilraunina"
annarstaðar.
En því er við bætt, að sókn á
hendur Tyrkjum og her banda-
manna í löndunum við austur-
enda Miðjarðarhafs kynni að
verða Þjóðverjum dýrkeypt.
i asyroir
að lara róleoa
London í morgun.
Annar vindur virðist nú vera
kominn í seglin hjá Japönum,
og verður Bandaríkjablöðum
tíðrætt um. Blöðin í Japan
Ieggja til dæmis áherslu á, að
Matsuoka hafi sagt, að hann
vonaði einlæglega, að vinsamleg
sambúð Bandaríkjamanna og
Japana héldist. Talsmaðup jap-
anska utanríkismálaráðuneytis-
ins talaði við blaðamenn í gær-
og var miklu hógværari en
vanalega. Sagði hann, að nú
væri þeir tímar, er ábyrgir
stjórnmálamenn ætti að vera
rólegir og athuga málin í næði.
/
e
Flotaæfing í Yokohama.
Japanskeisari skoðaði 100 her-
skip og 500 flotaflugvélar í
Yokohamahöfn í gær.
Forðum í Flosaporti
var sýnd í fyrsta sinn í gær í
„ástandsútgáíu". Fjöldi nýrra
söngva og „brandara" ern í þessari
útgáfu. Húsið var troðfuít í gær
02 skemtu áhorfendur sér vel.
Rooseveit íorseti:
ta inrni í ri
wn vlliiilr ilii
London í morgun.
Roosevelt forseti sagði i gær,
er hann hafði skoðað stálverk-
smiðjur í Ohio og Pennsylvan-
ia, að hvaða stórveldi sem væri
mundi hugsa sig um tvisvar, áð-
ur en það réðist á Bandaríkin,
en þótt Bandaríkin væri mikils
máttar, þyrfti þau að vígbúast
sem mest, því mest öryggi væri
í að vera svo sterkur fyrir, að
enginn freistaði árásar.
Bandaríkjamenn hafa ákveð-
ið að senda hermálasérfræðing
til sendisveitar sinnar í Kairo og
sérfræðinganefnd verður send
til London, til þess að kynna
sér loftvarnir Breta.
Ávarp
til Reykvíkinga frá stjórn
Skátafélags Reykjavíkur.
Góðar fregnir frá
Hollensku Austur-
Asíu.
London i morgun.
Bandaríkjablöð og útvarp
skýra frá því, að Bandaríkja-
stjórn hafi fengið góðar fregnir
frá hollensku Austur-Asíu —
þar sé mikill hugur i mönnum,
að verja sig gegn hverskonar
innrásartilraunum, og baráttu-
kjarkur ibúanna i besta lagi.
Háttvirtu samborgarar.
Næstkomandi suhnudag, 13.
þ. m., mulm skátar í Reykja-
vik heimsækja hvert einasta
htíimili í borginni með merki,
sem þér eruð beðin að kaupa,
til að styrkja hið holla og far-
sæla skátastarf.
Gagnsemi skátastarfsins fyr-
ir þjóðarheildina er löngu við-
urkend af öllum hugsandi ís-
lendingum. Og fórnfýsi skát-
anna, hjálpfýsi þeirra og vilji til
að vinna fyrir þjóðfélag og ein-
staklinga kemur jafnan glögt í
ljós við hvert tækifæri og nauð-
syn alþjóðar.
En til þess að félagsslíf og
uppeldisstörf skátanna geti not-
ið sín, þarf húsnæði, hita, ýms
áhöld o. m.. fl., sem alt kostar
peninga.
Þessa peninga vantar skát-
ana, því öll störf sin fyrir þjóð-
félagið vinna þeir með öllu end-
endurgjaldslaust.
Þess vegna heitum vér nú á
alla Reykvíkinga að kaupa
merki skátanna. Sýnið þeim
ekki tómlæti. Yður munár ekki
um 50 aura hvert, en kornið
fyllir mælirinn í sjóði skátanna,
ef sem flestir leggja fram sinn
skerf.
Ef þér eruð í vafa um hver
störf skátarnir vinna fyrir yð-
ur og þjóðarheildina getum vér
nefnt hér fyrir yður fáein dæmi
af fjölmörgum.
Þegar landfarsóttir hafa lagt
fjölda heimila í rúmið í einu,
hafa skátarnir skift sér á bjarg-
arlausu heimilin, unnið heimil-
isstörfin og hjúkrað þeim sjúku.
Um mörg ár hefir sveit skáta
gefið blóð sitt til bjargar sjúku
og dauðvona fólki.
Brottflutningur barna
hafinn frá Berlin.
Til marks um það hversu
mikill árangur hefir orðið af
árásum breskra sprengjuflug-
véla 4 borgir Þýskalands, m. a.
Berlín, er það, að Þjóðverjar
I
eru farnir að grípa til ýmiskon-
ar ráðstafana vegna loftárás-
anna. M. a. hefir brottflutning-
ur barna verið fyrirskipaður í
Berlín^g er farið að flytja börn
þaðan til Austur-Prússlands og
Austurrikis. Kenslukonur eru í
fylgd með börnunum.
Innrásio|Enflland.
Loftárásum á Bretland linnir ekki
og Bretar herða stöðugt sóknina
á hernaðarstöðvar Þjóðverja á
v meginlandinu.
I stuttorðri tilkynningu, sem birt var í morgun í London, seg-
ir að þrátt fyrir þoku og slæm f lugskilyrði hafi breskar sprengju-
flugvélar gert árásir á margar hernaðarstöðvar óvinanna á meg-
inlandinu, m. a. á Ermarsundshafnirnar. — í fyrri nótt voru
gerðar viðtækari árásir á meginlandsstöðvar óvinanna en nokk-
uru sinni, aðallega olíustöðvar, svo sem í Leauna, Hamborg,
Hanau, Hannover, Köln, Gelsenkirchen og víðar. — Þjóðverjar
og Bretar skiftust á skotum af hinum langdrægu fallbyssum
sínum yfir Doversund í gær og breskar sprengjuflugvélar vörp-
uðu sprengjum á fallbyssustæði Þjóðverja á Gris Nez höfða. —
Það var opinberlega tilkynt í
London i morgun, að fyrri
helming sl. nætur hafi verið
gerðar árásir á marga staði í
London og viðar, en merki um
að hættur væri hjá liðnar voru
gefin fyrr en vanalega, og var
alt tiltölulega rólegt síðari hluta
nælur.
Átta þýskar flugvélar voru
skotnar niður í gær og 9 bresk-
ar orustuflugvélar, en 6 flug-
manna björguðust.
Breskar sprengjuflugvélar
hafa gert árásir á Ben Ghazi,
Tobroukhöfn og fleiri hafnir
Itala i Afríku.
Sprengikúlan gat
ekki sprungið.
iiðvörunarskot til íslensks togara.
Fyrir nokk.uru sögðu sum blöðin frá bví, að sprengi-
kúla hefði hlaupið úr fallbyssu, sem setuliðið hefir á
Kjaíarnesi. Hefði hún komið niður i túninu á Þara-
völlum í Innri-Akraneshreppi, sprungið þar og legið
við að manntjón hlytist af.
S.l. misseri hafa skátarnir
lagt mikið á sig að læra slysa-
og brunavarnir af flugárásum
og hafa nú skipulagðar hjálpar-
sveitir sbr. Skátablaðið (júní-
hefti s.l.).
Þá hafa skátarnir aðstoðað
Vetrarhjálpina á hverju ári af
áhuga og dugnaði.
Skátar hafa og safnað fyrir
kirkjubyggingarsjóði Reykvik-
inga.
Þó er ef til vill þyngst á met-
unum, að sktjtastarfið og skáta-
félagsskapurinn hefir alið ux^p
skátana sjálfa og á þann hátt
skapað holt og giftudrjúgt lífs-
viðhorf uijprennandi og starf-
andi æsku. Skátarnir hafa og
stuðlað að því, að kenna þjóð-
inni ást og trú á landið, með
göngu og hjólferðum sínum um
sveitir og óbygðir.
Kjörorð skátans er „Viðbú-
inn". — Slíkt kjörorð skapar
djarfa, bjartsýna og dugandi
borgara, sem hafa ráð undir rifi
hverju og vekja traust og kjark
allra, sem þeir umgangast.
Takið skátunum vel, þegar
þeir bjóða yður merki sín. Þeim
peningum verður eigi á glæ
kastað, heldur sáð í akur, sem
mun bera margfaldan, frjó-
saman ávöxt.
Með skátakveðju
Skátafélag Reykjavíkur.
Esja í enskri
höín.
Vísir hefir fengið eftirfarandi
tilkynningu til birtingar frá ut-
anríksmálaráðuneytinu:
Esja liggur nú í breskri eftir-
litshöfn. Óákveðið er hvenær
hún heldur áfram ferðinni til
Reykjavikur.
Dæmdur í 5 ára
bindindi.
IMORGUN var kveðinn upp
dómur hjá sakadómara, sem
er einsdæmi hér á landi. — Er
hann samkvæmt hegningarlög-
unum nýju.
Maður að nafni Sigurður Sig-
fússon hefir komist undir
manna hendur alls 43 sinnum,
þar af 8 sinnum fyrir þjófnað,
en hin skiftin fyrir fyllirí.
Maður þessi var i morgun
dæmdur í 2ja ára fangelsi, en
þegar hann hefir afplánað þá
refsingu, er honum bannað að
neyta áfengis i fimm ár. Þá var
hann og sviftur kosningarrétti
og kjörgengi til almennra op-
inberra starfa.
Dönsk stjórnarnefnd —- likt
og sú tékkneska og pólska —
hefir verið sett á laggirnar í
Londop. Ætlar hún að ná sam-
bandi við öll félög Dana i Bret-
landi og U. S. A.
Rannsókn hefir nú farið fram
á þessu máli og er lokið. Voru
blaðamönnum gefnar upplýs-
ingar um það í gær af fulltrú-
um setuliðsstjórnarinnar.
Málsatvik eru sem hér segir:
íslenskur togari var á siglingu
fyrir Hvalfirði. Fór hann ekki
að settum reglum, svo að skoti
var hleypt af fyrir framan hann,
til merkis um að hann ætti að
nema staðar. Lenti sprengjan í
sjónum, en vegna þes& hversu
henni var skotið í lágan boga,
fleytti hún kerlingar og kastað-
ist á land.
Þar sem kúlan kom fyrst
niður myndaði hún rauf nokkra
i jörðina og grófst loks ofan í
jarðveginn skamt frá. Hún var
síðan grafin upp af floldti
breskra hermanna og gerð ó-
skaðleg.
Sprengjan sprakk ekki, þeg-
ar hún kom niður, því að hún
var þannig útbúin, að hún gat
það ekki, enda þótt hún yrði
fyrir höggi. Hafði tæki það
(fuse), sem kveikir i púðrinu í
kúlunni, verið tekið úr henni,
svo að um hættu af sprengingu
átti ekki að geta verið að ræða.
Merkjasala skáta.
Skátarnir hafa merkjasölu á
morgun til styrktar starfsemi
sinni, og þeir knýja ekki svo
oft á náðardyr Reykvíkinga, að
ekki sé ástæða til að hjálpa
þeini til framhaldandi starfs.
Venjulega eru það skátarnir,
sem hjálpa Reykvíkingum, við
mörg og margvisleg verkefni.
Metum starf þeirra og þökk-
um þeim, drenglund og þjóð-
holla starfsemi með þvi að
kaupa merki þeirra á götunum
á morgun.
Eyrbekkingafélag. :
Eyrbekkingar búsettir hér í bæn-
um hafa ákveÖið acS stofna meS sér
félag og verÖur' stofnfundurinn
haldinn í Varðarhúsinu á mánu-
dagskvöklife' kl. 8j4. Er þess vænst,
að sem allra flestir Eyrbekkingar
mæti á fundinum.
Leikfélag Reykjavíkur
sýnir leikritife „Loginn helgi'",
eftir W. Somerset Maugham ann-
a'ð kvöld. Frumsýning var síðastl.
miðvikudag 'fyrir fidlu húsi og fékk
leikurinn hinar bestu viðtökur.
Stórfenglega hlutaveltu
heldur Knattspyrnufélag Reykja-
víkuí á morgun kl. 3^ síðd. í Varð-
arhúsinu. Er þar margt af ágætum
dráttum, svo sem: Matarforði,
saumavél, ágæt tegund, öll verk
Dayíðs Stefánssonar i skinnbandi,
mikið af peningum (50okrónur),
farseðill á Skíðavikuna á ísafirði,
farseðill til Akureyrar, mikið af
kolum og öðru eldsneyti, allskonar
nauðsynjavörur, vefnaðai-vara, m.
m. — Munu bæjarbúar áreiðanlega
fjölmenna á þessa ágætu hlutaveltu
og er vissara að koma tímanlega.
Hjúakapur.
Gefin veða saman í hjónaband
laugard. 11. þ. m. ungfrú Ásdís
Vídalín og Lárus Ingimarsson,
Jónssonar skólastjóra. — Heimili
þeira verður á Háteigsveg 13.