Vísir - 17.01.1941, Side 3

Vísir - 17.01.1941, Side 3
V 1 S I R Aðalsteinn Sigmundsson : Bðrnin og fyrirmæ kennslumálaráðuneytisins. Vegna hlaðaskrifa undan- farna daga vildi eg mega leggja eftirfarandi orð í belg. Áður en skólar hófu störf s. 1. haust, komu skólastjórar barna- , skóla stærstu kaupstaðanna og allra æðri skóla landsins saman á fund hér í Reykjavík, að boði forsætis- og kennslumálaráð- lierra, en efni fundarins var að ræða og semja reglur um fram- komu nemenda skólanna við íiið erlenda setulið, sem nú dvel- ur óboðið í landinu. „Að fengn- um lillögum skólastjórafundar- ins“ gaf svo kennslumálaráðu- neytið út „reglur fyrir skóla- nemendur“, ds. 24. seplember 1940. 1. gr. í reglum þessum er svohljóðandi: „Nemendur skulu forðast allt óþarfa sanmeyti við hið erlenda setulið. Ef þeir ]>urfa að skipta sér af hinum er- lendu mönnum, ber nemendum að sýna þeim fulla kurteisi.“ Þetta er meginboðið í reglun- um, en fleira er þar tekið fram, o'g allt efni þeirra og orðalag ber það með sér, að þeim er ætl- að að gilda þeilna vetur allan, og dveg sérstaklega á þeim stund- um, þegar nemendur dvelja ut- an sjálfra skólanna. Enda koma þær því aðeins að notum. Reglur þessar voru prentaðar og festar upp í öllum kennslu- stofum, samkvæmt skipun kennslumálaráðuneytisins. En ekki hefi eg orðið þess var, að þær liafi verið birtar á annan hátt né kynntar aðstandendum nemenda. Hefði þó verið þörf á því, a. m. k. þar sem nemendur eru börn. Nú verður að líta svo á, að reglur þessar séu settar í þvi skyni, að eftir þeim sé farið. Það væri ósamboðið virðingu kennslumálaráðuneytisins, að setja reglur í því skyni einu, að þær séu pappirsgagn að engu virt. Enda væri það hin öflug- asta kennsla í ólöghlýðni, að festa upp í skólastofum reglur, se ekki er ætlazt til að hlýtt sé. Hefi eg engan vitað gera ráðu- neytinu svo grálegar getsakir, að það þafi sett reglur jiessar af yfirskyni. Þar sem hér er um skólaregl- ur að ræða, er það að sjálfsögðu hlutskipti skólastjóra og kenn- ara, að vinna að því og gæta þess, að reglunum sé hlýtt. Vér barnakennarar lítum á það sem vafalausa skyldu vora, að vinna þetta. í erindisbréfi voru, er kennslumiálaráðuneytið setti 11. apríl 1940, stendur: I 5. gr.: „Kennari skal gera sér far um að fylgjast sem bezt með börn- unum í þeim deildum, er hann liefir aðalumsjón með, einnig utan kennslustunda“. I 7. gr.: Kennari skal „ganga .... ríkt eftir því, að þau uppfylli sam- ' vizkusamlega þær kröfur sem lil þeirra eru gerðar“. Og í 8. gr.: „Það er skylda kennara, að gæta hinnar ítrustu samvizlcusemi í öllu starfi sínu og líta eftir því með skólastjóra, að börnin mæti á réttum tíma og fylgi öðrum reglum skólans og fyrirmæl- um,“ Það getur engu tvímæli orkað, að oss kennúrúm ber að lialda nemendum vorum til lilýðni við reglurnar frá 24. sept., engu miður en aðrar reglur skólanna og daglegs lífs — enda fremur, þar sem þessar reglur eru sér- staklega auglýstar í skólastofun- um. Oss barnakennurum er þetta engin nauðungarskylda,því að oss er fullljós sú alvarlega bætta, sem stafað getur — og jafnvel stafa hlýtur — af óþarf- lega nánu samneyti barna og unglinga við setuliðið. Hætla þessi er margþætt og hlýtur að fylgja erlendu setuliði hvar sem er, því meiri sem það er fjöl- mennara í hlutfalli við heima- fólk. En hún er elgki sérstök fvrir það brezka setulið, sem hér er nú. Eg skal aðeins nefna til glöggvunar nokkra þætti liætt- unnar: 1) Hætta á alvarlegum málspjöllum og glundroða á þjóðlegum háttum og menning- arverðmætum. — 2) Sijóvgun sjálfstæðiskenndar og meðvit- undarinnar um þá varnarað- stöðu, sem vér erum í gagnvart þvi erelnda valdi, sem ruðzt hef- ir inn í land vort, gengið á rétt vorn og skert sjálfstæði vort. — 3) Sljóvgun þeirrar heilbrigðu og mennilegu andstyggðar, sem íslenzk þjóð hefir á vopnabeit- ingu og blóðsúthellingum, og á hnefarétti til úrskurðar málum. 4) Hætta á tóbaksnautn ungra drengja, og þeirri stórfelldu lömun, sem þeim stafar af henni, hlýtur að stóraukast við samneyti þeirra við setuliðið. — 5) Það er alviðurkennt, hve mikill háski ungum stúlkum stafar af samneyti við setuliðið. Þessi háski hlýtur að stóraukast við það, að 12—13 ára stulku- börn venjist vinsamlegum sam- vistum við hermennina, t. d. með því að þiggja af þeim jóla- boð og appelsínur. Slík eru liér fyrstu sporin út á liála og und- anhalla hættubraut. Hér voru aðeins nefnd nokk- ur dæmi um bersýnilega hættu af sanmeyti við setuliðið. Mætti þar bæta mörgu við, svo sem bættunni og hneysunni af meira eða minna vísvitandi sníkjum barna og snöltri þeii-ra utan urn lierinn. — Við þetta bætist það svo, að vér barna- kennarar erum yfirleitt á einu máli um það, að ósamrimanlegt sé íslenzkum þjóðarmetnaði, og óviðeigandi,\að hafa vinsamleg afskipti um nauðsyn fram og þiggja hoð af erlendu herliði, sem er hér þeirra erinda að her- nema land vort, rjúfa hlutleysi vort og sjálfstæði og leiða yfir oss háska þeirrar styrjaldar, sem oss er óviðkomandi og vér höf- um andstyggð á. Vér viljum gjarna draga úr því, barhakenn- arar, eftir því sem í voru litla valdi stendur, að þjóð vor auð- mýki sig og kyssi á vöndinn — enda þólt vendinum kunni að vera beitt hér prúðmannlegar en einhversstaðar annarsstaðar. Degi eftir að jólalejdi barna- skóianna hófust urðum vér þess varir kennarar, að setuliðsmenn höfðu viðbúnað til jólaboða fvr- ir börn. Eitt blað bæjarins skýrði frá þessu, og annað flutti auglýsingu frá majór einum, þar sem hann bauð öllum börn- um i nágrenni við sig til jóla- skemmtunar í fiskhúsi einu til tekinn dag. Þetta olli.oss þegar nokkui’ri áhyggju. Oss var full- ljóst, að það var „óþarfa sam- neyti við hið erlenda setulið“, að sækja til þess jólaboð, og að ef nemendur vorir sóttu slík boð, brutu þeir með því regl- urnar fxá 24. sept. Oss var einn- ig ljóst, að eftir slík boð, skemmtun, góðgerðir og gjafir, yrði reglunum miklu brothætt- ara en áður — af þeim mundi leiða aukna umgengni og meiri kumpánaskap nemenda, drengja og stúlkna, við erlendu her- mennina — með aukinni þeirri hættu, sem að framan getur og inörgum er Ijós. Vér skildum að visu vel einstaklingstilfinningar hermannanna. En því eru glögg" takmörk sett, hvað gei'a rná þeirra vegna. Þeir eru liér ekki sem einstaklingar og menn, heldur sem heild: her, sem fremur aðgei'ðir í bága við helg- an og viðkvæman rétt vorn. Vér verðum að líta á hvert mál frá íslenzku þjóðarsjónarmiði, en hvorki fi-á sjónax’miði hersins né mannanna í herbúningunum. Þetta er einföld skylda vor, jafnt fyrir því, þó að mannúð vor freisti til annai's. — Þess vegna hélt Stéttarfélag barnakennara fund um málið, jafnskjótt og auðið var að afstaðinni jólalielg- inni, og samþykkti einum rómi ályktun, sem birt var samdæg- urs í útvarpinu. Þar segir aðeins, að fundurinn líti svo á, að skóla- börn brjóti framannefndar regl- ur, með því að sækja jóla- Skemmtanir til setuliðsins, og telji fundurinn því nauðsynlegt, að reglurnar séu gerðar kunnar aðstandendum skólabarna. Öll var samþykktin prúðmannlega orðuð og gersamlega áreitnis- laus. En nú gerast þau undur, að tvö blöð bæjarins ráðast á kenn- ara fyrir samþykkt þessa, með dylgjum og lirópyrðum. Alþýðu- blaðið segir: „Ef nokkrum er illa við nokkurn, .... þá er krökkunum illa við kennarana fyrir afskipti þeirra af her- mannaboðunum“. Morgunblað- ið talar um, að það sé ekki „á nokkurn hátt uppalandi fyrir æskulýðinn“, er kennarar „rausnuðust til þess að lýsa vanþóknun sinni á því að flokk- ar hins brezka setuliðs héldu jólatréssamkomur fyrir fátæk börn“. — Nú hafa kennarar livorki lýst þóknun né vanþókn- un á þessum né öðrum aðgerð- um setuliðsins, heldur aðeins vakið athygli á reglum sem kennslumálaráðuneytið liefir sett og eru í fullu gildi. Við þetta bætir svo blaðið liálfyrðadylgj- um um ]>að, að kennarar svikist um uppeldisstörf sín, talar um að þeir fremji „lítilmótlegar bannráðstafanir“ o. s: frv. — Blaðamaðurinn hellir úr skálum reiði sinnar yfir kennarana i framhaldi af umtali um „liættur þær, sem ungu kvenþjóðinni stafaði af hérveru hermann- anna“, og hann gerir ekki lítið úr þeirri hættu. Samt skammast hann yfir því, að einhver kunni að telja varliugavert að egna telpubörn lil að liefja kunnings- skap, sem hæglega getur orðið þeim fyrsla sporið út á liálan ís. Bæði greinarkornin, í Al- þýðu])laðinii 4. jan. og í Morg- unblaðinu 5. jan., eru skrifuð af svo götustrákslegri illgirni og lítilsvirðingu í garð kennara- stéttarinnar, að það hlýtur að vekja liina mestu furðu. Og oss kennurum, sem höfum ekki unnið annað til saka en að leit- ast við að gera skyldu vora sem opinberir starfsmenn og íslend- ingar, kom árás þessi mjög á ó- vart, og oss er ekki ljóst enn, livað hún táknar. En liitt er oss ljóst, að þótt hún sé oss hjart- anlega meinlaus sem mönnum og einstaklingum, þá getur hún liaft sín álirif. Árangur starfs vors, fremur en nokkurrar síétt- ar annarrar, er kominn undir því trausti og þeiri vinsemd, sem vér hljótum hjá alþýðu manna. Blaðaskrif til tortrygg- ingar eða ófrægingar stétt vorri, og lítilsvirðing á lienni í hlöð- um, getur því spillt starfi voru og torveldað það, meira en út yfir verður séð í bili. Þess vegna æskjum vér þess, að blaðamenn kynnist vinnubrögðum vorum og staðreyndum starfs vors, ef þeir vilja skrifa um það efni í blöð, en láti vera að beina að oss grjótkasti, eins og tveir í fram- annefndum greinastúfum og öðrum líkum. Geri eg þó ráð fvrir, að löngunarskortur vor till samskonar hernaðaraðgerða á móti, og vald þeirra yfir rúmi blaðanna, forði veikum glerhús- um þeirra við grjótkasti frá vorri hálfu. Aðalsteinn Sigmundsson. I.O.O.F. 1 = 12211787-= 9.II. Næturlæknir. Gunnar Cortes, Eiríksgötu n, sítni 2924. Næturverðir i Lyf jabúð- inni Iðunni og Reykjavikur apóteki. Bilslys. varð nióts við Hverfisgötu 40 í gær. Lítil telpa, fjögra ára, varð fyrir bíl, og þtírfti að flytja hana í sjúkrahús. Önnur umræða fjárhagsáætlunar bæjarins hófst á fundi bæjarstjórnar i gær. — Áframhald þessarar umræðu fer fram annan fimmtudag, en breyt- ingartillögur verða ræddar ábæjar- ráðsfundi á föstudag. Útvarpið í kvöld. Kl. 15.30 Miðdegisútvarp. 18.30 Islenzkukennsla, 2. fl. 19.00 Þýzku- kennsla, I. fl. 19.25 Hljómplötur: Orgellög. 20.00 Fréttir. 20.30 Út- varpssagan: „Kristín Lafrahsdótt- ir“, eftir Sigrid Undset. 21.00 Er- indi: Um skilning á tónlist, III: Pastoral-symfónían, eftir Beethov- en (með tóndæmum) (Páll Isólfs- son). er seldup á eftirtöldum stöðum Veitingastofunni, Laugavegi 72. Veitingastofunni, Laugavegi 46. Veitingastofunni, Laugavegi 45. Brauðsölubúðinni, Hringbraut 61. Skóvinnustofunni, Vitastíg 11. Ávaxtabúðinni, Týsgötu 8. Brauðsölubúðinni, Bergþórugötu 2. Mjólkurbúðinni, Miðstræti 12. Hótel Borg. Búðinni í Ivolasundi 1. Bókabúð Eimreiðarinnar, Aðalstræti 6. Konfektgerðinni Fjólu, Vesturgötu 29. Veitingastofunni, Vesturgötu 48. Brauðsölubúðinni, Bræðraborgarstíg 29. Verziuninni á Víðimel 35. SITT AF HVJERJU. — Mér sárleiðist þetta jafnrétt- isþvaöur! Hvað eigum við konur að gera viS kosningarrétt og alla þá vitleysu! Ekki baun! Nei, það, sem okkur vantar, er vald til þess, að láta setja karlana okkar í stein- inn, ef þeir sýna okkur óhlýðni og þrjósku! * Hún: Mig dreymdi í nótt, að. eg væri komin að falli. Er það ekki voðalegt? Hann: Verra var það, sem mig dreymdi. Mér þóttf þú vera orðin konan mín. — Ætlarðu nú að taka af mér giftingarhringinn, Hannibal minn, þegar eg er. dáin ? — Ójá — heldur hefi eg hugs- að mér það. Maður veit nefnalega aldrei hvað fyrir kann að koma. ★ — Eg lyfti glasinu og bið ykk- ur öll að drekka skál brúðhjón- anna. En jafnframt bið eg ykkur að óska þess með mér, að þau megi eiga marga brúökaupsdaga íramvegis! Þau lifi! Húrra! * — Eg er hræddur um, að nú fari að verða hver síðastur, elsk- an mín, sagði karlinn við kerling- una sína. Eg þoli ekki þessar kval- ir til lengdar. — Og kerlingin svaraði: — Eg er nú satt að segja stein- hissa á því, hvað þú hefir slarkað, ekki meiri peningur til líkama og sálar, en þú hefir verið. Og skil það þó. Það er náttúrlega déskot- ans letin, sem haldið hefir í þér líftórunni! * 1700 bjargað. Atlantic City í New Jersey, Bandaríkjunum, er mjög vinsæll baðstaður. Síðastliðið sumar björguðu baðverðir 1700 manns frá drúknun þarna. Aðeins ein manneskja druknaði. RAFTÆKJA VIÐGERÐIR VANQADAR - ÓDÝRAR SÆKJUM & SENDUM RAnAKMVCHHUN - RAPVIfiKJUN - VHJGEROAITOCA Tapazt hefir blár köttur frá Óðins- götu 11. Finnanda er heitið fundarlaunurn. Uþpl. í síma 3237. Ærkjöt framparlur 2.15 kgr. læri 2.45 kgr. saxað kjöt 3.50 kgr. (ökaupfélaqið Kjötbúðirnar. ________________ Þvottapottar fríttstandandi fyrirliggjandi. J. ÞORLÁKSSON & NORÐMANN. Bankastræti 11.-Sími 1280. ENSKT MUNNTÓBAK. Smásöluverð má eigi vera hæiTa en hér segir: WILLS’S L.S. TWIST í 1 lbs. blikkdósum (grænum) 16 stykkja, dósin á kr. 20.40, stk. á kr. 1.30. WILLS’S X TWIST í 1 lbs. blikkdósum (rauðum) 16 stykkja, dósin á kr. 20.40, stk. á kr. 1.30. Utan Reykjavíkur og Hafnarfjarðar má verðið vera 3% hærra vegna flutningskostnaðar. TÓBAKSEINKASALA RÍKISINS.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.