Vísir - 18.01.1941, Síða 2

Vísir - 18.01.1941, Síða 2
VÍSIR DAGBLAÐ Útgefandi: BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H/F. Ritstjóri: Kristján Guðlaugsson Skrifst.: Félagsprentsmiðjunni. Afgreiðsla: Hverfisgötu 12 (Gengi'ð inn frá Ingólfsstræti).. Símar 1 6 6 0 (5 línur). Verð kr. 2.50 á mánuði. Lausasala 10 og 25 aurar. Félagsprentsmiðjan h/f. Kemst þótt hægt farí. v Tf EMST þótt seint fari, liús- ** freyja,“ sagði Njáll við Bergþóru. Verður svo jafnan, að þeir vinna ekki þörfustu verldn, sem mest geisast. Ekk- ert heilræði á betur við um þessar mundir, en þetta stutta, gagnorða svar Njáls, sem lifað hefir á lungu þjóðarinnar í þús. und ár. Ef hver maður segði nú við sjálfan sig: kemst þótt hægt fari, þá mundi hér margt betur fara en á horfist. Margt bendir nú til þess, að mikil jafnvægis-röskun sé í að- sigi í fjármálum, viðskiptum og atvinnurekstri. Aldrei liafa eins miklir peningar verið í um- ferð og nú og gefur það til kynna, að almenningur hafi ó- venjumikið fé milli handa. Eft- irspurnin á þeim gæðum, sem þessir peningar geta keypt, vex dag frá degi. En það er tak- markað, sem hægt er að kaupa fyrir þetta fé og því beinist það áður en langt um líður í á- kveðna farvegi. Flestir eru þannig gerðir, að þeir vilja græða fé og nú er fjöldi manna óðum að öðlast þá trú, að nú sé tækifæri til að eignazt peninga á auðveldan hátt. Kapphlaupið um hin í- mynduðu verðmæti grípur um sig eins og farsótt. Það er eins og kapphlaup gullnemanna á staðinn, þar sem fundizt hefir gull. Hér beinist gullnema- straumurinn að útgerðinni og fiskkaupum, til sölu á erlend- um markaði. Hagnaðurinn á útflutningi fiskjar hefir verið mikill undanfarið og mikið fé hefir komið inn í landið fyrir þessa vöru. Nú er hitasótt gull- nemanna að stiga mönnum til höfuðsins. Þeir, sem peninga eiga, hjóða nú fram aleigu sína, ef þeir fá leyfi til að vera með í gullleitinni, þótt framlag þeirra sé ávöxtur æfistarfs og hingað til liafi þessa fjár verið gætt sem sjáaldur augans. En nú liggur það laust fyrir. Æfilöng varfærni athugulla manna verð_ ur að engu um Ieið og menn taka sóttina — gullsóttina. Þeir sem aldrei hafa hálægt útgerð komið aldrei fengizt við fisk- kaup, reyna nú að leigja skip eða kaupa skip eða koma sér á einhvern hátt inn i dansinn, í þeirri von að fá skjóttekinn gróða. Og faraldurinn grípur fleiri og fleiri. Þessu er eins Tariö og umferðarveiki, að hver smitar annan. Menn tapa dómgreind sinni og yarfærni, ekki aðeins í kapplilhupínu um hinn imynd- aSa gróða, heldur líka hvernig honum er varið af þeim, sem verða svo heppnir, að ná hon- um. Nú þegar er byrjað að bera á því, að farið er að bjóða afar hátt verð í fasteignir, verð sem að flestra dómi er hreinasta fjarstæða. Annað hvort er, að þeir, sem síkt gera, hafa glatað allri trú á peningagildið, eða að fjárráðin hafa truflað dóm- greind þeirra mjög áberandi. Vera má að hvorutveggja sé valdandi. En slikt hrjálæði er stórhættulegt fyrir þjóðfélagið og getur orðið þess valdandi, ¥5 ára í gær: Jóhannes Jóhannesson fyrverandi bæjarfógeti. að hið opinbera neyðist til að skaltleggja þá einstaklinga þunglega, sem nú græða fé, tii þess að koma í veg fyrir tryll- ingslega verðhækkun á fast- eignum og öðru fastafé. Þeir munu fæstir hera hezt- an hlut frá horði, sem mestan þátt taka í hringdansi þeim, sem nú er farið að bóla á hér. Þeir, sem hyggnir eru, gera sér að einkunnarorðum svar Njáls: kemst þótt hægt fari. Þeir pen- ingar eru beztir, sem menn hafa unnið fyrir í sveita síns and- lits. Flas verður aldrei til farn- aðar. Peningarnír gufa ekki svo auðveldlega upp sem margur hyggur, þótt þeir séu nú geymdir og vinni fyrir lágum vöxtum. Aftur kemur sá timi, að eftirspurn verður eftir reiðu- fé og aftur ná hlutirnir jafn- vægi. Þess vegna varðar nú mestu að fara rólega og geisa hvergi. Kemst þótt hægt fari. Happdrættið: Deil niða es íb- inp Hð ui liliim. ^JEFIN hafa verið út bráða- birgðalög um hækkun verðs á happdrættismiðum í Happdrætti Háskóla íslands. — Hækka þeir um þriðjung frá gamla verðinu. Verð ýj ársmiða verður því kr. 80.00 (var kr. 60.00), liálf- miða kr. 40.00 og fjórðungs- miða kr. 20.00. Mánaðarverðið hækkar auðvitað jafnframt í kr. 8.00 heilmiði, kr. 4.00 liálf- miði og kr. 2.00 fjórðungsmiði. Hækkun þessi er gerð vegna auldns kostnaðar við liapp- drættið, en það má ekki við rýrnun tekna, ef það á að geta staðið í skilurn, á greiðslum vaxta og afborgana á bygging- um. Jafnframt hefir verið ákveð- ið, að vinningar hækki um þriðjung úr því, sem nú er — verði alls á árinu kr. 1.4 millj., en voru áður kr. 1.05 millj. — Ekki er búið að ákveða, livern- ig einstakir vinningar verða hækkaðir. í gær varð Jóhannes Jóliann- esson, fyrverandi bæjarfógeti í Reykjavík, 75 ára að aldri. — Hann æskli þess, að blöðin gerðu ekkert veður út af þessu afmæli en þau fóru að óskum lians og steinþögðu. Jóhannes Jóhannesson lifir nú í virðulegri elli, — hafinn yfir lof og last, -— en þótt hann liafi um langan aldur staðið í fylkingarbrjósti, þar sem harð- ast var barizt og vopnagangur- inn niestur, hygg eg að ekki geti honum vinsælli mann meðal al- mennings, og svo liefir alla tíð verið. Jóhannes bæjarfógeti sést ekki oft á götum bæjarins, en þó gengur hann daglega með fornvini sínum, biskupnum fyr.. verandi dr. Jóni Helgasyni, og bera þeir báðir ellina með þeirri jirýði, að fá dæmi munu þess vera. -— Það dylst mönn- um ekki að þar, sem, Jóhannes bæjarfógeti fer, er höfðingi á ferð. Hann ber aðalssvip á haki og brjósti, en andlitið er mótað af mildi og drengskap, — og andlit livers mann er í rauninni spegill sálarinnar, þegar það er mótað rúnum langs lífsferils. Um það munu allir á einu máli, að ekki geti prúðari írnnn í öllu dagfari, en .Tóhannes hæj- arfógeta. Hann liefir ávallt ver- ið samur, hvort sem það var í sölum Alþingis, á slcrifstofu sinni eða í réttinum, meðan að hann gegndi störfum þar, sem dómari. I>ví gat liann sér ást- sæld með alþýðu manna, og nýtur nú óblandinnar virðing- ar livar sem hann fer. Hér skulu ekki rakin mörg og mikil störf Jóhannésar bæjarfó- geta Jóhannessonar. Hann lief- ir gegnt mestu trúnaðar- og virðingarstöðum, sem þjóðin hefir átt völ á, — þar sem valið liefir byggst á mannkostum og afburða hæfileikum, og allar þær stöður hefir liann skipað með prýði og svo sem bezt verður á kosið. Vísir vill í nafni almennings þakka þessu ágæta afmælis- barni unnin störf og árna hon- um allra heilla um ókomin ár. Þessar óskir eru í té látnar af jafnheilum hug, þótt þær komi einum degi of seint. Þar var að_ eins farið að óskum afmælis- barnsins sjálfs, og vonandi ræt- ast þær allar eins vel í fram- | tiðinní. | K. G. Farmanna- verjcfall. Klæðskerap semja. Um s.l. miðnætti hafði ekki náðst samkomulag í sjómanna- deilunni, og hófst því verkfall frá þeim tíma. Verkfallið hefir þó enga þýð- ingu eins og sakir standa, þar eð aðeins eitt kaupskip er í höfn hér og það er í viðgerð. Klæðskerameistarar og klæð- skerafélagið Skjaldborg héldu fund hvort í sínu lagi i gær- morgun og komust síðan sættir á í diilunni. Vinna hefst þó ekki fyrri en á mánudag. Skjaldborg fékk lítilsháttar hækkun á grunnkaupi og fulla dýrtíðaruppbót, auk annarra smávægilegra breytinga á gamla samningnum. Af verkfalli hárgreiðslu- stúlkna er ekkert nýtt að frétt. Áheit á Hallgrímskirkju í Saurbæ, af- hent Vísi: 5 kr. frá B. Áheit á Hjaltakirkju i Ölfusi, afhent Visi: 5 kr. frá K. L. Braðabirgðalog um 5 muj. kr. innlent lán. Ríkisstjórn íslands hefir gef- ið út bráðabirgðalög um heimild til þess að taka fimm milljóna króna innanlandslán, til þess að greiða eftirstöðvar enska láns- ins, sem tekið var 1930. Er þetta lán nú að eftirstöðv- um 510.400 sterlingspund. Má segja því upp í rnaímánuði, til greiðslu í nóvemlter. Bankar eiga nú allmikið fé í erlendum bönkum og fá litla vexti af því, og er því hagkvæmt að greiða ofangreint lán að fullu, ef ríkis- sjóði tekst að afla nægilegs fjár innanlands með betri vaxla- kjörum. En til þess að nægilegt fé verði handbært, þegar greiðsla á að fara fram, ef lán- inu verður sagt upp, er talið liyggilegast að taka þegar þetta 5 milljón króna lán innanlands. Lánið verður bráðlega boðið út, en ekki er endanlega búið að ákveða vextina. Það verður gert í samráði við Landsbank- ann. Verður lánið strax boðið út, þegar búið er að ganga frá þessu og öðrum skilmálum. Að svo komnu máli er ekki hægt að segja, hvort hægt verð- ur að greiða fleiri erlend lán, en eins og sakir standa, eru ekki fleiri laus. Frá R.K.Í. lif deilil á Issfirði. Fyrir nokkru var stofnuð Rauða Kross deild á ísafirði með 110 félögum. Deildin hefir sótt um að verða viðurkennd og innrituð sem deild i Rauða Kross íslands, með þeim skil- yrðum, skyldum og réttindum, sem þeim fylgja, og hefir stjórn Rauða Kross íslands nú veitt henni viðurkenningu á þann hátt, sem lög hans mæla fyrir. Stjórn deildarinnar skipa: Kristján Arinbjarnar héraðs- lælcnir form., Kjartan Jóhanns. son læknir varaform., Gunnar Andrew ritari, Sig. Þorkelsson gjaldkeri, Guðmundur Jónsson frá Mosdal, Sig. Dalmann, Jón A. Jóhannsson meðstjórnendur. Leikfélag Reykjavíkur sýnir Háa Þór annað kvöld og hefst sala aðgöngumiða kl. 4 í dag. Áheit á Strandarkirkju, afhent Vísi: 5 kr. frá H.L., 10 kr. (gamalt áheit) frá ónefndum. 5 kr. frá Petsamofara. Sundböll Reykjavíkur verður lokuð dagana 20.—26. þ. m. vegna hreingern- ingar.- NB. Þeir, sem eiga mánaðarkort eða eru á sundnámskeið- um fá það bætt upp er þeir missa úr við lokunina. — fiett uerziunarpléss cskisl strax í þéttbýlu íbúðarhverfi — má vera litið — eða veitinga- pláss við mikla umferðargötu. — Tilboð sendist til afgr. Vísis. Merkt: „Business“. SEINNA HEFTI AF Aíreksmannasögum (10. bindi) ur þ.jóðsögusafni Sigfúsar Sigfússonar frá Eyvindará, er komið út og fæst hjá bóksölum. Aðalútsala í BÓKAVERZLUN ÞORVALDAR BJARNASONAR, Hafnarfirði. - Rawplugs Borar og tappar fyrirliggjandi. VERZLtlNIlV BRIIVJA Laugaveg 28.-Sími 4160. ENSKT MUNNTÓBAK. Smásölnverð má eigi vera hærra en hér segir: WILLS’S L.S. TWIST í 1 lbs. blikkdósum (grænum) 16 st.ykk ja, dósin á kr. 20.40, stk. á kr. 1.30. WILLS’S X TWIST í 1 Ibs. blikkdósum (rauðum) 16 stykkja, dósin á kr. 20.40, stk. á kr. 1.30. Utan Reykjavíkur og Hafnarfjarðar má verðið vera 3% hærra vegna flutningskostnaðar. TÓBAKSEINKASALA RÍKISINS. Flutningnu* til Islandi. Reglnlegar hálfsmánaðar ferðir frá vesturströnd Bretlands til Reykjavíkur. 3—4 skip í förum. Sérstak- iega hagkvæm flutningsgjöld ef um stærri vörusend- ingar er að ræða. Tilkynningar um vörur sendist CullifoFd & Clapk Ltd. Bradleys Chambers, London Street, Fleetwood, eða Geip H, Zoéga Símar 1964 og 4017, er gefur frekari upplýsingar. til sölu. Minnsta útborgun kr. 30.000.00. Upplýsingar gefur Faiteigna og: verðbréfasalan (LÁRUS JÓHANNESSON Hrm..). Suðurgötu 4. Símar 4314 og 3294.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.