Vísir - 06.02.1941, Page 3

Vísir - 06.02.1941, Page 3
VISIR Kaupirðu góSan hlut, þá mundu hvar þú fékkst hann. Hvergi fá men n betri FÖT og FR AKK A en í ÁL AFOSS — efiel liomin í inörgriim litum. — Pyrsta flolílíis vinua. — Terrfiö við ik \j A. F © S £3 I^ingflaoltsstræti 2. Magnús Pálsson stýrimaður. ♦ Fæddur 19. nóvémber 1902. Dáinn 28. janúar 1941. I 1 Á morgun verður lil moldar borinn Magnús Pálsson stýri- maður á m.b. Vöggur, er drukknáði í Fleetwood 28. f. m., eins og áSur hefir verið skýrt frá í dagblöðunum. Magnús heitinn var rúmlega 38 ára að aldri, fæddur 19. nóvember 1902. Foreldrar hans voru Guð- rún Þorsteinsdóttir frá Kolls- holtshelli, Magnússonar, en faðir lians var Páll Guð- mundsson, er lengi var 4 Hrólf- skála á Seltjarnarnesi, Var Magnús þannig kominn af merku bændafólki í báðar ætt- ir. Hugur Magnúsar hneigðist snemma til sjómennsku. 1-1 ára gamall var bann lögskráður sem hjálparmatsveinn á einn af Kveldúlfstogurunum, og ári síðar, að eins 15 ára, var hann lögskráður sem 1. matsveinn á seglskipið Muninn, sem var 300 rúmlestir að stærð. Skip þetta sigldi með sallfisk til Spánar fyrir Kveldúlf, er átti skipið. Magnús var ýi þessu skipi um tveggja ára skeið, unz hann réðst sem háseti á togara, en á togurum stundaði liann lengst af sjómennsku. Var liann lengi á togurunum Hannesi ráðherra og Jóni Ólafs- syni. Árið 1925 lauk Magnús prófi við Sjómannaskólann i Reykjavík. Þar eð það átti eigi fyrir mér að liggja, er þetta ritar, að stunda sjómennsku, get eg eigi af eigin reynslu skrifað um Magiíús heitinn sem sjómann, en hinsvegar liefi eg, sökum at- vinnu minnar, kynnst mörgum sjómönnum, er voru samvistum við hann á sjónum. Allir þeir, er þekktu til hans, liafa liaft orð á því við mig, að betri félaga og samstarfsmann gætu þeir eigi kosið sér. En þennan dóm byggðu þeir á skyldurækni hans í hvívetna, dugnaði til allra verka, og góðu viðmóti. I hópi kunningja var hann glaður, og naut sín þá vel hin góða söng- rödd, er hann var gæddur. Kynni okkar Magnúsar heit- ins Yoru löng og náin, því þau hófust er við vorum drengir á bernskuskeiði, leikvöllur okkar var liinn sami, því stutt var milli húsa þeirra, er við bjugg- um í öll okkar æskuár. Þá hófst með okkur sú vinátta, er ekki dvínaði, þrátt fyrir þá breytingu sem varð á, er við urðum full- orðnir, að annar stundaði land- vinnu, en hinn sjómennsku. Við höfðum ávallt ánægju af að hittast í frístundum okkar, og fylgjast þannig hver með lifs- starfi liins. En nú er því lokið með hinu sviplega fráfalli þessa vinar míns, og er mér barst það til eyi’na komu mér í hug orð eins af skáldum vorum: „Ekki bregðast ragnarök römm eru sköpin gumum, enn þá feigs er opin vök ungum jafnt sem hrumum.“ Hinn fiskiauðugi Ægir, sem veitir oss svo mörgum beint og óbeint daglegt brauð, krefur margra fórna. Hætturnar vofa ávallt vfir þeim, sem sækja aflafé sitt úr sjónum og þá eigi sizt á vorum tímuin. Og þótt mönnum takist að komast lífs af yfir mestu hættusvæðin, þá eru þeir þó seldir undir hættuna, þó komnir séu i örugga liöfn, allstaðar mætir oss fallvaltleiki lífsins. Þetta liefir enn þá einu sinni orðið raunveruleikinn í íslenzku sjómannslífi með fráfalli Magn- úsar heitins. En hinar góðu og björtu minningar um hann lifa í hugum okkar vina lians, og ástvina, sem harma dauða hans. Magnús heitinn kvæntist 22. júní 1940 eftirlifandi konu, Agn- esi Gísladótlur og áttu þau eitt barn. Jónas Guðmundsson. Sundknattleiks- mótið. Ú rslitalceppni. Annað kveld fara fram tveir síðustu leikirnir í Sundknatt- leiksmótinu, sem farið. hefir fram að undanförnu. Úrslitaleikuriiin um meist- aratitilinn verður milli Ár- manns og A-sveitar Ægis, en auk 'þess keppir K. R. við B- sveit Ægis. Fyrrnefndu liðin eru mjög jöfn og má þar sér- staklega búast við skemmtileg- um leik. Þess má geta til gamans, að þegar kept var í þessari íþrótt í fyrra — sömu lið voru þá til úrslita — varð að framJengja leiknum tvisvar, vegna þess hve liðin voru jöfn. Sundknattleik okkar hefir farið drjúgum fram síðustu ár- in, vegna þess live aðstæður eru góðar. Ætti fólk að fjölmenna í Sundhöllina annað kveld. Þar þarf enginn að verða fyrir von- brigðum. Hlutvelta Ármanns. Glímufélagið Ármann hefir fengið undanþágu til þess að lialda hlutaveltu á sunnudag- inn. Er hlutaveltan haldin af skíðadeild og róðrardeild fé- lagsins til ágóða fyrir þær. Báðar þessar deildir liafa komið sér upp skálum við mik- inn tilkostnað, þar sem hefir verið miðstöð íþróttaiðkana þeirra. Á lilutaveltunni verður fjöldi ágætra muna og verður að láta nægja að tína fátt eitt til: Is- lenzk fornrit, Sólon Islandus, Ritsafn Jónasar. Hallgrímsson- ar, 500 krónur i peningum, fataefni, frakkaefni o. m. fl. Hjónaefni. Síðastliðinn laugardag opinber- uðu trúlofun sína ungfrú Hulda Ágústsdóttir frá Vestmannaeyjum og Leifur Lárusson, matsveinn frá ísafirði. Itcvyan Forðum i Flosaporti verður sýnd annað kvöld, og er nú hver að verða síðastur að sjá þessa revýu, af því að hún verður nú aðeins sýnd 2 —3 sinnum enn. Háskólafyrirlestur. Franski konsúllinn heldur fyrir- lestur í i. kennslustofu Háskólans kl. 8 í kvöld. Efni: Frönsk mál- aralist eftir 1800. Öllum heimill að- gangur. Inngangur um aðaldyr. Dr. Símon Jóh. Ágústsson flytur nokkra fyrirlestra í háskól- anum í hagnýtri sálarfræði, og eru þeir haldnir kl. 6.15 á þriðjudög- um i III. kennslustofu. Næstu fyr- irlestrar hans fjalla um auglýsing- ar, þýðingu þeirra og gildi, og eru fyrirlestrar þessir fróðlegir mjög, ekki sízt fyrir verzlunarmenn. Næturlæknir. Eyþór Gunnarsson, Laugav. 98, sími 2111. Næturvörður i Reykja- víkur apóteki og Lyfjabúðinni IÖ- unni. Leikfélag Reykjavíkur sýnir Logann helga í allra siðasta sinn í kvöld, og hefst sala aðgöngu- miða kl. 1 i dag. Útvarp.ið í kvöldi Kl. 18.30 Dönskukennsla, 1. fl. 19.00 Enskukennsla, 2. fl. 19.25 Erindi: Uppeldismál, IV (dr. Si- mon Jóh. Ágústsson). 20.00 Fréttir. 20.25 Lesin dagskrá næstu viku. 20.30 Erindi: Atvinnumálin 1940 (Ólafur Thors, atvinnumálaráðh.). 21.15 Hljómplötur: íslenzk lög. 21.25 Minnisverð tíðindi (Sigurð- ur Einarsson). 21.45 >jSéÖ Qg heyrt“. FITTINGS eykur öryggi, sparar vinnu. Hvert einasta stykki er nákvæmlega prófað. J. Þorlákison A: ^íorðmann Bankastræti 11. Nýkomið! Linoleum Flókapappi Dúkalím Þvottapottar Þakpappi J. Þorlákiion «& ^orðmann Bankastræti 11. Revýan 1940 ÁSTANDS-ÚTGÁFA leikið í Iðnó annað kvöld kl. 8l/2. Aðgöngumiðar seldir frá ld. 4—7 í dag og eftir kl. 1 á morgun. — Sími 3191. Stór iltsalst KÁPUR frá kr. 50.00. VETRARFRAKKAR frá kr. 95.00. SUMARKJÓLAR frá kr. 10.00. PRJÓNAVÖRUR með afslætli. BÚTASALA — silki og ullarefni. tata Ktisli! SipÉiMlm Laugavegi 20 A. — Sími: 3571. Dömusundfötin komin aftur. GEYSIR H.F. FATADEILDIN. Pappaumbixdir (pappakassar^ af öllum stærðum fást í FÉLAGSBÓKBANDINU — Ingólfsstræti 9. — Shni 3036. Nægar pappabirgðir. — Fljót afgreiðsla. Hýkomið: Borðhnífar — Matskeiðar og Gafflar — Deserthnífar og Gafflar — Brauðhnífar — Salathnífar — Steikar- hnífar og Gafflar — Sjálfblekungar ódýrir o. m. fl. K. Einapsson & Bjöpnsson , Bankastræti 11. - Leikfélag Reynjavfkup Loginn helgi SÝNING 1 KVÖLD KL. 8. Síðasta sinn. Aðgöngumiðar seldir eftir kl. 1 i dag. Börn fá ekki aðgang. Frönskunámskeið Alliance Francaise Fyrra námskeiðinu. er lokið og hefst hið síðara í miðjum febrúar. Námsstundir verða 20 og kosta 30 krónur. Væntanlegir þátt- takendur gefi |ig fram á skrifstofu forseta félagsins, Garða- stræti 17. — Simi 2012. AÐALFMDIJR 4f Félags símlagningamanna verður lialdinn 9. þ. m. kl. 2 e. h. i lesstofu F. !. S. i Landssíma- Iiúsinu. STJÓRNIN. Aðalfundur Fasteignaeigendafélags Reykjavíkur verður haldinn í Varðarhúsinu þrið.judaginn 11. febrú- ar kl. 8% e. h. DAGSKRÁ: 1. Aðalfundarstörf samkv. 15. gr. félagssamþykktanna* 2. Húsaleiguhækkun. 3. Önnur mál, sem löglega verða upp borin. Félagsmenn, fjölmennið. — Nýir félagsmenn geta innritazt í félagið á skrifstofu þess, Thorvaldsensstræti 6. — Sími: 5659. STJÓRNIN. Fliitiitifigui* til * lilands. Reglulegar hálfsmánaðar ferðir frá vesturströnd Bretlands til Reykjavíkur. 3—4 skip í förum. Sérstak- lega hagkvæm flutningsgjöld ef Um stærri vörusend- ingar er að ræða. Tilkynningar um vörur sendist Cullifopd & Clapk Ltd. Bradleys Chambers, London Street, Fleetwood, " eða Qeip H. Zoéga Símar 1964 og 4017, er gefur fre.kari npplýsinggr. Hjartkær móðir mín, Guðrún Guðmundsdóttir, andaðist að heimili sínu, Frakkastig 11, 5. þ..m. Fyrir mína liönd og annara vandamanna. Sveinn Ó. Guðmundsson. Móðir okltar, Finnboga Árnadóttir andaðist að Landspítalanum þriðjudaginn 4. febrúar. Sigríður Benediktsson. Guðrún Oddsdóttir. Konan min, Elín Sigríður Ólafsdóttip, andaðist í dag á heimili mínu, Hverfisgötu 75. Reykjavik, 5. febrúar 1941. ' Jón Sigurðsson.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.